Fréttablaðið - 04.08.2016, Side 48
Auk þess
hlýtur þAð Að
verA mikil-
vægt fyrir þá
höfundA sem
eru hinsegin
Að getA
skrifAð um
þAnn reynslu-
heim og þAnn
hlutA lífsins.
Hinsegin dagar standa nú sem hæst og á meðal fjölmargra bráðskemmtilegra viðburða á hátíð-inni er hinsegin
bókmenntaganga á vegum Borgar-
bókasafnsins í Reykjavík. Björn
Unnar Valsson, verkefnisstjóri hjá
Borgarbókasafninu, ætlar að leiða
gönguna sem hefst í kvöld kl. 20 en
gengið verður frá Grófinni um sögu-
lega staði í borginni. Björn Unnar
segir að áætlað sé að gangan taki
um 90 mínútur en það verður víða
staldrað við og lesnir textar eftir
bæði samkynhneigða og gagnkyn-
hneigða rithöfunda og skáld sem
veita innsýn í samfélag og líf sam-
kynhneigðra einstaklinga. „Það er
nú nokkuð fjölbreyttur hópur
höfunda og skálda sem ég ætla að
lesa texta eftir í göngunni og þar á
meðal má nefna Elías Mar, Málfríði
Einarsdóttur, Elías Knörr, Guðberg
Bergsson, Sjón, Vigdísi Grímsdóttur,
Ingunn Snædal, Hallgrím Helgason
og Evu Rún Snorradóttur.
Okkur langaði til þess að taka
þátt í þessari skemmtilegu og mikil-
vægu hátíð og erum líka að leggja
mikla áherslu á hinsegin bókakost
safnsins á sama tíma þannig að það
er tilvalið að koma við á safninu í
vikunni og kynna sér hvað er í
boði. Við höfum verið nokkrum
sinnum áður með hinsegin bók-
menntagöngu og þetta hefur verið
að mælast vel fyrir og svo gætum
við þess að vera með nýjungar í ár
svo það er ekkert sem mælir á móti
því fyrir þá sem hafa komið áður að
mæta aftur.“
Björn Unnar segir að þrátt fyrir
að vera göngustjóri í hinsegin bók-
menntagöngunni í ár geti hann ekki
stært sig af því að hafa stúderað
hins egin bókmenntir sérstaklega.
„Nei, ég get nú ekki sagt það. En ég
er sá sem er hvað mest með þessar
göngur á minni könnu eins og er.
Ég hef reynt að setja mig inn í þetta
eins og ég frekast gat og þetta eru
góðar bókmenntir sem verða þarna
í för með okkur og það er lykil atriði.
En ég get til að mynda ekki fullyrt
um það hvort og þá hversu mikil-
vægur hluti af réttindabaráttunni
þetta er en ég held að það hljóti að
vera mikilvægur hluti af því hvernig
utanaðkomandi aðilar, eins og ég
sjálfur, geti fengið einhverja sýn á
þessa hlið mannlífsins. Auk þess
hlýtur það að vera mikilvægt fyrir
þá höfunda sem eru hinsegin að
geta skrifað um þann reynsluheim
og þann hluta lífsins án þess að vera
að fela það einhvern veginn. Það er
verið að deila reynslu og lífi í bók-
menntunum og það kristallast ákaf-
lega vel hér.
Ef við lítum á Elías Mar þá var
hann ákveðinn brautryðjandi í
þessum efnum, lykilhöfundur ef svo
má segja, sá fyrsti sem kemur beint
fram með sína kynhneigð. Þemað í
ár er sagan en í göngunni reynum
við að taka soldið úr þessum breiða
hópi í þessari löngu sögu. Lesum
texta höfunda allt frá Elíasi Mar og
yfir í bók sem kom út fyrir aðeins
nokkrum mánuðum og heitir Tappi
á himninum, eftir Evu Rún Snorra-
dóttur, og vonandi náum við að
sýna fram á ákveðna þróun með
þessari nálgun. Það kostar ekkert
í gönguna og vonandi geta því sem
flestir komið og notið þeirra merku
og góðu bókmennta sem þarna
koma við sögu.“
Veitir sýn inn í líf og reynsluheim hinsegin fólks
í kvöld verður gengin hinsegin bókmenntaganga um sagnaslóðir í reykjavík á vegum Borgarbókasafns-
ins. lesið verður úr verkum rithöfunda og skálda frá elíasi mar til evu rúnar snorradóttur.
Björn Unnar Valsson ætlar að leiða hinsegin bókmenntagöngu á vegum Borgarbókasafnsins í kvöld. FréttaBlaðið/GVa
þoturok
sviptist um eins og grásæng um tvær
naktar konur
sem vaða út í sjóinn með herpt kuldabros
nú finn ég að húðin er líffæri
hún dregst öll saman utan um mig
ég minnka
rokið feykir þokunni skyndilega frá
á barðinu standa tvær hvítar kindur
horfa stóískar á hamagang og gusur
mér líður eins og dóna með strípihneigð
fyrir framan þessa íhugulu jórtrandi kjálka
Ingunn Snædal: í fjarveru trjáa – vegaljóð
(Bjartur, 2008)
gráthommAr
gráthommar
hvíla við kistuna
og sofna
eðlilegt væri þó
að þakka fyrir sig og fara heim
hafa ekki áhuga á frekari samskiptum
eftir athöfnina
en þeir eru svo faglega
svo þreytulega
væmnir
og samt
með ekkert nærtækara
en annað vinnufólk
en látni kúnninn hefur þörf fyrir nánd
og heldur sér grafkyrrum
Elías Knörr: Greitt í liljum (Partus, 2016)
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
4 . á g ú s t 2 0 1 6 F I M M t U D A g U R36 M e n n I n g ∙ F R É t t A B L A ð I ð
menning
0
4
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
2
9
-3
C
9
0
1
A
2
9
-3
B
5
4
1
A
2
9
-3
A
1
8
1
A
2
9
-3
8
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
3
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K