Morgunblaðið - 14.10.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Alþjóðleg ráðstefna í tile
fni af
aldarafmæli almenns ko
sningaréttar
í Hörpu 22.–23. október
.
Skráningarfrestur re
nnur út 14. október.
Nánari upplýsingar o
g skráning:
kosningarettur100a
ra.is
Bjarni Steinar Ottósson
bso@mbl.is
Lokahóf Tólfunnar, stuðningsmanna-
félags íslenska landsliðsins í knatt-
spyrnu, fór fram á Ölveri í gær. Leik-
urinn gegn Tyrklandi var síðasti
mótsleikur liðsins fyrir Evrópumótið í
Frakklandi í sumar og beinast nú allir
kraftar félagsins að undirbúningi fyrir
það.
„Menn eru aðeins rólegri á Ölveri
en í Laugardalnum en það koma ein-
hverjir með trommur og halda uppi
stemningu og gleði,“ sagði Pétur Orri
Gíslason, formaður Tólfunnar, fyrir
leikinn en um áttatíu stuðningsmenn
risu úr sætum og sungu Ég er kominn
heim eftir að leik lauk.
Tyrkir voru af veðbönkum taldir
sigurstranglegri fyrir leikinn, en þeir
voru fyrir hann í umspilssæti riðilsins
og komust beint á EM með sigrinum á
meðan Tékkar tryggðu sér fyrsta sæt-
ið með sigri á Hollandi.
„Íslenska liðið gerði tvö jafntefli í
röð fyrir leikinn en við erum alltaf
brattir og bjartsýnir og töldum okkur
geta borið sigur úr býtum. Tyrkirnir
hafa verið á uppleið og við erum mjög
sáttir við frammistöðu liðsins. Við hefð-
um alltaf verið sáttir við annað sætið
fyrir keppnina og það er sögulegt af-
rek fyrir knattspyrnuna á Íslandi að
fara að keppa á EM,“ sagði Pétur.
Stuðningsmenn liðsins létu sig ekki
vanta á vellinum í Konya en Pétur taldi
að um tólf Tólfur hefðu farið út og sam-
tals væru á bilinu 50-80 Íslendingar á
staðnum.
Búa sig undir EM
Tólfan hefur ekki síst vakið athygli
fyrir að halda uppi stemningu á áhorf-
endapöllunum með söng og látum. Það
krefst þó undirbúnings að halda
söngnum ferskum og er það fastur lið-
ur í starfi Tólfunnar. „Við erum með
góða skáldanefnd í því að undirbúa
baráttusöngva og reynum að koma
með einhverjar nýjungar fyrir hvern
leik.“
Næstu tíðindi af landsliðinu verða í
desember og gætir þegar óþreyju
meðal stuðningsmanna. „Það er næst
að bíða eftir að dregið verði í riðla fyrir
EM en spennan fyrir mótið er orðin
gríðarleg.“
Tólfumenn sáttir við
frammistöðu liðsins
Stuðningsmannafélagið horfir björtum augum til EM
Morgunblaðið/Eggert
Ég er kominn heim Glatt var á hjalla eftir leikinn þrátt fyrir 0-1 ósigur liðsins og lagið tekið saman.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Heildaraflamark í loðnu á vertíðinni
2015/2016 verður 44 þúsund tonn
samkvæmt nýrri aflareglu. Þessi
niðurstaða er byggð á mælingum
Hafrannsóknastofnunar. Stofnunin
leggur til að vel verði fylgst með
loðnuveiðum vestan við 18°V og að
svæðum verði lokað verði vart við
ókynþroska loðnu í afla.
Nýr loðnusamningur milli Íslands,
Grænlands og Noregs var gerður í
vor. Heildaraflamarkið mun því
skiptast á milli þessara þjóða sam-
kvæmt fyrirliggjandi reglum.
Veiðistofn loðnu verður mældur
aftur í janúar/febrúar á næsta ári.
Aflamarkið verður endurreiknað í
ljósi þeirra mælinga.
„Þetta eru ákveðin vonbrigði, en
við höfum séð það svartara áður,“
sagði Gunnþór Ingvason, fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar,
um upphafskvóta loðnu. Hann sagði
það hafa gerst oft á árum áður að
loðnuútgerðir hefðu verið kvótalitlar
eða kvótalausar fram í janúar. „Við
vitum ekkert um þessa loðnu ennþá.
Við verðum bara að treysta á jan-
úarleiðangurinn og erum alveg ró-
legir þangað til.“
Rannsóknaskipið Árni Friðriks-
son fór í leiðangur 16. september til
4. október sl. til að mæla veiðistofn
loðnu og magn ungloðnu. Rann-
sóknasvæðið var á hluta landgrunns-
ins við Austur-Grænland, í Græn-
landssundi og á norðurmiðum allt
austur að Sléttu. „Loðna fannst víða
í köntum og á landgrunni við Austur-
Grænland, í Grænlandssundi að
landgrunnsbrúninni út af Vestfjörð-
um, en engin loðna fannst með land-
grunnsbrún norðan Íslands,“ segir í
fréttatilkynningu Hafrannsókna-
stofnunar. Lóðningar voru yfirleitt
fremur gisnar. Aðstæður til mælinga
voru erfiðar. Rekís norðan 72°N tor-
veldaði mælingu á kynþroska hluta
stofnsins og óveður torvelduðu berg-
málsmælingu og töku á sýnum.
