Morgunblaðið - 07.11.2015, Síða 35

Morgunblaðið - 07.11.2015, Síða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2015 ✝ Anna SigríðurGunnlaugs- dóttir fæddist í Hofsárkoti í Svarfaðardal 18. mars 1920. Hún lést að dvalar- heimilinu Dalbæ 30. október 2015. Foreldrar henn- ar voru Anna Stefánsdóttir og Gunnlaugur Sig- urðsson. Hún átti fjóra eldri bræður, Stefán, Egil, Sigurð, Sigvalda og Tryggva, sem allir Viðar, f. 5.11. 1967, d. 26.5. 1990, c) Einar Viðar, f. 11.7. 1972, hans börn eru Björgvin Viðar og Elísa Björk. d) Anna Rós, f. 28.9. 1980, sambýlis- maður Arnar Már Sverrisson, börn þeirra Guðrún Brynja, Arndís Sigurrós og Heiðar Már. Jóhanna Jónsdóttir, f. 28.10. 1958, gift Guðna Guð- bergssyni. Börn hennar a) Frið- rik Óskar Friðriksson, f. 24.5. 1978, sambýliskona Steinunn Ósk Geirsdóttir og eiga þau Ið- unni Lilju, Friðrik Skorra, Mar- gréti Mirru og Jóhönnu Ylfu. b) Kristín Anna Guðnadóttir, f. 14.2. 1988. Útförin verður frá Dalvíkur- kirkju í dag, 7. nóvember 2015, klukkan 13.30. Jarðsett verður að Völlum í Svarfaðardal. eru látnir. Dætur Önnu eru Guðrún Stefáns- dóttir, f. 21.4. 1947, hennar maður er Finnur Magnússon, og börn þeirra a) Stefán Viðar, f. 21.5.1966, hans kona er Eydís Ein- arsdóttir og börn þeirra Einar Rafn, sambýliskona Halla Guðmundsdóttir og dóttir þeirra Natalía Margrét, Viðar Örn, og Eva Rún. b) Björgvin Anna Gunnlaugsdóttir fæddist í Hofsárkoti í Svarfaðardal. Þar ólst hún upp hjá móður sinni og eldri bræðrum en föður sinn missti hún þegar hún var á öðru ári. Svarfaðardalur átti stóran sess í huga Önnu. Þar sótti hún skóla, sat yfir kúnum og lærði til ýmissa nytsamlegra verka. Eftir að hún varð uppkomin sá hún um aldraða móður sína og fatlaðan bróður en ekki var á þeim tíma mögulegt að fá þá faglegu umönnun sem nú stendur til boða. Aðstoð til þeirra sem á þurftu að halda og framfærsla var því í höndum ættingja. Anna var einn vetur í skólanum á Laugum og minntist ávallt þess tíma með hlýju. Að áeggjan móð- ur sinnar lærði Anna til sauma en hún naut ýmiss konar handa- vinnu allt fram á síðustu ár með- an þrek hennar leyfði. Af starfs- aldri sínum starfaði hún lengst í matvælafyrirtækinu ORA en tók lengi að sér saumaskap ýmiss konar. Líkt og svo margir flutti Anna suður, bjó lengst af í Kópa- vogi og hélt heimili með Tryggva bróður sínum meðan hann lifði. Átti hún góð síðustu ár í Kópa- vogi í sambúð með Ólafi Jóns- syni. Ekki leið sumar sem Anna leitaði ekki á æskuslóðir í Svarf- aðardal. Er aldurinn færðist yfir fluttist hún aftur á heimaslóðir, þá á Dvalarheimilið Dalbæ á Dal- vík þar sem hún dvaldi síðustu árin. Anna var viljasterk og ákveðin kona sem gjarnan vildi hafa sinn háttinn á. Hún vildi vera vel til- höfð, hafa lagningu í hárinu og hafa á því lit til að dylja gráu hárin. Sá vilji hélst þótt þrekið hefði minnkað og heilsunni hrak- að síðustu árin. Nú síðsumars fóru dætur hennar með hana út af Dalbæ og þegar þær ætluðu að setja á hana sjal leist henni ekki vel á þann fatnað því þá liti hún út eins og gömul kona. Nokkuð vel sagt hjá þeim sem er orðin 95 ára. Anna fylgdist vel með afkomendum sínum og fjöl- skyldum þeirra og var ófeimin við að gefa þeim