Morgunblaðið - 14.10.2015, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2015
Þessi frábæra kjötsög
með hakkavél frá
Dinamix er komin aftur
Ryðfrítt vinnsluborð og bandsagarblað
Vinnsluhæð 240 mm
Vinnslubreidd 250 mm
Færanlegt vinnsluborð 470x600 mm
Hakkavél: Já
Mótor: 550 wött
Hæð: 1470 mm
Þyngd: 58 kg
Verð aðeins kr. 79.000
Síðumúla 11 - 108 Reykjavík - Sími 568 6899
Póstfang: vfs@vfs.is - Netsíða: www.vfs.is
!"
#
#
"$
%"
" "%
%%
!$$
%"!
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%
##
#!"
" $
""
$
"%
!$
%!
%#
!
"
"
"$#
#
%%
!$!
%!
#"
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Fasteignafélagið
Reitir hefur ákveð-
ið að kaupa tvö
fasteignafélög í
rekstri hjá Stefni,
sjóðastýringar-
félagi í eigu Arion
banka. Heildarvirði
kaupanna er sam-
tals 17,9 milljarðar
króna sem verður
að fullu fjár-
magnað með lánsfé og yfirtöku áhvíl-
andi skulda, segir í tilkynningu. Eign-
irnar eru 37.500 fermetrar af húsnæði
ásamt byggingarrétti. Fasteignirnar eru
Hótel Borg, Borgartún 37, Guðrúnartún
10, Þingvallastræti 23 á Akureyri,
Laugavegur 77, Fiskislóð 11, Skúlagata
17, Síðumúli 16-18 og Faxafen 5. Allt að
sex þúsund fermetra byggingarréttur
fylgir Borgartúni 37.
Eignirnar eru í útleigu til um 20 aðila
með um 99% útleiguhlutfall en helstu
leigutakar eru KEA hótel, Advania, Ný-
herji, Icelandair hótel, Geymslur og
Fastus. Leigutekjur á ári eru 1,4 millj-
arðar króna og er meðaltími leigusamn-
inga um 12 ár. Reitir er stærsta fast-
eignafyrirtæki landsins og munu kaupin
leiða til þess að áætlaður rekstrarhagn-
aður Reita hækkar um 1,1 milljarð
króna á ársgrundvelli.
Reitir kaupa fasteignir
fyrir 18 milljarða
Reitir eignast
Hótel Borg.
STUTTAR FRÉTTIR ...
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Mikil ólga er innan lífeyrissjóðakerf-
isins í kjölfar útboðs Arion banka á
21% hlut sínum í Símanum, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Tengist ólgan í raun sölu á 10% hlut
bankans í fyrirtækinu sem fram fór
örfáum vikum fyrir almennt útboð.
Þar var fjárfestahópi annars vegar og
völdum viðskiptavinum bankans hins
vegar boðinn til kaups sitthvor 5%
hluturinn á gengi sem var tugum pró-
senta lægri en meðaltalsverð reynd-
ist vera í útboðinu sem á eftir fylgdi.
Töldu sjóðirnir, sem margir hverjir
hafa verið hluthafar í Símanum í
nokkur ár í kjölfar fjárhagslegrar
endurskipulagningar fyrirtækisins,
að þeir hefðu átt að hafa möguleika til
kaupa á bréfum í fyrirtækinu á sama
verði og hóparnir fyrrnefndu.
Undrandi á forsölu bréfa
Í samtölum við marga forystu-
menn innan lífeyriskerfisins hefur
Morgunblaðið fengið staðfest að líf-
eyrissjóðirnir telji það verð sem
Arion banki fékk fyrir 21% hlut sinn í
opnu útboði fyrr í mánuðinum hafa
verið ásættanlegt, ekki aðeins fyrir
seljanda heldur kaupendur einnig.
Því hafi sjóðirnir ekki séð neitt at-
hugavert við að þeir tækju þátt í út-
boðinu eins og aðrir en það komi þó á
óvart að þeir hafi ekki setið við sama
borð og ýmsir aðrir sem fengu bréfin
keypt á mun lægra verði. Margir
sjóðanna eru með fjármuni í stýringu
hjá eignastýringarfyrirtækinu Stefni,
sem er í eigu Arion banka. Félög í
baklandi lífeyrissjóðanna eru mörg
hver einnig með mikla fjármuni í
stýringu hjá Stefni og hefur Morg-
unblaðið heimildir fyrir því að á vett-
vangi stjórna þeirra hafi komið til tals
að færa viðskipti frá dótturfélagi
bankans í mótmælaskyni við fram-
kvæmdina á útboði á bréfum Símans
og öðrum fyrri útboðum.
Á sér dýpri rætur
Margir lífeyrissjóðir eru afar ósátt-
ir við framgöngu Arion banka, meðal
annars við endurfjármögnun fast-
eignafélagsins Reita í árslok 2014.
