Fréttablaðið - 04.08.2016, Page 4

Fréttablaðið - 04.08.2016, Page 4
MenntaMál Ófaglærðum kennur­ um í grunnskólum landsins fjölgar að nýju en þeim fækkaði mikið eftir hrun. Hlutfall ófaglærðra kennara er mjög misjafnt eftir landsvæðum og skera Vestfirðir og Suðurnes sig úr. Alls fjölgar um sextíu ófaglærða á landinu öllu milli áranna 2013 og 2015. Þar af er fjölgunin 57 á höfuð­ borgarsvæðinu og á Suðurnesjum en aðeins fjölgar um þrjá ófaglærða á öllum hinum svæðum landsins. Þetta kemur fram í tölum Hagstof­ unnar sem birtar voru í gær. Helgi Arnarson, fræðslustjóri Reykjanesbæjar, stærsta sveitar­ félagsins á Suðurnesjum, segir sama vera að gerast nú og þegar atvinnuleysi var í lágmarki fyrir hrun. Menntaðir kennarar sæki í önnur vel launuð störf og því sé erfitt að manna kennarastöður með menntuðum kennurum á meðan. „Hér á Suðurnesjum erum við auð­ vitað með mjög stóran vinnustað sem Leifsstöð er og á meðan ferða­ þjónustan blómstrar og völlurinn stækkar og stækkar virðist alltaf vera pláss fyrir vel launuð störf þar sem menntun og hæfni kennara nýtist mjög vel,“ segir Helgi. Kjartan Már Kjartansson, bæjar­ stjóri Reykjanesbæjar, segir bæjar­ félagið þurfa að skoða tölur Hag­ stofunnar. „Þetta er auðvitað eitt af því sem við skoðum reglulega og munum halda því áfram. Markmiðið er auðvitað að sem flestir kennarar séu menntaðir í faginu,“ segir Kjart­ an Már. Hafa ber í huga að Suðurnes eru hér öll undir og því gæti fjöldinn verið mismunandi milli bæjarfélaga innan landshlutans. Hæst hlutfall ófaglærðra kennara er á Vestfjörðum. Arna Lára Jóns­ dóttir, formaður bæjarráðs Ísa­ fjarðar bæjar, segir það ekki nýjar fregnir. „Sökum landfræðilegrar stöðu Vestfjarða hefur ávallt verið erfitt að manna stöður hér. En eftir að Háskólinn á Akureyri fór að bjóða upp á fjarnám í kennara­ námi varð bylting hjá okkur þannig að kennarar gátu sótt menntun án þess að þurfa að flytja búferlum. Það breytti miklu fyrir okkur og mennt­ unarstig kennaranna okkar,“ segir Arna Lára. sveinn@frettabladid.is 2013 201525% 20% 15% 10% 5% ✿ Hlutfall ófaglærðra kennara í grunnskólum landsins 1 Höfuðborgarsvæði 2 Suðurnes 3 Vesturland 4 Vestfirðir 5 Norðurland vestra 6 Norðurland eystra 7 Austurland 8 Suðurland1 2 3 4 5 6 7 8 Lægra verð í Lyfju Lyaauglýsing Afslátturinn gildir af: 204 stk. pökkum Öllum bragðtegundum Öllum styrkleikum 15% afsláttur Nicotinell-204-15%-5x10-Lyfja copy.pdf 1 2.8.2016 11:04 leiðrétting Fram kom í Fréttablaðinu þann 2. ágúst að hátíðin Breiðholt Festival væri haldin sunnudaginn 7. ágúst. Hið rétta er að hátíðin er haldin sunnudaginn 14. ágúst. Ófaglærðum kennurum hefur fjölgað mest á Suðurnesjum Ófaglærðum kennurum í grunnskólum landsins fjölgar að nýju. Sautján prósent grunnskólakennara á Suðurnesjum hafa ekki menntun í faginu og hefur hlutfall þeirra tvöfaldast á tveimur árum. Vestfirðir með hlutfallslega flesta ófaglærða. Lítið atvinnuleysi talið skýra hversu erfitt sé að fá menntaða kennara til starfa. Mismunandi er eftir landshlutum hve hátt hlutfall faglærðra