Morgunblaðið - 07.11.2015, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 07.11.2015, Qupperneq 46
Destrier er önnur breiðskífa Agent Fresco. Hljóm- sveitina skipa söngvarinn Arnór Dan Arnarson, trommuleikarinn Hrafnkell Örn Guðjónsson, bassa- leikarinn Vignir Rafn Hilmarsson og gítar- og píanó- leikarinn Þórarinn Guðnason. Tónlistina semja Arnór og Þórarinn að mestu en Hrafnkell og Vignir koma og að þeim málum. Texta á Arnór. Sveitin og Styrmir Hauksson stýrðu upptökum. Record Records gefur út. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Agent Fresco var afskaplegavel mótuð sveit er hún sigr-aði Músíktilraunir fyrir sjö árum. Vissulega ekki orðin að því öndvegisbandi sem hún er í dag, en það var ansi margt til staðar. Frá- bær hljóðfæraleikur, þéttleiki og góður andi stýrði för en mikilvægast var þó að sjá að meðlimir voru upp- fullir af hugmyndum og gríðarlegri ástríðu í garð tónlistarsköpunar. Þetta sýndi sig síðan rækilega á fyrstu plötu sveitarinnar, A Long Time Listening (2010). Nú, fimm ár- um síðar, fara þeir félagar með hlut- ina upp á næsta stig. Áfram er unnið í sama hljóðheimi, svona nokkurn veginn, en þetta verk er dýpra, dekkra og þroskaðra en frumburð- urinn. Ég man ekki í svipinn eftir plötu sem hefur tekið sér jafn langan tíma í að breiða úr sér, vakna og draga mann inn. Sem er iðulega gott tákn. Destrier er ekki gefins, töfrar hennar koma í ljós smám saman, með endurtekinni hlustun fattar þú meira og meira. En einmitt vegna þessa ertu efins á tímabili, þér líst eiginlega ekkert á þetta. Þetta er of hægt, ekki nógu melódískt o.s.frv. Ekki nógu kraftmikið hugsaði ég lengi en nú, á síðustu metrunum í þessu dómahlustunarferli, hefur leyndardómurinn lokist upp fyrir mér. Platan er hugsuð sem hægs- treymt ferli og það er ýjað að hlutum frekar en þeim sé slengt framan í þig. Destrier er hægelduð, hún kem- ur ekki úr örbylgjuofni. Heildarhugmynd stýrir málum en í gegnum textana vinnur Arnór söngvari úr tilfinningum eins og reiði, ótta og kvíða sem spruttu upp í kjölfar líkamsárásar sem hann varð fyrir árið 2012. Þetta er því ekkert venjuleg plata, tónlistin hefur ákveð- inn tilgang, er einskonar græðandi ferli þar sem Arnór kemur út á hin- Líknandi reiði Allt gefið Agent Fresco er eitt mikilhæfasta rokkband Íslands og sýnir það og sannar á annarri plötu sinni. um endanum aðeins reynslumeiri, hreinni og vitrari. Platan opnar með löngum tón eður suði en svo brestur á með laginu „Dark Water“, svaka- legt lag þar sem öllum helstu kost- 46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2015 Söfn • Setur • Sýningar Laugardagur 7. nóvember kl. 14: Barnaleiðsögn Sunnudagur 8. nóvember kl. 14: Sunnudagsspjall með Merði Árnasyni um sýninguna Blaðamaður með myndavél. Ljósmyndir Vilborgar Harðardóttur. Þriðjudagur 10. nóvember kl. 12: Hádegisfyrirlestur: Auður Styrkársdóttir fjallar um baráttu kvenna fyrir kosningarétti. Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Hvað er svona merkilegt við það? Störf kvenna í 100 ár í Bogasal Bláklædda konan - Ný rannsókn á fornu kumli í Horni I Ein/Einn - Ljósmyndir Valdimars Thorlaciusar í Myndasal Blaðamaður með myndavél á Veggnum Lítil á Torginu Fjölbreyttir ratleikir fyrir alla fjölskylduna. Safnbúð og kaffihús. Listasafn Reykjanesbæjar Andlit bæjarins, 300 ljósmyndir 3. september – 8. nóvember Byggðasafn Reykjanesbæjar Þyrping verður að þorpi Bátasafn Gríms Karlssonar Opið alla daga 12.