Morgunblaðið - 07.11.2015, Qupperneq 43
sveitakeppni í bridge 1973 og 1979,
var þrisvar í bridge-landsliðinu, auk
þess sem hann hefur verið þátttak-
andi í ýmsum öðrum alþjóðamótum í
bridge: „Ég er nánast alveg hættur
að taka í spil. Áhuginn hefur dvínað
með árunum en ég held að hann sé
drifinn áfram af keppnisskapinu sem
hefur minnkað með aldrinum.“
„Hins vegar byrjaði ég að æfa golf
um sextug, 30 árum of seint, spila
golf öll sumur og er í GR, Golfklúbbi
Reykjavíkur. Mínir þrír klúbbar eru
því allir auðkenndir með tveimur
bókstöfum og hjá þeim öllum er R-ið
síðari stafurinn. Þetta eru BR, GR og
KR.“
Fjölskylda
Eiginkona Jakobs er Margrét
Hvannberg, f. 23.4. 1951, skrif-
stofustjóri Menntaskólans í Reykja-
vík, dóttir Ebbu Fenger Hvannberg
og Gunnars Hvannberg.
Börn Margrétar, stjúpbörn Jak-
obs, eru Ebba Kristín Baldvins-
dóttir, f. 4.5. 1974, lyfjafræðingur og
verkfræðingur í Svíþjóð, en eig-
inmaður hennar Kristinn Gylfason
og sonur þeirra Kolbeinn Viðar;
Gunnar Páll Baldvinsson, f. 25.5.
1982, lögfræðingur í Svíþjóð en eig-
inkona hans Björg Jónsdóttir og
börn þeirra Gauti og Fríða Margrét,
og Guðrún Baldvinsdóttir, f. 23.5.
1990, MA-nemi í bókmenntafræði við
HÍ, í sambúð með Halldóri Tryggva-
syni.
Systkini Jakobs: Skúli Möller, f.
20.4. 1939, stýrimaður, kennari,
framkvæmdastjóri og leið-
sögumaður, kvæntur Kristínu Sjöfn
Helgadóttur og er sonur þeirra Ing-
ólfur Þórður en Skúli var áður
kvæntur Ástu Högnadóttur og áttu
þau Huldu Brynhildi og Pétur
Högna sem er látinn; Þóra Möller, f.
7.6. 1942, d. 14.8. 1969, var gift Jóni
Þórhallssyni rakarameistara og er
sonur þeirra Ingólfur, prentari og
leigubílstjóri; Elín Möller, f. 16.9.
1946, d. 14.2. 2009, húsfreyja, var gift
Jóni G. Baldvinssyni fram-
kvæmdastjóra en börn þeirra eru
Hildur Magnea, Baldvin, Þóra og
Brynhildur; Anna Ragnheiður, f.
18.8. 1952, skrifstofumaður, gift Stef-
áni Hjaltested, starfsmanni Trefja,
en dætur þeirra eru Þóra Margrét,
Fríða og Anna Sif.
Foreldrar Jakobs: Ingólfur Jak-
obsson Möller, f. 13.2. 1913, d. 1.3.
1997, skipstjóri og deildarstjóri hjá
Eimskipafélagi Íslands, og k.h.,
Brynhildur Skúladóttir Möller, f.
19.1. 1915, d. 10.12. 1995, húsmóðir.
Úr frændgarði Jakobs R. Möller
Jakob R.
Möller
Arndís Guðmunddóttir
húsfr. á Borðeyri
Theódór Ólafsson
verslunarstj. á Borðeyri
Elín Theódórsdóttir
húsfr. á Blönduósi
Skúli Jónsson
kaupfélagsstj. á Blönduósi
Brynhildur
Skúladóttir Möller
húsfr. í Rvík
Guðrún Kristmundsdóttir
húsfr. í Auðunnarstaðakoti
Jón Þórðarson
b. í Auðunnarstaðakoti í Víðidal
Þuríður Indriðadóttir
húsfr. á Húsavík, frá
Presthvammi
Þóra Guðrún Guðjohnsen
húsfr. í Rvík og víðar
Jakob R.V. Möller
ritstjóri, ráðherra
og sendiherra
Ingólfur Jakobsson Möller
skipstj. og deildarstj.
hjá Eimskipafélagi
Íslands í Rvík
Ingibjörg Gísladóttir
húsfr. á Hjalteyri
Þorvaldur Skúlason
listmálari
Gunnar Jens Möller, hrl.
og forstjóri Sjúkrasamlags
Reykjavíkur
Baldur Möller, ráðuneytisstj.
