Morgunblaðið - 08.02.2016, Side 20

Morgunblaðið - 08.02.2016, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2016 ✝ Lára Guðna-dóttir fæddist á Siglufirði 28. júní 1922. Hún lést 29. janúar 2016. Foreldrar hennar voru Mar- grét Arndís Guð- brandsdóttir og Guðni Stígsson. Lára var þriðja í röð sjö systkina. Systkini Láru eru Guðbjörg, lést í barnæsku, Sigrún, f. 1921, d. 2015, Þórlaug Svava, f. 1924, d. 2001, Friðrik, f. 1927, d. 1983, María, f. 1931, d. 2006, Haukur Hafsteinn, f. 1933, d. 1968. Hálfbróðir, sammæðra, Guðmundur Jónsson, f. 1914, d. 1999. Fóstursystir Sveinsína Baldvinsdóttir, f. 1911, d. 1988. Lára giftist 24.12. 1942 fyrri manni sínum Magnúsi E. Gunn- laugssyni, f. 24.12. 1921, d. 21.8. 1951, og bjuggu þau í Reykja- vík. Börn Láru og Magnúsar eru Bryndís, gift Birni H. Sig- urðssyni, og Magnús Einar, kvæntur Kristínu Helgu Gísladóttur. Lára giftist 29.3. 1955 síðari manni sínum Þórði Guð- mundssyni, f. 15.8. 1916, d. 2.8. 1986. Lára og Þórður bjuggu í Syðstu- Görðum í Kolbeins- staðahreppi í Hnappadalssýslu, en eftir andlát Þórðar flutti Lára í Borgarnes. Börn Láru og Þórðar eru Kristín, Guðmundur, í sambúð með Borghildi Kristinsdóttur, Anna, gift Þorsteini Eyþórs- syni, Sigríður, gift Helga Odds- syni, Þorkell, kvæntur Guðrúnu Húbertsdóttur, Margrét, gift Halldóri Jóhannessyni, Herdís, gift Jóni Oddssyni, og Guðni, giftur Þorbjörgu Ásbjörns- dóttur. Barnabörnin eru 35 og barnabarnabörnin 46. Útför Láru fer fram frá Foss- vogskirkju í dag, 8. febrúar 2016, og hefst athöfnin kl. 13. Lára tengdamóðir mín er lát- in tæplega 94 ára að aldri. Hún er síðust systkina sinna sem fell- ur frá. Hinn 24. desember 1942 gift- ist Lára Magnúsi E. Gunnlaugs- syni. Ungu hjónin hófu búskap í Reykjavík. Þau eignuðust dótt- urina Bryndísi og þegar Lára gekk með annað barn þeirra, þá kom áfallið mikla, hinn ungi eig- inmaður hennar lést, aðeins 29 ára gamall. Magnús hafði farið í stutt ferðalag, en hann hafði mikla ánægju af útivist og ferða- lögum, en hann varð bráðkvadd- ur í þeirri ferð. Tveimur mán- uðum eftir andlát Magnúsar eignast Lára dreng og var hann skírður Magnús Einar í höfuðið á föður sínum. Það var erfitt á þessum tíma að sjá fyrir sér og börnunum. Tveimur árum síðar tók hún þá afdrifaríku ákvörðun að ráða sig sem ráðskonu í sveit með börnin til Þórðar Guð- mundssonar í Syðstu-Görðum, sem hún giftist síðar og eign- uðust þau átta börn. Fyrstu kynni mín af Láru voru þegar ég kom fyrst í Syðstu-Garða fyrir nær hálfri öld, en þá vorum við Bryndís að skjóta okkur saman. Þá var Lára húsmóðir þar með sinn stóra barnahóp heima, en hús- bóndinn að heiman þar sem hann annaðist mjólkur- og vöru- flutninga til og frá Borgarnesi ásamt því að stunda búskap. Það var mikið átak að koma upp þessum stóra barnahópi og var vinnudagurinn langur. Rafmagn kom þangað eftir að yngsta barnið var fætt. Hún þurfti því að kveikja upp í suðupotti og þvo á þvottabretti. En einn lúx- us hafði hún og það var gljákola- eldavél sem var heit allan sólar- hringinn og á næturnar sauð hún heimsins bestu rúgbrauð sem runnu ljúflega niður. Þegar leið að jólum voru kvöldin nýtt í saumaskap, saumaði hún skyrt- ur og buxur á strákana og stelp- urnar fengu nýja kjóla. En svo fannst henni tilheyra jólunum að lakka viðargólfin og það gerði hún á kvöldin. Það var alltaf gott að koma í Syðstu-Garða, þar var tekið vel á móti öllum og barnabörnin sóttu fast að fá að fara í sveitina til ömmu og afa. Lára var vel gerð kona, létt í lund og hafði gaman af að gera grín að sjálfri sér og horfði alltaf á spaugilegu hliðarnar. Hún var