Morgunblaðið - 20.02.2016, Side 38

Morgunblaðið - 20.02.2016, Side 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2016 ✝ Sigurður Sig-urðsson fædd- ist á Skálum á Langanesi 20. des- ember 1928. Hann lést á Skógar- brekku, Heilbrigð- isstofnun Norður- lands, Húsavík, 8. febrúar 2016. Foreldrar hans voru Svava Jóhannsdóttir, f. 6.4. 2010, d. 31.12. 2000, og Sigurður Hallsson, f. 12.4. 1902, d. 14.4. 1971. Þau slitu samvistum. Systk- ini Sigurðar eru: Guðbjörg Sig- urðardóttir, látin, Hulda Björnsdóttir og Heiðar Hall- dórsson. Árið 1962 giftist Sigurður eftirlifandi eiginkonu sinni Hlín Einarsdóttur, f. 26.3. 1935. Karen, f. 2010. 4) Anna Íris, f. 1972, maki Sigmar Helgi Björgúlfsson og eiga þau þrjár dætur: a) Birta Hlín, f. 2001. b) Auður Embla, f. 2005. c) Júlía Ísold, f. 2009. Sigurður fluttist 11 ára gam- all til Húsavíkur. Þar lauk hann grunnskóla. Fiskimanna- próf kláraði hann 1959 og árið 1965 útskrifaðist Sigurður frá Stýrimannaskólanum í Reykja- vík. Sjómennska var hans ævi- starf og var hann farsæll og fengsæll skipstjóri á síldar- og loðnubátum. 73 ára gamall hætti Sigurður sínum skip- stjórnarferli og hafði þá verið óslitið á sjó í 60 ár og þar af um hálfa öld sem skipstjóri. Þá snéri hann sér alfarið að trillu- útgerðinni með bát sinn Vinur ÞH73. Sigurður veiktist árið 2013. Hann dvaldi á Heilbrigð- isstofnun Norðurlands, Húsa- vík, til dauðadags. Útför Sigurðar fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, 20. febrúar 2016, og hefst athöfnin klukkan 14. Börn Sigurðar og Hlínar eru: 1) Ei- ríkur, f. 1961, maki Guðrún Sæ- mundsdóttir og eiga þau fjórar dætur: a) Málfríður Anna, f. 1997. b) Hlín, f. 2000. c) Arna, f. 2002. d) Bryndís, f. 2005. 2) Arnar, f. 1963, maki Ásdís Brynja Jónsdóttir og eiga þau tvær dætur: a) Svava Hlín, f. 1987, maki Derri Paul Stephens, þeirra sonur er Arnar Derrick Stephens, f. 2014, b) Sólveig Ása, f. 1991, maki Davíð Þór- ólfsson. Dóttir þeirra er Kristín Heba, f. 2014. 3) Hafdís, f. 1968, maki Júlíus B. Benedikts- son og eiga þau tvö börn: a) Elvar Smári, f. 1995. b) Emelía Til þess að ná árangri sem skipstjóri þarftu ekki endilega að öskra úr þér hálskirtlana á áhöfnina, þú þarft ekki að vera óheiðarlegur, ekki eigingjarn, illgjarn eða frekur, pabbi náði að verða farsæll og fengsæll skipstjóri án ofantalinna ann- marka, hann var rólegur, yf- irvegaður og snillingur í að lesa náttúruna. Hann var skipstjóri sem þótti gott að vera í skipsrúmi hjá enda sagði hann oft að vel- gengni sín væri því að þakka að til sín völdust úrvalsmenn í áhöfn. Ég byrjaði að róa með hon- um á trillu 1973 og var flest ár með honum hluta úr ári þar til hann veiktist 2013, ég var með honum á loðnu og síld á stærri bátum í mörg ár, læt eina sögu fljóta hér. Við vorum á síld á austur á fjörðum, það var búið að vera algjört reiðuleysi og enginn átti von á að finna síld en gamli hélt áfram og vaktmaðurinn sem átti að vera hjá honum uppi í brú var kominn niður í borðsal, eins og þeir vita sem hafa verið á síldar- eða loðnunót þá var allt- af mikil taugaveiklun þegar vaktmaðurinn var sendur niður til að kalla klárir. Þeir sem voru vakandi voru að spila brids. Allt í einu heyrist í tréklossunum hjá gamla koma niður stigann, hann kíkir inn í borðsal og segir rólega: „Nú, eruð þið að spila – en verið klárir þegar þið eruð búnir með bertuna.