Morgunblaðið - 08.02.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Þrír hópar flugáhugamanna í borg-
inni vinna nú að því í nokkru sam-
starfi að setja saman þrjár flugvélar
sem keyptar voru á Ítalíu í haust.
„Við áformum að fljúga vélunum í
sumar og þeir fyrstu stefna að því að
fara í loftið um páskana,“ segir Gylfi
Árnason, verkfræðingur og flug-
áhugamaður. Fleiri eru að smíða og
setja saman flugvélar því í Flug-
görðum á Reykjavíkurflugvelli eru
a.m.k. fimm flugvélar í smíðum um
þessar mundir
Gylfi fór ásamt Óla Öder Magn-
ússyni til Ítalíu síðasta haust og
keyptu þeir þrjár eins hreyfils vélar
af Savannah-gerð í verksmiðju rétt
utan við Tórínó. Vélarnar komu til
landsins í kössum í stórum gámi og
fjögurra manna hópur sem Gylfi til-
heyrir er með aðstöðu í skýli í Flug-
görðum og þar er fyrir önnur vél
sem hópurinn á.
Þriggja manna hópur er með að-
stöðu í bílskúr í Breiðholtinu og er sá
hópur lengst kominn, enda orðið
þröngt í bílskúrnum. Tveir eru í
þriðja hópnum og hafa þeir aðstöðu
uppi á lofti í smiðju á Stórhöfða.
Allt sem tilheyrir er í kassanum
„Framleiðandinn gefur út að vinn-
an við að koma þessu saman taki um
350 klukkustundir,“ segir Gylfi. „Við
reiknum hins vegar með að þetta
taki okkur 7-800 tíma, kannski vegna
þess að við höfum svo gaman af tví-
verknaði,“ segir Gylfi. Spurður hvað
gerist ef afgangur verði af skrúfum,
svarar hann því til að þá verði vélin
léttari sem því nemi!
Hann segir að þetta sé ekki ólíkt
því að fara inn í búð og kaupa módel
af skipi eða flugvél. Allt sem tilheyri
sé í kassanum, hvort sem það séu
spaðar, vængir, mælar, mótor, sæti
eða ál í skrokkinn sjálfan. „Það er
síðan okkar að setja þetta saman
með draghnoðum eftir nákvæmum
teikningum og merkingum. Það eina
sem vantar er talstöðin, málningin
og bensín á mótorinn.“
Vélarnar eru nánast sams konar,
en þó er gert ráð fyrir að tvær verði
skráðar sem fis, en ein sem flugvél.
Gylfi segir að í raun sé fis ekki annað
en lítil flugvél, en meiri kröfur séu þó
gerðar um flugréttindi á flugvélum.
Fisin fái einkennisstafi með tölustöf-
um með TF fyrir framan, en flug-
vélin verði merkt með bókstöfum.
Hann segir að við samsetningu á
flugvélinni njóti hann og félagar
eftirlits Flugsmiðafélags Íslands og
aðstoðar við skráningu þegar þar að
kemur.
Morgunblaðið/Golli
Í Fluggörðum Smátt og smátt tekur vélin á sig mynd og í sumar fer hún á
loft. Flugvélasmiðirnir eru frá vinstri Sigurjón Sindrason, Styrmir Bjarna-
son og Gylfi Árnason. Fjórði maður í hópnum er Þórhallur Óskarsson.
Þrjár flugvélar komu
til landsins í stórum gámi
Reikna með 700 klukkutímum í að setja hverja vél saman
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Nú í vikunni ættu að liggja fyrir
niðurstöður mælinga úr loðnuleit síð-
ustu daga. Rannsóknarskip Hafrann-
sóknastofnunar, Árni Friðriksson og
Bjarni Sæmundsson, stefna nú að
hryggnum norðan og vestan við Kol-
beinsey, sem eftir er að kanna. Þann-
ig verður hringnum umhverfis landið
lokað.
„Skipin eru fyrir vestan og norðan
en vinna hvort á móti öðru og mætast
svo á Kolbeinseyjarsvæðinu,“ sagði
Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri hjá
Hafannsóknastofnun, í samtali við
Morgunblaðið í gær. Til viðbótar
mælingum skipverja á rannsóknar-
skipunum tveimur segir Þorsteinn að
aflabrögð grænlenskra, norskra og
íslenskra loðnuskipa sem eru fyrir
austan og norðan landið verði tekin
með í breytuna við útreikninga á
stofnstærð.
„Skipin fyrir austan eru milli 20 og
30 og hafa verið að fá eitthvert kropp
síðustu daga,“ segir Þorsteinn. Á
dögunum var gefinn út 173 þúsund
tonna loðnukvóti og sem fyrr segir
ættu línur að skýrast nú í vikunni um
hvort kvóti verði aukinn.
