Víkurfréttir - 07.02.1985, Qupperneq 7
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 7. febrúar 1985 7
Tuskubúðir og þjónustustofnanir
- er það eini vilji ráðamanna í atvinnumálum?
Það voru ekki allir á eitt
sáttir með þær fullyrðingar
KarlsSteinars Guðnasonar,
formanns VSFK, í lands-
málafjölmiðlunum á dögun-
um, að stefna ráðamanna í
atvinnumálum beindist að
fjölgun tuskubúða og ann-
arra þjónustustofnana á
Suðurnesjum, í stað upp-
byggingar í sjávarútvegi.
( þessum orðum Karls
Steinars eru sannleikskorn
sem við skulum skoða nán-
ar. Ef horfið er nokkur ár
aftur í tímann kemur í Ijós
að hér á Suðurnesjum var
sjávarútvegur uppistaðan í
atvinnurekstri og þjónusta í
sambandi við hann, en núer
oiain onnur.
Keflavík er ekki lengur
sjávarútvegspláss, heldur
fyrst og fremst verslunar-
og þjónustustaður. Bygg-
ist sú þjónusta á ýmsu öðru
en sjávarútvegi. Njarðvík er
orðinn svefnbær Keflavík-
urflugvallar, önnur byggð-
arlög halda sér enn að
nokkru leyti við sjávarút-
veg, og þá sérstaklega Sand
gerði og Grindavík.
Hvort sem menn eru sáttir
við þetta eða ekki, þá er
Afleiðingar farmannaverkfallsins:
Útskipun á saltsíld seinkar
Að morgni þriðjudagsins
í síðustu viku þegar verkfall
farmanna skall á, voru tvö
flutningaskip til afgreiðslu í
Landshöfninni Keflavík-
Njarðvík. Annað þeirra hélt
út á ytri höfnina klukku-
stund áður en verkfallið átti
að koma til framkvæmda og
beið þar í von um að
ekkert yrði úr boðaðri
vinnustöðvun, til að hægt
yrði að skipa meiri saltfiski
út í skipið. Þetta var flutn-
ingaskipið Mar. Sigldi það í
átt til erlendra hafna þegar
Ijóst var að úr verkfalli varð.
Er skipið nú í sinni siðustu
ferð undir íslenskum fána.
(Keflavíkurhöfn var vöru-
flutningaferjan Drangur frá
Akureyri að taka salt frá
Saltsölunni og var vinnu við
skipið haldið'áfram þar til
henni var lokið um kvöld-
matarleytið, en þá fór skip-
ið.
Að sögn Jóns Norðfjörð,
framkvæmdastjóra Skipa-
afgreiðslu Suðurnesja, er
Ijóst að áætlun nokkurra
skipa sem hingað áttu að
koma var breytt vegna verk-
fallsins, og mun það m.a.
hafa í för með sér seinkun á
útskipun á saltsíld. Ef verk-
fallið dregst eitthvað á lang-
inn mun það hafa áhrif hér á
fleiri sviðum. - epj.
Slökkvilið og sjúkralið:
Mikill tímasparnaður ef
vaktir eru viðhafðar
í síðasta tölublaði Víkur-
frétta var greinarflokkur um
útköll hjá slökkviliði og
sjúkrabil. Var þar bent á að
spara mætti dýrmætar
minútur ef vakt væri komið
á allan sólarhringinn. Var
sagt að ef vakt væri, mætti
senda fyrstu hjálp svo til um
leið og ósk bærist.
En hvað þýða þessi orð?
Hjá Brunavörnum Suður-
nesja liggja frammi upplýs-
ingar um, að fyrir nokkrum
misserum var slökkviliðið
kvatt út upp á Iðavelli. Á
sama tíma var liðið á æf-
ingu á slökkvistöðinni.
Mældist liðið vera 2-4 mín-
útur á staðinn. Einnig liggja
fyrir upplýsingar um að við-
bragðið er það sama hjá
sjúkraliðinu, ef það er til-
búið á staðnum þegar út-
kall berst.
Þessar upplýsingar
sannaenn betur, að vaktall-
an sólarhringinn er það sem
koma skal. Með því má
spara mikinn og dýrmætan
tíma, sem anars fer í að
koma þeim mönnum sem
sinna þessum störfum, á
stöðina, ef þá á annað borð
næst til þeirra. En frá því var
greint nánar í síðustu grein.
epj.
Nýr bátur til Sandgerðis
I siðasta mánuði bættist nýr bátur i fiskiskipaiiota Sand-
gerðinga. Er hér um að ræða 90 tonna eikarbát sem þeir
bræóur Guðlaugur Vignir, Jón Bjarni og Heimir Sigur-
sveinssynir hafa keypt frá Hornafirði og ber nafnið Akurey
SF 52. - epj.
K.K.
Pöbbinn
Vesturbraut 17
Fyrsti og eini
pöbbinn á
Suðurnesjum
Opið:
Fimmtudaga frá kl 19
Föstudaga frá kl. 19
Laugardaga frá kl. 18
Sunnudaga frá kl. 19
þetta bláköld staðreynd.
Sjávarútvegur og það sem
honum fylgir er orðinn sá
atvinnuvegur sem færri og
færri sækja í. Það hefur
orðið stórfelld fækkun
frystihúsa og annarra fisk-
verkunarstöðva á þessum
tíma, auk þess sem fækkun
hefur orðið umtalsverð í
fiskiskipastól Suðurnesja-
manna.
Þrátt fyrir það að kosnar
hafa verið nefndir til að
snúa þessari þróun við,
hefur það ekki orðið niður-
staðan. Ráðamenn virðast
hafa sofnað þyrnirósar-
svefni í þessu máli, og því
varla von á góðu, nema það
sé þeirra vilji að gera þessa
þróun að einkenni Suður-
urnesjamanna, og hérverði
tuskubúðir og aðrar þjón-
ustustofnanir eini atvinnu-
vegurinn i framtíðinni.
epj.
... OG
NÝR STAÐUR:
HOLTSGATA
49
STEINDÓR
SIGURÐSSON
Ferðaþjonusta Suðumesja
Holtsgötu 49, Ytri-Njarövík, sími 4444
PYL5A FRAM5KAR
HAMBORQARI
öviðrádanlegum orsökum
Vérður opið $em bér segir:
Pimtintudaga 12 - 20.30
FöstUdáQð 12 - 22,00
Laugardaga 12 - 22.00
Sunnudaga 12 - 20,30
Skynejiþitastaður t tijarðvík
HRAUNÁS HF.
BÍLALEIGA
HRAUNSVEGI 25 - NJARÐVÍK
SÍMI 1729