Morgunblaðið - 14.10.2015, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.10.2015, Blaðsíða 11
DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2015 Ljósmynd/Úr einkasafni fjölskyldu Ingólfs Jóhannssonar Chevrolet Ingólfur Jóhannsson á Iðu í Biskupstungum keypti Chevrolet vörubíl árið 1948. Bíllinn var m.a notaður til að flytja lækninn í Laugarási í sjúkravitjanir en hann var líka notaður til skemmtiferða. Ingólfur næst lengst t.h. um árum. Þetta var sko fjörið, að fá að fara í áburðarferð með pabba og við stoppuðum á Litlu kaffistofunni og fengum okkur hressingu. Mér fannst gaman að hlusta á vörubíl- stjórana spjalla saman, en það er ákveðið tungumál í kringum þennan heim. Vörubílstjórar kalla til dæmis þann mann tippara sem stendur fyrir aftan bílpallinn og passar að það sé sturtað á réttum stað og dreifir svo úr ofaníburðinum.“ Dauðaslys í fjárflutningum Starf vörubílstjóra gat á árum áður verið nokkuð háskalegt og menn tóku stundum mikla áhættu. „Í bókinni eru nokkrar slíkar sögur, til dæmis af heyflutningum norður í land um jólin, þegar allt var á kafi í snjó. Þeir voru marga sólar- hringa á leiðinni,“ segir Anna Rósa og bætir við að fjárflutningarnir miklu 1952-1953 hafi verið alveg sér- stakur kafli í lífi þeirra sem tóku þátt í því. „Þá hafði allt fé verið skorið nið- ur á Suðurlandi vegna mæðiveiki og vörubílstjórar sáu um að flytja nýjan ósýktan fjárstofn norður í Þingeyj- arsýslu. Þetta voru 16 þúsund lömb og til verksins þurfti 100 bíla og fór hver þeirra þrjár ferðir. Þetta var um haust og fyrstu bílarnir lentu sumir í öskubyl á Holtavörðuheiði. Það varð eitt dauðslys í þessum miklu fjár- flutningum, þegar gæslumaður féll af bíl sunnan Holtavörðuheiðar, en það þurftu auðvitað að vera gæslumenn á bílunum á þessari löngu leið með féð.“ Ljósmynd/Úr einkasafni Sigurðar Skúlasonar Stolt Sigurður Skúlason ásamt eiginkonu sinni, Grétu Sig- fúsdóttur, við fyrsta vörubílinn sem hann eignaðist tvítugur. Ljósmynd/Úr einkasafni Baldurs Loftssonar Bátaflutningur Baldur Loftsson vörubílstjóri. Úr einkasafni Guðmundar I. Guðjónssonar Forn Vörubíll frá liðnum tíma. Útgáfuhóf verður n.k laugardag á Sunnlenska bókakaffinu á Selfossi kl 14 og munu væntanlega margir vörubílstjórar mæta til að fagna Wacker Neuson framleiðir öflugar liðstýrðar hjólbörur með burðargetu frá 1,0 tonni upp í 10,0 tonn. Ýmiss búnaður í boði svo sem snúanlegur pallur, pallur með aukinni lyftihæð, flatur pallur, ökumanns hús og margt fleira. Erummeð fyrirliggjandi liðstýrðar hjólbörur með burðargetu upp á 1,5 tonn og aukinni lyftihæð. Fjölhæfar smágröfurLiðstýrðar hjólbörur fráWacker Neuson ÞÓR HF Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Vefsíða: www.thor.is Róbert Róbertsson, faðir Önnu Rósu, hefur verið félagsmaður í Mjölni í 64 ár og hann hefur starfað þar sem framkvæmdastjóri undanfarin tutt- ugu og þrjú ár. Róbert er níræður og Anna Rósa segist efast um að það séu margir á hans aldri í fullu starfi. „Hann sér um allt, reiknar út launin og hefur hingað til borgað öllum með ávísunum. Hann