Fréttablaðið - 04.08.2016, Blaðsíða 8
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi
Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“
á Facebook
Mercedes-Benz B-Class
Þægindi og öryggi í fyrirrúmi
Í Mercedes-Benz B-Class situr þú hærra en í flestum fólksbílum sem
auðveldar aðgengi og bætir yfirsýn. Lágur mengunarstuðull tryggir
lægri bifreiðagjöld og um leið frábært verð fyrir bifreið í þessum
gæðaflokki og sparneytnin heldur rekstrarkostnaðinum í lágmarki.
Þessi vinsæli bíll er framhjóladrifinn og er einnig fáanlegur með
4MATIC fjórhjóladrifi. Hann fæst sjálfskiptur eða beinskiptur og er í
boði með bensín-, dísil- og metanvélum.
B 160 með 7 þrepa sjálfskiptingu
Verð frá 4.760.000 kr.
Eyðir frá 4,0 l/100 km í blönduðum akstri
N
RED
Afsláttur a
f
MÚRBÚÐA
RVERÐI
– það er g
ott verð!
Tækjadagar
25%
AFSLÁTT
UR
25%
AFSLÁTT
UR
25%
AFSLÁTT
UR
25%
AFSLÁTTUR
25%AFSLÁTTUR
25%
AFSLÁTT
UR
25%AFSLÁTTUR
20%
AFSLÁTTUR
Neytendur athugið! Múrbúðin
selur al lar vörur s ínar á lágm
arksverði fyr ir a l la , a l l taf . Ge
rið verð- og gæðasamanburð
!
Tækjadagar í Múrbúðinni
Tilboðsbæklingur
Kletthálsi 7, Reykjavík
Opið virka daga kl. 8-18, lau. 10-16
Fuglavík 18, Reykjanesbæ
Opið virka daga kl. 8-18
Tyrkland „Við höfum miklar
áhyggjur,“ segir Jannis Mouzalas,
innflytjendaráðherra grísku stjórn-
arinnar, í viðtali við þýska dagblaðið
Bild. „Í öllu falli þurfum við plan B.“
Hann er þarna að tala um samn-
inginn sem Evrópusambandið gerði
fyrr á árinu við Tyrkland um flótta-
fólk. Mikil óvissa hefur frá upphafi
ríkt um þennan samning, og sú
óvissa hefur magnast verulega eftir
að stjórnarbyltingartilraun fór út
um þúfur í Tyrklandi í síðasta mán-
uði.
Samningurinn gengur út á það að
Tyrkir taki aftur við flóttafólki frá
Sýrlandi sem reynir að komast frá
Tyrklandi til Grikklands og þaðan
áfram til Evrópu. Í staðinn hét Evr-
ópusambandið því að greiða Tyrkj-
um milljarða evra og sjá til þess að
Tyrkir þurfi ekki vegabréfsáritun til
að ferðast til ESB-landa.
Tyrki er nú tekið að lengja eftir
því að ESB aflétti kröfunni um
vegabréfsáritun. Mevlut Cavusoglu,
utanríkisráðherra Tyrklands, krefst
þess að það verði gert ekki síðar en
í október. Að öðrum kosti verði ekk-
ert frekar úr þessum samningi sem
gerður var í mars.
Sigmar Gabriel, varakanslari
Þýskalands og leiðtogi þýska Sósíal-
demókrataflokksins, vísar slíkum
þrýstingi frá Tyrkjum á bug: „Þýska-
land eða Evrópa má alls ekki láta
kúga sig.“
Mannréttindafulltrúi þýsku
ríkisstjórnarinnar, Bärbel Kofler,
segir varhugavert að treysta tyrk-
neskum stjórnvöldum þessa dag-
ana: „Í ljósi þess hvernig mál eru að
þróast í Tyrklandi núna þá verðum
við hugsa hlutina upp á nýtt. Við
verðum að endurmeta flóttamanna-
samning ESB og Tyrklands,“ er haft
eftir henni í umfjöllun á fréttavef
þýska vikuritsins Der Spiegel.
Frá því valdaránstilraunin var
brotin á bak aftur fyrir rúmlega
hálfum mánuði hafa tugir þúsunda
manna verið handteknir eða reknir
úr starfi í Tyrklandi, þar á meðal
hermenn, lögreglumenn, dómarar,
kennarar og blaðamenn.
Grísk stjórnvöld segja reyndar
ekkert benda til þess að Tyrkir
standi ekki við sinn hluta flótta-
mannasamkomulagsins. Kofler,
fyrrnefndur mannréttindafulltrúi
þýsku stjórnarinnar, segir hins vegar
að mörgu sé ábótavant í framkvæmd
samningsins af hálfu Tyrklands.
„Sem stendur er engu hægt að
taka sem gefnu í Tyrklandi,“ segir
hún. gudsteinn@frettabladid.is
Áhyggjufullir Grikkir vilja plan
B fyrir Tyrklandssamninginn
Mikil óvissa ríkir nú um samninginn sem Evrópusambandið gerði við Tyrkland um afdrif flóttafólks. Vara
kanslari Þýskalands segir alls ekki mega láta undan þrýstingi frá Tyrklandi. Tyrki er tekið að lengja eftir því
að Evrópusambandið aflétti kröfu um vegabréfsáritun fyrir Tyrki sem ferðast til landa sambandsins.
Flóttafólk flutt í lögreglufylgd aftur til Tyrklands frá Grikklandi. FréTTablaðið/EPa
Samfélag Sex kynferðisbrot komu
á borð neyðarmóttöku Landspítala
um og eftir verslunarmannahelgina.
Eitt af málunum kom upp í Vest-
mannaeyjum en hin fimm á höfuð-
borgarsvæðinu.
Þetta er önnur helgin í sumar
sem svo mörg mál koma upp en ell-
efu mál komu á borð móttökunnar
fyrstu tvær vikurnar í júlí.
Hrönn Stefánsdóttir, verkefna-
stýra neyðarmóttökunnar, sagði
í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að
það kæmi á óvart að málin væru svo
mörg í ljósi þeirrar háværu umræðu
sem skapaðist í aðdraganda helgar-
innar. – ngy
Sex tilkynntu
kynferðisbrot
160
þúsund flóttamenn hafa
komið til Grikklands frá
Tyrklandi það sem af er
árinu.
383
hafa drukknað í hafinu milli
Grikklands og Tyrklands
það sem af er árinu.
4 . á g ú S T 2 0 1 6 f I m m T U d a g U r8 f r é T T I r ∙ f r é T T a B l a ð I ð
0
4
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
2
9
-7
2
E
0
1
A
2
9
-7
1
A
4
1
A
2
9
-7
0
6
8
1
A
2
9
-6
F
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
3
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K