Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.1991, Blaðsíða 41

Víkurfréttir - 19.12.1991, Blaðsíða 41
Jólablað Víkurfréttir Desember 1991 SYSTURNAR Inga Sigga, sem er yngst og tvíburarnir Helga og Halla við eldhúsborðið heima hjá mömmu og pabba. A myndina vantar fjórðu systurina, liana Þóru. Þegar Ijósmvndarinn smellti af þeim höfðu þær mestan áhuga á veðurkortinu í DV enda veðrið gott þegar viðtalið var tekið. eskjan sagði. í húsinu var engin loftkæling, svo hitinn var yf- irþyrmandi 30-40 gráður á Celsíus." ÆTLAÐI í FÖRÐUNAR- NÁM Fljótlega komst Helga síðan í annað húsnæði inni í borginni og byrjaði í skólanum. Það leið ekki á löngu þar til hún gerði sér grein fyrir því að munurinn á „drottningarenskunni“ sem töl- uð er í Englandi og „am- erískunni“ getur legið í fleiru en málrómnum. Málum var nefni- lega þannig háttað að hún hugðist leggja stund á nám í „Cosmetology", sem í Englandi þýðir - snyrtifræði eða and- litsförðun, en í Ameríku - hár- greiðsla! „Eg gerði mér enga grein fyrir þessu fyrr en skólinn var byrjaður. Skólinn hét Amold's Intemational University og Cosmetology, svo ég hélt ég væri að fara í förðunarnám. Eftir að ég komst að því að |ietta var hárskóli hugsaði ég sem svo að einhver að ofan væri að stýra mér þessa leið. Þar að auki þá líkaði mér hreint ekkert illa við hárgreiðsluna. og komst fljótt að því að hún átti vel við mig.“ FÓR AÐ VINNA Á STEAK & SHAKe En það var ekki þar með sagt að lífið væri einhver dans á rós- um hjá Helgu. Spariféð var fljótt uppurið og hún þuifti að fara að vinna fyrir sér. „Eg fékk vinnu við að steikja franskar og hamborgara á 'Steak & Shake', og breytti úr dagskóla yfir í kvöldskóla. Heimþráin var á þessum tíma alveg að drepa mig, ég þekkti fáa, en lét engan vita hvemig mér leið. Ég var ekki tilbúin að játa að þetta væru mistök hjá mér að vera að flækjast þama,“ segir Helga, og það er greinilegt að þessi tími skipar ekki háan sess í minn- ingunni. VANN KAUP- LAUST í SEX MÁNUÐI Helga hélt náminu áfram á seiglunni og þegar hún átti u.þ.b. þriðjungi þess ólokið, komst hún í kynni við breskan mann, Scott Cole, sem lært hafði hárgreiðslu hjá hinum heimsfræga Vidal Sassoon. Þau kynntust á Pivot Point nám- skeiði, sem Helga hafði fengið í verðlaun frá skólanum fyrir framúrskarandi námsárangur. A lokadegi þessa námskeiðs var háð keppni, þar sem þátt- takendumir áttu að vefa hatt úr hárum og stóð keppnin milli þeirra tveggja. Scott hafði þeg- ar getið sér gott orð hár- greiðsluheiminum, en Helga var ennþá nemi. Hún sá að þarna var á ferðinni maður sem hún gat lært mikið af og bað hann því um vinnu. Scott tók vel í það og leyfði henni að koma á frídögum hennar í skólanum, einu sinni í viku. Þannig vann Helga fyrir hann kauplaust í sex mánuði, uns hann flutti sig í stærra pláss og réði hana til sín í fulla vinnu, - á launum! Fyrr en varði var Helga orðin hans hægri hönd: „Ég fylgdi honum eins og skugginn hvert sem hann fór og lærði mikið af honum enda er hann þekktur um allan heim og vel virtur í heimi hártískunnar." KOM HÖLLU í HÁR- GREIÐSLUNA Árið 1981 kom síðan Halla systir llelgu til Atlanta í smá frí, sem varð síðan lengra en á- ætlað hafði verið. Manneskju vantaði til að taka við tímapöntunum á stofunni og var Höllu skellt f starfið. Scott var sjálfur byrjaður að kenna í eigin skóla og það varð úr að Halla dreif sig í skólann, og að honum loknum kom hún einnig til starfa hjá Scott. Helga kenndi henni síðan sitt lítið af hverju og þær unnu saman tví- burarnir og gerðu það gott. Helga vann hjá Scott í 10 ár, en fannst þá sem kominn væri tími til að hún héldi áfram og færi að gera sína eigin hluti. Hún vann um tíma með annari stúlku, sem verið hafði nemandi hennar. en