Morgunblaðið - 20.02.2016, Síða 18

Morgunblaðið - 20.02.2016, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2016 Gefðu ástinni þinni DW úr og natoól fylgir frítt með til 21. febrúar Valentínusardagurinn - Konudagurinn Óvíst er hve lengi loðnufrysting stendur yfir en skipakomur eru jafn- an kærkomnar því þeim fylgja tekjur í formi hafnargjalda til sveit- arsjóðs. Hráefnið sem nú er fryst fer einkum á markað til Austur-Evrópu og einnig er byrjað að frysta á Asíu en Rússland er lokað fyrir loðnu- afurðir sem gerir sölu á hæng mjög erfiða.    Þorranum var vel fagnað af öll- um aldurshópum eins og vera ber, því samkvæmt gömlum sið þarf að taka vel á móti karli svo hann slái ekki kuldaklónum ótæpilega í fólkið. Þorrablótið var haldið í lok janúar þar sem brugðið var á leik og menn skemmtu sér á eigin kostnað og ann- arra, svo sem venja er. Þorrablóts- nefnd tók upp gamlan sið, sem var aflagður fyrir allmörgum árum en hann var sá að blótsgestir skyldu koma með sinn eigin mat og sýndist sitt hverjum um þá ráðabreytni. Meðan sumum fannst það stórt aft- urhvarf til fortíðar að þurfa nú að nesta sig á samkomuna þá voru aðrir alsælir með þetta, ekki síst þeir sem eru lítið hrifnir af hefðbundum þorramat og hafa jafnan farið svang- ir frá þorraborðinu sem þurfti þó að greiða fullt verð fyrir. Samkvæmt könnun sem nefndin stóð fyrir eftir blót, þá var meirihluti svarenda fylgjandi því að koma sjálfir með veisluföngin svo væntanlega verður sá háttur hafður á næsta blóti. Leik- og grunnskóli héldu líka þorrablót og hefur sjaldan verið jafn fjölmennt á þorrablóti grunnskólans og nemendur lögðu mikið í veglega skemmtidagskrá. Smiðshöggið rak svo félag eldri borgara með sínu þorrablóti og þá dunuðu gömlu- dansarnir í félagsheimilinu.    Flotskák er nú stunduð í heita pottinum í Verinu, íþrótta- miðstöðnni á Þórshöfn, en þar var nýlega tekið í notkun sundlaugar- taflsett í tilefni af Skákdegi Íslands, þann 26. janúar síðastliðinn. Tafl- settið er vinsælt, segir Eyþór Atli Jónsson, forstöðumaður Versins, og flestir krakkar á Þórshöfn kunna mannganginn og gott betur. Borð- tafl er einnig í anddyri íþrótta- miðstöðvarinnar og þar sitja krakk- arnir löngum og iðka þessa hugarleikfimi sem skákin er. Eldri borgarar eru líka tíðir gestir íþróttamiðstöðvarinnar. Gönguhópur þeirra á fasta tíma í húsinu og þá er gengið inn í sal í skjóli fyrir veðrum og vindum og oft endað í sundlauginni. Þarna er á ferð félagslyndur og kátur hópur en elsti meðlimurinn er á tíræðisaldri. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Höfnin er þéttskipuð af norskum loðnuskipum. Dæmi eru um það að fleiri skip hafi beðið fyrir utan eftir plássi. Syngjandi norska ómar um höfnina Litlanes ÞH-3 Nýr línubátur Ísfélags Vestmannaeyja er hér í höfninni. ÚR BÆJARLÍFINU Þórshöfn Líney Sigurðardóttir Loðnufrysting er hafin hjá Ís- félaginu á Þórshöfn en norsk loðnu- skip hafa landað þar undanfarnar vikur. Um hafnarsvæðið ómar nú syngjandi norska því Norðmenn hafa flykkst inn síðustu dagana og höfnin hefur verið þéttskipuð, í orðs- ins fyllstu merkingu og fleiri skip beðið fyrir utan eftir plássi. Unnið er nú allan sólarhringinn á vöktum hjá Ísfélaginu og er þessi uppgripavinna ágæt viðbót við bol- fiskvinnsluna, sem verið hefur sam- felld og stöðugleiki því verið í vinnslu Ísfélagsins á Þórshöfn. Sá stöðugleiki var enn frekar styrktur um áramótin með kaupum Ísfélagsins á línubát sem gerður verður út frá Þórshöfn. Þetta er 15 brúttótonna línubátur, smíðaður 2008 og er með 355 ha Cummins vél. Báturinn er í krókaaflamarkskerf- inu og honum fylgja um 500 tonn af þorski auk annarra