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn LISTASAFN ÍSLANDS NÍNA TRYGGVADÓTTIR - LJÓÐVARP 18.9. 2015 - 3.1. 2016 NÍNA SÆMUNDSSON - LISTIN Á HVÖRFUM 6.11.2015 - 17.1.2016, Sunnudagsleiðsögn 8. nóvember kl. 14. Sýningarstjórinn Hrafnhildur Schram leiðir gesti um sýninguna. PABLO PICASSO Í SAFNEIGN LISTASAFNS ÍSLANDS; JACQUELINE MEÐ GULAN BORÐA (1962) 21.7. 2015 - 11.9. 2016 SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar. Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is Opið daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR GYÐJUR 17. 10. 2015 - 29.11. 2015 Opið laugard. og sunnud. kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR SPEGILMYND 11.10. - 29.11 2015 Opið sunnudaga kl. 14-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú Geirfuglinn, Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort og vaxmynd Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Veitingahúsið Kapers Hádegismatur, kaffi og meðlæti Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 10-17. SAFNAHÚSIÐ Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210 www.safnahusid.is Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17 GEYMILEGIR HLUTIR Að safna í söguna Opið kl. 12-17. Lokað mánud. Verslunin Kraum í anddyri Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is Á eintali við tilveruna Eiríkur Smith Sýningaropnun laugardag 7. nóvember kl. 15 Opið 12-17, fimmtudaga 12-21, lokað þriðjudaga. www.hafnarborg.is, sími 585 5790 Aðgangur ókeypis Styrktartónleikar Ástusjóðs verða haldnir í Hörpu nk. þriðjudags- kvöld, 10. nóvember, kl. 20. Úrval tónlistarfólks mun gefa vinnu sína þetta kvöld: Aurora og Vox feminae ásamt Svönu Víkingsdóttur og Mar- gréti Pálmadóttur, Kammerhóp- urinn Elektra Ensemble, Samuel Jón Samúelsson big band, Tómas Einarsson og Sigríður Thorlacius og Valdimar og Ásgeir úr hljómsveit- inni Valdimar. Ástusjóður var stofnaður í fyrra- sumar til minningar um Ástu Stef- ánsdóttur lögfræðing sem lést af slysförum í Bleiksárgljúfri í Fljóts- hlíð og fannst rúmum fimm vikum eftir slysið fremst í gljúfrinu. Fyrsta verkefni Ástusjóðs voru kaup á nýrri tækni til að styrkja björgunarsveitir, að því er fram kemur í tilkynningu. Þar segir að Ástusjóður hafi nú gefið björgunar- sveitum sex flygildi til að auðvelda þeim leit að fólki úr lofti við erfiðar aðstæður. Dagrenning á Hvolsvelli og Flug- björgunarsveitin á Hellu hafa nú kynnst tækninni og tekið flygildin í notkun og segir í tilkynningu að það sé mjög ánægjulegt að áhugi á tækninni hafi smitað út frá sér til annarra sveita og mikilvægt að sjóð- urinn styðji áfram við verkefnið. Að mörgu sé að hyggja, fylgjast þurfi með tækninni og uppfæra tækin samkvæmt því og einnig þurfi að styðja fleiri björgunarsveitir á land- inu. Mikill áhugi sé fyrir því að senda fólk á námskeið erlendis til þess að auka þekkingu á nýsköpun við björgunarstörf. Stjórn sjóðsins og undirbúnings- nefnd tónleikanna þiggja ekki laun og engir miðar á tónleikana eru ógreiddir. Tónleikarnir verða haldn- ir í Norðurljósasal Hörpu og fer miðasala fram í Hörpu og á tix.is. Styrktartónleikar Ástusjóðs haldnir í Norðurljósum Tvíeyki Sigríður Thorlacius og Tómas R. Einarsson eru meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum á þriðjudaginn í Norðurljósum í Hörpu.  Tónlistarmenn gefa vinnu sína

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.