“ Þá var gamli búinn að finna torfu, það var auðvitað kastað í hvelli. Það voru ekki amaleg eft- irmæli sem ég fékk send á Fa- cebook við andlát hans, leyfi mér að birta nokkur þeirra: Góður nágranni sem ég hafði uppáhald á. Pabbi þinn var frábær í alla staði. Mikið var þetta skemmtileg- ur karl. Þessi maður var einstakur, gegnheill og góður drengur. Magnaður skipstjóri og sjó- maður. Dásamlegur maður. Mikið óskaplega vinalegur. Barngóður og falleg persóna. Gamli var sérstakur öðlingur. Góður maður genginn. Hann var mikill sjómaður og alltaf mokfiskaði sá gamli þessi skipti sem ég var með honum og hann var yndislegur að vera með sem skipstjóra, alltaf pollrólegur og fínn enda gekk vinnan um borð eftir því, þ.e.a.s. engin læti, bara allt eftir uppskrift þess gamla. Góður drengur fallinn frá. Ég vil þakka starfsfólki Sjúkrahússins á Húsavík fyrir einstaka ummönnun, hlýju og virðingu sem þið sýnduð pabba, sérstakar þakkir til starfsfólks- ins á Skógarbrekku þar sem hann naut umönnunar síðustu mánuði. Frímann og Hafliði, hafið hjartans þakkir fyrir ykk- ar óeigingjarna framlag til þess að létta lund vistmanna á Skóg- arbrekku. Arnar (Addi Stýssa). Stundum erum við einstak- lega heppin í lífinu og það vor- um við svo sannarlega þegar við fæddumst, heppnari með for- eldra hefðum við ekki getað verið. Þú varst okkar stoð og stytta og alltaf varstu að passa upp á litlu stelpurnar þínar, sem eru kannski ekki svo litlar lengur. Hélst utan um þína án orða. Ljúfmenni sem skipti nánast aldrei skapi. Það eru svo margar fallegar og dýrmætar minningar sem við eigum um þig, elsku pabbi, og munu nú ylja okkur um ókomna tíð. Þú varst alltaf svo blíður og góður og vildir öllum allt það besta. Sjórinn var líf þitt og yndi og nú siglir þú seglum þöndum til sumarlandsins eilífa og ert örugglega að mokfiska á þeim miðum eins og öðrum. Við trúum því að þú fylgist með okkur áfram og passir upp á þína eins og þú varst vanur. Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabba minn, vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtum hér því hamingjuna áttum við með þér. Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú, þökkum allt sem af þér gafstu, okkar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góðleg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. Með englum Guðs nú leikur þú og lít- ur okkar til, nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skína inn þá gleður okkar minning þín, elsku pabbi minn. Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á braut, gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem förunaut. Og ferðirnar sem förum við um land- ið út og inn er fjársjóðurinn okkar, pabbi minn. (Denver/Guðrún Sigurbjörnsd) Elsku pabbi, takk fyrir sam- fylgdina og hafðu þökk fyrir allt og allt. Við skulum passa barnabörn- in þín sem sakna þín svo sárt. Við elskum þig að eilífu. Þín- ar dætur, Anna Íris og Hafdís. Það var ekki auðveld lífsbar- átta sem tók á móti pabba fyrstu ár ævinnar á Skálum, í Kumblavík og síðar Þórshöfn á Langanesi í fátækt og skorti millistríðsáranna. Lífsbaráttan snerist um að lifa af og 18 ára gömul og fljótlega einstæð móð- ir hans átti erfitt með að sjá sér og sínum farborða. Það var því ekkert val og börn urðu að byrja að vinna og skaffa til heimilisins um leið og þau höfðu einhverja krafta til, en skólaganga ekki til umræðu. Átta ára gamall komst pabbi yf- ir litla skektu á Þórshöfn sem hann nefndi Skutul og hófst þar yfir 70 ára farsæll sjómannsfer- ill. Um ellefu ára aldur fluttu þau mæðginin með yngri systur hans, Guðbjörgu, til Húsavíkur en þar tók sama baslið við