Morgunblaðið - 20.02.2016, Page 30

Morgunblaðið - 20.02.2016, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Biðlistumeytt ánæstu þremur árum,“ sagði í fyrirsögn í Morgunblaðinu í gær og hafa marg- ir glaðst við að lesa hana. Oft hafa biðlistar verið langir eftir aðgerðum, en nú eru þeir komnir út fyrir öll mörk. Í október í fyrra voru á fimmta þúsund manns á bið- lista eftir þeim aðgerðum sem átakið beinist að. Þær eru mjaðma- og hnjáliðaskipti, hjartaþræðing og augn- steinsaðgerðir. Þar af biðu flestir eftir augnsteinsað- gerðum, eða fjögur þúsund manns. Sagði Dögg Harð- ardóttir, deildarstjóri á augn- deild Landspítalans, í frétt- inni í blaðinu í gær að algengt væri að bið eftir aðgerð væri tvö ár, þótt hún væri styttri ef mikið lægi við. Kristján Þór Júlíusson heil- brigðisráðherra sagði að 800 milljónir yrðu settar í verk- efnið og væri stefnt að því að stytta biðlistana á þremur ár- um þannig að enginn þyrfti að bíða lengur eftir aðgerð en 90 daga. „Við hyggjumst nýta þessa fjármuni til að grynnka á þessum biðlistum,“ sagði Kristján Þór. „Nánari út- færsla verður kynnt síðar.“ Það segir sína sögu að biðlist- arnir helgast ekki af aðstöðuleysi. Dögg segir að hægt sé að gera á þriðja þúsund augnsteinsað- gerðir á ári. Undanfarið hafa verið gerðar 850 til 900 að- gerðir á ári. Það hefur því greinilega verið talsverður slaki í kerfinu. Hinir löngu biðlistar eru af- leiðing hagræðingar sem grípa þurfti til í heilbrigðis- kerfinu. Hver aðgerð kostar sitt og er auðvelt að reikna út sparnaðinn. Málið er hins vegar ekki svo einfalt. Það kostar líka sitt að fresta að- gerðum. Sjúklingar þurfa að- hlynningu meðan þeir bíða eftir aðgerðinni og iðulega hverfa þeir af vinnumarkaði á meðan. Þær aðgerðir sem nú hafa verið boðaðar leiða því til sparnaðar þegar fram í sækir. Þetta mál snýst hins vegar ekki fyrst og fremst um sparnað, heldur mannúð og lífsgæði. Það er ánægjulegt að heilbrigðisráðherra, land- læknir og stjórnendur Land- spítalans hafi snúið bökum saman um að grynnka á bið- listunum. Iðulega er talað um forgangsröðun í stjórnkerf- inu. Þetta er rétt forgangs- röðun. Iðulega er talað um forgangsröðun í stjórnkerfinu – þetta er rétt forgangsröðun} Biðlistum eytt Það er eðli fjár-hættuspila að það er vitlaust gefið. Íslendingar láta það þó ekki aftra sér. Í hitti- fyrra keyptu íbúar landsins miða og leiki fyrir 16 millj- arða króna. Ekki er vitað hversu miklu landsmenn eyddu í miða í út- löndum, en talið er að það hlaupi á milljörðum króna. Spilafíkn er alvarlegur sjúkdómur. Þess eru dæmi að spilafíklar hafi lagt fjár- hag fjölskyldna sinna í rúst. Talsmaður Gamblers Anonymous var í samtali við Morgunblaðið í gær. „Þetta er meira dulið, þetta er síður viðurkennt og þess vegna er þetta oft svo erfitt,“ segir hann og bætir við: „Maður hefur séð að þetta hefur farið algerlega með menn og heilu fjölskyld- urnar. Til dæmis fylgir þessu stundum alvarlegt þunglyndi og afleiðingarnar af því geta verið skelfilegar. Oft liggur gríðarleg óham- ingja að baki spilafíkn sem enginn veit um.“ Ögmundur Jón- asson, þingmaður Vinstri grænna, hefur beitt sér í þágu spila- fíkla og tók málið fyrir þegar hann var innanríkisráð- herra. „Einmitt vegna þessa hef ég oft orðið þess var þegar þessi mál eru rædd að marg- ir fyrtast við og leggja um- ræðu, sem gengur út á að takmarka fjárhættuspil, að jöfnu við aðför að þessum stofnunum og þjóðþrifastarfi á þeirra vegum. Auðvitað er verkefnið að finna þessum aðilum fjármögnun sem dug- ir ef – eða öllu heldur þegar – dregið verður úr fjár- streymi til þeirra úr spila- kössum, sem er í verulegum mæli komið frá fólki sem ánetjast hefur spilafíkn og er því ekki sjálfrátt gerða sinna,“ sagði