hörkudugleg og mjög handlagin, sama hvort það var saumaskap- ur, prjónar eða föndur og um jólin hangir fallegt perluskraut eftir hana á jólatrjám hjá fjöl- skyldunni. Hún hafði gaman af að ferðast og var henni strítt á því að það mættu ekki opnast bíldyr þá væri hún stokkin upp í. Lára fór í sína fyrstu utanlandsferð árið 1977 með okkur til Spánar og var það áreiðanlega fyrsta og eina alvöru sumarleyfið sem hún tók um dagana, hún naut þess að fara í skoðunarferðir og vera í hitanum. Hún ferðaðist með eldri borgurum og tók virkan þátt í starfi þeirra og til margra ára var ómissandi að fara á hót- el Örk á sparidaga og þá dugði nú ekki að taka með sér tvo eða þrjá kjóla, nei einn skyldi vera fyrir hvert kvöld. Eftir andlát Þórðar flutti Lára frá Syðstu-Görðum í Borg- arnes í þjónustuíbúð fyrir aldr- aða og bjó þar í um 20 ár eða þar til hún flutti yfir á dval- arheimilið Brákarhlíð í Borgar- nesi. Nú þegar ég stend frammi fyrir þeirri staðreynd að tengda- móðir mín hefur lokið sinni göngu hér á jörðu minnist ég hennar með virðingu og þökk. Megi hún hvíla í friði. Björn H. Sigurðsson. Elsku amma Lára er farin. Hún var yndisleg kona, afar glaðlynd, skemmtileg, ljúf og vildi öllum vel. Hún hafði ein- staklega góða nærveru og var hörkudugleg. Lífið var henni ekki auðvelt á sínum yngri árum og hún vann mikið. Hún eign- aðist 10 börn og það var svo sannarlega engin lognmolla á heimilinu og hún hafði í mörg horn að líta og mikið að gera. Ég held að þetta annríki hafi markað ömmu fyrir lífstíð því hún var alltaf að flýta sér. Ef það var eitthvað sem þurfti að gera þá var ekkert verið að hangsa heldur drifið í hlutunum. Ég get ekki annað en brosað þegar ég minnist einnar heim- sóknar minnar til ömmu fyrir um ári. Þá var hún nýlega kom- in af spítala og var að jafna sig eftir svimakast þar sem hún hafði dottið illa. Hún var að segja mér frá ströngum fyrir- mælum sem hún hafði fengið frá lækninum um að hún mætti alls ekki ganga ein án þess að vera með göngugrindina sína. Hún var varla búin að sleppa orðinu þegar hún þurfti að sækja eitt- hvað og sprettur á fætur, grípur í göngugrindina, rýkur af stað, gengur svo meðfram grindinni og tekur svo framúr henni. Ég skammaði hana auðvitað smá og svo hlógum við endalaust mikið að þessu þegar það rann upp fyrir henni hversu gáfulegt þetta hefði nú verið. Ein starfs- stúlkan á dvalarheimilinu hafði líka á orði að hún kynni ekkert að vera gamalmenni því hún væri alltaf að flýta sér. En þó amma væri oft að flýta sér þá vann hún verk sín vel. Hún var alltaf mikið fyrir handavinnu og þá var nú aldeilis vandað til verka og allt svo listi- lega vel gert. Hún saumaði, prjónaði og perlaði og eru til fjöldamörg falleg og vönduð verk eftir ömmu í fjölskyldunni sem gaman er að hafa uppi við. Amma var alltaf dugleg að heimsækja uppkomnu börnin sín sem búa dreift um landið. Þá kom hún með litlu ferðatöskuna sína og gisti í nokkra daga. Það var alltaf svo notalegt að hafa ömmu í heimsókn. Hún var allt- af til í að ræða málin og þess á milli dormaði hún yfir kross- gátublaði. Hún kunni sko alveg að vera í fríi ef svo bar undir. Af ömmu lærðum við eitt og annað og þar á meðal að aldur væri afstæður. Hún var alltaf hress og kát og fannst hún aldr- ei gömul fyrr en alveg undir það síðasta. Hún sagði alltaf að mað- ur væri bara eins gamall og manni fyndist maður vera. Þannig minnist ég ömmu, alltaf ung í anda, hafði gaman af að ferðast og nú er hún farin í ferðalagið langa. Far þú í friði og hjartans þakkir fyrir allt. Lára B. Björnsdóttir. Það er komið að því að kveðja ömmu Láru. Efst í huga