Morgunblaðið - 20.02.2016, Side 14

Morgunblaðið - 20.02.2016, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2016 Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytið hefur gefið út nýja reglugerð um velferð gæludýra. Tilgangur reglugerðarinnar er að tryggja vel- ferð og heilbrigði gæludýra með góðri meðferð, umhirðu og aðbún- aði. Reglugerðin byggist á eldri reglu- gerð frá árinu 2004 og fylgir eftir lögum um velferð dýra sem tóku gildi 1. janúar 2014. „Nokkur nýmæli er að finna í reglugerðinni í takt við nýju lögin og þá þróun sem hefur orðið í dýra- velferðarmálum í nágrannalöndum okkar,“ segir Þóra Jóhanna Jónas- dóttir, dýralæknir gæludýra og dýravelferðar hjá Matvælastofnun. Fegrunaraðgerðir bannaðar Skurðaðgerðir í tilgangi fegrunar, svo sem að fjarlægja spora og stýfa eyru eða rófu/skott, eru bannaðar í reglugerðinni. „Bann við fegrunar- aðgerðum er nýmæli í lögunum sem tóku gildi 2014 og það er ítrekað í reglugerðinni,“ segir Þóra. Matvælastofnun hefur ekki fengið neinar ábendingar um að verið sé að framkvæma skurðaðgerðir á dýrum hér á landi í fegrunarskyni. Offóðrun jafn alvarleg og vanfóðrun Í reglugerðinni kemur fram að of- fóðrun og offita gæludýra er ekki góð meðferð, rétt eins og vanfóðrun og rýrt holdafar. Í reglugerðinni er að finna holdastuðla fyrir gæludýr sem munu auðvelda dýraeftirlits- mönnum að meta fóðrun og holdafar gæludýra og gera viðeigandi kröfur til úrbóta þegar það á við. „Það er ekki góð dýravelferð að gæludýr séu of feit. Því fylgir aukin sjúkdómahætta og álag á stoðkerfi, hjarta og blóðrásarkerfi. Við vitum um dæmi í Bretlandi þar sem dýra- eigendur hafa hlotið dóm fyrir alvar- lega ofholda dýr. Við höfum ekki fengið ábendingar hér á landi en reglugerðin heimilar okkar að gera kröfur um úrbætur ef ástandið er orðið alvarlegt,“ segir Þóra. Mat- vælastofnun fer með framkvæmd reglugerðarinnar og hefur eftirlit með að ákvæðum hennar sé fylgt. „Á heimasíðu Matvælastofnunar, www.mast.is, má finna ábendingar- hnapp þar sem hægt er að koma með ábendingar, undir nafni eða nafnlaust, ef grunur er um að vel- ferð gæludýra sé ógnað,“ segir Þóra. Brot gegn reglugerðinni varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga um velferð dýra, annaðhvort sekt eða fangelsi allt að einu ári. Vara við offóðrun og offitu gæludýra  Ný reglugerð um dýravelferð kynnt  Aðgerðir í fegrunarskyni bannaðar Ljósmynd/Þóra J. Jónasdóttir Dýravinur Þóra J. Jónasdóttur, dýralæknir hjá MAST sem fer með framkvæmd reglugerðarinnar. Með gildistöku nýju reglugerðarinnar hafa nýju dýra- velferðarlögin verið útfærð fyrir allar helstu dýrateg- undirnar sem löggjöfin nær yfir. Í tilefni reglugerðar- innar mun Matvælastofnun halda opið málþing um velferð gæludýra fimmtudaginn 3. mars milli klukkan 13-16. Málþingið mun fara fram í fundarsal atvinnu- vega- og nýsköpunarráðuneytisins í Sjávarútvegshús- inu að Skúlagötu 4 í Reykjavík. Á málþinginu verður farið yfir kröfur reglugerðarinnar og helstu nýmæli, svo sem kröfur um örmerkingar og bann við skurðaðgerðum í fegrunar- skyni. Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur. Málþing um velferð gæludýra DÝRAVELFERÐ SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Íslendingar nota mest allra OECD- þjóða af þunglyndislyfjum og er notkunin um tvöfalt meiri en með- altal OECD-þjóða. Notkun annarra tauga- og geðlyfja er einnig umtals- verð hér á landi og er neysla margra lyfja í þeim flokki talsvert meiri en á hinum Norður- löndunum.