Morgunblaðið - 23.10.2015, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2015
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Talið er að vegfylling í Kolgrafa-
firði hafi ekki átt þátt í umfangs-
miklum síldardauða í firðinum vet-
urinn 2012-2013. Þetta kemur fram
í skýrslu Verkfræðistofunnar
Vatnaskila sem unnin var fyrir
Vegagerðina.
Síldin drapst innan vegfyllingar-
innar og beindust sjónir því sér-
staklega að henni. Súrefnisskortur
í firðinum er talinn hafa valdið síld-
ardauðanum, en niðurstöður rann-
sóknarinnar sýna fram á að vegfyll-
ingin hafi ekki haft nokkur áhrif á
súrefnissveiflur sem eru að jafnaði
miklar í firðinum.
Súrefnið jafnt um allan fjörð
Í niðurstöðum rannsóknarinnar
segir að styrkur súrefnis í firðinum
sveiflist jafnt innan vegfyllingar-
innar og utan, þegar súrefnisupp-
taka síldarinnar er sem mest. Þann-
ig geti súrefnisstyrkur fallið á stóru
svæði í firðinum.
Helstu áhrifavaldar súrefnis-
sveiflna í firðinum eru taldir vera
vindstyrkur og varandi lágvinds-
tímabil, sem eru mjög tíð í Kolg-
rafafirði. Einnig er tekið fram að
mesta flóðhæð á stórstraumi ráði
miklu um súrefnisbúskap fjarðarins
Í skýrslunni eru líkur eru leiddar
að því að tímasetning mikilla
gangna og óhentugar umhverf-
isaðstæður hafi ráðið mestu um
súrefnishnignunina.
Einnig er tekið fram að í raun
hafi á síðustu árum skapast verri
umhverfisaðstaða fyrir síldina, með
tilliti til súrefnishnignunar. Lukkan
ein hafi ráðið því að göngur í Kol-
grafafirði hafi verið minni en áður.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjáns
Dauð síld Breiður af dauðri síld í Kolgrafarfirði veturinn 2012-2013.
Vegfyllingin olli
ekki síldardauða
Lægstu tilboð í jarðvinnu og undir-
stöður vegna byggingar nýrrar og
öflugri Suðurnesjalínu voru nærri 70
milljónum undir kostnaðaráætlun
Landsnets. Verkið verður unnið í
vetur og næsta sumar og sumarið
2017 er ráðgert að reisa möstur og
strengja línurnar á þau.
Verkið felst í gerð vegslóðar, jarð-
vinnu og undirstöður 220 kílóvolta
háspennulínu frá Hraunhellu í Hafn-
arfirði að spennistöð við Rauðamel
norðan Svartsengis. Línunni er ætl-
að að styrkja raforkukerfið á Suð-
urnesjum, bæði vegna almennra
nota, virkjana þar og nýrra atvinnu-
fyrirtækja í Helguvík og víðar.
Háspennulínan verður að mestu
leyti loftlína en 1,5 km kafli næst
Hafnarfirði verður lagður í jarð-
streng. Möstrin sem síðar verða
reist verða flest samskonar og í nú-
verandi Suðurnesjalínu en heldur
hærri, samkvæmt upplýsingum Nils
Gústafssonar, framkvæmdastjóra
framkvæmda- og rekstrarsviðs
Landsnets. Línurnar munu liggja
samsíða meginhluta leiðarinnar. Þó
verða nokkur möstur næst Hafnar-
firði samkvæmt nýrri hönnun. Þau
eru svokallaðir einpólungar, eins og
prjónn upp í loftið.
100 möstur á leiðinni
Línuleiðin er um 32 kílómetra löng
og munu um 100 möstur bera línuna
uppi.
Fyrir útboðið var áætlað að verkið
myndi kosta 390 milljónir kr. Sjö til-
boð bárust. Tvö eru lægst, tilboð Ís-
lenskra aðalverktaka sem er tæpar
320 milljónir og tilboð LNS Sögu
sem er tæpum 3 milljónum kr.
hærra. Ístak býðst til að vinna verkið
fyrir 367 milljónir. Önnur tilboð eru
mun hærri.
Sérfræðingar Landsnets fara nú
yfir tilboðin og bera þau saman og
síðan verður gengið til samninga við
þann bjóðanda sem talinn er vera
með hagstæðasta tilboðið.
Á næstunni verður boðið út eftirlit
með framkvæmdinni.
helgi@mbl.is
Lægstu tilboð 70 millj-
ónum undir áætlun
Landsnet er að hefja lagningu háspennulínu á Suðurnes
Einpólungar Átta háspennumöstur sem næst verða Hafnarfirði verða af
nýrri hönnun, svokallaðir einpólungar. Hin möstrin verða hefðbundin.
Suðurnesjalína
» Landsnet hefur fengið heim-
ild til eignarnáms á landi undir
Suðurnesjalínu og bætur hafa
verið metnar. Hluti landeig-
enda mótmælir aðgerðinni og
eru mál þeirra fyrir Hæstarétti.
» Landsnet hefur samið um
afhendingu orku til tveggja kís-
ilvera í Helguvík og hyggst
flytja orkuna með jarðstreng
frá Fitjum.
Í kjölfar nýrra kjarasamninga hjá Fjarðaáli skapast tækifæri til
að taka upp nýtt vaktakerfi. Frá 1. mars 2016 verður unnið á
8 tíma vöktum í álveri Alcoa Fjarðaáls í stað 12 tíma vakta áður.
Þannig minnkum við vinnuálag og auðveldum starfsmönnum að
ná jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Við breytinguna fjölgar starfsfólki í framleiðslu og viðhaldi og
vaktahópur bætist við. Því viljum við ráða öflugt fólk til starfa
á skemmtilegum og fjölskylduvænum vinnustað.
Alcoa Fjarðaál hefur stöðugar umbætur að leiðarljósi. Umhverfi,
heilsa og öryggi eru forgangsmál. Mikið er lagt upp úr góðum
aðbúnaði, teymisvinnu, öflugu félagsstarfi og stuðningi við
samfélagið.
Þannig tryggjum við að framúrskarandi rekstrarárangur og eftir-
sóknarvert starfsumhverfi fari ávallt saman.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störfin.
Skriflegumumsóknum skal skilað áwww.alcoa.is. Umsóknarfrestur
er til ogmeðmánudeginum 2. nóvember. Áhugasamir eru hvattir til
að sækja um sem fyrst. Farið verðurmeð umsóknir sem trúnaðarmál
og öllum umsóknum svarað.
8 tíma vaktir — breyting til batnaðar