Morgunblaðið - 20.02.2016, Qupperneq 29
FRÉTTIR 29Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2016
Deir al-Balah. AFP. | Mohammed Bar-
aka er tvítugur námsmaður á Gaza-
svæðinu og langt frá því að líta út
fyrir að vera kraftajötunn en hefur
vakið athygli á svæðum Palestínu-
manna og víðar með ýmsum
hreystiverkum, m.a. með því að
draga tólf tonna rútu.
Baraka er á öðru ári í námi í
ferðagreinum við Tækniskólann í
Deir al-Balah og vonast til þess að
geta hleypt heimdraganum til að
gera garðinn frægan út um allan
heim, þrátt fyrir ferðatakmarkanir
yfirvalda í Ísrael.
Baraka hefur verið kallaður
„Gaza-Samson“, eftir biblíuhetju
sem Guð gæddi yfirnáttúrulegum
mætti í baráttunni við Filistea og
vann mikil afreksverk, braut meðal
annars niður hlið Gaza. Baraka vill
þó frekar vera kallaður „Gaza-
Jason“ eftir breska kvikmyndagoð-
inu Jason Statham sem er þekktur
fyrir að leika hörkutól í hasar-
myndum.
Dregur rútu með tönnunum
Þegar Baraka sýnir kraftana not-
ar hann tennurnar til að toga í 20
sæta rútu með ólum þar til hún
hreyfist. Næst dregur hann 50 sæta
rútu með höndunum.
Palestínski rútubílstjórinn
Mahmud er furðu lostinn þegar
hann fylgist með rútutoginu. „Ég
hélt að hann væri að grínast, þetta
er brjálæði,“ sagði hann. „Hefði ég
ekki séð þetta með eigin augum
tryði ég þessu ekki.“
Baraka var á barnsaldri þegar
hann vakti fyrst athygli fyrir að
stökkva í gegnum eld á skólasýn-
ingu. Seinna dró hann bifhjól með
tönnunum. Sagt er að hann hafi
nokkrum árum síðar dregið þrettán
tonna jarðýtu með höndunum.
Í tómstundunum unir Baraka sér
einnig við að ganga á nöglum og
brjóta múrsteina á bringunni og
bakinu.
AFP
Gasalegur harðjaxl Mohammed Baraka dregur rútu á Gaza-svæðinu.
Gaza-Jason með jötunkraft
Bandaríski auðkýfingurinn Donald
Trump hlóð lofi á Frans páfa í fyrra-
kvöld, nokkrum klukkustundum eft-
ir að hafa gagnrýnt trúarleiðtogann
fyrir að draga kristna trú hans í efa.
Páfi hafði gagnrýnt yfirlýsingar
Trumps um að hann hygðist reisa
múr við landamærin að Mexíkó til að
koma í veg fyrir að fólk frá Róm-
önsku Ameríku kæmist án leyfis til
Bandaríkjanna. Trump stefnir einn-
ig að því að vísa um 11 milljónum
óskráðra innflytjenda úr landi.
„Hver sá sem vill aðeins reisa
múra en ekki brýr er ekki kristinn
maður,“ sagði Frans við fréttamenn
eftir fimm daga heimsókn til Mexíkó
þegar hann var spurður um stefnu
Trumps í innflytjendamálum. „Kjós-
ið, eða kjósið ekki, ég skipti mér ekki
af því. En ég segi aðeins að ef hann
segir þetta þá sé hann ekki kristinn
maður. Við þurfum að athuga hvort
hann hafi í raun sagt þetta og þang-
að til læt ég hann njóta vafans.“
Trump til framdráttar?
Viðbrögð Trumps voru í fyrstu
harkaleg. „Það er smánarlegt af
trúarleiðtoga að vefengja trú krist-
ins manns,“ sagði hann en mildaði
tóninn á kosningafundi í Suður-
Karólínu nokkrum klukkustundum
síðar. Hann lauk þá lofsorði á páfa,
sagði hann m.a. dásamlegan og
kraftmikinn mann sem stæði sig
með miklum sóma. Hann sakaði
stjórnvöld í Mexíkó um að hafa not-
að páfa „sem peð“ og veitt honum
rangar upplýsingar um stefnu
Trumps í innflytjendamálum.
Jon Sopel, fréttaskýrandi breska
ríkisútvarpsins, segir að ummæli
páfa geti hugsanlega skaðað Trump
í forkosningum repúblikana í Suður-
Karólínu sem fara fram í dag.
Michael Mathes, stjórnmálaskýr-
andi AFP, telur hins vegar líklegt að
gagnrýni Trumps á páfa hafi verið
úthugsuð tilraun til að styrkja stöðu
sína meðal kjósenda sem eru í evan-
gelískum söfnuðum, en þeir eru um
tveir þriðju kjósendanna í Suður--
Karólínu.
Flestar kannanir benda til þess að
Trump sé með mest fylgi frambjóð-
endanna í forkosningum repúblik-
ana í ríkinu, en öldungadeildar-
mennirnir Ted Cruz og Marco Rubio
berjist um annað sætið. bogi@mbl.is
Donald TrumpFrans páfi
Snuprar
og hrósar
páfa
Trump stefnir að
sigri í S-Karólínu