Fréttablaðið - 04.08.2016, Blaðsíða 26
Þann 9. maí 2005 gerði Ásdís Halla Bragadóttir fyrir hönd Garðabæjar samning við Klasa
hf., þá í eigu Íslandsbanka og Sjó-
vár, vegna uppbyggingar á miðbæ
Garðabæjar. Í viðaukasamningi
Garðabæjar og Klasa frá því í
desember 2005 kemur fram breytt
eignarhald á Klasa sem Gunnar
Einarsson fyrir hönd Garðabæjar
samþykkir og er félagið þá í eigu
Íslandsbanka ( 20%), Sjóvár (40%)
og Rapps (40%) en Rapp var í eigu
Þorgils Óttars Mathiesen.
Klasi greiði kostnað
Þann 15. desember 2006 er gert
samkomulag um úthlutun lóða og
sölu byggingarréttar í miðbæ Garða-
bæjar. Í þeim samningi er gert ráð
fyrir að heildarbyggingarmagn á
svæðunum þremur verði allt að
31.631 fermetri auk bílakjallara.
Íbúðarhúsnæði verði 21.187 fm
brúttó/(18.009 nettó) og verslunar-
og þjónustuhúsnæði 10.444 fm
auk aðstöðu fyrir bensínstöð. Klasi
greiði kostnað við framkvæmdir
innan úthlutaðra lóða, þ.e. gerð
gangstétta, torga, gatna og opinna
svæða í samræmi við deiliskipulag.
Lagt var mat á virði eigna Garða-
bæjar við yfirtöku Klasa á miðbæjar-
reitnum og var það eftirfarandi (m.v.
15.12.2006):
Sveinatungureitur, 158.370.000
(núverandi Hagkaupsreitur)
Garðatorg, 911.960.000
Kirkjulundur, 143.437.500
Samtals 1.213.767.500 krónur
Greiðsla fyrir þessar eignir yrði
í formi uppkaupa Klasa á eignum í
eigu þriðja aðila;
A. Uppkaupum á eignarhlutum
Kirkjuhvols í Garðatorgi 1 og 3
B. Uppkaupum á eignarhluta SPH í
Garðatorgi 1
C. Uppkaupum á eignarhluta
Poseidon í Garðatorgi 1
D. Uppkaupum á eignarhluta S
fasteigna ehf. í bensínstöð við
Bæjarbraut
Engar beinar greiðslur komu
í bæjarsjóð fyrir lóðir sem voru
metnar á rúmlega 1,2 milljarða í
árslok 2006. Nýjasti viðbótarsamn-
ingurinn um miðbæ Garðabæjar er
kallað samkomulag og er frá 24. maí
2013 en þá hefur nýtt félag tekið við
eignarhaldi samningsins við Klasa,
Garðabær miðbær hf., sem er í eigu
Finns Reyrs Stefánssonar, Ingva
Jónassonar, Tómasar Kristjánssonar
og RA5 ehf.
Engar greiðslur
Garðabær hefur ekki fengið neinar
greiðslur í gegnum samninga sína
við Klasa en hefur hins vegar afhent
Klasa nokkrar lóðir í Rjúpnahæð og
Lyngprýði til viðbótar við framan-
greind svæði í miðbæ Garðabæjar
(Sveinatungureitur, Garðatorg og
Kirkjulundur) sem uppbót á minnk-
un byggingarmagns á miðbæjarreit
sem þó var að ósk Klasa.
Garðabær hefur einnig greitt á
annan milljarð króna til Klasa í
gegnum þessa samninga í formi
bílastæðakjallara, leigugreiðslna,
eftirgjöf vaxtatekna og frágangs á
yfirborði á miðbæjarsvæði auk þess
sem Garðabær rekur þessi svæði.
Nú eru að hefjast framkvæmdir við
nýjustu byggingu Klasa á miðbæjar-
svæðinu og mun Garðabær leggja
fjármagn til verkefnisins með fjár-
mögnun á flutningi á innkeyrslu inn
á torgið. Vandséð er hvernig vald-
hafar geta réttlætt þessa afhendingu
á skattfé íbúa og eigna til verktaka
án endurgjalds.