tegunda. Báturinn fékk nafnið Litlanes ÞH-3 og mun hann styrkja bolfisk- vinnslu Ísfélagsins á Þórshöfn sem eflir um leið atvinnulífið í Langanes- byggð. Nýju aflaskipi fylgja ný störf en um sex manns munu koma þar að; bæði á sjó og við beitningu í landi. Þorsteinn R. Hermannsson hefur verið ráð- inn í starf sam- göngustjóra á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur- borgar. Hann mun taka við af Ólafi Bjarnasyni nú- verandi samgöngustjóra þegar hann lýkur störfum í byrjun næsta sumars. Þorsteinn er með B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í byggingarverkfræði með sérhæf- ingu í samgönguverkfræði frá Uni- versity of Washington í Seattle, Bandaríkjunum. Hann á að baki feril sem stjórnandi og ráðgjafi á sviði samgöngu- og umhverfismála. Þorsteinn var sviðsstjóri umferðar- og skipulagssviðs verkfræðistof- unnar Mannvits í fjögur ár, eða frá 2008-2010, en frá þeim tíma hefur hann verið fagstjóri samgönguhóps Mannvits. Nýr samgöngustjóri Reykjavíkurborgar Þorsteinn R. Hermannsson Laugardaginn 20. febrúar verður slegið upp atvinnubílasýningu í Opel-salnum, Tangarhöfða 8 í Reykjavík, klukkan 12-16. Í tilkynningu frá Bílabúð Benna kemur fram að sendibílarnir frá Opel fáist í fjölmörgum útfærslum og séu með ríkulegum búnaði. „Síðasta ár var metár hjá Opel í Evrópu sem óx verulega bæði í sölumagni og markaðshlutdeild. Velgengni atvinnubílanna frá Opel hefur ekki síst vakið athygli, en vöxturinn í þeim flokki er heil 24% miðað við árið 2014,“ segir m.a. í tilkynningunni. Opel-atvinnubíla- sýning hjá Benna Helgi Hjörvar, formaður þingflokks Samfylkingarinnar, sendi flokks- fólki bréf í gær þar sem hann til- kynnti framboð sitt til formanns flokksins. „Ég hef ákveð- ið að sækjast eft- ir því að leiða flokkinn frá landsfundi í vor. Ég skora á alla sem treysta sér í það verkefni og telja sig hafa er- indi að gefa kost á sér því mikil- vægt er að að fjölbreytt sjónarmið og valkostir verði í boði. Ég gef kost á mér til að breyta áherslum, endurskoða starfs- hætti, virkja krafta nýrrar kynslóð- ar og ná sem mestri samstöðu um sameiginlegar hugsjónir við hina í stjórnarandstöðunni,“ segir Helgi m.a. í bréfinu. Helgi segir að Samfylkingin þarfnist breytinga og Samfylking- arfólk hafi krafist landsfundar og formannskjörs sem framkvæmda- stjórn hafi ákveðið að flýta til vors. „Formaðurinn sendi flokksmönnum bréf þar sem hann segir að þessi al- varlega staða hafi skapast á löngum tíma og sé á sameiginlega ábyrgð okkar. Þar er tæpt á mistökum sem við getum verið sammála eða ósam- mála um í einstökum atriðum en ég fagna því tækifæri sem skapast hef- ur til opinnar umræðu í flokknum um þessi mál og mörg fleiri,“ segir Helgi m.a. í bréfinu. Hann segir að ekki hafi verið gerðar nægilegar breytingar á fjár- málakefinu í kjölfar hrunsins. „Það dugar ekki að bíða eftir evr- unni heldur þarf Samfylkingin skýra stefnubreytingu. Við eigum að halda aðildarumsókninni að ESB á lofti en hætta að segja að allt sé ósanngjarnt og verði áfram óhóflega dýrt á meðan við höfum okkar veik- burða gjaldmiðil. Við megum ekki fresta því að breyta kerfinu þangað til við fáum alvöru gjaldmiðil.“ Undir fyrirsögninni Verkefnið segir Helgi m.a: Við eigum líka að vera tilbúin til hvers konar sam- starfs fyrir kosningar, hvort sem það er formlegt eða óformlegt, und- ir forystu okkar eða annarra og vera tilbúin til að sameinast, skipta um nafn, breyta áherslum, ef það þjónar því markmiði að skapa á ný trúverð- ugan valkost fyrir jafnaðarmenn. Helgi Hjörvar fer í framboð  „Samfylkingin þarf stefnubreytingu“ Helgi Hjörvar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.