Fréttablaðið - 04.08.2016, Blaðsíða 2
Veður
Fremur hæg norðlæg eða breytileg
átt í dag. Skýjað með köflum og víða
rigningarskúrir, einkum síðdegis. Hiti 8
til 15 stig. sjá síðu 32
Kynvillt Klambratún
Hinsegin íþróttafélagið Styrmir stóð í gær, þriðja árið í röð, fyrir gleði og grilli undir berum himni á Klambratúni í Reykjavík í tilefni Hinsegin daga.
Meðal annars var keppt í reiptogi, pokahlaupi, blaki og boltaíþróttum þar sem hinsegin félög öttu kappi. Fréttablaðið/Eyþór
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
• Austurströnd 14
• Dalbraut 1
• Hringbraut 35
• Fálkagötu 18
• Lönguhlíð
PREN
TU
N
.IS
NÝBAKAÐ
BRAUÐ
ALLA DAGA
.......................................
stangveiði Miklir þurrkar undan-
farnar vikur valda laxveiðimönnum
miklum erfiðleikum. Rennsli í ám
vestanlands og norðan hefur minnk-
að gríðarlega síðan veiðin hófst í júní.
„Það hefur bara ekki komið dropi
úr lofti sem hægt er að tala um í einar
sjö vikur. Eðlilega hefur þetta áhrif,
það segir sig sjálft. Það sem hefur
verið að veiðast er yfirleitt á þunna
tauma og smáflugur,“ segir Einar
Sigfússon, veiðileyfasali í Norðurá í
Borgarfirði og Haffjarðará á Mýrum.
Um það leyti sem veiði hófst í
Norðurá, sem var 4. júní að þessu
sinni, mældist vatnsrennsli í ánni
um 40 rúmmetrar á sekúndu sam-
kvæmt vef Veðurstofunnar. Nýjustu
mælingar sýna hins vegar að rennslið
er komið undir 4 rúmmetra, sem sagt
orðið tíu sinnum minna.
Einar neitar því ekki að veiðimenn
hafi verið dálítið daprir vegna þessa.
Menn láti hins vegar ekki hugfallast.
„Það þýðir ekkert annað en að bera
höfuðið hátt því ljósi punkturinn er
að fiskurinn er til staðar,“ segir Einar.
„En þetta er búið að hafa þau árif
síðustu fjórar vikurnar að það hefur
dregið stöðugt úr tökum, alls staðar
á öllu Vestur- og Norðurlandi. Í að
minnsta kosti sjö vikur hefur verið
sól og blíða og minnkandi vatn og
súrefnissnautt. Það gerir að verkum
að takan lækkar.“
Þessi staða er ekki ný en Einar segir
öllu muna að þrátt fyrir allt sé tals-
verður fiskur í flestum ám. „Þannig að
það er talsvert mikið af fiski í ánum,
miklu betra ástand heldur en 2014
til dæmis,“ segir hann. Að vísu hafi
sterkar smálaxagöngur sem menn
hafi átt von á í kringum 20. júlí ekki
skilað sér. „Gamlir Norðurármenn
eru alveg á því að þessi fiskur sé enn
þá bara niðri í Hvítá og Straumunum
og eigi eftir að koma inn þegar meira
vex í.“
Í fyrrasumar veiddust 2.886 laxar í
Norðurá. Það sem af er tímabilinu nú
hafa veiðst tæplega eitt þúsund fiskar.
Enn er nóg að hafa því þúsundir fiska
hafi farið um teljarann við fossinn
Glanna, að sögn Einars.
„Þess vegna er svo svekkjandi að
það skuli ekki vera vatn til að ná
honum upp. En einn góðan veðurdag
kemur gusa og þá eru þeir sem verða
til staðar þeir heppnu,“ fullyrðir Einar
og bendir á að ólíklegt sé að haust-
rigningar bregðist. Þá muni hluti af
þeim fiski sem sé inni á dal færa sig
niður ána aftur. „Þá dreifist þetta aftur
um alla ána.“
Haffjarðará er einnig á snærum
Einars sem kveður svipað gilda um
hana. „Það er mikill fiskur í henni
og stundum koma þokkalegir dagar
en það vantar þetta ferska og súr-
efnisríka vatn,“ segir Einar sem mældi
vatnshitastigið í bæði Norðurá og
Haffjarðará fyrir um viku.