og fátæktin mikil. En áfram var haldið og sjósókn á sífellt stærri skipum tók við eftir því sem þroski og reynsla jókst, með batnandi afkomu og efnahag. Á síldarárunum var pabbi að mestu á skipum Barðans hf. Þar af lengst á Dagfara ÞH 70. Árið 1974 tók hann við skip- stjórn á Gísla Árna RE 375. Þar var hann í mörg ár, en endaði síðan ferilinn á nótaskipinu Erni KE 13 með löngu og ein- staklega farsælu samstarfi við útgerðarmanninn Örn Erlings- son. Þegar pabbi hætti á Erninum var hann kominn á áttræðisald- ur en ennþá í fullu fjöri. Þegar ég var strákur var pabbi lítið heima og merkisat- burðir í lífi fjölskyldunnar, svo sem fæðing barna og fleira fóru gjarnan fram hjá honum og út- höldin stóðu mánuðum saman. Fjölskyldulífið lenti því alfarið á herðum móður minnar, Hlínar Einarsdóttur, sem sinnti því með sóma í alla þessa áratugi, en pabbi var sem gestur á heimilinu. Við feðgarnir vorum saman í mörgu þessu og ég byrjaði mjög ungur að fara með honum á sjó og í annan veiðiskap. Sam- starfið gekk oftast vel en við vorum ekki alltaf sammála. Ég var ungur, metnaðarfullur og vitlaus en taldi mig samt kunna og vita flest betur. Pabbi þoldi það ekkert alltaf enda var hann sjálfur þekktur fyrir að vera pollrólegur og yf- irvegaður, sama hvað á gekk. Pabbi var laginn og vinsæll skipstjóri sem þurfti ekki að beita kröftum og öskrum úr brúarglugganum við veiðarnar eins og áður tíðkaðist mikið, en hefur sem betur fer minnkað. Það var alltaf létt skipsrúm hjá honum þó mikið fiskaðist oft. Lengst af var pabbi við mjög góða heilsu en eftir heilablæð- ingu fyrir nokkrum árum fór smám saman að halla undan fæti og síðustu mánuðir hafa verið erfiðir, en starfsfólk sjúkrahússins á Húsavík hefur annast hann af einstakri natni og þolinmæði. Ég held að í því ljósi hafi hann verið tilbúinn til að yfirgefa þetta líf núna og hefja í staðinn veiðar á hinum eilífu veiðilendum þar sem sólin aldrei sest. Þar mun veiðigyðj- an alveg örugglega ekki bregð- ast honum frekar en fyrr, en spurning hvort veiðar eru ennþá frjálsar þar, sem mundi henta betur, eða hvort komið er kvótakerfi. Ég valdi mér sama starfs- vettvang og pabbi og er því við veiðar á fjarlægum miðum núna og kemst ekki í land til að fylgja honum síðustu skrefin. Það er erfitt en enginn hefði skilið það betur en pabbi. Eiríkur Sigurðsson. Meira: mbl.is/minningar Sigurður Sigurðsson Með þessum orð- um kveð ég elsku ömmu mína, konuna sem var mér allt og kenndi mér allt. Efst í huga mér er þakklæti fyrir að hafa verið kletturinn í mínu lífi, ætíð til stað- ar þegar á reyndi með ráð og stuðning fordómalaust gagnvart mér og mínum ákvörðunum. Elsku amma, takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig, þú átt stóran sess í hjarta mínu. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, Lára Guðnadóttir ✝ Lára Guðna-dóttir fæddist 28. júní 1922. Hún lést 29. janúar 2016. Útför Láru fór fram 8. febrúar 2016. þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minn- ingar streyma um hjörtu þau er heit- ast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma ynd- isleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Sjöfn Anna Halldórsdóttir. ✝ Kristján Ragn-ar Finnboga- son fæddist á Eyri við Mjóafjörð, N- Ísafjarðarsýslu, 3. júlí 1941. Hann lést á Heilbrigðisstofn- un Vestfjarða á Ísa- firði 4. febrúar 2016. Foreldrar Krist- jáns voru Salvör Kristjánsdóttir og Finnbogi Björnsson frá Kirkjubæ og eru þau bæði látin. Systkini Kristjáns eru: 1. Ólöf, maki Guðmundur Ólason, þau eru bæði látin. Börn þeirra eru: a) Kristán Bjarni, látnn, b) Guð- dóttir. þau eiga einn son, Sam- úel Inga. Móðir Jóns Brynjars er Jóhanna Jónsdóttir. Eiginkona Kristjáns er María Sonja Hjálmarsdóttir, f. í Lauk- hella á eyjunni Senja í Norður- Noregi, f. 9. júlí 1936, d. 8. des- ember 2006. María Sonja átti fimm börn: 1. Gísli Hjálmar. 