Morgunblaðið - 14.10.2015, Page 4

Morgunblaðið - 14.10.2015, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2015 Hvaleyrarbraut 4-6 - Hafnarfjörður - S: 575 1500 Góð mikróskorin vetrar-heilsársdekk undir RAV4 o.fl. 235/70R16 Kr. 17.700 Sjáðu verðið! Ekki bíða í biðröð!- Komdu STRAX Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við erum alls ekki ánægðir með þetta,“ segir Brandur Bjarnason Karlsson, formaður Flygildafélags Íslands, og vísar í máli sínu til draga að nýrri reglugerð um ómönnuð loftför. Drögin eru nú til umsagnar hjá innanríkisráðuneyt- inu. Í þeim er meðal annars lagt bann við flugi dróna yfir þéttbýli, sem skilgreint er sem „þyrping húsa þar sem búa a.m.k. 50 manns og fjar- lægð milli húsa fer að jafnaði ekki yfir 200 metra“, ferðamannastaði, fjöldasamkomur, sumarhúsabyggð, tjaldsvæði og við opinberar bygg- ingar, s.s. ráðuneyti, forsetabústað, lögreglustöðvar og fangelsi. „Ef banna á drónaflug með öllu í þéttbýli er búið að takmarka notkun þeirra verulega. Það borgar sig auð- vitað alltaf að vera varkár, en til þessa hafa engin alvarleg slys orðið né heldur hafa komið upp alvarleg vandamál. Það hefur hins vegar verið kvartað undan flugi dróna ná- lægt flugvöllum og er ég því sam- mála að banna eigi drónaflug þar við,“ segir Brandur. Verði drögin staðfest í núverandi mynd verður óheimilt að fljúga dróna innan við 1,5 kílómetra frá svæðamörkum flugvallar nema fyrir liggi leyfi frá vellinum. Fljúgandi njósnatæki? Aðspurður segist Brandur að vissu leyti vera sammála banni við drónaflugi yfir þeim stöðum þar sem finna má stóran hóp fólks sam- an kominn. „Mér hefur fundist í lagi að setja hömlur við því, en þá væri kannski hægt að veita sérstök leyfi. Ef viðkomandi getur staðfest að hann hafi ákveðna grunnþekkingu á tækinu má hann fljúga yfir hópinn.“ Hér á landi hafa ómönnuð loftför sést á flugi við opinberar byggingar þar sem finna má viðvæm trúnaðar- gögn innandyra, en dróni er meðal annars sagður hafa sést á flugi við glugga Seðlabanka Íslands. Spurður hvort hann telji líklegt að þessi loftför séu notuð til njósna kveður Brandur nei við. „Það er bara vitleysa að halda því fram. En til eru margar tegundir af drónum – allt frá pínulitlum, sem krakkar geta stjórnað, yfir í stærri dróna á borð við Phantom-inn, sem kostar um 200.000 krónur. Og flestir eru með þannig,“ segir hann og bendir á að á slíkum drónum megi gjarnan finna áfasta GoPro-myndavél eða aðra sambærilega. „Þegar slík myndavél er í um 20 til 30 metrum frá viðfangsefni sínu er til að mynda ómögulegt að lesa texta á blaði.“ Þá segir einnig í drögunum að ekki sé heimilt „að fljúga loftfari í meiri hæð en 120 m yfir jörð“ og að ekki megi „fljúga loftfari þannig að flug fari út úr augsýn stjórnanda og/eða sé utan við drægni stjórn- tækja.“ Segist Brandur vonast til þess að undanþága fáist frá þessum ákvæð- um og bendir í því samhengi á að vísindamenn séu nú þegar farnir að notast við dróna, meðal annars í tengslum við kortlagningu jökla. „Svo er einnig verið að skoða þann möguleika að nota dróna við veð- urathuganir í stað þess að notast við einnota loftbelgi,“ segir hann. Líst illa á bann við drónaflugi yfir ferðamannastöðum Spurður út í hugsanlegt bann drónaflugs yfir ferðamannastöðum segir Brandur: „Það yrði mjög mið- ur ef notkun þessara tækja yrði bönnuð á slíkum stöðum. Auðvitað geta drónar valdið ákveðnu áreiti, en það gera þyrlur einnig. Ég myndi því telja það ósanngjarnt að banna dróna, sem gefa frá sér smá- vegis hávaða, á stöðum þar sem þyrlur mega fljúga yfir og rútur ganga á bílastæðum með tilheyr- andi hávaða.