Ólafur B. Einarsson, verkefnisstjóri hjá Embætti landlæknis segir engar haldbærar skýringar vera sem geti úrskýrt þennan mun á Ís- landi og öðrum þjóðum. Fyllstu ástæða sé til að kanna þennan mun, m.a. hvort verið sé að veita hér öðruvísi þjónustu eða hvort eftirlit með ávísunum lyfja sé strangara í öðrum löndum. Árið 2014 fengu tæplega 41.000 Íslendingar, 12,5% þjóðarinnar, ávísað þunglyndislyfjum a.m.k. einu sinni á árinu. Þetta er talsvert meiri notkun en á hinum löndunum á Norðurlöndum og umtalsvert meira en í öðrum OECD-löndum þar sem meðaltalið árið 2013 var 5,8%. En erum við svona miklu þung- lyndari en aðrar þjóðir? „Það er óvíst hvort þetta endurspegli raun- verulegt algengi þunglyndis,“ segir Ólafur. Hann segir að í þessu sam- bandi hafi verið bent á að lyfin séu stundum notuð við öðru en þung- lyndi, t.d. ADHD. Það skýri þó ekki þennan mun á Íslandi og öðrum löndum, því það sama er gert í öðr- um löndum. Minni geðlæknaþjónusta hér Ólafur segir skort á þjónustu í geðheilbrigðismálum geta útskýrt þessa notkun að einhverju leyti. Töl- ur um geðlæknaþjónustu á sjúkra- húsum bendi til þess að hún sé tals- vert minni hér en á hinum löndunum á Norðurlöndum, t.d. séu fjórfalt fleiri legudagar skráðir á geðdeild- um í Svíþjóð en hér. „Reyndar erum við hlutfallslega með svipaðan fjölda sérfræðinga í geðlækningum og ná- grannaþjóðirnar. En kannski er ver- ið að þrengja um of að þessari þjón- ustu á sjúkrahúsunum sem á að sinna þeim sem verst eru staddir.“ Árið 2014 fengu um 30.000 Íslend- ingar ávísað sterkum verkjalyfjum, 33.000 fengu svefnlyf og 7.500 fengu örvandi lyf. Ólafur segir að notkun sterkra verkjalyfja á Norðurlöndun- um sé hæst á Íslandi. „Verkjalyfja- notkun er flókið fyrirbæri og sumir taka þessi lyf vegna þess að þeir eru að glíma við mjög erfiða sjúkdóma. En við þurfum að spyrja okkur hvers vegna notkunin sé svona miklu almennari hér en annars staðar.“ Að sögn Ólafs hefur svefnlyfja- notkun hér á landi aðeins dregist saman. Hún sé þó enn töluvert meiri hér en hjá öðrum Norðurlandaþjóð- um. Þegar notkun tauga- og geðlyfja er skoðuð á vef Hagstofu Íslands sést gríðarleg aukning. Árið 1989 notuðu 12,9% Íslendinga slík lyf, en 2014 var hlutfallið komið upp í 35,7%. Þetta er næstum því þreföld- un. Undir þennan lyfjaflokk falla m.a. þunglyndislyf, verkja- og svefn- lyf og kvíðastillandi lyf. Ólafur segir notkun þessara lyfja einnig hafa aukist meðal annarra þjóða, en hún sé hlutfallslega meiri hér á landi. „Mörg þessara lyfja eru misnotuð og margir einstaklingar glíma við alvar- lega fíkn vegna þeirra. Margir reyna að fá meira magn en telst eðlilegt með ýmsum leiðum. Í gegnum tíðina hefur það verið vandamál að einstak- lingar fara til margra lækna til að fá ávísað sömu ávanabindandi lyfjum en við hjá Embætti landlæknis bind- um vonir við að aðgangur lækna að lyfjagagnagrunni takmarki það. Það þarf átak til að þessi mál fara í betri farveg,“ segir Ólafur. Gæti valdið umferðaróhöppum Hann segir að skoða þurfi áhrif þessarar notkunar eins og hún er í dag á aðra þætti og nefnir þá sér- staklega hvort rekja megi umferð- aróhöpp hér á landi til hennar. „Er- lendar rannsóknir hafa sýnt að tiltekinn fjöldi umferðaróhappa or- sakast af lyfjaakstri. Til eru tölur frá löndum þar sem lyfjanotkun er tals- vert minni en hér og því er ástæða til að skoða þessi tengsl hér á landi. Mörg ávanabindandi lyf hafa ýmsar verkanir sem geta t.d. skert getu okkar til að keyra ökutæki.