Morgunblaðið - 14.10.2015, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 14.10.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2015 Verið velkomin Kynnt verður: • Nýju haustlitina frá Dior • Nýja Diorshow maskarann • Nýtt og glæsilegt Capture Total augnkrem • Ásamt faglegri ráðgjöf frá snyrtifræðingi Falleg gjöf fylgir kaupum á tveimur keyptum vörum frá Dior. Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 kynning miðvikudag, fimmtudag og föstudag TAX FREE af öllum snyrtivörum í október Verð 25.980 Litir: blár, svartur og grænn Skoðið laxdal.is Laugavegi 63 • S: 551 4422 Peysuúrval Buxnaúrval Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Hornstrandir liggja mjög vel við hafstraumnum og þarna eru meira að segja víkur sem heita rekavíkur. Það kemur því mikið rusl og reki í fjörurnar,“ segir Gauti Geirsson, verkfræðinemi og einn fyrirlesara á nýafstöðnu umhverfisþingi á vegum umhverfis- og auðlindaráðu- neytisins. Hann hefur skipulagt rusl- hreinsanir á fjörum Horn- strandafriðlands- ins síðastliðin tvö sumur. „Það hef- ur tekist ótrúlega vel með sam- stilltu átaki opin- berra aðila, einkaaðila og sjálf- boðaliða en samanlagt höfum við náð að hreinsa rúmlega ellefu tonn af rusli,“ segir Gauti ánægður með árangurinn. Til stendur að halda átakinu áfram og ráðast í verkið enn á ný næsta vor. Búið er að hreinsa fjórar til fimm víkur og enn af nógu að taka. Færri komust að en vildu „Ruslið virðist vera tvíþætt. Ann- ars vegar rekur á land slitin veið- arfæri, netakúlur og annað sem lítið er við að gera. Hins vegar er þetta rusl sem hefur verið hent í sjóinn eða á landi sem síðan fýkur út á sjó,“ segir hann en það sé greinilegt að ruslið stafi ekki allt frá Íslandi. „Við sjáum rusl til dæmis frá Noregi, Rússlandi og Bretlandi með alls konar merkingum.“ Aðallega er það plastrusl sem rekur á fjörur friðlandsins en það flýtur og brotnar ekki niður þegar á land er komið. Sumt sé margra ára gamalt. Íslenskir sjómenn standi sig einna best í því nú til dags að henda ekki drasli í sjóinn á ferðum sínum vegna mikillar vitundavakningar sem orðið hefur í þessum málum undanfarið. „Maður heyrir til dæmis af smá- bátum í Norður-Noregi þar sem menn henda nær öllu í sjóinn,“ segir Gauti en tryggja þurfi frekari vit- undarvakningu erlendis til að koma í veg fyrir að ruslið reki á land hér. Ekki sé hins vegar mikið um rusl á gönguleiðum um Hornstrandir enda göngumenn og ferðamenn mjög meðvitaðir um reglur um rusl. „Ruslið hefur því aðallega verið lýti á fjörunum. Svo er það afar slæmt fyrir lífríkið á svæðinu.“ Færri komust að en vildu í rusl- hreinsunina í vor en fólk hvaðanæva af landinu gerði sér far til Horn- stranda og lagði hönd á plóg. Þá hef- ur Gauti einnig haft spurnir af því að hreinsunarátakið hafi jafnvel undið upp á sig og fólkið sem tók þátt í því verið stoppað á leiðinni suður til að tína upp rusl á víða- vangi. Verðmæti náttúru mun aukast „Þetta er hluti af þeirri um- hverfisvakningu sem er hjá ungu fólki í dag og því að við erum byrjuð að hugsa meira út í framtíðina,“ seg- ir Gauti um óbilandi áhuga sinn á umhverfismálum. Hann er ættaður frá Vestfjörðum og starfar þar við farþegaflutninga á sumrin. „Fyrir mér er ósnert náttúra ein mestu auðæfi sem þjóð getur átt. Verðmæti slíkra svæða á aðeins eft- ir að aukast í framtíðinni og þess vegna eigum við að vera óhrædd við að standa sérstakan vörð um þau svæði þjóðarinnar sem við höfum ákveðið að friðlýsa.“ Fjörur Hornstranda hreinsaðar  Ungur verkfræðinemi stendur að ruslhreinsun á Hornströndum  11 tonn af rusli fjarlægð  Fjöldi sjálfboðaliða leggst á eitt  „Ósnert náttúra ein mestu auðæfi sem þjóð getur átt“ Ljósmynd/Gauti Geirsson Samhent Fjöldi sjálfboðaliða lagði leið sína á Hornstrandir í vor og hreinsaði upp rusl í fjörunum. Landhelgisgæslan lagði þeim lið með því að ferja ruslið yfir til Ísafjarðar á varðskipi. Gauti fékk bæði opinbera og einkaaðila í samstarf við sig og segir fólk almennt viljugt að taka þátt í verkefninu. Ljósmynd/Gauti Geirsson Magn Fjarlægð hafa verið rúm ellefu tonn af rusli sem rekið hefur á fjörur Hornstrandafriðlandsins. Verkefninu er ekki lokið og verður aftur að ári. Gauti Geirsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.