Morgunblaðið - 23.10.2015, Page 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2015
Liðsmönnum Ríkis íslams, samtaka
íslamista, hefur vaxið ásmegin síð-
ustu mánuði þrátt fyrir loftárásir
Bandaríkjanna og samstarfslanda
þeirra. Óttast er að lofthernaður
Rússa verði til þess að vígamenn
Ríkis íslams sæki enn meira í sig
veðrið á næstu mánuðum.
Liðsmenn Ríkis íslams gerðu alls
1.086 árásir og urðu 2.978 manns að
bana í júlí, ágúst og september, að
sögn rannsóknafyrirtækisins IHS
Jane’s. Þeir gerðu að meðaltali 11,8
árásir á dag á þessu tímabili, 42%
fleiri en á öðrum fjórðungi ársins.
Meðalmannfallið á dag jókst um 65%
á þriðja ársfjórðungnum miðað við
apríl, maí og júní og var 81% meira
en á sama tímabili í fyrra.
Þessar tölur eru til marks um að
loftárásir Bandaríkjanna og sam-
starfsríkja þeirra á skotmörk í Írak
og Sýrlandi hafa haft lítil áhrif í bar-
áttunni gegn Ríki íslams, að sögn
Matthews Henmans, sem stjórnar
rannsóknum IHS á starfsemi
hryðjuverkasamtaka. „Þótt loftárás-
irnar og aðrar aðgerðir bandalagsins
hafi aukið verulega þrýstinginn á ísl-
amistana virðist það enn eiga langt í
land með að veikja samtökin nógu
mikið til að ná landsvæðum af þeim,
hvað þá að sigra þau.“
Óttast að Ríki íslams eflist
Henman telur líklegt að lofthern-
aðurinn sem Rússar hófu 30. sept-
ember síðastliðinn verði til þess að
Ríki íslams færi sig upp á sig skaftið
á næstu mánuðum vegna þess að
fram hafi komið „skýrar vísbend-
ingar“ um að stjórnvöld í Rússlandi
leggi meiri áherslu á að verja ein-
ræðisstjórnina í Sýrlandi en að sigr-
ast á samtökum íslamistanna.
„Nú þegar er ljóst að síðustu sjö
daga hafa samtök íslamistanna sótt í
sig veðrið í Aleppo-héraði vegna loft-
árása sem beinast að uppreisnar-
hreyfingum, sem hafa barist gegn
Ríki íslams, og líklegt er að fram-
hald verði á þessu,“ sagði Henman.
„Ríki íslams hefur einnig fengið öfl-
ugt áróðursvopn upp í hendurnar
vegna mannfalls meðal óbreyttra
borgara í loftárásum Rússa.“
bogi@mbl.is
Heimild: Varnarmálaráðuneyti Rússlands/*Mannréttindahreyfingin SOHR/**Stríðsrannsóknastofnunin, ISW
JÓRDANÍA
LÍ
BA
N
O
N
TYRKLAND
SÝRLAND
ÍRAK
100 km
Lofthernaður Rússa í Sýrlandi
Mi-24 HIND
Su-25
Deir
Ezzor
Loftárásir Rússa
Loftárásir 19. og 20. okt. samkvæmt
traustum heimildum ISW**
Loftárásir 19. og 20. okt. samkvæmt
fregnum sem ISW telur ekki eins traustar
Fyrri árásir skv. traustum heimildum ISW
Minnst 12 manns létu
lífið í loftárás á sjúkra-
skýli nálægt vígvelli*
Rússneskar flugvélar
sem notaðar eru í Sýrlandi
Rússneski herinn kvaðst hafa
eyðilagt sprengjuverksmiðju
íslömsku hreyfingarinnar
Al-Nusra sem tengist al-Qaeda
Raqqa
Damaskus
Kobane
Idlib
Sarmin
Palmyra
Hama
Latakía
Bassel
al-Assad
(herflug-
völlur) Homs
Aleppo
Hizbollah
Ríki íslams
Uppreisnarmenn
Svæði á valdi
stjórnarhersins
Kúrdar
Herlið Rússa
Rússneskar herþotur réðust á 83 skotmörk á einum sólarhring að sögn hers Rússa í fyrradag
Hermt er að 370 manns
hafi beðið bana í
loftárásum Rússa, þeirra
á meðal 120 óbreyttir
borgarar, að sögn SOHR*
Rússar hafa gert meira
en 500 loftárásir í
Sýrlandi frá því að þær
hófust 30. september
Su-34
Ríki íslams vex ásmegin
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Grímuklæddur maður, vopnaður
sverði og hnífum, varð kennara og
nemanda að bana og særði tvo til við-
bótar alvarlega í skóla í bænum
Trollhättan í Svíþjóð í gær. Árásar-
maðurinn, sem var 21 árs, lést síðar
af skotsárum á sjúkrahúsi.
Árásin vakti mikinn óhug meðal
Svía, enda er þetta fyrsta mann-
skæða árásin í sænskum skóla frá
árinu 1961 þegar sautján ára piltur
varð átján ára stúlku að bana og
særði sex nemendur til viðbótar í
skotárás í íþróttasal skóla í bænum
Kungälv.