í dómsmálaráðuneytinu í
Rvík
Þórður Möller, yfirlæknir
við Kleppsspítalann
Theódór Skúlason
yfirlæknir
Arndís Skúladóttir
húsfr. í Rvík
Guðrún Skúladóttir
húsfr. í Danmörku
Helga Þ. Thors,
ekkja Thors R. Thors
Ole Peter Christian Möller
kaupm. á Hjalteyri
Jakob
Guðjohnsen
rafmagns-
stjóri í Rvík
Stefán Guðjohnsen
framkvæmdastj. og
tólffaldur Íslands-
meistari í bridge
Stefán
Guðjohnsen
kaupm. á
Húsavík
Þórður Guðjohnsen
kaupm. á Húsavík, af
Guðjohnsen- og
Knudsenætt
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2015
Eiríkur fæddist í Torfmýri íBlönduhlíð í Skagafirði 7.11.1887, sonur Alberts Ágústs
Jónssonar, bónda í Torfmýri og í
Flugumýrarhvammi, og Stefaníu
Pétursdóttur húsfreyju.
Albert var sonur Jóns Gíslasonar,
bónda á Miklabæ í Óslandshlíð og síð-
ast á Þorleifsstöðum í Blönduhlíð, og
Ingibjargar Jónsdóttur húsfreyju.
Stefanía var dóttir Péturs Guð-
mundssonar, vinnumanns og hagyrð-
ings í Djúpadal í Blönduhlíð og síðar í
Svarfaðardal, og Bergþóru Andr-
ésdóttur, vinnukonu í Djúpadal, síðar
í Flugumýrarhvammi.
Eiginkona Eiríks var Sigríður,
dóttir Björns Jónssonar, prófasts á
Miklabæ í Blönduhlíð, og Guðfinnu
Jensdóttur húsfreyju.
Eiríkur og Sigríður eignuðust níu
börn en meðal þeirra var Jón Eiríks-
son, hdl. og skattstjóri í Vest-
mannaeyjum og á Akranesi, og Stef-
anía Eiríksdóttir sem m.a. var
bæjarbókavörður á Akranesi.
Eiríkur lauk stúdentsprófum frá
MR 1913, embættisprófi í guðfræði
frá HÍ 1917 og varði doktorsritgerð
við Háskóla Íslands 1939. Þá dvaldi
hann við nám í Svíþjóð og kynnti sér
þar uppeldismál.
Eiríkur var kennari í Vindhælis-
hreppi, var predikari í Hestaþings-
prestakalli og síðan aðstoðarprestur
Tryggva Þórhallssonar að Hesti og
varð sóknarprestur í Hestþingi 1918.
Hann var prófastur í Borgar-
fjarðarprófastsdæmi 1932-34.
Eiríkur var skólastjóri Alþýðuskól-
ans á Hvítárbakka 1920-23, stofnaði
Alþýðuskólann á Hesti og var skóla-
stjóri hans 1923-29, stundakennari
við Bændaskólann á Hvanneyri og
kenndi skamma hríð við
Héraðsskólann í Reykholti.
Eiríkur var formaður skólanefndar
og sáttanefndar Andakílshrepps, sat í
hreppsnefnd 1926-34, í skattanefnd
og var formaður og umsjónarmaður
Bókasafns Borgarfjarðar. Hann
skrifaði töluvert í blöð og tímarit, í
Héraðssögu Borgarfjarðar og þýddi
m.a. smásögur eftir Maupassant.
Eiríkur lést 11.10. 1972.
Merkir Íslendingar
Eiríkur V.