“ Böndum verður komið á dróna  Til umsagnar eru drög að reglugerð sem tekur til notkunar á ómönnuðum loftförum  Lagt er til bann við drónaflugi yfir þéttbýli  Formaður Flygildafélags Íslands er ósáttur með ýmis atriði Morgunblaðið/Golli Drónaeigandi Brandur Bjarnason Karlsson, formaður Flygildafélags Íslands, á um 20 til 30 mismunandi dróna. Vinsældir dróna hafa aukist mjög að undanförnu og eru fé- lagsmenn í Flygildafélagi Ís- lands nú um 470 talsins. Brandur Bjarnason Karlsson, formaður félagsins, segir félagsmönnum og um leið drónum fjölga hratt, en sjálfur á hann 20 til 30 slík tæki. Þessar fljúgandi myndavélar eru ekki einungis skemmtilegur kostur fyrir þá sem ná vilja fjöl- breyttum ljósmyndum og myndböndum af viðfangsefni sínu því drónar eru einnig keppnistæki. „Ég var að skipuleggja nám- skeið í HR um helgina með keppnisdrónum. Það sport er að springa út um allan heim,“ segir Brandur, en þá eru stjórn- endur tækjanna með gleraugu sem tengd eru myndavél dróns- ins. „Svo bara stýrir maður og flýgur um. Þannig kemst maður eins nálægt því að fljúga og hægt er,“ segir hann. Vinsælt sport að keppa með drónum UM 470 FÉLAGSMENN Á flugi Margir eiga dróna. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Bændur sem hafa verið að bjóða í greiðslumark sauðfjár undanfarna mánuði virðast gera ráð fyrir því að ríkið muni styðja framleiðsluna áfram, með sama eða svipuðu fyr- irkomulagi, eftir að núverandi bú- vörusamningur rennur út. Mark- aðsverðið mun vera nálægt 30 þúsund krónum á ærgildi, sem er meira en tvöfalt hærri fjárhæð en beingreiðslurnar sem menn eru að kaupa sér ávísun á næstu tvö árin. Aðilaskipti á greiðslumarki taka gildi um áramót og þurfa bændur að tilkynna þau til Matvælastofn- unar. Viðskiptin eiga sér því stað að hausti og fyrrihluta vetrar. All- nokkrir bændur hafa auglýst greiðslumark til sölu í smáauglýs- ingum Bændablaðsins að undan- förnu og á annan hátt. Starfsmenn Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins hafa milligöngu um söluna, fyrir þá sem þess óska. Margir óska eftir tilboðum. Tók viku að selja Í raun er framleiðslustýringar- kerfi í sauðfjárrækt óvirkt því meirihluti beinna greiðslna frá rík- inu er ótengdur framleiðslunni, nema hvað bændur þurfa að eiga sjö kindur á móti hverjum tíu ær- gildum til að njóta fulls stuðnings. Viðbótargreiðslur, sem tengdar eru gæðastýringu, eru hins vegar greiddar út á framleiðslu. Nú eru tvö ár eftir af gildistíma búvörusamninga. Bændur fá um 6.800-7.000 kr. í beingreiðslur á ári og eru því að kaupa sér ávísun á 13.500-14.000 kr. ríkisstuðning alls næstu tvö árin. Markaðsverðið er talsvert hærra, samkvæmt heimild- um blaðsins, eða um 30.000 kr. á ærgildi. Samningamenn ríkisins og bænda eru þessar vikurnar að semja um nýtt fyrirkomulag. Það verð sem boðið er þýðir að kaup- endur treysta því að núverandi stuðningskerfi ríkisins við sauðfjár- ræktina verði ekki kollvarpað eða það verði að minnsta kosti aðlög- unartími að breytingum. Bóndi sem rætt var við setti 30 þúsund krónur á ærgildið og tók þar mið af viðskiptum sem urðu á síðasta ári. Margar fyrirspurnir bárust og var hann búinn að ráð- stafa öllu greiðslumarkinu áður en vika var liðin frá auglýsingu. Treysta á áframhald- andi stuðning ríkisins  Ærgildi skipta um hendur á um 30 þúsund krónur Morgunblaðið/Eggert Réttir Kaup á greiðslumarki eru mishagkvæm eftir aðstæðum bænda. Regl- ur um lágmarksfjölda fjár að baki hverju ærgildi hafa þar áhrif. Ekki hefur orðið aukning á atvikum þar sem öflugum leysibendum er beint að íslenskum flugvélum í aðflugi, segir í svari Samgöngustofu við fyrirspurn Morgun- blaðsins. „Þrjú slík atvik eru skráð það sem af er ári, tvö á Ís- landi og eitt erlendis. Engin tilvik bárust í sumar,“ seg- ir ennfremur. Árið 2014 varð íslensk flugvél fyrir árás leysibenda að meðaltali einu sinni í mánuði. Leysi- geislaskot á flugmenn eru orðin að plágu í heiminum skv. EASA, flugöryggisstofnun Evrópu, og svo gæti far- ið að leysibendar yrðu flokkaðir sem vopn sem varða við alþjóðalög. Breskir fjölmiðlar fjölluðu um helgina um tíðar árásir í landinu en 284 atvik eru skráð af þarlendum yfirvöldum fyrstu þrjá mánuði ársins. Bandaríkjamenn búast við metári en þar voru gerðar 1.750 árásir fyrstu þrjá mánuði ársins. Leysibendi tvisvar beint að flugvélum í aðflugi Grænn Flug- stjórnaklefinn lýsist upp og blindar flug- manninn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.