Morgunblaðið - 07.11.2015, Page 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2015
Jóhann Tómas Sigurðsson, stofnandi og framkvæmdastjórisprotafyrirtækisins CrankWheel, er fertugur í dag. „Ég hef ver-ið í um 20 ár í hugbúnaðarbransanum og var tíu ár hjá Google
með aðsetur í Kanada en ég hætti þar fyrir einu og hálfu ári til að
stofna CrankWheel. Við höfum verið að þróa hugbúnað sem gerir það
kleift að vera með viðskiptavin í símanum og ef þig vantar að fara
myndrænt yfir t.a.m. tilboð sem þú ert að útbúa fyrir hann þá geturðu
gert það á tíu sekúndum. Viðskiptavinurinn getur notað snjallsíma
eða tölvu, án þess að sækja neinn hugbúnað. Við höfum undanfarna
mánuði verið í lokuðum prófunum en einnig hafa framsækin fyr-
irtækið prófað og borgað fyrir aðgang að hugbúnaðinum okkar. Svo
fékk ég smá afmælisgjöf í gær þegar við fórum í loftið og nú geta all-
ir, einstaklingar og fyrirtæki, skráð sig í áskrift hjá okkur. Þetta eru
stór tímamót hjá fyrirtækinu og mun ég halda veislu heima hjá mér í
tilefni þessa og afmælisins í dag.“
Jói, eins og hann kallar sig, er í sambandi með Erlu Símonardóttur
sem vinnur hjá Kaupþingi og hann á þrjú börn frá fyrra sambandi,
Jakob Ragnar 11 ára, Hannes Helga 9 ára og Ylvu Björgu 5 ára.
„Ég hef ekki mikinn tíma fyrir önnur áhugamál, en ég stunda kraft-
lyftingar og hef gaman af fjallgöngum, hjólreiðum og skíðum. Ég ætl-
aði í vetur til Montréal þar sem ég bjó en beinar flugferðir þangað
hefjast ekki fyrr en í maí svo ætli ég láti ekki Bláfjöllin duga. Ég hef
einnig áhuga á söng en hef ekki verið virkur í honum undanfarið. Ég
lærði söng þegar ég var yngri og var í Dómkórnum í nokkur ár.“
Hugbúnaðarsérfræðingurinn Jói að kynna fyrirtækið sitt Crank-
Wheel á ráðstefnunni Startup Iceland í Hörpu í maí síðastliðnum.
Tímamót hjá
sprotafyrirtækinu
Jóhann Tómas Sigurðsson er fertugur í dag
J
akob fæddist í Reykjavík
7.11. 1940 og ólst upp í
Vesturbænum, fyrst við
Landakotstúnið og síðan
við Ægisíðuna: „Ég hef
verið búsettur í Vesturbænum alla
tíð þar til 1. september í haust er við
hjónin fluttum í lítið einbýlishús í
Grafarvogi, með yndislegt útsýni yfir
Hólmsheiðina og Hengilssvæðið. Það
er nú alveg hægt að lifa það af að
flytja úr Vesturbænum en ég verð
samt alltaf sami KR-ingurinn, sama
hvar ég er í veröldinni.“
„Ég æfði knattspyrnu með KR á
æsku- og unglingsárunum, er af kyn-
slóð gullaldarstrákanna þar, en var
aldrei sjálfur góður í fótbolta. Ég fór
alltaf á völlinn til 1975, hætti því um
skeið en fór aftur að hvetja mína
menn um aldamótin síðustu og hef
varla misst af heimaleik síðan. Það er
notalegt að hitta alltaf sömu KR-
félagana í stúkunni og skrafa við þá
um gang leiksins og liðsins.“
Jakob lauk stúdentsprófi frá MR
1960, embættisprófi í lögfræði frá HÍ
1967, öðlaðist hdl-réttindi 1991, hrl-
réttindi 1995 og er löggiltur dómtúlk-
ur úr og á ensku frá 1991. Jakob
vann ýmis almenn störf á náms-
árunum, var m.a. í skreiðarvinnu og
saltfiskvinnslu hjá BÚR, vann í vöru-
geymslum hjá Eimskip og Jöklum
hf., var á hvalbát hjá Ingólfi Þórð-
arsyni skipstjóra og var háseti á
flutningaskipum Jökla, auk þess sem
hann var blaðamaður á Vísi sumrin
1960 og 1961 og starfsmaður Stúd-
entaráðs HÍ 1961-62. Jakob var
fulltrúi hjá Erlendi Björnssyni, bæj-
arfógeta á Seyðisfirði og sýslumanni
í Norður-Múlasýslu, 1967, starfs-
maður bandaríska sendiráðsins í
Reykjavík 1967, ráðunautur fram-
kvæmdastjórnar Íslenska álfélagsins
hf. um stjórnun starfsmannamála frá
1970 og starfsmannastjóri þar 1985-
90, starfrækti eigin málflutnings-
stofu í Reykjavík, ásamt öðrum frá
1991, síðast hjá Logos frá 2000-2013.
Jakob sat í stjórn Orators 1960-61,
í stjórn Vöku, félags lýðræðislegra
stúdenta 1960-61, í utanrík-
ismálanefnd SUS og í málefnanefnd
Sjálfstæðisflokksins um utanríkismál
1970-72, var formaður Bridgefélags
Reykjavíkur 1969-71, og 1979-81, sat
í dómnefnd Bridgesambands Íslands
1979-83 og var varaforseti þess 1981-
83, sat í sambandsstjórn VSÍ 1989-
91, í stjórn Lögmannafélagsins 1996-
98 og var formaður þess 1998-2000
og sat í Kjararáði, skipaður af
Hæstarétti 2006-2010.
Jakob varð Íslandsmeistari í
Jakob R. Möller, lögmaður í Reykjavík – 75 ára
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Í réttarsal Jakob blaðar í ræðu sinni áður en hann tekur til máls sem verjandi Tryggva Jónssonar í Baugsmálinu 2011.
Maðurinn í R-klúbb-
unum: BR, GR og KR
Jón Snær Ragnarsson og
Þóra Björk Sveinbjörnsdóttir
giftu sig í Garðakirkju 4. júlí
2015. Þau voru gefin saman
af séra Jónu Hrönn Bolladótt-
ur. Þau eiga tvo syni, Lúkas
Loga Jónsson, f. 2009 og
Rökkva Stein Jónsson, f.
2011. Foreldrar Jóns Snæs:
Ragnar Axelsson og Björk
Hreiðarsdóttir. Foreldrar
Þóru Bjarkar: Sveinbjörn
Guðmundsson og Þóra
Haraldsdóttir.
Árnað heilla
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is