mér þessa dagana er að sjálfsögðu söknuður en líka þakklæti. Ég er full þakklætis fyrir þær minningar sem ég á og geymi um ömmu. Það eru margar og góðar minningar frá tímanum sem var eytt í sveitinni hjá ömmu og afa í gamla daga. Amma kenndi mér að prjóna eftir að mamma gafst upp. Ég man nákvæmlega áferðina og litinn á garninu. Það var mjúkt og loðið og dásamlega bleikt á litinn. Ég man öryggistilfinn- inguna sem fyllti mig þegar ég skreið í „millið“ hjá henni og afa þegar ég var þar í pössun og hafði vakað lengi og horft á myndina um fílamanninn með Sjöbbu sem var sennilega of óhugnanleg mynd fyrir barn með eins lítið hjarta og ég hafði. Ég vaknaði vel úthvíld í ömmu- og afabóli með afa mér við hlið en amma hafði flúið fram í sófa vegna plássfrekju barnabarns- ins. Ég er þakklát fyrir þessa risastóru fjölskyldu sem ég til- heyri og er til því að amma skapaði hana. Ég veit að hún var stolt af þessum risahópi sín- um því að hún sagði við mig nokkrum sinnum á seinustu ár- um að hún væri svo einstaklega heppin með alla sína afkomend- ur, hvað þeir væru einstaklega vel gerðir, hraustir og fallegir. Ég er þakklát fyrir að amma hafi náð að sjá báða drengina mína og að hafa glatt hana með nafngiftina á eldri drengnum. Mér þótti sérstaklega vænt um að sjá hvað hún varð ánægð og þegar hún þakkaði mér sérstak- lega fyrir að hafa nefnt hann þessu nafni. Ég minnist hennar með hlýju og söknuði. Bless, elsku amma Lára. Blíðlega, laðandi, Kristur nú kallar, kallar á mig og á þig. Hjartna við dyrnar hann bíður og biður, biður um þig og um mig. Kom heim, kom heim, þú sem ert þreyttur, kom heim! Blíðlega, laðandi, Kristur nú kallar, kallar: „Ó, vinur, kom heim!“ Óðfluga dagar og lífsstundir líða, líða frá mér og frá þér. Húmið á sígur og kvöldsólin kemur, kemur að þér og að mér. (Sigurbjörn Sveinsson) Dagný Þorkelsdóttir. Lára Guðnadóttir Elsku pabbi, nú hefur þú yfirgefið þetta líf. Sem er að mörgu leyti léttir fyrir þig, en þín verður sárt sakn- að. Ég þakka fyrir allar minning- arnar sem ég get sótt í þegar ég hugsa um þig. Það verður seint hægt að saka þig um að hafa verið strangur eða leiðinlegur pabbi. Nei, þú varst alltaf jafn ljúfur og skemmtilegur, tilbúinn í leik og glens með okkur systkinunum, þegar tími gafst til. Þið mamma voruð dugleg að fara með okkur krakkana í útilegur, þótt það væri bara inn í sveit. Þar fórum við í gönguferðir, elduðum pulsur í potti á prímus, busluðum í lækjum og vötnum að ógleymdum berjamóum sem þú hafðir unun af. Veiðiferðirnar í Vopnafjörð og víð- ar voru fastur liður í okkar lífi, stundum tvær til þrjár á sumri. Þar fékk ég alla mína kennslu í að veiða á stöng. Á veturna varst þú tiltækur að hjálpa til við snjóhúsagerð og Kristján Gils Sveinþórsson ✝ Kristján GilsSveinþórsson fæddist 2. ágúst 1934. Hann lést 8. janúar 2016. Útför Kristjáns Gils hefur farið fram. fleira mætti telja. Já, þér var umhugað um okkur systkinin. Það sem ég dáist þó mest að í fari þínu er þegar þú reifst þig upp úr veikind- um, þegar þú varst ca. 67-68 ára, en þá fékkst þú skerta til- finningu niður í ann- an fótinn og þurftir að ganga með hækj- ur. Batinn lét á sér standa og þú áttaðir þig á því að ekki varð við þetta ástand búið. Framtíð þín var alfarið í þínum höndum og þú sett- ir þér það markmið að ná þér upp úr þessu. Þú byrjaðir að lyfta kók- flöskum fylltum af sandi, sitjandi á stofugólfinu heima og bættir við æfingum eftir því sem þrekið og þrótturinn jókst. Síðan fórstu að ganga, en þú lést þér ekki nægja að ganga um á venjulegri grundu, nei, fjöllin urðu þinn staður, já, geri aðrir