Morgunblaðið - 14.10.2015, Page 35
námi í Noregi flutti hún, ásamt ung-
um syni, norður til Akureyrar og
sinnti umönnun fatlaðra á Sólborg.
Á Akureyri skaut hún rótum,
giftist og eignaðist tvær dætur. Með
uppeldi og vinnu fór hún í öldunga-
deild MA og lauk stúdentsprófi.
Valgerður var hjúkrunarfræðingur
á Sjúkrahúsinu á Akureyri og var
lengi við heimahjúkrun aldraðra við
Heilsugæslustöðina á Akureyri, var
deildarstjóri og lauk sérnámi í
heilsugæsluhjúkrun og kennslurétt-
indanámi.
Á seinni árum vann Valgerður við
umönnun og fræðslu fyrir aldraða á
Kristnesspítala og hjúkrunardeild-
inni Seli við Sjúkrahúsið á Ak-
ureyri.
Réttindi og aðstæður aldraðra
hafa hafa átt hug hennar og hún
lauk M.Sc.-prófi í heilbrigðisvís-
indum við HA árið 2010. Lokarit-
gerðin fjallaði um siðferðileg rétt-
indi aldraðra er varða híbýli og
heimili.
Reynir að ná tökum
á skriðsundinu
Valgerður hefur unnið mikið að
góðgerðarstarfsemi, m.a. á vegum
Oddfellow á Akureyri. Hún hefur
farið ófáar ferðir í sól og sumaryl og
nú eru helst tvær til þrjár ferðir
skipulagðar ár hvert. Hún fer í sund
á hverjum morgni og er mesta
áskorunin nú að ná almennilegum
tökum á skriðsundinu, sem hefur
reynst þrautin þyngri. Hún stundar
skátastarf með gildi eldri skáta á
Akureyri og nýtur söngs, útiveru og
félagsskapar í þeim góða hópi.
Auk þess mætir hún í bóka-,
söng-, sund- og gönguklúbba að
ógleymdum lesklúbbnum góða hér
um árið þar sem lesið var á rauð-
vínsflöskur, en gott rauðvín og ostar
eru í uppáhaldi í góðra vina hópi.
Vinkonurnar eru líka endalaus upp-
spretta gleði og tilbreytni daglegs
lífs.
Valgerður á fimm barnabörn sem
njóta óspart félagsskapar, hlýju og
góðrar móttöku í Merkigili, ásamt
smá skutli og öðrum reddingum
sem amma hikar ekki við að leysa.
Fjölskylda
Börn Valgerðar eru Jón Ívar
Rafnsson, f. 15.3. 1968, viðskipta-
stjóri hjá VÍS, maki Bergljót Þrast-
ardóttir, sérfræðingur á Jafnréttis-
stofu; Þórunn Lilja Kristjánsdóttir,
f. 1.4. 1972, d. 20.11. 1982; Sigrún
Lóa Kristjánsdóttir, f. 4.2. 1975,
verkefnastjóri við HA, maki Búi Vil-
hjálmur Guðmundsson, málari og
knattspyrnuþjálfari.
Fyrrverandi eiginmaður Valgerð-
ar er Kristján Jóhannesson, f. 29.7.
1946, bifvélavirki og sjómaður. For-
eldrar hans eru Jóhannes Kristjáns-
son, f. 25.11. 1921, bifvélavirki og
Ólafía Jóhannesdóttir, f. 22.7. 1924,
húsfreyja.
Systkini Valgerðar: Ágúst Ingi
Jónsson, f. 31.1. 1951, blaðamaður á
Morgunblaðinu, Gísli Hafþór Jóns-
son, f. 29.1. 1955, skipasmíðameist-
ari hjá Eykt, Ásrún Jónsdóttir, f.
17.6. 1956, þroskaþjálfi hjá Hafn-
arfjarðarbæ.
Foreldrar Valgerðar: Sigríður
Kamilla Gísladóttir, f. 26.10. 1919, d.
14.3. 2009, húsmóðir og verkakona í
Reykjavík, og Jón Páls Guðmunds-
son, f. 4.3. 1923, d. 29.7. 2010, sjó-
maður, lengst af á vitaskipunum.
Valgerður er nú stödd í Salzburg
í Austurríki.