Mjög lítið af ungloðnu
Mjög lítið mældist af ókynþroska
loðnu. Hún fannst aðallega syðst á
rannsóknasvæðinu. „Alþjóðahaf-
rannsóknaráðið (ICES) byggir ráð-
gjöf um veiðar á vertíðinni 2016/2017
á þessari mælingu á ungloðnu og
ljóst er að engar veiðar verða heim-
ilaðar að óbreyttu.“
44.000 tonna loðnukvóti
Loðna fannst víða við Austur-Grænland í leiðangri Hafrannsóknastofnunar
Engin loðna með landgrunnsbrún norðan Íslands Lítið af ókynþroska loðnu
Morgunblaðið/Börkur
Á loðnumiðunum Heimaey VE1 og
grænlenska skipið Polar Amaroq.
Í dag eru 240 dagar þangað til
Evrópumótið hefst. Dregið verð-
ur í riðla 12. desember kl. 18 að
staðartíma í París. Upphafsleik-
urinn verður svo leikinn 10. júní
þegar gestgjafarnir, Frakkar,
taka á móti enn óþekktum and-
stæðingi og úrslitaleikurinn
mánuði síðar, 10. júlí.
Tólfan hefur starfað með
Gamanferðum um ferðir á úti-
leiki liðsins og heldur því áfram
fyrir Evrópumótið, segir Pétur.
„Þau hafa tekið frá hótelpláss í
öllum borgum sem spilað er í og
bjóða upp á pakka fyrir alla sem
vilja fara á mótið í skipulagðri
og góðri ferð þar sem verður
gríðargóð stemning.“
Fjölmenna til
Frakklands
240 DAGAR TIL STEFNU
Horfur eru á fyrirtaks haustveðri á
landinu í vikunni og fram yfir helgi.
Samkvæmt spám verður gæðunum
nokkuð misskipt með talsverðum
vindi og úrkomu á Suðvesturlandi
en óvenjuhlýtt verður miðað við
árstíma á Norður- og Austurlandi.
Lægðir eru vestan við Grænland
og háþrýstisvæði yfir Bretlandi og
líklegt þykir að þessi veðurkerfi
færi hlýtt loft yfir landið. Sunnan-
og suðvestanátt er spáð ríkjandi út
vikuna, 6-15m/s og 5-12 stiga hita.
Spáð er allt að 15 stiga hita á laug-
ardag.
Hlýindum spáð fyrir
norðan og austan
Morgunblaðið/Skapti
Haust Útlit er fyrir afbragðs haustveður
norðanlands og austan í vikunni.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Engar athuganir hafa verið gerðar á
nýju flugvallarstæði á norðanverð-
um Vestfjörðum, í stað núverandi
Ísafjarðarflugvallar, og engir aug-
ljósir kostir uppi. Leggja þarf í 100
milljóna króna kostnað við nýtt slit-
lag á Þingeyrarflugvöll til þess að
hann geti nýst sem varaflugvöllur
fyrir Ísafjörð.
Ísafjarðarflug féll niður 86 sinnum
á síðasta vetri og 93 sinnum veturinn
þar á undan. Er það oftar en flest ár-
in þar á undan. Á sama tíma hefur
sjaldan verið hægt að lenda á vara-
flugvellinum, Þingeyrarflugvelli,
vegna þess að frostlyfting gerir flug-
brautina ónothæfa meginhluta vetr-
ar. Áður var unnt að nota varaflug-
völlinn í 12,5 til 20% tilfella þegar
ekki var hægt að lenda á Ísafirði.
Engir augljósir kostir
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hef-
ur óskað eftir því við Alþingi að gerð
verði athugun á nýju flugvallarstæði
til þess að innanlandsflugið virki al-
mennilega. Helst þurfi að vera
tveggja brauta flugvöllur sem nái 90-
95% nýtingu og hægt sé að nota til
millilandaflugs, að minnsta kosti
með vörur.
Guðni Sigurðsson, upplýsinga-
fulltrúi ISAVIA, segir að engar
formlegar athuganir hafi verið gerð-
ar á nýju flugvallarstæði og engir
augljósir kostir uppi. Hann segir að
beiðni um slíka athugun þurfi að
koma frá innanríkisráðuneytinu.
Aðstæður til flugvallargerðar á
norðanverðum Vestfjörðum eru aug-
ljóslega erfiðar vegna landslags.
Háu vestfirsku fjöllin valda margvís-
legum vanda.
Frostlyfting á flugbrautinni á
Þingeyri gerir völlinn ónothæfan
meginhluta vetrar, einmitt á þeim
tíma sem hann gæti nýst sem vara-
flugvöllur fyrir Ísafjörð. Kostnaður
við lagfæringar á brautinni er áætl-
aður um 100 milljónir kr. Að auki
þarf að bæta tækjabúnað á vellinum.
Engar athugan-
ir á nýju flug-
vallarstæði
86 flug til Ísafjarðar felld niður síð-
asta vetur Sjaldan lent á varaflugvelli