ábendingar um það sem betur mætti fara. Eftir að aldurinn færðist yfir og sam- ferðamönnum fækkaði taldi hún sig tilbúna fyrir annað tilveru- stig. Sú bið varð lengri en hún hafði búist við og taldi að eitt- hvað hlyti að hafa ruglast í bók- haldinu hjá himnafeðgunum. Að leiðarlokum vil ég þakka Önnu tengdamóður minni fyrir allar góðar stundir. Aðstandendur vilja koma á framfæri kæru þakklæti til starfsfólks á Dalbæ fyrir umönnun og samfylgd. Guðni Guðbergsson. Í nóvember 1918 lauk fyrri heimsstyrjöldinni og rúmu ári síðar fæddist amma. Hún kvaddi þennan heim 28. október síðast- liðinn en varð aldrei gömul kona. Aldurinn er nefnilega afstæður og ég held að amma hafi aldrei verið tilbúin í að verða gömul kona. Kannski náði hún bara ekki að klára að vera ung. Ég veit lítið um það því þegar ég fæddist var amma að nálgast sjö- tugsaldurinn, samt bráðum fjörutíu ár síðan það gerðist. Amma var frumbyggi í Kópavogi og ég á frábærar minningar frá Bjarnhólastígnum þar sem hún byggði hús ásamt bróður sínum. Bróður ömmu kallaði ég reyndar aldrei annað en afa því þau bjuggu saman í húsinu sem þau byggðu á Bjarnó frá því ég man eftir mér. Þar var allt í föstum skorðum og ég sé enn fyrir mér á eldhúsborðinu gamla Nord- mende transistor-útvarpið hans afa, rauða Melroses-kassann og Sólblóma-viðbitið. Það voru fast- ir liðir eftir árstíðum eins og var e.t.v. meira um fyrr á tímum, bolluvendir voru settir saman í suðurherberginu, slátur var hrært í þvottahúsinu og matur settur í súr í skúrnum. Það er skrítið að hugsa til alls þess sem amma er búin að sjá breytast á sinni ævi. Líklega er þetta sú kynslóð sem hefur upp- lifað mestar breytingarnar, í ein- hverjum skilningi í það minnsta. Árið 1967 var amma hálfnuð með ævi sína, það eru margir hlutir sem jafnvel eru órjúfanlegur partur af daglegu lífi okkar í dag sem voru ekki til þá. Það eru for- réttindi að kynnast vel og um- gangast ömmur og afa, það er gott veganesti. Það felst í því ákveðin jarðtenging að umgang- ast fólk sem hefur lært hvað það er sem skiptir mestu í lífinu. Hún lá ekki á skoðunum sín- um hún amma og gat verið bein- skeytt, það er stundum kostur. Ákveðin gat hún líka verið, ég minnist þess þegar hún reddaði mér vinnu í niðursuðuverksmiðj- unni ORA þar sem hún og afi höfðu starfað í ófá árin. Amma var reyndar hætt þá en taldi sig nú eiga hönk upp í bakið á þeim ORA-mönnum og dreif mig með sér út á Kársnesið. Ekki vildi betur til en svo að samkvæmt formanni á staðnum voru allar mögulegar stöður mannaðar hjá fabrikkunni um þær mundir. Ég bjó mig undir að þakka pent og sætta mig við fýluferð. Ekki amma. Amma var búin að ákveða að ég myndi vinna þarna þennan mánuð sem mig vantaði til að brúa bilið fram að skóla, ekkert verra en að gera ekkert. Það var nákvæmlega sama með hvaða leiðum maðurinn reyndi að koma því til skila að það væri alls ekki þörf á mínum starfskröftum, amma bara tvíefldist. Um sviðað leyti og maðurinn var orðinn rauður í framan eins og miðinn á fiskibolludósinni sá hann að amma myndi ekki fara fyrr en ég fengi vinnu. Daginn eftir var ég að hella maís úr kassa í hvítum slopp. Við amma áttum gott skap saman og ég hafði mikið sam- band