„Þá var Norðuráin 20 gráður og
Haffjarðaráin 22 gráður. Þetta er bara
orðin svona hægeldun á fiskinum,“
segir hann. Hitastig á bilinu 8 til 11
gráður telji hann vera ákjósanlegt.
„Það er til kenning hjá Bretum um að
þegar hitastig vatnsins sé orðið hærra
en lofthitinn þá geti menn gleymt
þessu.“ gar@frettabladid.is
Dapurt yfir mönnum í
vatnslitlum laxveiðiám
Vatnsrennsli í flestum ám á Vestur- og Norðurlandi er nú víðast afar lítið miðað
við stöðuna í upphafi veiðitímabilsins. Í Norðurá í Borgarfirði er mikið af laxi
en hann tekur illa enda er tífalt minna vatn í ánni en við opnun og sól skín glatt.
náttúra Nokkrir stórir jarðskjálftar
mældust í Bárðarbungu í gær. Sá
stærsti mældist 3,9 og varð í norðan-
verðri Bárðarbunguöskjunni um
klukkan fjögur í gær.
Skjálftinn var með þeim stærstu
sem mælst hafa frá goslokum í
Holuhrauni. Annar skjálfti varð
á svipuðum slóðum um hádegi í
gær en hann mældist 3,0 að stærð.
Alls voru sex skjálftar sem mældust
stærri en tveir á svæðinu í gær.
Skjálftarnir í gær fylgja sömu
þróun og undanfarna mánuði en á
þeim sautján mánuðum sem liðnir
eru frá goslokum í Holuhrauni hafa
fjölmargir jarðskjálftar orðið. – ngy
Stór skjálfti í
Bárðarbungu
Bandaríkin Barack Obama, for-
seti Bandaríkjanna, hefur oftast
allra forseta náðað dæmda menn.
Einnig hefur hann náðað fleiri en
síðustu níu forsetar Bandaríkjanna
samanlagt. Þetta kemur fram á vef
Hvíta hússins. Þá segir að Obama
hafi barist fyrir réttlátara réttarkerfi
síðan hann var settur í embætti.
Obama hefur náðað 562 menn og
konur, þar af 197 einstaklinga sem
áttu yfir höfði sér dauðarefsingu.
Meirihluti þeirra sem forsetinn
hefur náðað voru fíkniefnabrota-
menn. Síðast beitti Obama náð-
unarvaldi sínu í gær og náðaði 214
einstaklinga sem dúsa í alríkisfang-
elsum í Bandaríkjunum.
Sá forseti sem náðað hefur næst-
flesta, af síðustu níu forsetum
Bandaríkjanna, er Lyndon B.
Johnson sem náðaði rúmlega tvö
hundruð.
Þeir George W. Bush og George
H.W. Bush eru þeir forsetar Banda-
ríkjanna sem náðuðu fæsta.
Forseti Bandaríkjanna hefur vald
til að náða dæmda sakamenn, með
þeirri undantekningu að hann getur
ekki náðað þá forseta, varaforseta
og embættismenn sem þingið hefur
ákært. – ngy
Náðað 562
refsifanga
Forsetinn hefur vald til að náða dæmda
sakamenn. Fréttablaðið/aFP
Einar Sigfússon reiknar með að langvinnir þurrkar taki enda. Fréttablaðið/DaníEl
Þá var Norðuráin 20
gráður og Haffjarð-
aráin 22 gráður. Þetta er bara
orðin svona hægeldun á
fiskinum.
Einar Sigfússon veiðileyfasali
197
einstaklingar af þeim 562
sem Obama Bandaríkjafor-
seti hefur náðað áttu yfir
höfði sér dauðarefsingu.
Stærsti skjálftinn mæld-
ist 3,9 og varð í norðanverðri
Bárðarbunguöskjunni.
4 . á g ú s t 2 0 1 6 F i M M t u d a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð
0
4
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
2
9
-3
7
A
0
1
A
2
9
-3
6
6
4
1
A
2
9
-3
5
2
8
1
A
2
9
-3
3
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
3
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K