Morgunblaðið - 14.10.2015, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.10.2015, Blaðsíða 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2015 Billy Elliot (Stóra sviðið) Lau 17/10 kl. 19:00 Fim 12/11 kl. 19:00 Lau 21/11 kl. 19:00 Fös 23/10 kl. 19:00 Fös 13/11 kl. 19:00 Fös 27/11 kl. 19:00 Fös 6/11 kl. 19:00 Fös 20/11 kl. 19:00 Lau 28/11 kl. 19:00 Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega Dúkkuheimili (Stóra sviðið) Sun 18/10 kl. 20:00 aukas. Sun 25/10 kl. 20:00 aukas. Sun 1/11 kl. 20:00 Aðeins þessar sýningar! At (Nýja sviðið) Fim 15/10 kl. 20:00 Fim 22/10 kl. 20:00 Lau 17/10 kl. 20:00 Fös 23/10 kl. 20:00 Breskt verðlaunaverk í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur Kenneth Máni (Litla sviðið) Lau 17/10 kl. 20:00 5.k. Fös 30/10 kl. 20:00 7.k. Fös 13/11 kl. 20:00 Fös 23/10 kl. 20:00 6.k. Fös 6/11 kl. 20:00 Fös 20/11 kl. 20:00 Kenneth Máni stelur senunni Lína langsokkur (Stóra sviðið) Sun 18/10 kl. 13:00 6.k. Sun 1/11 kl. 13:00 8.k. Sun 25/10 kl. 13:00 7.k. Sun 8/11 kl. 13:00 Sterkasta stelpa í heimi kemur aftur Öldin okkar (Nýja sviðið) Fös 30/10 kl. 20:00 1.k. Fim 5/11 kl. 20:00 4.k. Sun 8/11 kl. 20:00 7.k. Lau 31/10 kl. 20:00 2 k. Fös 6/11 kl. 20:00 5.k. Fim 12/11 kl. 20:00 8.k. Sun 1/11 kl. 20:00 3.k. Lau 7/11 kl. 20:00 6.k. Fös 13/11 kl. 20:00 9.k Hundur í óskilum snúa aftur Sókrates (Litla sviðið) Mið 21/10 kl. 20:00 8.k. Þri 3/11 kl. 20:00 Lau 21/11 kl. 20:00 Fim 22/10 kl. 20:00 9.k Fim 5/11 kl. 20:00 Sun 22/11 kl. 20:00 Lau 31/10 kl. 20:00 10.k Lau 14/11 kl. 20:00 Mið 25/11 kl. 20:00 Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina Vegbúar (Litla sviðið) Fim 15/10 kl. 20:00 1.k. Þri 20/10 kl. 20:00 4.k. Mið 28/10 kl. 20:00 Fös 16/10 kl. 20:00 2 k. Lau 24/10 kl. 20:00 5.k. Fim 29/10 kl. 20:00 Sun 18/10 kl. 20:00 3.k. Sun 25/10 kl. 20:00 6.k. Sun 1/11 kl. 20:00 Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið Mávurinn (Stóra sviðið) Fös 16/10 kl. 20:00 1.k. Lau 24/10 kl. 20:00 4.k. Mið 4/11 kl. 20:00 7.k. Mið 21/10 kl. 20:00 2 k. Fim 29/10 kl. 20:00 5.k. Lau 7/11 kl. 20:00 8.k. Fim 22/10 kl. 20:00 3.k. Lau 31/10 kl. 20:00 6.k. Lau 14/11 kl. 20:00 9.k Krassandi uppfærsla á kraftmiklu meistaraverki Hystory (Litla sviðið) Þri 27/10 kl. 20:00 aukas. Mið 11/11 kl. 20:00 aukas. Allra síðustu sýningar! Dúkkuheimili, nýjar aukasýningar! 65 20151950 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Lau 17/10 kl. 19:30 13.sýn Sun 8/11 kl. 19:30 22.sýn Fim 26/11 kl. 19:30 Aukas. Sun 18/10 kl. 19:30 14.sýn Mið 11/11 kl. 19:30 Aukas. Lau 28/11 kl. 19:30 29.sýn Fim 22/10 kl. 19:30 15.sýn Fim 12/11 kl. 19:30 23.sýn Sun 29/11 kl. 19:30 30.sýn Fös 23/10 kl. 19:30 16.sýn Fös 13/11 kl. 19:30 24.sýn Lau 5/12 kl. 19:30 31.sýn Mið 28/10 kl. 19:30 17.sýn Lau 14/11 kl. 15:00 Aukas. Sun 6/12 kl. 19:30 32.sýn Fös 30/10 kl. 19:30 18.sýn Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn Fös 11/12 kl. 19:30 35.sýn Fim 5/11 kl. 19:30 20.sýn Lau 21/11 kl. 19:30 27.sýn Lau 12/12 kl. 19:30 36.sýn Fös 6/11 kl. 19:30 Aukas. Sun 22/11 kl. 19:30 28.sýn Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports! Móðurharðindin (Kassinn) Fös 16/10 kl. 19:30 18.sýn Sun 25/10 kl. 19:30 22.sýn Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn Lau 17/10 kl. 19:30 19.sýn Sun 1/11 kl. 19:30 23.