Fréttablaðið - 12.10.2016, Qupperneq 42
Jafnrétti
Hanna Katrín
Friðriksson
skipar efsta sætið hjá
Viðreisn á Reykjavíkur-
lista suður
Fyrsti sjálfkeyrandi bíllinn með farþega í London
Undanfarið hefur verið rætt um hvers
konar peningamálastjórnun Ísland
ætti að hafa og það hefur meðal ann-
ars verið lagt til að Íslendingar taki
upp svokallað myntráð. Ég ætla ekki
að ræða það hér hvort það sé góð eða
slæm hugmynd. Ég vil frekar ræða
hvaða mælikvarða ætti að nota til að
velja „ákjósanlega“ eða öllu heldur
„góða“ peningamálastjórnun.
Valið á peningamálastjórnun verð-
ur að vissu leyti að byggjast á reynslu.
Við getum til dæmis ekki sagt að óat-
huguðu máli að fljótandi gengi sé
æskilegra en fastgengiskerfi við allar
aðstæður, þótt sum okkar hneigist til
að álíta að breytileiki fljótandi gengis
sé almennt æskilegri en fastgengis-
kerfi.
Hins vegar held ég að við getum
ákvarðað fyrirfram vissar forsendur
fyrir því hvaða niðurstöðu við viljum
sjá ákveðin peningamálakerfi fram-
kalla.
Almennt held ég að helsta mark-
mið peningamálastjórnunar verði
að vera að tryggja mesta hugsanlega
stöðugleika.
Ég sé stöðugleika sem ástand þar
sem peningamálastjórnunin skekkir
almennt ekki dreifingu vöru, vinnu
og fjármagns á milli geira eða á milli
mismunandi tímabila. Þannig tel ég
að fyrirmyndarstjórn peningamála
sé sú sem við getum hugsað um sem
„hlutlausa“ í þeim skilningi að hún
hafi ekki áhrif á hlutfallsverð í hag-
kerfinu.
Enn fremur vil ég halda því fram að
góð peningamálastjórnun sé gagnsæ,
fyrirsjáanleg og auðskilin fyrir
almenning. Þannig eru reglur æski-
legri en geðþótti sem almenn regla.
Og loks ætti peningamálastjórn-
unin að vera sterk. Það felur í sér að
hættan á misnotkun eða stjórnmála-
væðingu peningakerfisins ætti að
vera eins lítil og mögulegt er. Þetta
er auðvitað vel þekkt vandamál á
Íslandi. Þannig gæti viss stjórnun
framkallað góða niðurstöðu í dag, en
ef líklegt er að sama stjórnun verði
yfirtekin af vissum stjórnmálalegum
hagsmunum á morgun þá getum við
ekki sagt að stjórnunin sé „góð“.
Enn fremur tryggir sterk peninga-
málastjórnun „góða“ útkomu við
mismunandi hnykki í hagkerfinu,
breytingar á stjórnmálaástandi eða
jafnvel breytingar á stjórnmála-
stofnunum. Þess vegna er ekki hægt
að segja að stjórnun sé sterk ef hún
stendur sig aðeins vel þegar um eftir-
spurnarhnykk er að ræða, en ekki
framboðsskell, eða er of viðkvæm
fyrir pólitískri óvissu og erfiðleikum.
Loks vil ég halda því fram að sterk
peningamálastjórnun sé eins lítið háð
mannlegri dómgreind og gögnum og
hægt er. Þannig getum við ímyndað
okkur fullkomna peningamálastjórn-
un sem tryggir afar mikinn stöðug-
leika, en henni gæti aðeins Alan
Greenspan framfylgt. Slík stjórnun
væri sannarlega ekki sterk.
Niðurstaðan er sú að góð peninga-
málastjórnun tryggir mikinn stöðug-
leika, er gagnsæ, fyrirsjáanleg og er
hagfræðilega, pólitískt og stofnana-
lega sterk.
Engin peningamálastefna er líkleg
til að vera fullkomin og það er senni-
legt að málamiðlanir verði gerðar
þegar við veljum stjórn peninga-
mála. Þess vegna þurfum við, þegar
við ræðum um upptöku myntráðs
á Íslandi, að ræða hvort myntráðið
myndi uppfylla skilyrðin sem ég hef
rætt hér að ofan. Og við þurfum að
ræða aðra valkosti líka – til dæmis
hvort hætta skuli alfarið að nota krón-
una eða til dæmis að halda áfram að
hafa fljótandi gengi en breyta mark-
miðum Seðlabankans í til dæmis
markmið um nafnlaun eða nafnvirði
vergrar landsframleiðslu.
Í átt að „góðri“
peningastjórnun fyrir Ísland
Lars Christensen
alþjóðahagfræðingur
Niðurstaðan er sú
að góð peninga-
málastjórnun tryggir mikinn
stöðugleika, er gagnsæ,
fyrirsjáanleg og er hagfræði-
lega, pólitískt og stofnana-
lega sterk.
Tvær 15 ára dætur mínar eru að
lesa fyrir próf. Þær leggja hart að
sér, vitandi að það er leiðin til
þess að komast inn í framhalds-
skóla að eigin vali á næsta ári.
Þær vita líka að vinsælustu fram-
haldsskólarnir eru með kynja-
kvóta. Stelpur þurfa að hafa
hærri einkunnir en strákar til að
komast inn. Þar sjá menn verð-
mætið í því að jafna stöðuna.
Dætur mínar og jafnöldrur
þeirra hafa hins vegar fæstar
áttað sig á því að þegar þær koma
út á vinnumarkaðinn að nokkr-
um árum liðnum bíður þeirra að
óbreyttu heimur þar sem fram-
lag þeirra er metið 10% lægra en
framlag strákanna.
