Morgunblaðið - 07.11.2015, Side 48

Morgunblaðið - 07.11.2015, Side 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2015 Sinfóníuhljómsveit Íslandshefur tekið að sér þónokk-ur verkefni með poppurumog rokkurum síðustu árin. Sælt er mér að minnast samstarfs hennar við Skálmöld þar sem frammistaða allra aðila fór fram úr björtustu vonum. Það þótti mér rökrétt samstarf en þegar kom að John Grant var ég efins. Synþa- kennd popptónlist er eitthvað sem mér hefur fundist ganga misvel að laga að og útsetja fyrir sinfóníu og útkoman oft verða kauðsk. Það ber þó að hafa í huga að John Grant er enginn venjulegur tónlistarmaður og ég held að við Íslendingar gerum okkur ekki fyllilega grein fyrir hversu stórt nafn þessi vinalegi au- fúsugestur okkar er í tónlistarheim- inum. En nóg um það. Tónleikarnir hófust klukkan 20 og þá var Harpa orðin troðfull af hátíðargestum og ekki ofsögum sagt að maður upplifði gleði yfir því að komast að sjá svona „exclusive“ viðburð. Er sest var í salinn var auðséð að það átti ekki að blása þessa tónleika upp í einhvern sin- fónískan hátíðleika. Hljóðfæraleik- ararnir voru allir klæddir í svart og sviðið var tjaldað af með svörtum Stórbrotið í ein- faldleika sínum Ljósmynd/ Alexander Matukhno Klassískur John Grant ásamt Sinfóníuhljómsveit og stjórnanda. drapperingum, einfaldleikinn var í fyrirrúmi. Þegar talið var í fyrsta lag fannst strax að þetta sat mjög vel. Allir voru greinilega á sömu blaðsíðu. Tónleikarnir stóðu í hátt á annan tíma og renndu Grant og sam- ferðafólk hans í lög víða að af ferli Grants. Ég, leikmaðurinn sem þekkir tónlist hans ekki vel, kann- aðist við megnið af þeim en sum þó ekki. Slagararnir „GMF“ og „Mars“ komu með dágóðu bili en hæst þótti mér risið þegar, undir lokin, var rennt í „Queen of Denmark“. Þar náði samhljómurinn fullkomnun og hljóðmyndin var stórbrotin. það er þó ekki svo að segja að honum hafi verið ábótavant í öðrum lögum. Út- setningarnar voru með eindæmum smekklegar og lyftu lögunum upp á allt annað plan, í það minnsta þeim sem ég kannaðist við. Tónleikarnir náðu að mínu viti hæst í fyrra upp- klappslaginu þegar Grant flutti lag- ið „Drug“, saknaðarljóð sem fyrst var flutt af hljómsveit Grants, The Czars. Í því kristallast þessi tæri innileiki sem einkennir Grant sem líkir þeim sem hann er að skilja við við eiturlyf og þrátt fyrir að hann geti ekki lengur lifað við þær að- stæður sem þeir eiga saman sé hann háður viðkomandi. Það gleður mig alltaf jafn mikið þegar tónlistarmenn sleppa því að taka sig hátíðlega þótt þeir hafi til- efni til. John Grant gerði það ald- eilis ekki og lítil vandræði eins og að hljóðnemasnúra detti úr á vendi- punkti í textanum og menn þurfi að rökræða uppklappslögin í þögn fyr- ir framan fulla Eldborg gerði flytj- endurna bara mannlegri og braut niður fjórða vegginn sem oft vill vera við lýði í svona stórum sölum. Tónleikarnir voru einfaldlega stór- kostlegir. Eldborg John Grant og Sinfó bbbbm Flytjendur: John Grant, Chris Pember- ton, Jakob Smári Magnússon, Kristinn Snær Agnarsson, Pétur Hallgrímsson og Sinfóníuhljómsveit Íslands, stjórn- andi: Christopher George. Bakraddir: El- ín Ey, Elísabet og Sigga Eyþórsdætur. HJALTI ST. KRISTJÁNSSON TÓNLIST Allir ættu að finna einhverja skemmtilega tónleika sem eru utandagskrár (off venue) á Airwaves í dag. Aðgangur að þeim er ókeypis og eru þeir haldnir víða um miðborgina.  