Úr frændgarði Valgerðar Jónsdóttur
Valgerður
Jónsdóttir
Sigrún Sigurðardóttir
húsfr. á Suðureyri og á Akranesi
Hallbjörn Eðvarð Oddsson
kennari á Akranesi og Suður-
eyri, ættfaðir Hallbjarnarættar
Valgerður Friðrika Hallbjörnsdóttir
húsfreyja á Suðureyri
Guðmundur Þorleifur Geirmundsson
sjómaður og smiður á Suðureyri
Jón Páls Guðmundsson
sjómaður í Rvík
Guðrún Einarsdóttir
Geirmundur Jónsson
Friðrik Benónýsson í Eyjum
Sigurður Hallbjörnsson útgerðarm. á Akranesi
Cæsar Hallbjörnsson kaupm. og rithöf. í RvíkElías Mar rithöfundur
Binni í Gröf
Guðný Sigurðardóttir
húsfr. á Núpi og á Raufarfelli
Jón Benónýsson
b. á Núpi undir Eyjafjöllum
og söðlasm. á Raufarfelli
Gísli Jónsson
form. í Vestmannaeyjum
Ingibjörg Guðmundsdóttir
vinnukona í Rvík og húsfr. í
Eyjum
Sigríður Kamilla Gísladóttir
húsfr. í Rvík með meiru
Borghildur Símonardóttir
húsfr. í Borgarf. og í Eyjum
Guðmundur Bjarnason
smiður í Borgarfirði
Afmælisbarnið Valgerður Jóns-
dóttir hjúkrunarfræðingur.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2015
Halldóra Bjarnadóttir fæddistað Ási í Vatnsdal 14.10.1873, dóttir Bjarna Jónas-
sonar og Bjargar Jónsdóttur. Þau
skildu og hafði skilnaðurinn djúp-
stæð áhrif á Halldóru.
Halldóra vildi fara í Latínuskól-
ann þó það stæði ekki til boða. Hún
kenndi handavinnu og heimilisfræði
á Norðurlandi, fór í kennaranám til
Noregs 1896, kom heim 1899, kenndi
við Barnaskólann í Reykjavík og
nýtti sér nýjar kennsluaðferðir frá
Noregi og kennsluhugmyndir Guð-
mundar Finnbogasonar. En þrátt
fyrir metnað í starfi fékk hún lægri
laun en kennarar menntaðir hér á
landi. Hún fór því aftur til Noregs,
kenndi í Moss og naut virðingar sem
brautryðjandi í kennslu.
Halldóra var skólastjóri við
Barnaskólann á Akureyri 1908-1918
og kenndi kristinfræði og handa-
vinnu. Hún hélt vikulega kenn-
arafundi á heimili sín, hafði þar
kennsluæfingar og fjallað var um
tornæma og baldna nemendur og
lausnir á vanda þeirra. Hún kom á
sérkennslu í skólanum, lagði mikla
áherslu á náin tengsl heimila og
skóla, lét útbúa leikvöll við skólann,
lagði grunn að skólabókasafni, kom
á leikfimikennslu og þeirri reglu að
halda litlu jólin í skólanum. Ein-
kunnarorð skólans í hennar tíð voru
hreinlæti, reglusemi og sparsemi.
Hún stóð fyrir vettvangsferðum í
fyrirtæki og stofnanir í bænum og
þemaverkefnum í tengslum við þær.
Halldóra varð mjög trúuð á ung-
lingsárum og lagði ætíð áherslu á
kristinfræðikennslu. Hún fékk gagn-
rýni frá bæjarbúum fyrir skóla-
umbætur en uppátæki hennar voru
talin kostnaðarsöm og óþörf. Hún
var búsett á Akureyri 1922, sat þar í
bæjarstjórn og skólanefnd, studdi
kvennabaráttuna, var fyrsti formað-
ur Sambands norðlenskra kvenna og
gaf út og ritstýrði ársritinu Hlín,
málsvara Sambands norðlenskra
kvenna í 44 ár. Hún kenndi svo
handavinnu við KÍ 1922-30 og starf-
aði í Heimilisiðnaðarfélagi Íslands.
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson skrif-
aði ævisögu Halldóru, útg. 1960.
Halldóra lést 28.11. 1981, þá 108
ára, elst allra Íslendinga.