“ Eigum OECD-met í þunglyndislyfjaneyslu  41.000 Íslendingar fengu þunglyndislyf 2014  30.000 á sterkum verkjalyfjum  Margir reyna að fá meira magn Seldir dagskammtar af tauga- og geðlyfjum á hverja 1.000 Íslendinga 1989-2014 Heimild: Hagstofa Íslands. 400 300 200 100 0 19 9219 91 19 90 19 89 19 93 19 94 19 95 19 96 19 97 19 98 19 99 20 00 20 01 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 20 11 20 12 20 13 20 14 354,8 327,1 128,5 Ólafur B. Einarsson Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Úttektartímabil kreditkorta hjá Landsbankanum mun breytast í þessum mánuði. Breytingin felst í því að úttektartímabil hefst 27. dag hvers mánaðar og lýkur 26. dag næsta mánaðar. Breytingin nær til allra Visa-kreditkorta sem gefin eru út af Landsbankanum, að undan- skildum Innkaupakortum. Fyrsta úttektartímabilið eftir breytingu er frá 22. febrúar til 26. mars, en úttektartímabil hefur hafist þann 22. hvers mánaðar og lokið 21. dag næsta mánaðar. Með þessari breytingu styttist það tímabil sem kortanotendur eru lausir við vaxta- greiðslur af úttektum sínum um fimm daga. Í skriflegu svari Landsbankans við því hverjar séu skýringarnar á þessari breytingu segir m.a.: „Þegar rætt er um breytingar á kortamarkaði er ekki síst átt við eft- irfarandi: Í stað þess að söluaðilar og færsluhirðar (Valitor – Borgun – Kortaþjónustan) fjármagni korta- færslurnar, hefur fjármögnunin færst yfir á útgefendur kortanna, m.a. til Landsbankans. Í kjölfarið ættu söluaðilar (kaupmenn og þjón- ustufyrirtæki) að greiða lægri þókn- anir til færsluhirða og/eða fá greitt strax daginn eftir að þeir senda upp- lýsingar um kortafærslur til færslu- hirða. Þessu er ætlað að stuðla að lægra vöruverði til neytenda. Með þessu færist kostnaður við notkun greiðslukorta í auknum mæli til þeirra sem nota þau og gefa út, en minni kostnaður fellur á verslun og þjónustu. Sá sem notar kreditkort, eftir að breyting á úttektartímabili hjá Landsbankanum tekur gildi, tekur í raun lán í að meðaltali 21 dag (minnst 7 daga – mest 36 daga) eftir því hvenær kaupin fara fram. (Áður voru lánin að meðaltali til 26 daga.) Breytingar á kortamarkaði, í sam- ræmi við sátt við Samkeppniseftirlit- ið og fyrirhugaðar breytingar á laga- umhverfi, hafa m.a. leitt til þess að daginn eftir kaup greiðir Lands- bankinn nú færsluhirði fyrir kaupin. Áður greiddi Landsbankinn færslu- hirðum sama dag og korthafar greiddu bankanum. Fjármögnun sem áður var í verkahring færslu- hirða og/eða söluaðila hefur þar með færst til Landsbankans.“ Haraldur Guðni Eiðsson, upplýs- ingafulltrúi Arion banka, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að breytingar á úttektartímabili kred- itkorta hjá bankanum hefðu verið skoðaðar, en engin ákvörðun hefði verið tekin um þær. Hann sagðist ekki útiloka að slíkar breytingar yrðu gerðar í framtíðinni. Notendur kreditkorta greiða meira Morgunblaðið/ÞÖK Visa Úttektartímabil hefst 27. hvers mánaðar eftir breytinguna.  Breyting Landsbankans á úttektartímabili þýðir að verslunin greiðir minna, en notendur og bankinn meira Landsbankinn segir að breytingunni sé ætlað að stuðla að lægra vöruverði til neytenda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.