Ögmundur. Það er erfitt til þess að hugsa þegar gott starf er fjármagnað með óhamingju. Íbúar landsins eyddu 16 milljörðum í miða og leiki 2014} Vitlaust gefið M ér er minnisstætt viðtal við grínistann Chris Rock þar sem hann talaði m.a. um mikilvægi þess að það byggju svartar stúlkur í Hvíta hús- inu; ekki fyrir eigin börn, heldur fyrir hvít börn, því þau myndu þá eiga auðveldara með að sjá fyrir sér svört börn í einhvers konar valdastöðu. Í öðru viðtali, þar sem sama efni bar á góma, sagði hann ekkert skrýtið fyrir börnin sín að sjá dætur Baracks Obama í Hvíta húsinu; þau væru það ung að fyrir þeim væri það bara venjulegt. Fyrir þeim hefðu alltaf verið svartar stúlkur í Hvíta húsinu. Rock talaði um framfarir meðal hvítra í þessu sambandi og sagði fáránlegt að tala um fram- farir meðal svartra í tengslum við kyn- þáttamisrétti í Bandaríkjunum; það væru ekki svartir sem hefðu þurft að taka sig á. Mönnum þótti það lengi fjarlægur draumur að svartur maður yrði einn valdamesti einstaklingur heims og sjálf man ég eftir því að hafa hlustað á bandaríska hipphopp- listamanninn Tupac Shakur syngja um það 1998 að „við“ værum ekki undir það búin að svartur maður yrði for- seti. Það breyttist sem betur fer, þótt Tupac blessaður upplifði það aldrei, en nú stöndum við frammi fyrir ann- arri spurningu: Erum „við“ undir það búin að kona verði forseti Bandaríkjanna? Auðvitað myndu flestir svara já, það sé löngu tíma- bært að kona setjist á forsetastól. Það myndi ótvírætt veita milljónum stúlkna innblástur og hvatn- ingu. Þá væri ekki síður hollt fyrir strákana að venjast því að sjá konu í þessari æðstu valdastöðu; venjast því að sjá fleiri stelpur í sögubókunum. Ég óttast hins vegar að það muni koma í ljós að „við“ erum alls ekkert undir það búin að kona verði forseti Banda- ríkjanna, að því marki að þeir sem hafa staðið jafnréttisbaráttunni fyrir þrifum tvíeflist í því að gera lítið úr Clinton á grundvelli kyns. Forsetafrúin, utanríkisráðherrann og for- setaframbjóðandinn Hillary Clinton hefur fengið það óþvegið í gegnum tíðina. Sem for- setafrú kom Clinton illa út úr Lewinsky- hneykslinu, þótt hún væri sá sem brotið var gegn, og sem stjórnmálamaður hefur hún bæði verið sökuð um að vera viðkvæm og til- finningarík, og að vera köld og bredduleg. „You’re damned if you do and you’re damned if you don’t“, eins og þeir segja vestanhafs. Hvað tekur þá við ef henni tekst að tryggja sér útnefninguna og forseta- stólinn í framhaldinu? Ég tel miklar líkur á því að verði Clinton forseti muni hún enn eiga á brattann að sækja. Að sú spurning sem er ósvarað sé ekki hvort Bandaríkja- menn séu tilbúnir til að kjósa konu sem forseta, heldur hvort verk þeirrar konu verða metin óháð kyni; hvort hún verður lofuð og/eða löstuð óháð kyni. Það mun fyrst koma í ljós þegar kona er orðin forseti hversu undirbúin „við“ erum, hversu langt við erum komin. holmfridur@mbl.is Hólmfríður Gísladóttir Pistill Kyn og Hvíta húsið STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Eftir hefðbundnar haust-mælingar á loðnustofnin-um í september og framí október, aukaleiðangur síðari hluta nóvember, leiðangur í janúar samkvæmt venju og loks viðbótarmælingar fyrri hluta febr- úar er niðurstaða Hafrannsókna- stofnunar að heildaraflamark í loðnu í vetur verði 173 þúsund tonn, óbreytt frá því sem ákveðið var í haust. Hegðan loðnunnar og göngumynstur, sumar jafnt sem vetur, hafa breyst síðustu ár og virðast hrygningargöngurnar ekki eins þéttar og eindregnar og yfir- leitt áður. Að mati fiskifræðinga þyrfti að verja enn meiri tíma til að fylgjast með þessari þróun og kortleggja göngurnar, en það þýddi að hafa þyrfti skip á miðunum frá hausti og fram að hrygningu. Loðnuleit og -mælingar