kennara vinnur í grunnskólum sveitarfélaganna. Fréttablaðið/VilhelM Sökum landfræði- legrar stöðu Vest- fjarða hefur ávallt verið erfitt að manna stöður hér. Anna Lára Jónsdóttir, formaður bæjar- ráðs Ísafjarðarbæjar SaMgönguMál Metfjöldi bifreiða fór yfir Víkurskarð í júlímánuði á þessu ári þegar ríflega hundrað þúsund ferðir voru farnar um skarðið. Valgeir Bergmann, framkvæmda­ stjóri Vaðlaheiðarganga, segir þessi tíðindi ánægjuleg og geta styrkt tekjugrundvöll ganganna. „Það hefur verið stígandi í umferðarmagni um Víkurskarð allt frá því við hófum gangagröftinn. Við höfum ekki uppfært tekju­ líkan okkar neitt og við munum ekki skoða þessar tölur gaumgæfi­ lega fyrr en við sláum í gegn,“ segir Valgeir. Miðað við spár um fjölda ferða yfir Víkurskarðið sem lágu til grundvallar ákvörðun um að ráð­ ast í þessa framkvæmd er ljóst að aukning umferðar slagar í það sem bjartsýnustu spár gerðu ráð fyrir. Fjöldi erlendra ferðamanna hefur aukið umferð á þjóðvegum landsins töluvert og gert er ráð fyrir að sú þróun haldi áfram á komandi árum. – sa Metfjöldi bifreiða í einum mánuði um Víkurskarð tekjulíkan Vaðlaheiðarganga hefur ekki enn verið uppfært. Fréttablaðið/auðunn Sjávarútvegur Íslenskur fiskur verður á borði í mötuneyti íþrótta­ manna á Ólympíuleikunum í Rio de Janeiro í Brasilíu í ár. Fiskurinn sem kemur frá Íslandi er saltaður þorskur frá sjávarútvegsfyrirtækinu Vísi hf. í Grindavík. „Þetta er náttúrulega gríðarlega mikil viðurkenning fyrir okkur og það starf sem hefur verið stundað hér um árabil. Jafnframt er þetta staðfesting á því að við höfum verið á réttri leið í gæðastarfi hér hjá Vísi,“ segir Pétur H. Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf., en Ólympíunefndin ákvað árið 2012 að allur fiskur úr veiðum á villtum fiski skildi vera vottaður samkvæmt Marine Stewardship Council staðli um sjálfbærar og umhverfisvænar fiskveiðar. Pétur segir að nú verði vörur Vísis sýnilegri en áður út um allan heim og að það endurspegli hreinleika og gæði íslenskra afurða. – sa, ngy Íslenskur fiskur á leikunum í Ríó MenntaMál Ungmennafélag Íslands hefur áhuga á að stofna og reka lýð­ háskóla á Laugarvatni í húsnæði íþróttakennaraháskólans. Áhuginn kviknaði eftir að Háskóli Íslands ákvað að flytja námið frá Laugarvatni til Reykjavíkur en gangi það eftir fækkar opinberum störfum í Bláskógabyggð. Í tilkynningu félagsins segir að með stofnun lýðháskóla á Laugar­ vatni sé spornað við fækkun starfa auk þess sem valmöguleikum náms­ manna að loknu stúdentsprófi fjölgi. – ngy Vilja lýðháskóla á Laugarvatni Það hefur verið stígandi í umferðar- magni um Víkurskarð allt frá því við hófum gangagröft- inn. Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga 4 . á g ú S t 2 0 1 6 F i M M t u D a g u r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð 0 4 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :2 7 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 2 9 -4 B 6 0 1 A 2 9 -4 A 2 4 1 A 2 9 -4 8 E 8 1 A 2 9 -4 7 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.