Fréttablaðið - 04.08.2016, Síða 62

Fréttablaðið - 04.08.2016, Síða 62
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Fréttablai-Tvídálkur x 38-Flat copy.pdf 1 2.8.2016 12:47 Ég var sextán ára þegar ég byrjaði að semja tónlist, Björk Guðmundsdóttir hefur alltaf verið mikil fyrirmynd hjá mér. Ég byrjaði að skrifa lög fyrir plötuna mína Funeral í apríl á síðasta ári. Platan var öll tekin upp hér í Reykjavík, en ég fékk til liðs við mig fullt af hæfileikaríku tónlistar- fólki til að spila inn á plötuna,“ segir Heiðrik á Heygum söngvari spurður út væntanlega plötu hans, Funeral, sem kemur út 1. september. Heiðrik hefur búið á Íslandi síð- astliðin tvö ár, en auk þess að gefa út tónlist stundar hann nám í mynd- list við Listaháskóla Íslands, ásamt því að vinna við gerð tónlistar- myndbanda, en hann hann hefur meðal annars unnið með Eivøru Pálsdóttur, hljómsveitinni Orku og Bloodgroup. „Ég flutti til Íslands frá Danmörku en þar lærði ég kvikmyndagerð. Ég valdi að flytja til Íslands til að vera í meiri nálægð við náttúruna, enda Ísland mjög líkt Færeyjum en þaðan er ég,“ segir Heiðrik. Platan verður saman safn af lögum sem hann samdi þegar erfið- leikar komu upp í hinu afskekkta og íhaldssama samfélagi Færeyja þar sem hann ólst upp. „Ástæða þess að ég nefndi plötuna „Funeral“ er vegna þess að ég er að gera upp ýmsa hluti í mínu lífi svo ég geti haldið áfram að njóta lífsins. Lögin á plötunni fjalla að miklu leyti um líf mitt og mínar heimaslóðir í Færeyjum. Það er augljós þráður í gegn um lögin sem lýsa upplifun minni á lífi mínu þar,“ segir Heiðrik og bætir við að hann hafi alltaf átt erfitt uppdráttar í Færeyjum vegna kynhneigðar sinnar. Samtals verða tíu lög á plötunni, órafmögnuð og knúin áfram með píanói, strengjum, úkúlele sem og dúnmjúkri rödd Heiðríks. Tónarnir sem Heiðríkur leggur fyrir hlust- andann tekur fólk í melankólskt og grátbroslegt ferðalag þar sem gætir áhrifa allt frá djassi til þjóðlagatón- listar. „Mér fannst mjög erfitt að koma út úr skápnum sem hommi og gerði það ekki fyrr en ég var tutt- ugu og fimm ára, aðallega vegna þess hversu mikil hommafælni ríkir í Færeyjum. Ég passaði aldrei í hópinn og var alltaf öðruvísi. Ég hef aldrei almennilega komist yfir þessa skömm sem ég bar mjög lengi, þess vegna er mjög mikilvægt fyrir mig að gefa út þessa plötu,“ segir Heið- rik og bætir við að sem betur fer hafi hlutirnir verið að breytast í Færeyj- um og eru hinsegin dagar haldnir hátíðlegir, og viðhorf til samkyn- hneigðar mun hleypi dómalausara en var áður fyrr. Nóg er um að vera framundan hjá Heiðrik en hann gaf út lagið Change of Frame nú á dögunum í samstarfi við leikhópinn Ratatam og Senu. „Ég vonast til þess að spila mikið hér á Íslandi á næstunni, ásamt því að búa til myndbönd við öll lög plötunnar. Ég elska Ísland svo mér finnst mjög líklegt að ég komi til með að búa hér í framtíðinni,“ segir Heiðrik. gudrunjona@frettabladid.is Passaði ekki í hópinn Heiðrik á Heygum, eða Heiðríkur, gefur út plötuna Funeral 1. sept- ember. Platan er samansafn af lögum sem hann samdi þegar erfið- leikar komu upp í hinu afskekkta og íhaldssama samfélagi Færeyja. Heiðrik hefur tilkynnt að platan Funeral muni koma út þann 1. september næstkomandi. Samtals verða tíu lög á plötunni, órafmögnuð og knúin áfram með píanói, strengjum og úkúlele. Mér fannst Mjög erfitt að koMa út úr skáPnuM seM HoMMi og gerði það ekki fyrr en ég var tuttugu og fiMM ára. 4 . á g ú s t 2 0 1 6 F I M M t U D A g U R50 L í F I ð ∙ F R É t t A B L A ð I ð 0 4 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :2 7 F B 0 6 4 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 2 9 -4 6 7 0 1 A 2 9 -4 5 3 4 1 A 2 9 -4 3 F 8 1 A 2 9 -4 2 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 6 4 s _ 3 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.