í vetur hafa þó verið með því umfangsmesta og auk beggja rannsóknaskipa Hafrann- sóknastofnunar komu nokkur uppsjávarskip að verkefninu í vet- ur. Nefna má að vertíðina 2006/07 sigldu leitarskip alls um 16 þúsund mílur, sem er talsvert meira en í vetur. Gaus upp í Hávadýpi Engar tvær vertíðir virðast vera eins, en þó var það nokkuð reglulegt áður fyrr að fyrstu viku í febrúar kom loðna yfirleitt upp á grunnið öðrum hvorum megin við Stokksnes. Í ár hefur ekki frést af slíku og litlar fréttir af afla þeirra fáu íslensku skipa sem eru á mið- unum og hafa reynt veiðar með grunnnót. Menn eru þó ekki úrkula vonar um að loðnan skili sér og þéttist á hefðbundnum slóðum. Rifjað hefur verið upp að í lok febr- úar 2008 og aftur í byrjun mars 2014 gaus upp mikið af loðnu í Hávadýpi austan við Vestmanna- eyjar. Miðað við ungloðnumælingar á þeim árgangi sem nú á að bera uppi veiðina gerðu menn sér vonir um hærra aflamark í vetur. Ný aflaregla setur strangari varúðar- kröfur heldur en fyrri regla og gæti þar munað um 70 þúsund tonnum í aflamarki. Hvað næstu vertíð áhrærir gefa ungloðnumælingar ekki vonir um hátt aflamark. Fimm skip, fjögur íslensk og eitt færeyskt, voru undan Öræfum í leiðindaveðri í gær og voru litlar fréttir af afla. Íslensk skip hafa landað rúmlega fjögur þúsund tonnum á vertíðinni, en á sama tíma í fyrra var aflinn orðinn rúm- lega 138 þúsund tonn. Búast má við að íslenskum skipum fjölgi á miðunum á næstunni enda ekki langur tími til stefnu því gera má ráð fyrir að hrygning verði langt komin um 20. mars. Útgerðar- maður sem rætt var við sagði að vel væri fylgst með veðri, aflafrétt- um, hrognafyllingu, átuinnihaldi og fleiri þáttum sem skiptu máli. Stór hluti í hrognavinnslu Þar sem Rússlandsmarkaður er lokaður fer mikið af loðnunni á markað í Japan og öðrum Asíulönd- um. Þau fyrirtæki sem hafa heimild til útflutnings til Hvíta-Rússlands og Úkraína selja einnig þangað. Af þeim 100 þúsund t. sem koma í hlut Íslendinga má reikna með að um 60 þúsund tonn verði geymd þar til hrognavinnsla verður möguleg fyrir Japansmarkað, en hrognin eru verðmætasta afurð loðnunnar. Talsvert hefur verið fryst úr erlendum skipum á vertíðinni og þá einkum á Fáskrúðsfirði, Neskaup- stað og Vopnafirði. Breytt hegðan loðnu veldur heilabrotum Sveiflur í loðnuafla Heimild: Hafrannsóknastofnun. Aflamark Afli Íslendinga Afli alls 2000/01 1.110 894 1.071 2001/02 1.300 1.051 1.249 2002/03 1.000 765 988 2003/04 875 575 742 2004/05 985 640 784 2005/06 238 193 238 2006/07 385 307 377 2007/08 207 149 203 2008/09 15 15 15 2009/10 150 111 151 2010/11 390 322 390 2011/12 765 585 747 2012/13 570 464 551 2013/14 160 111 142 2014/15 580 354 517 2015/16* 173 100 (þús. tonn)*Óveitt Norðmenn áttu um miðjan dag í gær aðeins eftir að veiða rúmlega fimm þúsund tonn af leyfilegum afla í íslenskri lögsögu, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæsl- unni. Afli þeirra var orðinn um 53 þúsund tonn og hafði norskum skipum fækkað verulega á mið- unum frá því um miðja vikuna. Tólf norsk skip voru að veiðum í gær, nokkur voru að landa á Fáskrúðs- firði og Neskaupstað og um tugur skipa var á heimleið. Norðmenn mega ekki veiða eftir 22. febrúar og ekki fara suður fyrir línu sem dregin er austur af punkti rétt norðan við Krossanes. Upphaflega komu um 45 þúsund tonn í hlut Norðmanna, en síðar voru um 13 þúsund tonn af kvóta Grænlendinga færð yfir til Norð- manna, samkvæmt samningum. Eftir þessi skipti er kvóti Græn- lendinga 5.709 tonn. Færeyingar mega veiða 8.650 tonn og hafa Finnur fríði, Fagra- berg og Þrándur í Götu verið við veiðar við landið síðustu daga. Norðmenn að ljúka veiðum KVÓTI FRÁ GRÆNLANDI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.