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 27.sýn Sun 18/10 kl. 19:30 20.sýn Fim 5/11 kl. 19:30 24.sýn Fös 23/10 kl. 19:30 21.sýn Sun 8/11 kl. 19:30 25.sýn Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna. Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið) Lau 24/10 kl. 19:30 Frums. Lau 31/10 kl. 20:00 3.sýn Fim 19/11 kl. 19:30 6.sýn Lau 24/10 kl. 22:30 2.sýn Lau 7/11 kl. 22:30 5.sýn Lau 21/11 kl. 22:30 7.sýn Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna! Heimkoman (Stóra sviðið) Mið 14/10 kl. 19:30 2.sýn Fim 29/10 kl. 19:30 6.sýn Fös 20/11 kl. 19:30 10.sýn Fim 15/10 kl. 19:30 3.sýn Sun 1/11 kl. 19:30 7.sýn Fös 27/11 kl. 19:30 11.sýn Fös 16/10 kl. 19:30 4.sýn Lau 7/11 kl. 19:30 8.sýn Fös 4/12 kl. 19:30 12.sýn Sun 25/10 kl. 19:30 5.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 9.sýn Meistaraverk Nóbelsskáldsins Pinters. Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan) Lau 17/10 kl. 13:30 Lau 24/10 kl. 13:30 Lau 17/10 kl. 15:00 Lau 24/10 kl. 15:00 Kuggur og félagar eru komnir aftur í Kúluna. (90)210 Garðabær (Kassinn) Fös 30/10 kl. 19:30 Frums. Lau 7/11 kl. 19:30 4.sýn Sun 22/11 kl. 19:30 7.sýn Lau 31/10 kl. 19:30 2.sýn Fim 12/11 kl. 19:30 5.sýn Fös 6/11 kl. 19:30 3.sýn Fös 13/11 kl. 19:30 6.sýn Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið) Sun 25/10 kl. 16:00 Sun 8/11 kl. 14:00 Sun 15/11 kl. 16:00 Sun 1/11 kl. 14:00 Sun 8/11 kl. 16:00 Sun 1/11 kl. 16:00 Sun 15/11 kl. 14:00 Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu DAVID FARR HARÐINDIN Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Ragnheiður Eyjólfsdóttir hlaut í gær Íslensku barnabókaverðlaunin 2015 fyrir nýja skáldsögu sína, Skuggasaga – Arftakinn. Í umsögn dómnefndar segir að þetta sé metn- aðarfull og spennandi saga sem jafn- ist „á við bestu furðusögur sem skrifaðar hafa verið á íslensku“. Ragnheiður er arkitekt að mennt. Arftakinn er hennar fyrsta bók en innblástur sækir hún í norrænar sögur og evrópskar sagnir og æv- intýri. Í tilkynningu frá Forlaginu, sem gefur verðlaunabókina út, segir að hún sé þegar komin vel á veg með aðra sögu um persónurnar. Skrifaði mikið sem krakki Þegar Ragnheiður ákvað að senda handrit sögunnar inn í keppnina um bestu barnabókina hafði hún aldrei gert neitt slíkt áður. „Ég varð mjög hissa þegar ég vann, átti alls ekki von á því, en auð- vitað langar mann þó að fá viður- kenningu og staðfestingu á því að maður sé nógu góður til að skrifa ekki bara fyrir skúffuna,“ sagði hún eftir afhendingu verðlaunanna. Hún segir handritið hafa verið komið vel á veg en eftir að það hafði verið valið til útgáfu vann hún með Sigþrúði Gunarsdóttur, ritstjóra hjá Forlaginu, að því að bæta verkið. „Hún hjálpaði mér gríðarlega mikið og ég lærði mikið af því samstarfi,“ sagði hún. Ragnheiður hugsar Skuggasögu sem röð sagna, hefur hún lengi gengið með hugmyndina? „Nei, í raun ekki. Ég skrifaði mik- ið sem krakki en hætti því þegar ég kom í efri bekk grunnskóla. En mamma minnti mig reglulega á hvað ég hefði haft gaman af að skrifa og sagði að ef mig vantaði eitthvað að gera í frítíma mínum þá ætti ég að prófa að skrifa. Einn daginn byrjaði ég síðan og það flaut einhvernveginn áfram. Ég lenti í öðrum verkefnum og leit ekki á textann aftur fyrr en nokkrum mánuðum seinna. Það var þá mögn- uð upplifun að lesa eitthvað eftir sjálfan sig, í sögu sem ég vissi ekk- ert hvert