Albertsson
Laugardagur
90 ára
Helga Sigríður Helgadóttir
Svan Ingólfsson
85 ára
Helga Fanney Vigfúsdóttir
Jónína K. Kristjánsdóttir
Sólveig Benedikta
Jónsdóttir
Sveinbjörg Ólöf
Sigurðardóttir
80 ára
Árni Aðalsteinsson
Ingi R. Sigurbjörnsson
75 ára
Erla Jósepsdóttir
Gyða Ólöf Guðmundsdóttir
Óttarr Halldórsson
Sigríður Júlía Jónsdóttir
70 ára
Gunnar Valtýsson
Jósebína Gunnlaugsdóttir
Ragnhildur Ísleifsdóttir
Sigríður Sylvía Jakobsdóttir
Svanhildur Ísleifsdóttir
Vigdís Gunnlaug
Sigurjónsdóttir
Önundur Ingi Jóhannsson
60 ára
Arnfinnur Hallvarðsson
Gústaf Jóhann Gústafsson
Karl Hinrik Jósafatsson
Susanne Lindkvist
Sæbjörg Einarsdóttir
Sæþór Fannberg Jónsson
50 ára
Ásgeir Magnús Ólafsson
Corina Manjares Valiza
Guðmundur Karl
Tryggvason
Gunnar Markús
Konráðsson
Halldóra María Hauksdóttir
Jóhanna Gerður Egilsdóttir
Kristín Björk Magnúsdóttir
Kristín Eggertsdóttir
Ragnheiður Björk
Viðarsdóttir
Vigfús Ólafsson
40 ára
Arna Bech
Brynja Kristjánsdóttir
Buranedin Shabani
Daðey Ingibjörg
Hannesdóttir
Emanúel Geir
Guðmundsson
Heiða Dögg Liljudóttir
Helena Björk
Sveinbjörnsdóttir
Helga Eyjólfsdóttir
Íris Dögg Jóhannesdóttir
Jiri Plichta
Jóhanna Guðrún
Gunnarsdóttir
Jóhann Tómas Sigurðsson
Jón Kornelíus Gíslason
Magnús Snorri Ragnarsson
María Jóna Samúelsdóttir
Megan Horan
Róbert Örn Rafnsson
Sigríður Sophusdóttir
Steinunn Aradóttir
Sylwia Elzbieta Zielinska
Xiudi Shi
Þórunn Björg
Jóhannsdóttir
30 ára
Alvaro Amate Gonzalez
Andri Ómarsson
Ágúst Viðar Kristjánsson
Beata Maria Szymichowska
Erla Júlía Jónsdóttir
Gatis Sprudzans
Jónína Ingólfsdóttir
Nikola Vincek
Silja Harðardóttir
Stefán Atli Jakobsson
Sunnudagur
95 ára
Ágúst Friðþjófsson
Jón Karl Úlfarsson
90 ára
Eiríkur Eiríksson
Guðrún Jónsdóttir
85 ára
Árdís Björnsdóttir
Stefanía Finnsdóttir
Þorsteinn O. Laufdal
80 ára
Anna Margrjet
Thoroddsen
Heiðrún Valdimarsdóttir
Jón Víðir Einarsson
Knútur Bruun
Lára Ágústsdóttir
75 ára
Davíð Björn Sigurðsson
Jóhann Þorsteinn
Gunnarsson
Kristrún B. Hálfdánardóttir
Ragna Kristrún Blöndal
Ragnhildur Franzdóttir
Sigurður Þór Ögmundsson
Völundur Hermóðsson
70 ára
Jón Þorbergsson
Kristbjörn Árnason
Margrét Jörundsdóttir
María Elísabet Behrend
Sigurður Pétur Högnason
Svana Anita Mountford
Una Gísladóttir
60 ára
Hanna Ingimundardóttir
Haukur Hauksson
Róbert Gíslason
Stefán Gautur Daníelsson
Stefán Jóhannsson
Svavar Garðar Garðarsson
Torfi Ólafsson
Valdimar Harðarson
50 ára
Antonio Lima Delgado
Árni Björn Valdimarsson
Erla Björk Guðjónsdóttir
Helga Sigurðardóttir
Hulda Sigríður
Salómonsdóttir
Katarzyna Wodecka
Rut Káradóttir
Vilhjálmur Jón
Gunnarsson
Þóroddur Bjarnason
40 ára
Dariusz Adamski
Edda Guðríður
Ævarsdóttir
Geir Brynjólfsson
Guðlaug Sigmundsdóttir
Hannes Heimir
Friðbjörnsson
Hlynur Hringsson
Kolbrún Þorkelsdóttir
Kristinn Ingi Þórarinsson
Olivia Einarsson
Sigurbjörg Linda
Ævarsdóttir
Skarphéðinn Halldórsson
30 ára
Astrid Rún Guðfinnsdóttir
Björgvin Þór Heiðarsson
Dagur Már Jóhannsson
Einar Helgi Gunnarsson
Elísa Ósk Viðarsdóttir
Friðrik Snær Sigurgeirsson
Guðjón Aðalsteinn
Guðmundsson
Heiðar Elís Helgason
Hörður Ólafsson
Íris Tinna Margrétardóttir
Kristján Freyr Kristjánsson
Sigrún Ína Ásbergsdóttir
Una Margrét Árnadóttir
Þorvarður Andri Hauksson
Til hamingju með daginn
Kipptu liðunum í lagmeðOmega3 liðamíni
• Omega 3 liðamín vinnur gegn stífum liðum og viðheldur heilbrigði þeirra.
• Liðamín inniheldur Hyal-Joint® sem einnig má finna í liðvökva, seigfljótandi
vökva sem smyr og viðheldur mýkt í liðamótum.
• Það hjálpar líkamanum einnig að fyrirbyggja stirða liði, sem getur skipt
höfuðmáli í þjálfun og líkamsrækt.
SKJÓTARI EN
SKUGGINN
www.lidamin.is
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
SÍ
A