við hana alla tíð. Minna þó þegar hún tók upp á því að fara aftur á æskuslóðir á Dalvík ná- lægt dalnum sínum góða þar sem hún ætlar að hvíla. Þangað mun ég heimsækja þig, amma, og hugsa til þín meðan ég fæ mér bíltúr með fjölskyldunni um Svarfaðardalinn. Bless og takk fyrir allt. Friðrik Óskar Friðriksson. Önnu Sigríði Gunnlaugsdóttur kynntist ég þegar hún var komin vel á áttræðisaldur. Faðir minn, Ólafur Jónsson, ekkjumaður á aldur við hana, kynnti hana fyrir okkur börnum sínum og sagði að þau íhuguðu að taka upp sam- búð. Svo fór og þau bjuggu í lítilli íbúð í sama húsi og við hjónin. Þarna voru engir unglingar á ferð, bæði áttu börn og barna- börn, frændgarð og vini og sinntu sínu fólki eftir föngum. Ekki þarf að taka fram að þau höfðu mótaðar venjur og lífs- skoðanir svo að sumu yngra fólk- inu þótti ekki sjálfgefið að allt færi eins og báðum líkaði. Sá beygur reyndist óþarfur. Svarfdælingur og Skaftfellingur komust að ágætri niðurstöðu um alla hluti sem greina mátti. Þau skiptu með sér hlutverkum, vissulega ekki óvænt: annað matbjó, hitt ók bílnum á milli staða! Anna sá um fínni blæ- brigði á heimilinu, Ólafur var í stórvirkjum og jarðrækt. Fjár- hag héldu þau aðgreindum en skiptu útgjöldum þannig að bæði undu við sinn hlut, hvorugt var alið upp við eyðslusemi og lærðu hana ekki á fullorðinsárum. Eitt var alltaf á könnu Önnu, þ.e. blómaræktin og mest tókum við eftir sumarblómum í mörgum pottum og þyrpingum á pallin- um. „Ég spara ekki við mig að kaupa blóm,“ sagði hún, enda kunni hún að skipa þeim niður svo vel færi. Stundum settist hún í sólstól í blómahafinu en kaus þó oft að kasta sér niður á grasflöt- ina og breiddi þá ekkert undir sig. Stúlkan úr Svarfaðardal þoldi vel ilm úr grængresi. Við í fjölskyldu Ólafs kunnum því betur að meta Önnu sem við þekktum hana lengur, kynnt- umst líka dætrum hennar og fjöl- skyldum þeirra. Okkur duldist ekki að Anna hafði unnið mikið um ævina og lagt hart að sér. Hún hafði verið saumakona og hafði gott auga fyrir öllu hand- verki. Ekki brá hún sér við verk sem teljast karlastörf og vann að eigin húsi með Tryggva bróður sínum: „Skemmtilegast þótti mér að grafa fyrir sökklum!“ Anna og Ólafur ferðuðust bæði utan lands og innan. Hann bauð henni austur á Síðu og hún honum um sveitir nyrðra. Henni þótti dauflegt haust ef hún komst ekki í Svarfaðardalinn til að góma nokkur aðalbláber sem hún taldi með réttu djásn allra berjalanda. En hún stirðnaði til gangs þegar ellin færðist yfir og Ólafur varð heilabilun að bráð og fór á dvalarheimili í Kópavogi. En saman fengu þau allmörg góð ár og bættu hvort annað upp. Ólaf- ur var lengst af sprækur og öfl- ugur, Anna natin og raunsæ; fékk vin sinn m.a. til að hætta að keyra bíl þegar það var tíma- bært. Anna flutti á æskustöðvarnar og átti heimili á Dalbæ um ára- tug, til æviloka. Þar kunni hún við sig meðal sveitunga og vina og bar starfsfólki og stjórnend- um Dalbæjar vel söguna. Her- bergi sitt bjó hún virðulega, enda var reisn yfir henni sjálfri þegar hún tók á móti gestum. Blóma- áhuganum hélt hún alla tíð, og hafði lengi eitt skrautblóm í væn- um potti úti á svölum við endann á ganginum sínum á Dalbæ. Við systkinin þökkum góð kynni og kveðjum hana með hlý- hug og virðingu fyrir umhyggj- una við föður okkar. Dætrum Önnu og fjölskyldum sendum við samúðarkveðjur. Bjarni Ólafsson. Anna Sigríður Gunnlaugsdóttir                           Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, KRISTINN BJÖRNSSON, fyrrverandi forstjóri, Fjólugötu 1, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut 31. október. