Morgunblaðið - 23.10.2015, Page 14

Morgunblaðið - 23.10.2015, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2015 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Vinna starfshóps sem Illugi Gunn- arsson menntamálaráðherra skipaði 8. maí sl. til þess að skoða og greina rekstrarvanda Ríkisútvarpsins hefur dregist á langinn en upp- haflega átti nefndin að skila skýrslu til ráð- herra eigi síðar en 26. júní sl. Eyþór Arnalds er formaður starfshópsins en aðrir í hópnum eru Guðrún Ögmundsdóttir, starfs- maður í fjármálaráðuneytinu, og Svanbjörn Thoroddsen ráðgjafi. Eyþór Arnalds sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að starfshópur- inn væri nú að leggja lokahönd á skýrsluna og myndi skila henni til menntamálaráðherra strax eftir helgi og hann kvaðst telja að skýrsl- an yrði birt opinberlega seinnihlut- ann í næstu viku. „Starf okkar hefur dregist á lang- inn vegna þess að gagnaöflun tók langan tíma og síðustu gögn, lykil- gögn, bárust okkur ekki fyrr en í byrjun september,“ sagði Eyþór. „Okkur var falið að skoða starf- semi og rekstur RÚV og við fórum yfir tölulegar staðreyndir og aðra þætti, mjög djúpt,“ sagði Eyþór, „og við teljum að margt athyglisvert muni koma fram í skýrslu okkar“. Fyrr í haust hélt starfshópurinn kynningarfund með ákveðnum hóp starfsmanna menntamálaráðuneyt- isins, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins þar sem farið var yfir helstu upplýsingar sem starfs- hópurinn hafði viðað að sér. Síðan það var hefur verið unnið að loka- gerð skýrslunnar og reynt að varpa ljósi á ástæður þess rekstrarvanda sem Ríkisútvarpið glímir við. Skýrsla um RÚV strax eftir helgi  Margt athyglisvert, segir formaðurinn Morgunblaðið/Ómar RÚV Menntamálaráðherra fær skýrsluna strax eftir helgi. Eyþór Arnalds Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ávöxtunarkrafa á óverðtryggðum ríkisbréfum hefur lækkað mikið á síðari hluta ársins og gæti sú þróun leitt til þess að vextir íbúðalána lækki. Þá bæði á verðtryggðum og óverðtryggðum lánum. Magnús Stefánsson, hagfræðing- ur á hagfræðideild Landsbankans, bendir á að fylgni geti verið milli vaxta á ríkistryggðum bréfum og sértryggðum skuldabréfum banka. „Þetta á að hafa áhrif á vaxtastigið í skuldabréfaútboðum. Það er að aukast að bankarnir gefa út sér- tryggð skuldabréf með veði í fast- eignum og nota þá fjármuni til að lána til fasteignakaupa. Ef ávöxtun- arkrafan á ríkisbréfin lækkar hefur það áhrif á það á hvaða kjörum bank- arnir geta gefið út sértryggðu bréf- in. Ríkisbréfin eru alltaf viðmið. Þró- unin í ríkisbréfum gæti því lækkað útlánavexti bankanna. Það myndi hafa áhrif á fasteignalán. Þessi þró- un skiptir hins vegar ekki máli fyrir yfirdráttarlán og styttri lán. Þar skipta máli millibankavextir og vext- ir Seðlabankans.“ Yfirleitt til 5 ára eða lengur Magnús bendir á að sértryggðu bréfin sem bankarnir hafa gefið út hafa yfirleitt verið til 5 ára eða leng- ur. Bankarnir vilji lágmarka áhættu og hafa jafnvægi milli skulda og eigna. Því vilji bankarnir festa íbúða- lánin til jafn langs tíma og sér- tryggðu skuldabréfin, með veði í fasteign, sem íbúðalánin eru veitt út á. Hann segir að vextir bæði verð- tryggðra og óverðtryggðra íbúða- lána gætu lækkað. „Markaðurinn með íbúðalán á eftir að fara meira og meira í þessa átt. Sem sagt að bank- arnir gefa út þessi bréf til þess að fjármagna íbúðalánin,“ segir hann. Eins og Morgunblaðið greindi frá í september hafa óverðtryggð íbúða- lán verið í sókn. Voru þau t.d. rétt rúmlega meirihluti nýrra íbúðalána hjá Arion banka á þeim tíma. Samkvæmt greiningu Magnúsar gætu vextir t.d. lækkað á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum sem eru með föstum vöxtum í tiltekinn tíma. Yngvi Harðarson, framkvæmda- stjóri Analytica, áætlar að 70% hús- næðislána bankanna séu fjármögnuð með innstæðum og 30% með útgáfu sértryggðra bréfa. Breytileiki á vöxtum nýrra húsnæðislána sé „ekki nándar nærri eins mikill og ávöxt- unarkröfu á markaði“. „Miðað við þá lækkun sem þegar er orðin á ávöxtunarkröfu sér- tryggðra bréfa gæti svigrúm til lækkunar nýrra íbúðalánavaxta ver- ið 0,2-0,7 prósentustig eftir því hversu stórt hlutfall þau eru í fjár- mögnun húsnæðislána. Ef ávöxtun- arkrafa sértryggðra bréfa myndi al- veg elta ríkisbréf þá gætum við verið að tala um annað eins í viðbót eða samtals 0,4-1,4 prósentustig.