„Þetta er svartur dagur fyrir Sví-
þjóð,“ sagði Stefan Löfven, forsætis-
ráðherra landsins. „Hugur minn er
hjá fórnarlömbunum og fjölskyldum
þeirra, nemendum og starfsfólki
skólans, og öllu samfélaginu. Engin
orð geta lýst því sem þau ganga í
gegnum núna.“
„Héldum að þetta væri
hrekkjavökugrín“
Árásarmaðurinn var svartklædd-
ur, með grímu sem minnti á Svart-
höfða, eða Darth Vader, í stjörnu-
stríðsmyndunum. Fregnir herma að
börn, sem sáu árásarmanninn fyrst í
skólanum, hafi haldið að hann hafi
mætt í hrekkjavökubúningi til að
grínast og látið taka myndir af sér
með honum. Sænska dagblaðið
Aftonbladet hafði eftir stúlku í skól-
anum að tveir vinir hennar hefðu
beðið hana að taka myndir af sér
með manninum sem hefði ekki talað
en leikið „hræðilega“ tónlist sem
„minnti á hrekkjavöku“. Kennari
kom þá að þeim og spurði hvað
maðurinn væri að gera. „Þú hræðir
börnin, þú getur farið,“ sagði
kennarinn. Maðurinn kinkaði kolli
og stakk kennarann í síðuna, að sögn
stúlkunnar. Hún forðaði sér í ofboði
með vinum sínum og árásarmaður-
inn hljóp á eftir þeim en þau komust
undan.
Dagens Nyheter hafði eftir ann-
arri stúlku í skólanum að hún hefði
verið í stærðfræðitíma þegar kenn-
ari og nemendur bekkjarins hefðu
séð manninn fyrir utan kennslustof-
una. „Við héldum að þetta væri
hrekkjavökugrín,“ hefur blaðið eftir
stúlkunni. Kennarinn fór út á gang-
inn og reyndi að taka grímuna af
manninum sem stakk hann þá með
sverðinu.
Lögreglan staðfesti að einn kenn-
ara skólans hefði verið látinn þegar
lögreglumenn komu á staðinn. Ann-
ar kennari og tveir nemendur voru
fluttir á sjúkrahús. Annar nemend-
anna, sem var ellefu ára, lést síðar af
sárum sínum. Hinn nemandinn, sem
var fimmtán ára, og kennarinn voru
báðir í lífshættu í gærkvöldi.
Talsmaður lögreglunnar sagði að
lögreglumennirnir hefðu skotið
tveimur byssuskotum og annað
þeirra hefði hæft árásarmanninn.
Lögreglan sagði að maðurinn væri
21 árs íbúi Trollhättan en veitti ekki
frekari upplýsingar um hann.
Fréttastofan TT sagði að maðurinn
hefði sett myndskeið á YouTube þar
sem hann lofsamaði Adolf Hitler og
þýska nasista en gagnrýndi íslam og
innflytjendur í Svíþjóð.
Sagður „vandræðaskóli“
Trollhättan er iðnaðarbær um 75
km norðan við Gautaborg og með um
50.000 íbúa. Þar er meðal annars
bílaverksmiðja þar sem Saab-bílar
hafa verið framleiddir.
Nemendur skólans eru alls 400 og
á aldrinum sex til fimmtán ára.
Sænskir fjölmiðlar hafa lýst honum
sem „vandræðaskóla“ og segja að
fyrir árásina hafi eftirlitsmenn gagn-
rýnt stjórnendur hans fyrir að hafa
ekki tryggt öryggi nemendanna.
Þeir gagnrýndu m.a. að í byggingu
skólans eru bókasafn og kaffihús
sem hafa verið opin almenningi.
Hermt er að það hafi stundum trufl-
að kennsluna í skólanum. Aðeins
16% nemenda í efsta bekk skólans
stóðust próf í öllum fögum á síðasta
ári og hann er á meðal þeirra tíu
grunnskóla Svíþjóðar sem komu
verst út við mat á námsárangri.
Svartur dagur fyrir Svíþjóð
Árásarmaður varð pilti og kennara að bana í árás í sænskum grunnskóla Særði annan kennara og
nemanda lífshættulega Sagður hafa lofsamað Hitler og nasista á YouTube og gagnrýnt innflytjendur
AFP
Þrír létu lífið Lögregluforingi ræðir við fjölmiðlamenn fyrir utan skólann
þar sem 21 árs maður réðst á nemendur og kennara með sverði og hnífum.
AFP
Svarthöfði Mynd sem nemandi tók
af árásarmanninum í skólanum.
er leiðandi framleiðandi
LED lýsingar og stýringa
og býður heildarlausnir
fyrir sýningarsali
og söfn
Leitaðu upplýsinga hjá löggiltum rafverktökum,
lýsingarhönnuðum og arkitektum
Fáðu fagmann í verkið til að tryggja rétta
meðhöndlun, endingu og ábyrgð. Það er þitt öryggi.
www.reykjafell.is