Merkir Íslendingar
Halldóra
Bjarnadóttir
90 ára
Einar Steinþórsson
Ingveldur Gestsdóttir
Þorsteinn Jónatansson
85 ára
Eiríkur Kúld Davíðsson
Gísli Guðmundsson
Margrét Gunnarsdóttir
80 ára
Erla M. Jónsdóttir
Sigurður Sigurðsson
75 ára
Árný Elsa Tómasdóttir
Guðrún Pálsdóttir
Gunnar Björgvin Arason
Kristín Ósk Óskarsdóttir
70 ára
Ástríður Hauksdóttir
Búi Steinn Jóhannsson
Guðmundur B. Haraldsson
Helgi Júlíusson
Ólafur E. Thoroddsen
Rósa Helgadóttir
Sesselja Hannesdóttir
Steingrímur Magnússon
Valgerður Guðmundsdóttir
Vilborg Jóhannsdóttir
60 ára
Ásbjörn Skúlason
Guðbjörg Nanna
Einarsdóttir
Guðmundur H. Jóhannsson
Hólmar Heiðdal
Hjálmtýsson
Lilja Guðný
Guðmundsdóttir
Sigbjörn Björnsson
Solvej Dürke Bloch
Þorbjörg Jóhannsdóttir
Ægir Lúðvíksson
50 ára
Bjarni Bjarnason
Eileen Chua Yao
Eva Dís Snorradóttir
Friðrik Úlfar Oddsson
Guðlaugur Stefánsson
Guðmundur Pálmason
Kjartan Sveinsson
Sigurður E. Steinsson
Slawomir Szczepanik
Valgerður G. Halldórsdóttir
40 ára
Alexandra Þórlindsdóttir
Arnaldur Gauti Johnson
Elizabeth Margaret
Skuthorpe
Elsa Rannveig Sveinsdóttir
Emilía Katrín Leifsdóttir
Harpa Rut Svansdóttir
Lech Obrycki
Mariusz Kolasa
Piotr Slawomir Latkowski
Rut Gunnarsdóttir
Solveig Edda
Vilhjálmsdóttir
Sunneva Eggertsdóttir
30 ára
Andri Björn Úlfarsson
Ingunn S.U. Kristensen
Jessica Nathalie E.
Devergnies
Mary Catherine Ólafsson
Ragnar Þór Risten
Friðjónsson
Sigurður Garðarsson
Úlfhildur Ólafsdóttir
Zbigniew Koscielecki
Þrúða Sif Einarsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Viktoría ólst upp í
Reykjavík, býr þar, er
sjúkraliði, lauk BA-prófi í
þroskaþjálfafræðum frá
HÍ og er þroskaþjálfi í
Rjóðrinu og við leikskóla.
Maki: Jón Ingiberg Jón-
steinsson, f. 1982, graf-
ískur hönnuðöur.
Sonur: Róbert Elí, f. 2011,
og annað á leiðinni.
Foreldrar: Birna Bald-
ursdóttir, f. 1961, og Sig-
urgeir Ernst, f. 1959. Þau
búa í Reykjavík.
Viktoría
Sigurgeirsdóttir
30 ára María ólst upp í
Reykjavík, býr í Reykjavík,
lauk cand. psych.-prófi í
klínískri sálfræði frá HÍ og
starfar í átröskunarteymi
LSH.
Maki: Hjörleifur Gíslason,
f. 1984, lögfræðingur.
Foreldrar: Laufey
Tryggvadóttir, f. 1954, far-
aldsfræðingur hjá
Krabbameinsfélagi Ís-
lands, og Þorgeir S.
Helgason, f. 1953, jarð-
verkfræðingur.
María Þóra
Þorgeirsdóttir
30 ára Eyþór ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk at-
vinnuflugmannsréttindum
frá Flugskóla Íslands og er
flugmaður hjá Mýflugi.
Maki: Birna Kristinsdóttir,
f. 1986, starfar við leik-
skóla.
Börn: Ásdís Heiða, f. 2012,
og annað á leiðinni.
Foreldrar: Ásgeir Helgi
Erlingsson, f. 1962, og
Kristín Kristjánsdóttir, f.
1964. Fósturmóðir: Heiða
M. Hilmarsdóttir, f. 1965.
Eyþór Páll
Ásgeirsson
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Ármúla 24 • S: 585 2800Opið virka daga 9 -18, laugardaga 11-16 – www.rafkaup.is
FOLD veggljós frá
Hönnuður er Arik Levy