betur. Þetta gast þú eins þíns liðs og svo þegar þú fyllt- ir 70 árin héldum við upp á það með því að ganga upp á Esjuna. Ég man hversu stoltur þú varst þegar við stóðum þar saman og horfðum yfir Faxaflóann. Elsku pabbi, kraftur þinn og minning mun ætíð lifa í huga mín- um. Anna S. Gilsdóttir. Elsku frændi, þá ertu farinn í bili. Ég man fyrst eftir þér þegar þú passaðir okkur prakkarana, mig og Gumma frænda, á Kirkjubraut, það voru góðir tímar svo man ég eftir þér þegar þú fluttir til okkar mömmu á Raufarhöfn og þar gerðum við marga skemmtilega hluti saman. Langskemmtilegastir voru allir rúntarnir okkar saman þar sem við hlustuðum mikið á tónlist úr myndinni Rocky og á Duran Duran. Svo þegar þú fluttir til okkar á Sauðárkrók man ég helst eftir því þegar þú vernd- aðir mig gegn krökkunum sem lögðu mig í einelti og það kann ég sko að meta enn þann dag- inn í dag. Alltaf elti ég þig eða þú mig um landið. Svo var það Hofsós með Sillu og Gumma frænda, það voru alveg æðislegir tímar sem við fengum að vera saman. Svo var það herbergjakomm- úna í Kópavogi og þar vorum við alltaf að gera eitthvað skemmtilegt saman og mikið stuð á okkur. Þú varst mikill prakkari og hafðir gaman af, þú varst alltaf umvafinn konum enda eini bróðirinn í stórri fjölskyldu. Þú varst feiminn og hugsaðir alltaf vel til allra í kringum þig og þú Hinrik Páll Friðriksson ✝ Hinrik PállFriðriksson fæddist 9. sept- ember 1972. Hann lést á heimili sínu 13. desember 2015. Útför Hinriks Páls fór fram 21. desember 2015. varst mikill aðdá- andi fótbolta og man ég eftir því þegar þú og Gummi frændi fór- uð á leiki saman og ég man að ég þoldi ekki þetta enda- lausa tal um fót- bolta, en, vá, hvað það var gaman að fylgjast með ykkur alveg trylltum í skapinu yfir einhverjum leik – þá fannst mér gaman og hló og skemmti mér. Svo varstu mikill sælkeri og matmaður og fannst þér æð- islegt að elda og baka með Siggu þinni. Svo var það réttur sem þú skírðir Palla-rétt sem við fjöl- skyldan ætlum sko að gera það að hefð að elda allavega einu sinni í mánuði. Þú varst alltaf sjálfum þér nægur, elsku Palli minn, og mikið snyrtimenni varst – alltaf með allt á hreinu og alltaf var allt hreint í kringum þig. Svo núna rétt fyrir jól var ég að tala við Sillu frænku á Skype og þá hringir síminn og Silla segir mér að þú sért dá- inn. Ég trúði því ekki og bara fraus. Ég sem var nýbúinn að tala við þig og pakka inn jóla- gjöfinni til þín og Siggu. Þessir dagar á eftir voru mjög erfiðir og skrítnir. Enn elsku Palli Lebon, eins og þú kallaðir þig stundum, vil ég þakka þér fyrir samferðina í þessu lífi og megi Guðs englar vernda og vaka yfir þér alla daga, þangað til næst. Þinn frændi, Friðrik (Frissi). Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Minningargreinar Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma, langalangamma og frænka, ELÍN TORKELSDÓTTIR MARKASKARD, Borre, Noregi, áður Nikurlásarhúsum í Fljótshlíð, lést 29. janúar. Útförin fer fram 11. febrúar í Borre-kirkju í Noregi. . Leonora, Gudrun, Anna, Jan Magne, Torkjell, May, Bjarne, Widar, Alida, Rolf, Ellinor, Robert, Tone Mette, Elin, Arne, Steinunn og fjölskyldur. Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra HILMARS DANÍELSSONAR, Kirkjuvegi 23, Dalvík. . Guðlaug Björnsdóttir og fjölskylda. Elskuleg móðir mín og amma, KRISTÍN ÞORLEIFSDÓTTIR, Fannarfelli 10, Reykjavík, lést á heimili sínu 31. janúar síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 9. febrúar nk. kl. 15.00. . Ingibjörg G. Kristínardóttir, Gunnar R. Ingibjargarson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.