Morgunblaðið - 20.02.2016, Síða 23
FRÉTTIR 23Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2016
Fimm læknar munu hefja störf við
heilsugæslustöðina á Akranesi á
næstunni og fylla um þrjú og hálft
stöðugildi. Þetta kemur fram á
heimasíðu Heilbrigðisstofnunar
Vesturlands.
Eins og komið hefur fram hér í
blaðinu hefur þunglega horft
undanfarina mánuði varðandi
læknisþjónustu og biðtími lengst
nokkuð hjá heilusgæslustöðinni.
Þetta gerðist í kjölfar þess að
heilsugæslulæknar sem starfað
hafa á Akranesi um árabil hafa
horfið frá stöðinni, ýmist til ann-
arra verkefna eða lokið störfum.
„Nýráðnir læknar eru með umtals-
verða starfsreynslu og fjölbreyti-
legan bakgrunn, bæði í sérfræði-
grein heimilislækninga, á geðsviði,
endurhæfingu og í almennum lækn-
ingum,“ segir í fréttinni. Samn-
ingur við lækna gerir ráð fyrir
a.m.k. 2ja ára samstarfi.
Læknarnir munu hefja störf fljót-
lega í áföngum en þess er vænst að
starfsemi heilsugæslunnar verði
komin í gott horf að nýju á vormán-
uðum. sisi@mbl.is
Fimm
læknar
ráðnir
Starfsemi heilsu-
gæslunnar í samt lag
Morgunblaðið/Eggert
Sala á Köku ársins 2016 hófst í bak-
aríum landsins í gærmorgun í til-
efni konudagsins á sunnudaginn.
Kakan var formlega kynnt á
fimmtudaginn þegar formaður
Landssambands bakarameistara,
LABAK, Jón Albert Kristinsson og
höfundur kökunnar, Henry Þór
Reynisson, afhentu stjórnarkonum
í Kvenfélaginu Hringnum fyrstu
kökurnar sem viðurkenningu fyrir
þeirra góða starf í þágu samfélags-
ins.
Kvenfélagið Hringurinn hefur að
markmiði að vinna að líknar- og
mannúðarmálum, sérstaklega í
þágu barna. Aðalverkefni félagsins
um áratugaskeið hefur verið upp-
bygging Barnaspítala Hringsins.
Mörg önnur verkefni, sem tengjast
veikum börnum, hafa verið studd
og styrkt. Þau stærstu eru upp-
bygging Barna- og unglingageð-
deildar Landspítala og rekstur
Sjónarhóls, ráðgjafamiðstöðvar
barna með sérþarfir.
Kaka ársins var valin í keppni
sem LABAK efnir til árlega og fer
þannig fram að keppendur skila inn
tilbúnum kökum sem dómarar meta
og velja úr þá sem þykir best til
þess fallin að hljóta titilinn Kaka
ársins. Í ár var keppnin haldin í
samstarfi við Nóa Síríus og inni-
heldur Nizza súkkulaðismjör frá
Nóa. Að venju er mikið lagt í Köku
ársins. Hún er í mörgum lögum,
inniheldur m.a súkkulaðisvamp-
botn, mjólkursúkkulaðimús, nizza-
kremfyllingu og Earl grey te og er
húðuð að utan með mjólkursúkkul-
aði.
Sala hafin á köku ársins
Margra laga kaka með súkkulaðisvampbotni
Mánudaginn 22.
febrúar nk. held-
ur Árni Berg-
mann fyrirlestur
í boði Guð-
fræðistofnunar í
stofu 229 í Aðal-
byggingu Há-
skóla Íslands.
Fyrirlesturinn
hefst kl. 11.40.
Yfirskrift fyrirlestursins er: Um
sambúðarvanda trúaðra og guð-
lausra.
Fjallað verður um versnandi
sambúð trúaðra og trúleysingja,
spurt um orsakir, segir m.a. í til-
kynningu.
Árni Bergmann lauk námi í rúss-
nesku og bókmenntum frá Moskvu-
háskóla 1962. Hann var blaðamað-
ur, gagnrýnandi og ritstjóri
Þjóðviljans til 1992 og frá þeim
tíma stundakennari við Háskóla Ís-
lands allt til 2003.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Fyrirlestur um sam-
búðarvanda trúaðra
og guðlausra
Árni Bergmann
Veldu yfirburði!
Siemens og Bosch í 19 af
20 efstu sætunum!
Í úttekt danska neytendablaðsins Tænk (2015), þar sem teknar
voru til skoðunar 50 uppþvottavélar frá ýmsum framleiðendum,
voru yfirburðir Siemens og Bosch algjörir. Hér fyrir neðan eru
þær uppþvottavélar sem lentu í efstu sætunum.
Hlíðasmára 3 . Sími 520 3090
www.bosch.is
BOSCH
SMU 50M96SK
BOSCH
SMU 53M72SK
BOSCH
SMU 50M92SK
BOSCH
SMU 50M95SK
BOSCH
SMP 68M05SK (stál)
BOSCH
SMP 68M02SK
BOSCH
SMU 69T42SK
BOSCH
SMU 69T45SK
BOSCH
SMU 50E52SK
SIEMENS
SN 44D202SK
SIEMENS
SN 46T297SK
SIEMENS
SN 46T597SK
BOSCH
SMU 50M62SK
Annar framleiðandi
en Bosch eða Siemens.
*fæst
hjá:
*fæst
hjá:
*fæst
hjá:
*fæst
hjá:
*fæst
hjá:
*fæst
hjá:
*fæst
hjá:
SIEMENS
SN 478S01TS
SIEMENS
SN 45M231SK
BOSCH
SMU 51M12SK
*fæst
hjá:
1. sæti
6. sæti
11. sæti
16. sæti
3. sæti
8. sæti
13. sæti
18. sæti
5. sæti
10. sæti
15. sæti
20. sæti
2. sæti
7. sæti
12. sæti
17. sæti
4. sæti
9. sæti
14. sæti
19. sæti