Flest okkar eiga erfitt með að gera sér í hugarlund hvernig það er að eiga hvergi heima,
helst líkist það því að vera flótta-
maður í eigin landi. Við getum
samt rétt ímyndað okkur hvað það
eru þung spor að þiggja þjónustu
Konukots í fyrsta sinn.
Konukot er skaðaminnkandi
úrræði fyrir heimilislausar konur
sem rekið er af Rauða krossinum
í Reykjavík í samstarfi við Reykja-
víkurborg. Ráðskonur Rótarinnar
þáðu nýlega boð í kotið og Svala
Jóhannesdóttir verkefnisstýra
kynnti starfsemina fyrir okkur.
Hún og hennar starfsfólk og sjálf-
boðaliðar leggja mikla áherslu
á að koma fram við konurnar af
virðingu, kærleika og samkennd.
Á mildan hátt er forðast að setja
sig á háan hest gagnvart konum
sem eiga við fíknivanda að stríða
eða falla ekki að siðaboðum og
reglum samfélagsins á annan hátt.
Konurnar í Konukoti eiga margar
erfiða lífssögu að baki og kusu ekki
þetta líf. Margar eiga sára reynslu af
ofbeldi í æsku og sumar hafa búið
við ofbeldi meira og minna alla ævi.
Þó að Konukot sé ekki með-
ferðarstofnun gilda að mörgu leyti
sömu lögmál um starfsemina þar
og í fíknimeðferð, því stærsti hluti
kvennanna sem sækja þangað
glímir við áfengis- og fíknivanda. Á
Charles. K. Post meðferðarstöðinni í
New York-fylki, og fleiri meðferðar-
stöðvum, er stuðst við þá reglu að
konur meðhöndli konur. Þessu er
ekki þannig farið á Íslandi og sjálf-
sagt er um að kenna skorti á þekk-
ingu á sértækum vanda kvenna. Enn
eimir mjög eftir af forræðis- og refsi-
anda í heilbrigðis- og velferðarkerfi
sem er lítt til þess fallinn að hjálpa
þeim sem jaðarsettastir eru í sam-
félaginu. Þar eru konur á ysta hjar-
anum með sínar ofbeldis- og áfalla-
sögur og eru þær enn viðkvæmari
fyrir slíkri nálgun en karlar.
Við vitum að það er mikið af
hugsjónafólki að vinna við með-
ferð og aðra þjónustu en samt hafa
yfirvöld brugðist þessum konum
að því leyti að ekki hefur verið
mörkuð skýr stefna um áfallameð-
vitaða og kynjamiðaða meðferð og
þjónustu þar sem nýjasta og besta
þekking er nýtt. Konur með alvar-
legan fíkni- og geðrænan vanda
verða fyrir flókinni, margþættri
og kerfisbundinni kúgun og því
þarf heilbrigðis- og velferðarkerfið
að nálgast þær á þeim forsendum.
Reglan um að konur meðhöndli
konur ætti þar af leiðandi að vera
ófrávíkjanleg í allri meðferð og
persónulegri þjónustu við konur í
þessum hópi. Þetta á við í meðferð
við fíknivanda og í athvörfum og
gistiskýlum fyrir konur.
Fyrirmyndarúrræði
Konukot er griðastaður fyrir kon-
urnar sem þangað sækja. Þær eiga
rétt á vernd og öryggi meðan þær
dvelja þar, þó að það sé aðeins opið
í 17 klst. á sólarhring. Eftir að hafa
sætt miklu ofbeldi af hendi karl-
manna, einkum ef það hefur verið
af hendi einhvers sem stendur þeim
nærri, eins og föður, afa, bróður,
frænda eða kærasta og maka, getur
hvaða karlmaður sem er valdið
þeim mikilli vanlíðan, ekki síst
ef þær eru á einhvern hátt háðar
ákvörðunum hans í þeirri stöðu
sem hann gegnir. Þetta hefur ekk-
ert með persónuna að gera eða hve
fagmannlega hún sinnir sínu starfi.
Heimsókn okkar í Konukot var
fróðleg og skemmtileg og ljóst
að aðstandendur þess hafa byggt
upp fyrirmyndarúrræði þar sem
reynt er eftir bestu getu að beita
áfallameðvitaðri og kynjamiðaðri
nálgun þar sem reglan er að konur
þjónusti og styðji konur.
