Morgunblaðið - 14.10.2015, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 14.10.2015, Qupperneq 44
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 287. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696 1. Átti aðeins miða aðra leið 2. Látnar liggja í farangurshólfi 3. Tyrkir með Íslendingum á EM 4. Fann fullt umslag af peningum »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Sýningin Rauður snjór – þegar loftslaginu blæðir, verður opnuð á morgun kl. 17 í Norræna húsinu. Rauður snjór er samsýning norrænna lista- og vísindamanna og er umfjöll- unarefnið loftslagsbreytingar. Meðal þátttakenda í henni eru myndlistar- maðurinn Magnús Pálsson og fær- eyski tónlistarmaðurinn Kristian Blak sem heldur tónleika í tilefni sýning- arinnar kl. 19.30 annað kvöld. Rauður snjór og tónleikar með Blak  Franska söngkonan Edith Piaf hefði orðið 100 ára þann 19. desember nk. og í tilefni af því verður þann dag blásið til tónleikaveislu í Norðurljósasal Hörpu. Brynhildur Guðjónsdóttir, sem lék Piaf í leikriti Sigurðar Pálssonar í Þjóðleikhúsinu árið 2004, og sjö manna hljómsveit munu flytja ástsælustu lög Piaf. Lög Piaf flutt á afmælisdegi hennar  Jón Sigurðsson píanóleikari held- ur tónleika í kvöld kl. 20 í Norræna húsinu og eru þeir á dagskrá tón- leikaraðarinnar Klassík í Vatns- mýrinni. Jón mun flytja heila dag- skrá með píanóverkum eftir Alexand- er Skrjabín en í ár eru 100 ár liðin frá dauða þess merka rússneska tón- skálds. Jón mun leika 12 prelúdíur, tvær sónötur, fjögur ljóð, Mazurka og Vers la flamme eftir Skrjabín. Leikur verk Skrjabín Á fimmtudag Suðvestan 8-13 m/s og dálítil rigning um landið V- vert, en heldur hægari vindur og bjartviðri A-til. Hiti 3 til 8 stig. Á föstudag Suðvestan 8-15 m/s, hvassast um landið NV-vert. Súld eða rigning, en þurrt NA- og A-lands. Hiti 6 til 12 stig. Á laugardag Sunnan 8-15 m/s og þokusúld eða rigning. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hiti 2 til 7 stig. Bætir í vind í kvöld. VEÐUR „Ég er sáttur með nánast allt í okkar leik. Það eina sem mér fannst vanta var að menn nýttu færin. Mér fannst við eiga betra skilið út úr þessu, og skapa okkur meira en þeir. Í þessu felst eina svekkelsið,“ sagði Lars Lagerbäck, annar landsliðs- þjálfara Íslands í knatt- spyrnu karla, eftir naumt tap, 1:0, í lokaleik und- ankeppni EM í Konya í Tyrklandi í gærkvöldi. »1 Áttum skilið að fá meira úr leiknum „Strákarnir voru góðir í leiknum. Við vörðumst vel og ánægjulegt að okkur tókst að halda markinu hreinu í þessum tveim- ur útileikjum,“ sagði Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U21 árs landsliðs Íslands í knattspyrnu, eftir að það gerði marka- laust jafn- tefli við Skota í und- ankeppni EM í Aberdeen í gær. Íslenska liðið er í efsta sæti síns undanriðils og er taplaust eftir fimm leiki. »4 Efstir og taplausir eftir fimm leiki Sorg ríkir í Hollandi eftir að ljóst varð að hollenska landsliðið í knattspyrnu verður ekki á meðal þátttökuliða í úr- slitakeppni EM í Frakklandi næsta sumar. Hollendingar, bronsliðið frá HM í fyrra, enduðu í 4. sæti í riðli Ís- lendinga. Þeir töpuðu í lokaumferð- inni fyrir Tékkum, 3:2. Þetta verður í fyrsta sinn í 30 ár sem Hollendingar verða ekki í úrslitakeppni EM. »1 EM karla án Hollands í fyrsta sinn í 30 ár ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Fótbrotinn drengur kemur inn á bráðamóttöku og þarf á læknishjálp að halda. Yrði honum sagt að koma eftir nokkra mánuði? Líklega ekki, en mörg