komst svo loksins í aðstöðu til að opna sinn eigin rekstur. I upphafi þessa árs opnaði hún stofu í miðju Buck- head-hverfi í Atlanta; hverfi þar sem mikið af „business"- mönnurn býr, hverfi sem iðar af lífi alla daga og öll kvöld vik- unnar, hverfi sem passar ná- kvæmlega fyrir Helgu. OPNAÐI SÍNA EIGIN STOFU Hárgreiðslustofan, sem Helga nefnir „Twins“, eftir þeim systrum, er hluti af stærra fyrirtæki sem nefnist „Natural Body". Þar getur fólk komið og fengið nánast alla fegr- unarþjónustu sem hugast, allt frá tánuddi upp í klippingu. Helga hefur í gegnum árin eignast stóran hóp við- skiptavina. Nú er svo komið að venjulega er upppantað hjá henni heilan mánuð fram í tím- ann. Þegar viðskiptavinahópurinn er orðinn jafn stór og hjá Helgu, þá verður ekki hjá því komist að orðstýrinn berist út. I febrúar á þessu ári kom upp skemmtilegt atvik sem Helga á ekki eftir að gleyma svo lengi sem hún lifir. FARIN AÐ KLIPPA STÓR- STJÖRNUR „Á mínum fyrstu árum í Atl- anta, átti ég kúnna sem hafði mikinn áhuga á hárgreiðslu og dreymdi um að komast inn í kvikmyndaheiminn og vinna þar. Þessi draumur hennar hefur nú ræst og í vor var hún í Atl- anta að vinna við tökur á myndinni 'Free Jack', sem í leika m.a. Mick Jagger, Entilio Estevez, Anthony Hopkins og Rene Russo. Þar vantaði hár- greiðslufólk til starfa og hún leitaði mig uppi og spurði hvort ég væri tilkippileg. Ég játti því og einn daginn fórum við öll af stofunni hjá mér unnum hárið á fjölda manns fyrir hópatriði í myndinni sem átti að gerast eftir heimsendi. Eftir það spurði hún mig hvemig mér litist á að sjá um hárið á sjálfum Mick Jagger. Það hafði staðið til að senda hann til New York, eða fá einhvern þaðan, en hún hafði sagt framleiðandanum og leik- stjóranum frá mér, og þeir féllust á að nota mig. Ég var að sjálfsögu mjög upp með mér og spennt að fá að komast í tæri við mann jafn frægan og Jag- ger,“ segir Helga með glampa í augunum. MICK JAGGER... „Það varð síðan úr að hann fékk tíma hjá mér kl. 7 að kvöldi þegar allir áttu að vera farnir, en ég var sein fyrir og ennþá með kúnna þegar hann birtist ásamt öllum sínum ljf- vörðum og öðru fylgiliði. Ég var nýbúin að brýna það fyrir öllum sem inni voru að vera ekki að glápa á hann þegar hann kæmi inn, og greyið konan í stólnum hjá mér tók þetta svo bókstaflega að hún þorði ekki að líta upp úr blaðinu sem hún var að Iesa. Mick var hins vegar hinn viðkunnalegasti og um leið og við byrjuðum að ræða saman hvarf öll mín hræðsla við þenn- an mann. Hann kannaðist strax við Eddusögurnar og vissi margt um Island. Hann sagðist hins vegar vera orðinn þreyttur og spurði hvort ég væri ekki bara til í að koma heim til þeirra Jerry Hall, þar sem þau bjuggu í Atlanta og gera þetta daginn eftir. Ég játti því bara að sjálf- sögðu og fór síðan að hitta þau daginn eftir. ...OG JERRI HALL I fyrstu þekkti ég ekki Jerri Hall, hún var svo venjuleg og ósköp þýð í viðmóti. Mick sat síðan hinn hressasti í stólnum, las blað og sönglaði með kátrí- inu í útvarpinu. Þegar hann sá eitthvað sem honum þótti merkilegt í blaðinu las hann það upphátt fyrir okkur og gerði af gamni sínu. Þegar ég var búin að klippa hann, spurði Jerri mig hvort ég væri ekki til í að klippa hana líka. Hún hafði á orði að hún hefði ekki fengið klippingu síðan mamma Mick's hafði klippt hana fyrir löngu síðan. Ég var að sjálfsögðu til í það og klippti eina 10-15 cm af henni og síðan báða krakkana þeirra þar á eftir. Ég sagði þeim að strax á eftir væri ég að fara á þorrablót með íslenskum vinum mínum í Atl- anta að borða svið og fleira til- W I N at Natural Body Helga Iceland 275 E' Pys Fen7 * Atlant lelephone 404.841.9554 ímmm a5 GA 30306
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.