Norskir á Fáskrúðsfirði
Mikið var um að vera við höfnina á
Fáskrúðsfirði í gær. Fyrst var landað
1.400 tonnum af kolmunna úr Hoffelli
SU, sem er uppsjávarskip Loðnu-
vinnslunnar. Sá afli fékkst á Fær-
eyjamiðum. Í framhaldinu komu fjög-
ur norsk skip inn til löndunar, sem
hafa verið að veiðum fyrir austan
landið að undanförnu, en 25 norsk
skip hafa tilkynnt Gæslunni komu
sína inn í landhelgina.
„Loðnan sem við erum að fá núna
er stór og falleg. Þetta er afbragðs-
gott hráefni í frystingu, um 40 stykki
í hverju kílói og við höfum því úr
nægu hráefni að vinna meðan brælan
sem nú er brostin á stendur,“ segir
Friðrik Mar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar.
Loðnuna segir Friðrik Mar vera
selda til kaupenda í löndum Austur-
Evrópu. Og til að koma vörunni þang-
að var flutningaskipið Silver Copen-
hagen í Fáskrúðsfjarðarhöfn í gær,
þar sem um borð voru lestuð 900 tonn
af afurðum, frystri loðnu og makríl.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Löndunarbið Mikið var umleikis á Fáskrúðsfirði í gær og þangað komu fjögur norsk loðnuskip með afla. Fremst er ný frystigeymsla Loðnuvinnslunnar.
Hringnum lokað við Kolbeinsey
Rannsóknarskipin mætast fyrir norðan landið Niðurstaðna loðnuleitar að
vænta í vikunni 25 norsk skip hafa tilkynnt komu sína Loðnan stór og falleg
Rekstrarniðurstaða A-hluta fjárhags-
áætlana sveitarfélaga 2016 er í heild-
ina tekið ívið betri en kom fram í fjár-
hagsáætlunum þeirra fyrir árið 2015.
Afkoma sveitarfélaga á svonefndu
vaxtarsvæði, þ.e. sveitarfélög frá og
með Borgarbyggð, suður um Reykja-
nes og til og með sveitarfélaginu Ár-
borg, Akureyrarkaupstaður, Fljóts-
dalshérað og Fjarðabyggð, er þó
heldur lakari en á árinu 2015.
Þetta kemur fram í skýrslu Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga um
fjárhagsáætlanir sveitarfélaga fyrir
árið 2016. Í skýrslunni segir enn-
fremur að launakostnaður sveitarfé-
laga hafi hækkað verulega og þrátt
fyrir að hækkandi útsvarstekjur
komi á móti og hagrætt sé í rekstri
sveitarfélaga eftir föngum þá er mis-
jafnt milli sveitarfélaga hvernig nið-
urstaðan lítur út.
Aukið veltufé frá rekstri
Veltufé frá rekstri hjá A-hluta
sveitarfélaga eykst um 4,3 milljarða
kr. á milli ára, eða úr 7,7 prósentum
af heildartekjum í 8,6 prósent. Á fyrr-
nefndum vaxtarsvæðum lækkar hlut-
fall veltufjár þó um 0,1 prósent, en á
vaxtarsvæðunum eru skuldir og
skuldbindingar A-hluta á hvern íbúa
hæstar, 1,1 m.kr. á íbúa.
Þá segir í skýrslunni að fjárfest-
ingar hjá A-hluta séu áþekkar milli
ára, minna verður tekið af nýjum
langtímalánum en á fyrra ári og af-
borganir langtímalána lækka einnig.
ash@mbl.is
Rekstur
sveitarfé-
laga betri
Afkoma á „vaxtar-
svæðum“ versnar
Göngumaður sem slasaðist alvarlega eftir fall í Skarðsheiði í fyrradag
gekkst undir aðgerð á Landspítalanum í gær. Honum var haldið sofandi í
öndunarvél í gærkvöldi, samkvæmt upplýsingum frá gjörgæsludeild spít-
alans.
Slysið varð þegar hópur göngufólks var á ferð í Skarðsdal í Skarðsheiði í
fyrradag. Tvö úr hópnum féllu og slösuðust. Talið er að karlmaður á fimm-
tugsaldri hafi runnið um 100 metra niður hlíð dalsins. Var hann alvarlega
slasaður. Kona á sjötugsaldri er talin minna slösuð.
Aðstæður á slysstað voru erfiðar og tafsamt fyrir björgunarveitir að
komast á vettvang. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNA, sótti fólkið.
Göngumaður alvarlega slasaður
Lögreglu var tilkynnt um hópslagsmál í Skeifunni síðdegis á laugardag og
að menn notuðu kylfur og hamar. Fram kemur í yfirliti lögreglu að fjórir
menn hafi verið handteknir og vistaðir í fangageymslu vegna rannsóknar
málsins. Nánari upplýsingar fengust ekki frá lögreglu í gær.
Talsvert var um útköll og afskipti lögreglu um helgina, ekki síst vegna
ökumanna sem voru í annarlegu ástandi vegna áfengis eða fíkniefna.
Tilkynnt um hópslagsmál í Skeifunni