Íslenskt samfélag þarf á því að
halda að við búum svo um hnút-
ana að ungar stúlkur þurfi ekki
að sætta sig við framtíð þar sem
þær eru verðlagðar sem 90%. Við
verðum að útrýma þessum óverj-
andi kynbundna launamun sem
varpar risaskugga á þann góða
árangur sem hefur náðst í jafn-
réttismálum hér á landi.
Ég er stolt af því að hafa,
ásamt félögum mínum í Við-
reisn, átt þátt í að kynna tæki
til þess að rétta hér af kúrsinn
svo um munar. Við munum láta
það verða eitt af okkar fyrstu
verkum á þingi að leggja fram
þingmál sem mælir fyrir um að
fyrirtæki og stofnanir með fleiri
en 25 starfsmenn þurfi að gang-
ast árlega undir jafnlaunavottun
sem yrði framkvæmd samhliða
gerð ársreikninga. Slík jafnlauna-
vottun er hlutlaus staðfesting
þess að hjá viðkomandi fyrirtæki
eða stofnun er ekki kynbundinn
launamunur.
Fyrirtæki með jafnlaunavottun
eru eftirsóknarverðir vinnu-
staðir. Önnur fyrirtæki þurfa
að hysja upp um sig ef þau ætla
að vera samkeppnishæf. Starfs-
fólk veit að vottunin gefur fyrir-
heit um að laun eru greidd út frá
málefnalegum forsendum og að
allt starfsfólk er metið að verð-
leikum.
Það styttist í kvennafrídaginn.
Er ekki upplagt að nota tæki-
færið til að minna á að við erum
öll 100%?
90% stúlkur?
Tæknimenn á gangstétt skoða niðurstöður úr prufukeyrslu en í gær runnu sjálfkeyrandi bílar með farþega um Milton Keynes í Norður-London.
Var þetta í fyrsta sinn sem sjálfkeyrandi bílar óku með farþega um stræti Bretlands. Prufukeyrslan gæti rutt brautina fyrir innleiðingu sjálfkeyrandi
bíla í Bretlandi. Bretland eins og fleiri lönd er nú að skoða möguleikann á innleiðingu þeirra. Fréttablaðið/aFP
Það er allt klárt, þú ert í góðu stuði
með nýja markmiðið þitt og skot-
helda áætlun um það sem fram
undan er. Þér líður vel og það hrísl-
ast um þig unaðsstraumur þegar
þú hugsar til þeirrar stundar þegar
markmiðinu er náð.
En – einmitt þá fer hún að gera
vart við sig, röddin andstyggilega,
sem mörg okkar þekkja svo vel. Hún
hefur ekki hátt til byrja með en fljót-
lega verður hún háværari og fer að
argast í okkur, draga úr okkur, segja
okkur að við þurfum ekki að gera
þetta í dag, séum bara ekki nógu vel
upplögð í dag, eitthvað svo dimmt
í dag, nógur tími – verður betra á
morgun …
Það er eitthvað óskiljanlegt við
þessa seiðandi rödd og þegar við
reynum að skilja hana þá koma
bara upp í hugann orð eins geðveiki
og sjálfstortíming – í besta falli leti.
Hvað er í gangi?
Þú vilt virkilega ná markmiðinu
sem þú settir, það flæddi um þig eld-
móður og tilhlökkun að takast á við
verkefnið þegar þú sast og skrifaðir
þetta allt niður – en þessi rödd talar
þig ofan af hverri aðgerðinni á fætur
annarri og telur þér trú um að þú
munir gera þetta á morgun, á morg-
un, á morgun. Í framhaldinu ferðu
að efast um markmiðið, er þetta
virkilega það sem ég vil og að lokum
verður niðurstaðan sú að þetta hafi
verið vitlaust markmið!
Ýmsir sálfræðingar halda því fram
að frestun sé bara hluti af mann-
legu eðli, að leita stöðugt að þægi-
legri og fyrirhafnarminni lífsháttum
og sennilega er mikið til í því – en
það þarf ekki að vera þannig. Ef við
eigum okkur drauma og markmið þá
viljum við ekki að þægindaramminn
okkar sé svo þröngur að hann kæfi
þau í fæðingu.
Ég hef velt þessu mikið fyrir mér
og þegar ég lít til baka held ég að ég
hafi verið illa haldin af frestunarár-
áttu fram undir fertugt. Á þessum
tíma var röddin allsráðandi í mínu
lífi og það var ekki eins og ég vissi
ekki af henni – ég velti henni stöð-
ugt fyrir mér og upplifði hana sem
hluta af mér eins og fætur og nef, ég
var bara svona óheppin að fá þessa
blessuðu rödd í vöggugjöf, hugsaði
ég og horfði á alla hina sem þustu
áfram á fljúgandi ferð og þurftu ekki
að kljást við röddina.
Mín sannfæring
Eftir að hafa tekist að einhverju leyti
að ráða niðurlögum þessarar and-
styggilegu raddar þá er fátt sem ég er
meira sannfærð um en að eftirtalin
fjögur atriði ráða mestu um árangur
okkar í viðureigninni við röddina:
Hugarró, þjálfun, hvíld og rútína –
og finni nú hver sitt …
Þú munt líklega ekki má markmiðinu þínu
Hin hliðin
Martha Árnadóttir
framkvæmdastjóri
Dokkunnar
ég er stolt af því að hafa, ásamt
félögum mínum í Viðreisn, átt þátt í
að kynna tæki til þess að rétta hér af
kúrsinn svo um munar.
1 2 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M I Ð V I k U D A G U r10 markaðuriNN
1
2
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
E
3
-E
E
5
4
1
A
E
3
-E
D
1
8
1
A
E
3
-E
B
D
C
1
A
E
3
-E
A
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K