12:00 Reykjavíkurdætur á Slippbarnum  14:00 Herra Hnetusmjör & Joe Frazier, Íslenski barinn, Ingólfstræti 1a  15:00 Kött Grá Pjé Hlemmur Squer Laugavegi 105  17:00 Kippi kanínus, Mengi á Óðinsgötu 2  17:00 Teitur Magnússon verður á Kaffihúsi Vesturbæjar  17:00 Ragnheiður Gröndal, Icewear, Austurstræti 5  19:30 Grísalappalísa á Kex Hostel Morgunblaðið/Eggert Grísalappalísa Þessi frískandi hljómsveit spilar á Kex hostel í kvöld utandagskrár. Úrval hressilegra tónleika utandagskrár Everest 12 Morgunblaðið bbbbm Metacritic 66/100 IMDb 7,7/10 Laugarásbíó 20.00 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.30 Borgarbíó Akureyri 17.50 Legend 16 Metacritic 59/100 IMDb 7,5/10 Sambíóin Álfabakka 22.30 Pan Munaðarleysingi ferðast til Hvergilands og uppgötvar örlög sín, að verða hetjan Pétur Pan. Bönnuð yngri en 7 ára. Metacritic36/100 IMDb 6,0/10 Laugarásbíó 14.00 Sambíóin Álfabakka 13.00, 15.00, 15.00, 17.30, 17.30, 20.00 Sambíóin Egilshöll 15.00, 17.30 Sambíóin Kringlunni 13.50, 15.00, 16.20, 17.30 Sambíóin Akureyri 14.30, 15.00, 17.30 Sambíóin Keflavík 15.00 Jem and the Holograms Smábæjarstúlkan Jerrica Jem Benton stofnar hljómsveit með systur sinni og tveimur vinkonum og fljótlega verða þær umkringdar aðdáendum. Metacritic 44/100 IMDb 3,2/10 Laugarásbíó 17.00 Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00 Sambíóin Keflavík 17.30 Burnt 12 Kokkurinn Adam Jones er einn af villingum Parísar- borgar og skeytir ekki um neitt nema spennuna við að skapa nýjar bragðsprengjur. Metacritic 38/100 IMDb 6,9/10 Háskólabíó 20.00, 22.20 Klovn Forever 14 Morgunblaðið bbbbn IMDb 6,9/10 Smárabíó 17.30, 20.00 Háskólabíó 15.00, 22.20 The Martian 12 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 74/100 IMDB 8,6/10 Smárabíó 20.00, 22.50 Black Mass 16 Metacritic 68/100 IMDb 7,8/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.30 Sicario 16 Metacritic 83/100 IMDb 8,0/10 Laugarásbíó 22.30 The Intern Metacritic 50/100 IMDb 7,4/10 Sambíóin Kringlunni 20.00 Dheepan 12 Fyrrverandi hermaður úr borgarastríðinu á Srí Lanka reynir að finna sér samastað í Frakklandi. Metacritic 78/100 IMDB 7,1/10 Háskólabíó 17.30 The Walk Metacritic 70/100 IMDB 8,0/10 Smárabíó 17.00, 22.20 Hotel Transylvania 2 IMDB 7,7/10 Laugarásbíó 14.00, 16.00 Sambíóin Keflavík 15.00 Smárabíó 13.00, 14.00, 15.15 Háskólabíó 15.00 Borgarbíó 14.00, 16.00 Inside Out Metacritic 93/100 IMDB 8,8/10 Sambíóin Álfabakka 13.30, 15.40 Sambíóin Egilshöll 15.20 Töfrahúsið Metacritic 47/100 IMDb 6,3/10 Sambíóin Álfabakka 13.30, 15.40 Þrestir 12 Háskólabíó 17.30, 20.00 Bíó Paradís 20.00 Hvað er svona merkilegt við það? Ný heimildarmynd sem fjallar um hin róttæku kvennaframboð sem birtust á níunda áratug síðustu aldar auk þess að koma við í nútímanum. Bíó Paradís 18.00 Glænýja testamentið Guð er andstyggilegur skít- hæll frá Brussel, en dóttir hans er staðráðin í að koma hlutunum í lag. Myndin er ekki við hæfi yngri en 9 ára. Bíó Paradís 22.00 Stúlkurnar á Kleppjárnsreykjum Á stríðsárunum fór allt á annan endann í íslensku samfélagi vegna samskipta kvenna við setuliðið. Bíó Paradís 18.00 Macbeth Bíó Paradís 22.00 Hamlet Bíó Paradís 20.00 The Show of Shows Bíó Paradís 20.00 Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is Kvikmyndir bíóhúsanna Njósnari hennar hátignar, James Bond, uppgötvar dul- kóðuð skilaboð úr fortíð sinni sem leiða hann á slóð illra samtaka, Spectre. Metacritic 63/100 IMDb 7,5/10 Laugarásbíó 17.00, 18.00, 21.00, 23.00 Sambíóin Egilshöll 15.00, 16.30, 18.00, 19.30, 21.15, 22.35 Sambíóin Kringlunni 13.40, 16.50, 18.50, 20.00, 22.00, 23.10 Sambíóin Keflavík 16.50, 20.00, 23.10 Smárabíó 13.00, 14.00, 16.00, 17.00, 19.00, 20.00, 22.00, 23.00, 23.00 Háskólabíó 15.00, 16.00, 18.00, 19.00, 21.00, 22.00 Borgarbíó Akureyri 15.00, 18.00, 20.00, 21.00, 22.40 Spectre 12 Vin Diesel fer með hlutverk Kaulder, aldagamals vígamanns sem drap nornadrottninguna á miðöldum. Metacritic 36/100 IMDB 6,7/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.20 Sambíóin Kringlunni 22.30 Sambíóin Akureyri 22.30 The Last Witch Hunter 12 Þrír skátar reyna að bjarga bænum sínum frá uppvakningafaraldri. IMDb 5,9/10 Sambíóin Álfabakka 13.30, 15.40, 15.40, 17.50, 17.50, 20.00, 20.00, 22.10, 22.10 Sambíóin Egilshöll 17.50, 20.00, 22.10 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.10 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.10 Scouts Guide to the Zombie Apocalypse 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.