Morgunblaðið - 08.02.2016, Síða 1

Morgunblaðið - 08.02.2016, Síða 1
M Á N U D A G U R 8. F E B R Ú A R 2 0 1 6 Stofnað 1913  31. tölublað  104. árgangur  TELUR AÐ BÓKIN EIGI BJARTA FRAMTÍÐ SETJA Á AUKINN KRAFT Í GRÓÐUR- SETNINGU Á NÝ ER EKKERT GAMALT FÓLK Á ÍSLANDI? NÝR SKÓGRÆKTARSTJÓRI 14 LIFÐU NÚNA 10AÐALSTEINN ÁSBERG 26 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Heilbrigðisráðherra telur að ekki þurfi að koma til þess að ríkið yfirtaki rekstur hjúkrunarheimila af sveitar- félögum. Bæjaryfirvöld í Vestmanna- eyjum munu óska eftir upplýsingum frá ríkinu um það hvenær og hvernig það geti tekið yfir rekstur hjúkrunar- heimilisins Hraunbúða. Bætast Vest- mannaeyjar í hóp sveitarfélaga sem vilja losna undan þessum rekstri. Safnast hefur upp 300-400 milljóna króna viðskiptaskuld Hraunbúða við ferðarráðuneytið um að ríkið taki við rekstri hjúkrunarheimilis þar og fleiri sveitarfélög eru á þeim buxunum. Skýrist um mánaðamót Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis- ráðherra segir það verkefni beggja samningsaðila að finna skynsamlega lausn á vanda hjúkrunarheimilanna. Ríkið, sveitarfélögin og viðkomandi sjálfseignarstofnanir hafi skyldur við aldraða einstaklinga. „Við getum ekki verið að kasta öldruðu fólki svona á milli okkar,“ segir Kristján. Ráðherra segir að verið sé að fara í gegnum fjármögnunarlíkan hjúkrun- arheimila og vonast til að þau mál skýrist um næstu mánaðamót. Stilla þurfi saman kröfur sem ætlunin er að gera í væntanlegum samningum um þjónustu og fjármögnun hennar. Ætl- ast sé til þess að rekstraraðili sem fær fjármagn með daggjöldum frá ríkis- sjóði sníði reksturinn að fjárframlög- um. Birgir Jakobsson landlæknir mun hitta forsvarsmenn eldri borgara á fundi í dag. Vestmannaeyjabæ vegna hallarekst- urs síðustu ár. Elliði Vignisson bæj- arstjóri segir að þannig sé ekki hægt að halda áfram. Það sé lagaleg skylda ríkisins en ekki sveitarfélagsins að annast heilbrigðisþjónustu. Hann segir bæinn tilbúinn að vinna með rík- inu að yfirfærslunni. Jafnframt vekur hann athygli á því að hægt sé að spara verulegar fjárhæðir með því að setja rekstur beggja heilbrigðisstofnana ríkisins í Eyjum undir einn hatt og nota það til að efla heilbrigðisþjón- ustuna. Garðabær er í viðræðum við vel- Hafa skyldur við aldraða  Vestmannaeyjar bætast í hóp sveitarfélaga sem vilja losna undan rekstri hjúkr- unarheimila  Heilbrigðisráðherra vill samvinnu um skynsamlega lausn vandans MStilla þarf saman »4 Bolludagurinn er genginn í garð enn eitt árið og munu landsmenn m.a. halda upp á hann í dag samkvæmt dönskum sið, með bolluáti og fleng- ingum. Jón Albert Kristinsson, formaður Landssambands bakarameistara, hefur staðið vaktina í þónokkur ár við að fullnægja þörfum landans fyrir hið fyrrnefnda en þrátt fyrir hægfara þróun ár segir hann hefðbundnar bollur enn ráðandi á markaðnum. Ef reiknað er með að hver Íslendingur borði 3-4 bollur á bolludaginn og helgina á undan fer heildarneyslan yfir milljón stykki og þyngdin gæti numið á annað hundrað tonnum. Í Suður-Þingeyjarsýslu hefur Kvenfélag Aðaldæla um árabil keyrt út bollur, sem konurnar baka. Baksturinn er hluti af fjáröflun félagsins til góðgerðarmála og vakna konurnar í Aðaldal eldsnemma á sunnudags- morgninum fyrir bolludag og baka saman í félagsheimilinu Ýdölum. Keyrt er í fjórar sveitir, þ.e. Aðaldal, Kinn, Reykjadal og Reykjahverfi, enda á marga sveitabæi að fara. Bollubíllinn er alltaf velkominn því bollurnar frá Kvenfélagi Aðaldæla þykja mikið hnossgæti. Landsmenn borða bollur í tonnavís Rjóma- og krembollur einkenna mataræði landans á bolludegi Morgunblaðið/Árni Sæberg Forskot á sæluna Fanney Rún Guðmundsdóttir og Marta María brögðuðu á bollum í gær, ýmist með rjóma, súkkulaði, sultu eða flórsykri. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Bollur úr bollubíl Í S-Þingeyjarsýslu, f.v. Helga Sigurbjörg Gunnarsdóttir, Edda Hrönn Hallgrímsdóttir, Arndís Inga Árnadóttir og Katla Ólafsdóttir. Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum áformar að byggja nýja uppsjávar- fiskvinnslu í Vestmannaeyjum en tækjabúnaður núverandi vinnslu er kominn til ára sinna að sögn Sigurgeirs Brynj- ars Kristgeirs- sonar, fram- kvæmdastjóra Vinnslustöðvar- innar. Kemur nýja vinnslan til með að auka frystiafköst upp- sjávarfiskvinnsl- unnar og vinnslugetu Vinnslustöðv- arinnar. Nýja vinnslan verður til að mynda sjálfvirkari en sú sem nú stendur til að endurnýja. Sigurgeir Brynjar segir stefnt að því að framkvæmdum við nýju vinnsluna verði lokið um mánaða- mótin júlí/ágúst á þessu ári, en fyrir- tækið hefur óskað eftir tilboðum í frystikerfi vinnslunnar með útboði. Staðsett nær lönduninni Nýja fiskvinnslan verður staðsett nær löndunaraðstöðinni en núver- andi vinnsla. Framkvæmdirnar fela m.a. í sér eina nýbyggingu; mótor- hús undir frystikerfið, en vinnslan sjálf verður í Mjölhúsi sem er í eigu Vinnslustöðvarinnar. Sigurgeir Brynjar segir að núver- andi vinnsla og húsnæði muni standa áfram, í það minnsta fyrst um sinn, þannig að Vinnslustöðin getur áfram verið þar með starfsemi gerist þess þörf. „Svo leiðir tíminn það í ljós hvað við gerum þar,“ segir Sigurgeir Brynjar. Ný fisk- vinnsla í Eyjum  Vinnslustöðin upp- færir tækjakostinn Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson  Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna fordæmdi í gær eldflaugar- skot Norður- Kóreumanna og hvatti til þess að unnið yrði að frekari aðgerð- um gegn þeim vegna „hættu- legra og alvar- legra brota“ þeirra á ályktunum ráðsins. Að sögn fréttaveitunnar AFP bendir þó ekkert til þess að Kínverjar, sem eru með neit- unarvald í ráðinu, láti af andstöðu sinni við harðar refsiaðgerðir gegn einræðisstjórninni í Norður-Kóreu vegna málsins. »13 Öryggisráð SÞ for- dæmir N-Kóreu Eldflaug skotið á loft í N-Kóreu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.