Víkurfréttir - 19.12.1991, Blaðsíða 32
Jólablað
VíkurÍTCttir
Desember 1991
m a W ^ grín ■ gagnrýni m -vangaveltur ■ ^^^J^umsjón: emil páll*
Agnes sló í gegn
Ymsir aðrir Keflvíkingar en
þeir sem komnir eru á miðjan
aldur hafa spurt, hver hún sé
þessi Agnes Jóhannsdóttir, sem
sló í gegn hjá Hemma Gunn í
síðustu viku og sendi Kefl-
víkingum jólakveðju á eft-
irminnilegan máta í „földu
myndavélinni." Fyrir þá sem
ekki þekkja er rétt að upplýsa
það, að hún er dóttir Jóhanns
Guðjónssonar, sem betur
þekktur var undir nafninu Jói
„black“ og Guðrúnar Pét-
ursdóttur, er lengi áttu heima að
Vesturbraut 3.
Á tali
Spaugilegt atvik átti sér stað
er Björgvin Lúthersson ætlaði
að vígja ljósleiðarann til
Grindavíkur með því að hringja
í Eðvarð Júlíusson, forseta bæj-
arstjórnar Grindavíkur á dög-
unum. Ekki gekk það sem
skyldi þar sem númerið hjá for-
setanum var á tali og tókst ekki
að ná sambandi fyrr en sím-
stöðvarstjórinn í Grindavík
hafði gefið upp annað síma-
númer.
Skemma peru-
þjófar
óframhaldiö?
Sá ljóti ósiður sem gengið
hefur undanfarna áratugi í
Keflavík að stela ljósaperunum
af jólatrjánum og öðrum jóla-
skreytingum, gæti hafi í för með
sér leiðindamál. Ekki einungis
það að um þjófnað sé að ræða,
þannig að tjónið lendi á þeim
sem eru að skreyta þama upp
bæinn okkar. Heldur hitt að
heyrst hefur að menn séu orðnir
hvekktir á þessu og hugsi sér
jafnvel að hætta að skreyta með
jólaljósum í framtíðinni. Yrði
það mikill söknuður fyrir þá
sem unna jólaljósunum. Þessu
til viðbótar má benda á að per-
urnar sem stolið er með þessum
hætti eru ónothæfar á heimilum
fólks, vegna annarrar spennu
sem þar er og geta því allt eins
verið stórhættulegar séu þær
notaðar heima fyrir.
Jólahreingerningar
í bœnum...
Þó komið sé fast að jólum og
húsmæður flestar búnar með
jólahreingerningar standa aðrir
bæjarbúar í hreingerningum,
ekki þó með vatni og sápu,
heldur er hér átt við mikla til-
flutninga á húsum. í síðustu
viku stóð til að fjarlægja tvö
gömul íbúðarhús og tvo skúra
úr gamla bæjarhlutanum í
Keflavík.
...og húsin týna
tölunni
Bakhúsið að Vesturgötu 12a,
var mokað burt síðasta
fimmtudag og á laugardag stóð
til að flytja burtu húsið að Að-
algötu 12, en það hús hefur
bóndinn á Bala við Sandgerði
fengið gefins og átti að flytja
það á jörðina hans. Þá ætlaði
Björgunarsveitin Stakkur að
fjarlægja rauða skúrinn gegnt
Ungó við Hafnargötuna í
Keflavík og eins stóð til að
bærinn fjarlægði gamlan skúr
nálægt horni Vallargötu og Að-
algötu í Keflavík. Er hér því um
einskonar jólahreingerningu að
ræða.
Fjórar Suö-
umesjabœkur
Fremur lítið hefur komið út
af dæmigerðum Suðurnesja-
bókum fyrir þessi jól. Þó hefur
Hilmar Jónsson gefið út eina og
Súsanna Svavarsdóttir hefur
gefið út tvær. Eru það bækurnar
„Gúmntíendur synda ekki“,
sem er viðtalsbók við eig-
inkonur alkóhólista og „f miðj-
um draumi" sem er skáldsaga.
Auk þessa mun Jóhann G. Jó-
hanns-son hafa gefið út nótna-
bók fyrir píanó og gítar.
Skrýtin keflvísk
stórfjölskylda
Söguþráð-
urinn í skáld-
sögu Súsönnu
er um skrýtna
og skemmti-
lega keflvíska
stórfjölskyldu.
Eru persón-
umar margar
og ólíkar inn-
byrðis, en allar eru þær þó með
nefið hver í annarrar koppi.
Þungamiðjan og burðarásinn í
tilveru flestra er hin harð-
• Frá undirbúningi flutnings hússins við Aðalgötu 12,
Ketlavík, en framtíðarstaður þess húss verður á jörðinni Bala
sem nú tilheyrir Sandgerði.
duglega og kvika Hanna, enda
lifir hún að mestu leyti fyrir
aðra. Dag einn verður breyting
þar á. Hanna fær höfuðhögg og
leggst á sjúkrahús um stund-
arsakir. Eftir það verður ekkert
eins og áður, segir í lýsingu á
innihaldi bókarinnar.
Lœriö að flaka...
Hver hefði trúað því að
verkalýðsfélög og vinnu-
veitendur í sjávarplássi þyrftu
að halda sérstakt námskeið til
að kenna fólki það einfalda verk
að flaka fisk. Þetta er þó stað-
reyndin og átti eitt slíkt nám-
skeið að hefjast á vegum VSFK
og Vinnuveitendafélags Suð-
umesja síðasta mánudag. Á-
stæðan var sú að erfiðlega hefur
gengið að fá til starfa fisk-
vinnslufólk sem kann að flaka
fisk.
...og lœrið aö
mœfa
Hitt er þó enn alvarlegra að
vinnuveitendur í fiskvinnslunni
vilja heldur ráða til sín erlent
vinnuafl en íslenskt. Sást það
vel þegar Pólverjar eða annað
erlent vinnuafl kom inn á at-
vinnuleysisskrá í haust, þá fékk
það strax atvinnu en landinn sat
áfram á skránni. Ef leitað er
eftir ástæðunni er hún borð-
liggjandi. Hið útlenda vinnuafl,
YTSAMAR J<
Metabo slípirokkur
Verð: 12.996 kr.
Black & Decker
hleösluskrúfjárn
Verð: 2.997 kr-
Black & Decker 602
rafhlööuborvél
Verð: 8.991 kr.
PEUGEOT hjólsög
1200 wött 184 mm blað
Verð: 10.800 kr.
Verð:11.997 kr.
Ein meö öllu
Verð: 12.996 kr.
Ljósm.: epj.