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 10. nóvember kl. 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta Minningarsjóð Landspítalans njóta þess. . Sólveig Pétursdóttir, Pétur Gylfi Kristinsson, Emilía Sjöfn Kristinsdóttir, Björn H. Kristinsson, Herborg H. Ingvarsdóttir, Inga Bríet, Kristinn Tjörvi, Einar Ísak og Markús Bragi. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN BIRNA ÞORSTEINSDÓTTIR, Skildinganesi 58, Reykjavík, lézt á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 2. nóvember síðastliðinn. Útförin fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn 11. nóvember 2015 klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. . Gunnar I. Hafsteinsson, Sigrún Magnea Gunnarsdóttir, Benedikt Magnússon, Bergljót Soffía, Inga Birna, Freyja Dís og Lóa Mjöll. Ástkær sonur okkar og faðir, JÓN SIGURÐSSON sjómaður, Kaldabakka, Bíldudal, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík þann 12. nóvember klukkan 13. Minningarathöfn fer fram 14. nóvember kl. 14 á Bíldudal, þar sem hann verður jarðsettur. . Herdís Jónsdóttir, Sigurður H. Brynjólfsson, Hrefna I. Jónsdóttir, Haukur H. Jónsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓHANN SIGURÐSSON rafvélavirki, Akurgerði 40, Reykjavík, lést á Landspítalanum 2. nóvember. Útför hans fer fram frá Grensáskirkju þriðjudaginn 10. nóvember klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð Landspítalans. . Margrét Valdimarsdóttir, Einar Jóhannsson, Sigrún Jónsdóttir, Hekla Jóhannsdóttir, Ágúst Sigurmundsson, Einar Haukstein, Ásta Margrét, Jón Ingi, Guðrún. Okkar ástkæra föðursystir, KRISTÍN PÁLSDÓTTIR, Dalbæ, áður til heimilis að Bjarkarbraut 5, Dalvík, lést á Dalbæ, heimili aldraðra, fimmtudaginn 5. nóvember. Útförin fer fram frá Dalvíkurkirkju föstudaginn 13. nóvember klukkan 13.30. . Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Kristín Gunnarsdóttir, Ragnheiður Gunnarsdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, ÆVAR AGNARSSON, lést 29. október. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 13. . Sólveig Hólmarsdóttir, Elís Helgi Ævarsson, Guðbjörg Krista Cesars, Elínborg Jenný Ævarsdóttir, Ólöf Jóna Ævarsdóttir, Steinar Þór Daníelsson, Lára Kristjánsdóttir, Arnika Clausen Ómarsdóttir, systkini, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir, amma, tengdamóðir og sambýliskona, VALBORG G. BJÖRGVINSDÓTTIR, lést á gjörgæsludeild Landspítalans laugardaginn 31. október. Útför fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 9. nóvember klukkan 13. . Hlöðver Bernharður Jökulsson, Sæunn Björnsdóttir, Oddný Freyja Jökulsdóttir, Emil Skúlason, Hlynur Jökulsson, Jeanette Johansen, Esther Jökulsdóttir, Árni Steingrímsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.