myndi stefna, en mér fannst þá að þetta væri spennandi og ekkert svo lélegt. Þá ákvað ég að klára söguna,“ sagði hún. Verðlaunin veitt í 29. sinn Ragnheiður lauk mastersnámi í arkitektúr í Danmörku fyrir þremur árum og hefur síðan starfað sjálf- stætt í München í Þýskalandi. Hún segir að nú muni skrifin fara að keppa um tímann við fagið. Verðlaunasjóður íslenskra barna- bóka var stofnaður 1985 í tilefni af sjötugsafmæli Ármanns Kr. Ein- arssonar rithöfundar (1915-1999) og voru nú veitt í 29. sinn. Að sjóðnum standa fjölskylda Ármanns, Vaka- Helgafell (Forlagið), IBBY á Íslandi og Barnavinafélagið Sumargjöf. Morgunblaðið/Golli Verðlaunahöfundur „Ég varð mjög hissa þegar ég vann,“ segir Ragnheiður Eyjólfsdóttir arkitekt sem tók í gær við viðurkenningu í Hagaskóla. Hún hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir bókina Skuggasaga – Arftakinn. Mögnuð upplifun að lesa eitthvað eftir sjálfan sig  Ragnheiður Eyjólfsdóttir hlaut barnabókaverðlaunin Bókaútgáfan Skrudda sendir nokkr- ar bækur á markað þessar vik- urnar. Í bókinni Landnám og landnáms- fólk – Saga af bæ og blóti fjallar dr. Bjarni F. Einarsson fornleifafræð- ingur um landnám Íslands, for- sendur þess og aðdraganda. Í brennidepli er landnámsbýlið Hólm- ur í Nesjum sem rannsakað var árin 1997 til 2011, en þar voru rannsak- aðar minjar um bæ og blót. Sögu- sviðið nær langt út fyrir landstein- ana, allt frá Nýfundnalandi í vestri að Bulgar í austri, frá Afríku í suðri til Svalbarða í norðri. Í bókinni birt- ast á fjórða hundrað ljósmyndir, teikningar, uppdrættir og kort. Nýtt fyrir börnin Í heiminum heima nefnist ný ljóðabók eftir Einar Ólafsson. Þetta er áttunda ljóðabók Einars en fyrstu bækur hans komu út árið 1971. Síðasta bók hans, Mánadúfur, kom út árið 1995 þannig að þessi bók er afrakstur tuttugu ára tíma- bils. Í henni kennir ýmissa grasa. Í bókinni Stafrófið eftir Heiðu Björk Norðfjörð er íslenska stafróf- ið frá a til ö kynnt fyrir yngstu les- endunum. Bókin er skreytt með lit- ríkum myndum úr íslenskum veruleika. Þá koma út fjórar bækur eftir sama höfund undir yfirskriftinni „Litlu smádýrabækurnar“ en þær nefnast: Halló Ási ánamaðkur, Halló Hanna hunangsfluga, Halló Kata könguló og Halló Frikki fiðr- ildi. Í bókunum er sagt frá ýmsum smádýrum í náttúrunni, lífsháttum þeirra og hvernig ber að umgangast þau. Bækurnar höfða til barna á aldrinum þriggja til sjö ára. Þýðir bók Zweig Sigurjón Björnsson hefur þýtt Erasmus - Upphefð og andstreymi eftir Stefan Zweig. Þessi litla bók sem segir frá lífi og störfum Eras- musar frá Rotterdam (1466–1536) kom fyrst á prent árið 1934 en hef- ur ekki verið þýdd áður á íslensku. Erasmus var einhver merkasti mað- ur sinnar samtíðar, húmanisti og friðarsinni. Ævisagan Jörundur hundadaga- konungur eftir Sarah Bakewell kom fyrst út á íslensku fyrir tíu árum og er nú endurútgefin. Þá kemur skáldsaga Arto Paasilinna, Ár hér- ans, í þýðingu Guðrúnar Sigurð- ardóttur nú út að nýju. Tvær kvik- myndir hafa verið gerðar eftir sögunni, sem er þekktasta og mest lesna saga þessa vinsæla höfundar en hún kom fyrst út hér á landi árið 1999. Landnámsfólk, ljóð Einars og stafrófið  Nýjar útgáfubækur Skruddu  Fjallað um fornleifa- rannsóknir á Hólmi  Áttunda ljóðabók Einars Ólafssonar Bjarni F. Einarsson Einar Ólafsson Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.