Við þökkuðum fyrir okkur með
því að færa Konukotskonum tvö
eintök af bók Stephanie Coving-
ton, A Womans Way through the
Twelve Steps, ásamt vinnubókum.
Takk fyrir okkur og til hamingju
með faglegt og nærgætið starf.
Konukot lætur kannski lítið yfir
sér í veraldlegu tilliti en þar er ekki
í kot vísað hvað inntak og atlæti
varðar.
Ekkert örreytiskot
Edda Arinbjarnar
Guðrún Ebba Ólafsdóttir
Heiða Brynja Heiðarsdóttir
Katrín Guðný Alfreðsdóttir
Kristín I. Pálsdóttir
Þórlaug Sveinsdóttir
í ráði Rótarinnar
Allar umhverfisnytjar og þá
sér í lagi náttúrunytjar hafa
sín þolmörk.
Konur með alvarlegan fíkni-
og geðrænan vanda verða
fyrir flókinni, margþættri og
kerfisbundinni kúgun og því
þarf heilbrigðis- og velferðar-
kerfið að nálgast þær á þeim
forsendum.
Samstarf Garðabæjar og Klasa
við uppbyggingu miðbæjar
María
Grétarsdóttir
bæjarfulltrúi
M-lista fólksins
í bænum
í Garðabæ
Garðabær hefur ekki fengið
neinar greiðslur í gegnum
samninga sína við Klasa um
uppbyggingu miðbæjar en
hefur greitt á annan milljarð
króna til Klasa í formi bíla-
stæðakjallara, leigugreiðslna,
eftirgjöf vaxtatekna og frá-
gangs á yfirborði á miðbæjar-
svæði auk þess sem Garða-
bær rekur þessi svæði.
Ólöf Ýrr Atladóttir ferðmála-stjóri varar við að álag á samfélagið komi niður á
gestrisni vorri (Fbl. 26.07.). Hún
bendir á að megingagnrýni á þróun
ferðaþjónustunnar varði sein við-
brögð opinberra aðila og einka-
geirans við álaginu. Í framhaldi af
þessum orðum er vert að minnast á
hugtakið þolmörk.
Byggðir, bæir, borgin og ólíkir
geirar samfélagsins hafa illskil-
greinanleg þolmörk frammi fyrir
þjónustuhlutverki; ekki bara ein
heldur mörg. Fólk hefur persónuleg
þolmörk, annað atvinnulíf en ferða-
þjónusta hefur þolmörk og innviðir
hafa þolmörk o.s.frv. Þar í blandast
ólíkar skoðanir á hvað er réttara en
annað þegar ferðaþjónustulestin
æðir áfram, sífellt hraðar (í bili). Það
er flókið verk að búa þannig um að
þessi þolmörk séu sæmilega ljós og
í samræmi við lýðræði. Til þess þarf
frumkvæði einkaaðila, samtaka og
umfram annað: Stjórnvalda á stigi
sveitarstjórna og ríkisvalds.
En svo eru það hin þolmörkin:
Þolmörk umhverfis, bæði þess
manngerða og náttúrunnar. Allar
umhverfisnytjar og þá sér í lagi
náttúrunytjar hafa sín þolmörk.
Um þau hefur verið rætt oft og
lengi en þau nær ekkert tengd inn
í raunveruleikann, þ.e. blússandi
fjölgun dýrmætra ferðamanna sem
verða sennilega nær áttfaldur fjöldi
fullorðinna landsmanna við árslok
2016.
Vegvísir í ferðaþjónustu (októ-
ber 2015) sem Samtök ferða-
þjónustunnar og atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið stóðu að er
einungis grunnur að stefnu, langur
verkefnalisti. Stefnan sjálf verður
til þegar unnið er úr þessum veg-
vísi, hann bundinn áætlunum,
hengdur verðmiði á mikilvæg atriði
og ákveðið hvernig peninganna er
aflað. Lítið hefur enn sést til þess alls
og er þá ekki gert lítið úr auknum
fjárveitingum eða nýjungum. Heild-
ina vantar. Inn í alla þá vinnu verður
að flétta þolmörkum (eins erfitt og
það kann að reynast). Fyrsta skrefið
er að viðurkenna að ferðaþjónusta
lýtur ekki ósvipuðum takmörkum
og aðrar náttúru- og samfélags-
nytjar. Kannski getum við tekið á
móti 10.000 manns á dag við Selja-
landsfoss (ekki 50.000), 1.000.000
manns á ári í núverandi þjóðgarði
á Þingvöllum (ekki 2.000.000) og
3.500.000 ferðamönnum á ári til
landsins (ekki 6.000.000) – ef við
viljum halda uppi fjölbreyttu mann-
lífi, fjölbreyttri atvinnu og áhuga-
verðu náttúruumhverfi. Eða hvað?