börn með geðrænan vanda þurfa að bíða lengi eftir læknishjálp. Vakin er athygli á þessu og ýmsu öðru varðandi geðheilbrigðismál barna og unglinga í stuttmyndinni Heilabrot, sem gerð var af ung- mennaráði UNICEF og sýnd verður í öllum framhaldsskólum landsins í dag. Í myndinni fer fótbrotinn dreng- ur í gegnum heilbrigðiskerfið eins og um barn með geðröskun væri að ræða og myndin er hluti átaksins Heilabrot þar sem bent er á úrræða- leysi í geðheilbrigðismálum barna og unglinga. Meðal þeirra sem tóku þátt í gerð myndarinnar eru þær Lilja Hrund Lúðvíksdóttir 16 ára og Arna Dís Arnþórsdóttir 18 ára sem eru báðar nemendur í Verslunarskól- anum. „Hugmyndin kviknaði í fyrravetur, þegar við í ungmennaráðinu duttum inn á umræður um geðheilsu ung- linga. Þá rann það upp fyrir okkur að við þekktum öll einhvern sem átti við geðröskun að stríða. Þannig fengum við hugmyndina að því að gera mynd um þennan málaflokk. Ég held að besta leiðin til að ná til fólks á okkar aldri sé með stuttmynd,“ segir Lilja. „Ég held að allir þekki einhvern sem hefur lent í svona. Það er mis- munandi hvort fólk vill tala um það eða ekki, þetta getur verið viðkvæmt mál en við erum opin kynslóð og vilj- um tala um hlutina,“ segir Arna. Algerlega verk ungs fólks Allir sem koma að gerð myndar- innar eru á svipuðum aldri og þær stöllur. Hún var framleidd í samstarfi við unga kvíkmyndagerðarmenn, leikararnir eru unglingar og börn og þær Lilja og Arna segja að það hafi skipt miklu máli að myndin væri al- gerlega verk ungs fólks. „Þarna eru ungmenni að vekja athygli á mál- efnum ungmenna. Við vorum að hugsa um að fá fullorðið fólk til að vinna myndina. En fullorðnir hugsa öðruvísi og okkur fannst að það væri áhrifameira og málstaðurinn kæmist best til skila ef bara ungmenni kæmu að þessu,“ segir Lilja. Þær segja að það hafi komið þeim á óvart, þegar þær fóru að kynna sér málin, hver staða málaflokksins er. „Ég vissi ekki að þetta væri svona slæmt. Margir krakkar missa mikið úr lífi sínu vegna þessa,“ segir Arna. „Það væri kannski mikill kostnaður til að byrja með að bæta þjónustuna. En til langs tíma litið væri verið að spara með því að bæta heilbrigðis- kerfið. Við uppskerum líka heilbrigð- ara samfélag.“ Ég held að allir þekki einhvern  Við erum opin kynslóð og viljum tala um hlutina Morgunblaðið/Golli Heilabrot Þær Arna Dís Arnþórsdóttir (til vinstri) og Lilja Hrund Lúðvíksdóttir eru í hópi vaskra ungmenna úr Ungmennaráði UNICEF sem gerðu stuttmyndina Heilabrot sem fjallar um geðheilbrigðismál barna og unglinga. Samhliða frumsýningu stutt- myndarinnar í dag hafa stjórnir margra nemendafélaga skipulagt dagskrá þar sem staðan í geð- heilbrigðismálum barna og ung- menna á Íslandi er rædd. Stjórn- irnar hafa einnig klæðst bolum merktum átakinu, bent á myllu- merkin #heilabrot, #éger- ekkitabú og #viðerumbrjáluð á samfélagsmiðlum og hvatt nem- endur til að skilja eftir ósvöruð símtöl til heilbrigðisráðherra. „Þetta er meira táknrænt, við er- um ekki að fara að hringja í ráð- herra, heldur er hægt að hringja í tiltekið númer sem verður gefið upp í myndinni. Á málþinginu verður Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra síðan afhent- ur síminn sem hringt var í og þar getur hann séð fjölda símtalanna. Þetta á að sýna hversu þörfin er mikil og hversu margir krakkar eru að reyna að fá hjálp,“ segir Arna. Ósvöruð símtöl til ráðherra #HEILABROT, #ÉGEREKKITABÚ OG #VIÐERUMBRJÁLUÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.