Hún átti sér stað í aðdraganda þess
að fyrirtækið var skráð á markað. Við
endurfjármögnunina var hlutafé að
andvirði 17 milljarða selt og þá gaf
fyrirtækið einnig út 25 milljarða
skuldabréfaflokk. Við fjármögnunina
tók Arion banki ákvörðun um að selja
þremur stærstu lífeyrissjóðum lands-
ins, Lífeyrissjóði starfsmanna ríkis-
ins, Lífeyrissjóði verslunarmanna og
Gildi, ásamt lífeyrissjóðum í eign-
astýringu hjá Arion banka, 12 millj-
arða af hinu nýja hlutafé og allan
skuldabréfaflokkinn. Öðrum lífeyris-
sjóðum í landinu, rúmlega 20 talsins,
var ekki boðin þátttaka.
Ólga innan lífeyrissjóðanna
vegna útboðs Arion banka
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Á markað Viðskipti munu hefjast með hlutabréf í Símanum á fimmtudaginn.
Lífeyrissjóður falaðist eftir bréfum í Símanum á genginu 3,45 í maí síðastliðnum
Kvika banki, sem varð til við sam-
einingu MP banka og Straums fjár-
festingarbanka, hefur ákveðið að
selja liðlega 66% hlut sinn í Íslensk-
um verðbréfum (ÍV) til hóps fjár-
festa. Í tilkynningu kemur fram að
bankanum hafi borist tilboð í hlut-
inn og eftir að hafa farið vandlega
yfir það var ákveðið að semja við til-
boðsaðila um sölu á öllum eignar-
hlut bankans í félaginu. Ekki er
greint frá væntanlegum kaupendum
en stefnt er að því að tilkynna form-
lega um viðskiptin á næstu dögum.
Fyrir um það bil ári var nokkurt
kapphlaup um hluti í ÍV á milli MP
banka og Straums, þegar MP banki
keypti um 27% hlut Íslandsbanka í
ÍV. Um viku síðar var tilkynnt um
kaup Straums á meirihluta í ÍV sem
jafnframt fól í sér forkaupsrétt
Straums á þeim hlutum sem MP
banki hafði keypt skömmu áður.
Íslensk verðbréf eru sérhæft
eignastýringarfyrirtæki með höfuð-
stöðvar við Strandgötu á Akureyri.
Auk Kviku eru helstu hluthafar
félagsins Stapi lífeyrissjóður með
um 17% hlut og Lífeyrissjóður
starfsmanna sveitarfélaga með
14,5%.
Engin samþætting hefur átt sér
stað á milli Kviku og Íslenskra
verðbréfa, að því er fram kemur í
tilkynningu um væntanlega sölu.
Því kallar sala á fyrirtækinu ekki á
breytingar á starfsemi Kviku.
„Stjórnendur bankans höfðu engin
áform uppi um að selja hlut hans í
Íslenskum verðbréfum fyrr en til-
boð barst í hlutinn, en eftir mikla
yfirlegu var ákveðið að taka því til-
boði,“ segir Sigurður Atli Jónsson,
forstjóri Kviku.
Morgunblaðið/Ómar
Sala Sigþór Jónsson er fram-
kvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa.
Kvika selur
Íslensk verðbréf
Bankinn selur
66% hlut sinn til
hóps fjárfesta
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Morgunblaðsins
var fjárfestum, sem eignuðust hlutabréf í Símanum í
kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar fyrirtæk-
isins árið 2013, boðið að selja hluti sína í maí síðast-
liðnum á genginu 3,45. Tilboð bárust fjárfestum frá
ótilgreindum lífeyrissjóði í gegnum fjármálafyrirtæki
sem hafði milligöngu um viðskiptin.
Þetta tilboð var gert rúmum þremur mánuðum áður
en Arion banki seldi fjárfestahópi undir forystu Orra
Haukssonar, forstjóra Símans, hlut í fyrirtækinu á
genginu 2,5. Tilboðið var því 38% hærra en kaupverð
fjárfestahópsins. Þá var tilboðsgengið 19% hærra en
það gengi sem völdum viðskiptavinum bankans bauðst
að kaupa hluti í Símanum á í september síðastliðnum.
Ekki liggur fyrir á hvaða grundvelli fyrrnefnt tilboð
byggðist en ljóst er að það er hærra en það gengi sem
bréf í fyrirtækinu fóru á í svokallaðri tilboðsbók B í
hinu almenna útboði. Í þeirri tilboðsbók tóku þátt þeir
aðilar sem buðu í 100 milljónir eða meira og þar reynd-
ist sölugengið 3,4.
Vildu kaupa á genginu 3,45 í maí
ÓLJÓS VERÐMYNDUN Á BRÉFUM Í SÍMANUM Í AÐDRAGANDA ÚTBOÐS