Tölurnar eru aðeins hlutgervingar
af minni hálfu.
Ferðaþjónustan:
Meira þarf til
Ari Trausti
Guðmundsson
jarðvísindamaður
og rithöfundur
Á dögunum skrapp ég til Tyrk-lands með eiginkonu og tveimur ungum börnum.
Það var skyndiákvörðun þar sem
ferðaskrifstofan Nazar bauð upp
á ódýrar ferðir sökum minnkandi
aðsóknar. Vinir mínir kölluðu mig
„ofurhuga“ fyrir að þora þessu og
ömmurnar voru nokkuð áhyggju-
fullar. Ég ákvað hinsvegar að nýta
mér tölfræðina til að komast að
niðurstöðu. Fjöldi ferðamanna í
Tyrklandi er yfir 30 milljónir á ári.
Miðað við fjölda ferðamanna sem
hafa látist í Tyrklandi síðastliðið
ár voru líkurnar á að við kæmumst
aftur lifandi heim meiri en 99,99%.
Ég er ekki meiri ofurhugi en það.
Einhver nefndi við mig að það
væri siðferðislega rangt að nýta
sér hryðjuverk og stríðsástand til
þess að komast ódýrt til sólarlanda.
Það þóttu mér ágætis rök þar til
ég áttaði mig á eftirfarandi: Ferða-
mannaiðnaðurinn er ein af undir-
stöðuatvinnugreinum Tyrklands.
Samdrátturinn í ár hefur verið
30-40% og gæti orðið enn meiri
þegar árið er úti. Fækkun ferða-
manna leiðir til atvinnuleysis og
fátæktar sem er prýðisgóður jarð-
vegur fyrir reiði og öfgafull viðhorf
af ýmsum toga. Þannig verður til
vítahringur þar sem átök fækka
ferðamönnum og fækkun ferða-
manna leiðir til meiri átaka.
Það var svo aðra nóttina okkar í
Tyrklandi að ein amman hringdi
dauðskelkuð í okkur og fullyrti að
það væri valdarán, stríð og útgöngu-
bann í Tyrklandi. Ég svaf ekki mikið
þá nóttina, kalda rökhyggjan og töl-
fræðin virtist hafa gufað upp í tyrk-
nesku sólinni. Við vorum reyndar
óravegu frá átakasvæðunum og
ekkert í okkar umhverfi gaf nokkra
hættu til kynna. Ferðaskrifstofan og
hótelstarfsfólk hélt okkur vel upp-
lýstum. Þeir Tyrkir sem ég ræddi við
virtust meira pirraðir á fíflalátunum
í höfuðborginni en áhyggjufullir.
Ég efast um að ég fari aftur til
Tyrklands á næstunni. Hótelið var
flott, ferðaskrifstofan stóð sig vel,
veðrið var gott og verðið enn betra.
Framtíðarhorfur Tyrklands fara
hinsvegar hratt versnandi. Borgara-
styrjöldin í Sýrlandi, ISIS, Kúrdar
og einræðistilburðir Erdogans gera
landið að tifandi tímasprengju.
Það er samt ekki þess vegna sem
ég sný ekki aftur. Þetta var bara svo
skrambi langt ferðalag að þvælast í
með tvö ung börn. En þið hin skulið
endilega fara.
Fjölskylduferð til
Tyrklands
Valgarður
Reynisson
sögukennari
Þeir Tyrkir sem ég ræddi við
virtust meira pirraðir á fífla-
látunum í höfuðborginni en
áhyggjufullir.
4 . á g ú s t 2 0 1 6 F I M M t U D A g U R26 s k o ð U n ∙ F R É t t A B L A ð I ð
0
4
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
2
9
-7
7
D
0
1
A
2
9
-7
6
9
4
1
A
2
9
-7
5
5
8
1
A
2
9
-7
4
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
3
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K