“ Erlent fjármagn streymir að Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, rifjar upp að fyrir efnahagshrunið hafi erlendir vaxtamunarfjárfestar keypt mikið af íslenskum skuldabréfum. Margir hafi tekið skammtímastöður; bundið féð til skamms tíma. Nú séu það fyrst og fremst erlendir skulda- bréfasjóðir sem séu að kaupa skulda- bréfin og miði við aðeins lengri tíma. Ásgeir telur að skuldabréfakaup erlendra aðila séu í sjálfu sér jákvæð enda lækki þau fjármögnunarkostn- að ríkissjóðs. Hins vegar skapi þau ákveðna áhættu fyrir gengi krón- unnar ef mikil styggð kemur á fjár- festana og margir reyna að selja sig út úr landinu á skömmum tíma. Gæti leitt til lægri vaxta á íbúðalánum  Lækkandi ávöxtunarkrafa á ríkisbréf hefur áhrif víðar Ávöxtunarkrafa tveggja óverðtryggðra ríkisbréfaflokka 2008-2015 RB 19 5,28% 5,28% RB 25 Bankahrunið 1.4 .2 00 8 1.7 .2 00 8 1.4 .2 00 9 1.4 .2 01 0 1.4 .2 01 1 1.4 .2 01 2 1.4 .2 01 3 1.4 .2 01 4 1.4 .2 01 5 1.1 0. 20 08 1.7 .2 00 9 1.7 .2 01 0 1.7 .2 01 1 1.7 .2 01 2 1.7 .2 01 3 1.7 .2 01 4 1.7 .2 01 5 1.1 .2 00 9 1.1 .2 01 0 1.1 .2 01 1 1.1 .2 01 2 1.1 .2 01 3 1.1 .2 01 4 1.1 .2 01 5 1.1 0. 20 09 1.1 0. 20 10 1.1 0. 20 11 1.1 0. 20 12 1.1 0. 20 13 1.1 0. 20 14 1.1 0. 20 15 Heimild: Nasdaq Iceland, Analytica 15% 12% 9% 6% 3% 0% Persónuleg þjónusta – vinalegt umhverfi Fjölbreytt líkamsræktarstöð eitthvað fyrir alla Ketilbjöllur v Spinning v Hópatímar Skvass v Körfuboltasalur Cross train Extreme XTX Einkaþjálfun v Tækjasalur haustTILBO Ð* á líkamsrækta rkorti Aðeins 24.900. - *Gildir til 31. des 2015 Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is Göngugötur á Airwaves Gamla Bíó ● Pink Street Boys ● LA Priest (UK) ● Stereo Hypnosis ●AmabAdamA og Dikta Smekkleysa (off-venue) ● Shelita Burke ● Ghostigital Cintamani (off-venue) ●Milkhouse ● The Anatomy of Frank (US) Bókabúð Máls og Menningar (off-venue) ● Shelita Burke (US) ● Rythmatik Listasafnið ●Aurora (NO) ● Úlfur Úlfur ● Gísli Pálmi ● Future Brown (US) Harpa ● John Grant and the Iceland Symphony Orchestra ● Júníus Meyvant ● Father John Misty (US) ● The Pop Group (UK) „Það er ofboðslega margt fólk í bænum og miðborgin er troðfull af ungu fólki hvaðanæva úr heim- inum,“ segir Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulags- ráðs Reykjavíkurborgar. Sam- þykkt hefur verið að loka tíma- bundið Laugavegi, frá Vatnsstíg að mótum Bankastrætis og Þing- holtsstrætis, og Skólavörðustíg, frá gatnamótum Bergstaðastrætis að Bankastræti, fyrir umferð á meðan tónlistarhátíðin Iceland Airwaves stendur yfir dagana 4.-8. nóvember nk. Ekki hefur áður verið lokað fyrir umferð á svæðinu á Airwaves-hátíðinni. „Þegar sumarlokanir voru til umræðu kom jafnframt fram að það yrði skoðað hvort ekki væri ráð að hafa samskonar lokanir þegar Airwaves stæði yfir og hugsanlega líka við aðra slíka stór- viðburði í borginni,“ segir Hjálmar en þetta sé liður í því að gera mið- borgina mannvænni og skemmti- legri. Tæplega 1.000 viðburðir „Þetta er mjög gott fyrir gest- ina en fólk er einmitt mikið að ganga á milli staða og því er þetta mjög jákvætt,“ segir Henný María Frímannsdóttir, kynningarstjóri Iceland Airwaves, um að gera hluta Laugavegar og Skólavörðu- stígs að göngugötu. Líklegt sé að meiri stemning myndist á götum úti í kjölfarið. Hátíðin skartar fjölmörgum mis- munandi tónleikastöðum í mið- bænum en á aðaldagskránni eru einir 300 viðburðir yfir helgina. Einnig eru um 600 „off-venue“ við- burðir um allan bæ en þangað geta allir áhugasamir tónlistarunn- endur lagt leið sína. laufey@mbl.is Göngugötur í miðbænum á Iceland Airwaves  Lokað verður fyrir umferð á hluta Laugavegar og Skólavörðustígs Morgunblaðið/Eggert Airwaves Gestir munu geta gengið frjálsir um götur miðbæjarins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.