Morgunblaðið - 20.02.2016, Síða 22

Morgunblaðið - 20.02.2016, Síða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2016 Eðalfiskur ehf • Sólbakka 4 • 310 Borgarnesi • S. 437 1680 • sala@edalfiskur.is • www.edalfiskur.is Eðallax fyrir ljúfar stundir Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Þýski ferjuflugmaðurinn Margrit Waltz hefur verið tíður gestur á Ís- landi undanfarin rúm þrjátíu ár. Hún er einn reyndasti ferju- flugmaður heims og í vikunni kom hún við hjá Suðurflugi á Keflavíkur- flugvelli á ferð númer 800 yfir Atl- antshafið. Þetta er merkur áfangi og að sögn starfsmanna Suðurflugs er ekki vit- að til þess að neinn ferjuflugmaður hafi farið eins margar ferðir yfir Atl- antshafið og Margrit, enda er hún jafnan nefnd „Queen of the Sky“. Oftast nær flýgur Margrit litlum vélum og oft við mjög erfiðar að- stæður. Í tímamótafluginu í vikunni flaug hún eins hreyfils flugvél af gerðinni Socata TBM-700. Var fagnað með gjöfum Starfsfólk Suðurflugs tók vel á móti Margrit og færði henni gjafir við þessi tímamót. Meðal annars hafði það útbúið sérmerkta boli um áfangann. Þegar Margrit kom til Keflavíkur í vikunni frá Bandaríkjunum lenti hún seint að kveldi og hélt för sinni áfram strax morguninn eftir. Því tókst ekki að spjalla við hana í þetta sinn. Hins vegar náði Morgunblaðið tali af henni þegar hún flaug 500. ferðina yfir Atlantshafi í mars árið 2000. Í því viðtali stóð orðrétt: Margrit segist eiga von á því að halda áfram sem ferjuflugmaður næstu 3-4 ár. Þá sé að hennar mati nóg komið, enda sé starfið líkamlega erfitt. „Þá langar mig til að snúa mér alfarið að fjölskyldunni eða jafnvel skrifa bók. Ég á nógan efnivið.“ Margrit hefur svo sannarlega skipt um skoðun því hún er enn að 16 árum síðar. Hún tjáði starfsfólki Suðurflugs að hún væri hvergi nærri hætt. Sagðist eiga mörg ár eftir og stefnan væri tekin á þúsund ferðir í það minnsta! Margrit varð nýlega 59 ára og gæti því mögulega náð þessu takmarki. Í viðtalinu sem birtist árið 2000 kvaðst Margrit ekki geta tiltekið ná- kvæmlega hvenær hún gerðist ferju- flugmaður. Hún hafi smám saman „leiðst út í“ starfann, en fyrsta flugið hafi verið þegar hún var 19 ára. „Svo flaug ég aftur árið eftir, bara vegna þess hversu skemmtilegt það var. Þegar ég var 21 árs fór ég að vinna sem ferjuflugmaður í hlutastarfi fyr- ir fyrirtæki í Þýskalandi og 22 ára í fullu starfi,“ sagði hún. Margrit sagðist fljúga að meðal- tali þrisvar sinnum yfir N-Atlants- hafið í mánuði, sem þýði að hún sé fjarri heimili sínu 10-12 daga í mán- uði. Hina dagana sinni hún fjölskyld- unni, eiginmanni og tveimur dætr- um, en fjölskyldan býr í Bandaríkjunum. Aðspurð sagðist hún hafa lent í óteljandi ævintýrum í háloftunum. „Það fer reyndar eftir því hvað mað- ur kallar ævintýri, en nú síðast fyrir tveimur vikum stöðvaðist vél flug- vélarinnar í 17.000 fetum yfir N- Atlantshafinu vegna óvenjulega mikils kulda. Hún fór svo í gang í 7.000 fetum og ég komst á endanum heilu og höldnu til Kanada,“ sagði Margrit Waltz í viðtalinu. 800 ferðir yfir Atlantshafið  Þýski ferjuflugmaðurinn Margrit Waltz lenti á Keflavíkurflugvelli í sinni 800. ferð yfir hafið  Drottning háloftanna segist hvergi nærri hætt og stefnir að því að fljúga 1.000 ferðir Ljósmyndir/Magni Freyr Guðmundsson Um borð Margrit Waltz við komuna til Keflavíkur seint um kvöld. Eftir næturhvíld var lagt af stað á ný. Lagt af stað Margrit Waltz undirbýr vél sína fyrir brottför á köldum vetrarmorgni. Héðan lá leiðin til Evrópu og þaðan suður til Suður-Afríku. Gjafir Kristbjörn Albertsson færði Margrit gjafir fyrir hönd Suðurflugs. Á myndinni eru Grétar Hermannsson, Margrit Waltz og Erlendur Einarsson. Ríkisstjórnin samþykkti í gærmorg- un tillögur heilbrigðisráðherra um að fela fjármála- og efnahagsráð- herra, í samráði við heilbrigðisráð- herra, að tryggja aukið fjármagn svo unnt verði að taka í notkun fleiri ný lyf á þessu ári, 2016. „Það er ljóst að með þessari ákvörðun ríkisstjórnarinnar verður unnt að innleiða fleiri ný lyf en áætl- anir gerðu ráð fyrir. Það er afar mik- ilvægt því þar með getum við þjónað sjúklingum betur og á sambærilegan hátt og gert er hjá nágrannaþjóðum okkar,“ var haft eftir Kristjáni Þór Júlíussyni í tilkynningu frá velferð- arráðuneytinu. Lyfjagreiðslunefnd hefur fengið yfirlit yfir forgangslyf sem spítalinn óskar eftir að fá að innleiða á þessu ári en þar eru m.a. mörg ný krabbameinslyf. Í fjárlögum ársins 2016 er gert ráð fyrir að fjárheimildir til s- merktra lyfja verði 6.266 m.kr. Heil- brigðisráðherra veitti viðbótarfram- lag upp á 100 m.kr. í innleiðingu nýrra lyfja og leitaði í kjölfarið eftir auknu fé frá ríkisstjórninni, sem samþykkt var í gær. Markmiðið er að geta innleitt öll þau lyf sem sett hafa verið á forgangslista af hálfu spítalans. Morgunblaðið/Friðrik Ný lyf Ríkisstjórnin samþykkti tillögur heilbrigðisráðherra um aukna fjár- muni til innleiðingar á nýjum lyfjum og þau verða tekin í notkun árið 2016. Vilja taka fleiri ný lyf í notkun á árinu  Aukið fjármagn til innleiðingar lyfja

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.