gerir öll tilboð fyrir félagið og nú er uppgangur, það bætast félagar við á hverju ári. Pabbi er búinn að landa verkefnum fyrir allt næsta ár og vantar menn til starfa. Hann er ekkert á leiðinni að hætta. “ Róbert byrjaði að keyra vörubíl ár- ið 1948 og gerði það sleitulaust í 47 ár, en síðan þá hefur hann verið í fullu starfi sem framkvæmdastjóri Mjölnis. „Að starfa hér heldur mér ungum, annars væri ég löngu dauður. Hingað koma líka gamlir félagar mínir á hverjum morgni í kaffi og við ræðum landsins gagn og nauðsynjar. Ég hætti ekki fyrr en ég verð ruglaður,“ segir Róbert og hlær. „Margt hefur breyst á þessum langa tíma, vegir voru slæmir hér áð- ur en núna eru allir vegir góðir. Ég vann bæði vegavinnu og við að keyra áburð til bænda, en það var þriggja mánaða törn á vorin. Bændurnir sögðu að vorið væri komið þegar ég renndi í hlað hjá þeim með fyrsta áburðarfarminn. Einnig starfaði ég á haustin við að keyra fé frá bændum í sláturhúsið, það var önnur törn. Þeg- ar ég vann fyrir Vegagerðina var ég að heiman heila viku eða tvær en kom oftast heim um helgar. Þá var líka unnið um nætur, en það var mik- il breyting hjá okkur vörubílstjórum um 1980 þegar Vegagerðin byrjaði með útboðin, þá lagðist af þetta líf í vegavinnuskúrum sem og nætur- vinnan. Ég var farsæll í vörubílstjóra- starfinu og það varð aldrei slys, sem er mikil heppni hjá atvinnubílstjóra í 50 ár.“ Róbert var alltaf með sama bíl- númer á sínum vörubílum, X-320. „Það var númerið sem var á fyrsta vörubílnum mínum sem ég keypti af Grími á Syðri-Reykjum. Það var Austin-bíll og ég hélt númerinu á öll- um hinum fimm vörubílunum sem ég eignaðist eftir það, en þeir voru allir af Volvo-tegund. Það var siður hjá flestum bílstjórum að halda sínum númerum, en núna þekkir maður ekki nokkurn mann á bílnúmerum,“ segir Róbert og hlær. Róbert var aldrei með búskap á Brún en þegar hann var kosinn gjald- keri í hreppsnefnd í Biskupstungum hjá fjallskilasjóði, þá fannst mönnum ómögulegt að hann ætti enga kind. „Bræðurnir Jón og Eiríkur í Miklholti gáfu mér því þrjú lítil lömb, en flest- ar urðu þær fjórtán hjá mér.“ Níræður og enn í fullu starfi framkvæmdastjóra Stjórinn Róbert á skrifstofunni hjá Mjölni, þar sem hann unir hag sínum vel. Starfaði sem vörubílstjóri í tæplega hálfa öld Þær eru margar konurnar sem gleymst hafa þegar kemur að því sem þær hafa skrifað. Einnig leynist margt í handritasöfnum sem teng- ist konum. Í dag verður hægt að forvitnast um þessa hluti, því í há- deginu kl 12.15 í Menningarhúsi í Grófinni í aðalsafni Borgarbóka- safnsins við Tryggvagötu verður há- degiserindi sem ber heitið: Konan, skáldið og raunveruleik- inn. Þar mun Magnea Þuríður Ingvarsdóttir menningarfræðingur fjalla um skáldskap kvenna fyrr á tímum sem er mörgum gleymdur. Einnig ræðir hún um menning- arperlur kvenna sem leynast víða í handritasöfnum. Hádegiserindi þetta er öllum opið og ókeypis. Erindi í hádeginu í dag á Borgarbókasafni Magnea Menningarfræðingur. Konan, skáldið og raunveruleikinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.