2. Anna Kristín. 3. Halldór Sveinn. 4. Birna Guðbjörg. 5. Guðrún Hrefna. Einnig ólu þau upp Mar- íu Sonju Thorarensen. Kristján vann við ýmis störf, m.a. til sjós á bátum gerðum út frá Norðurtanganum á Ísafirði, var á jarðýtum hjá Gunnari og Ebeneser hf., Áhaldahúsi Ísa- fjarðarkaupstaðar og síðustu ár hjá Slökkviliði Ísafjarðar til starsloka 2011. Útför Kristjáns fer fram frá Ísafjarðarkirkju í dag, 20. febr- úar 2016, og hefst athöfnin kl. 14. Jarðsett verður frá Garða- kirkju 22. febrúar kl. 13. rún Ólöf, c) Salvar Finnbogi, d) Vignir. 2. Guðmundur Kristján, látinn, eft- irlifandi sam- býliskona er Valdís Jónsdóttir. 3. Björn Breiðfjörð, látinn. 4. Arndís, barn hennar er Árni þór Einarsson. Börn Kristjáns eru: 1. Kristinn Finnbogi, f. 29. apríl 1963, d. 5. júní 2009. Hann lætur eftir sig fimm börn. Móðir Kristins er Eygló Nikólína Kristinsdóttir. 2. Jón Brynjar, f. 5. febrúar 1969, sambýliskona Julíana Ingimars- Í dagsins önnum dreymdi mig þinn djúpa frið, og svo varð nótt. Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt, þeim svefni enginn rænir þig. En samt var nafn þitt nálægt mér og nóttin full af söngvaklið svo oft, og þetta auða svið bar ætíð svip af þér. Og þungur gnýr sem hrynji höf mitt hjarta lýstur enn eitt sinn: Mín hljóða sorg og hlátur þinn, sem hlutu sömu gröf. (Steinn Steinarr) Elsku pabbi, takk fyrir heim- ilið sem ég fékk, takk fyrir allar minningarnar sem ég á, þér og mömmu verð ég ævinlega þakk- lát fyrir allt sem þið gerðuð fyrir mig, minningin um þig lifir áfram hjá mér, Þó styttist dagur, daprist ljós og dimmi meir og meir, ég þekki ljós, sem logar skært, það ljós, sem aldrei deyr. (Margrét Jónsdóttir) Þín María Sonja (Maja). Jæja kallinn minn, það kom að því. Sárt þykir mér að kveðja þig á þessum stundum þar sem það er nú ekki langt síðan við fengum okkur kaffi saman. Ég mun ávallt sakna þess að detta inn á Hlíðarveginn og taka spjall. Við áttum margar eftirminni- legar stundir, hér heima var oft gripið í bjór, útilegan sem við fór- um í Reykjanes með Sigga og svo ég tali nú ekki um jóla- og ára- mótaferðina til Tenerife. Ótrúlegt þótti mér hversu ungur í anda þú varst, margar umræðurnar um lífið og tilveruna sem við áttum á svölunum á hót- elinu, nú átta árum síðar brosi ég enn yfir því hvað lifnaði yfir þér við að hitta Norðmenn sem þú gast loksins talað við og kynntir þig með stolti: „Jeg er Firechief på Island.“ Þessi ógleymanlega ferð er mér föst í minni og mun ég ávallt minnast hennar með bros á vör. Ég þakka þér fyrir allt sem við deildum, vináttuna og samleiðina og ég þakka þér fyrir að standa með mér á flestum tímamótum í mínu lífi undanfarin ár. Gautur Ívar Halldórsson. Traustur félagi okkar, Krist- ján Finnbogason, er fallinn frá eftir skammvinn veikindi. Hann gekk til liðs við Kiwanisklúbbinn Bása fyrir rúmum 35 árum. Klúbburinn var þá að feta sín fyrstu spor og mikilvægt að fá inn dugmikla félaga til að móta starf- ið. Kristján sinnti öllum helstu trúnaðarstörfum innan klúbbs- ins, var forseti tvívegis og sat í umdæmisstjórn sem svæðisstjóri Þórssvæðis 1999-2000. Lagði hann fram mikið óeigingjarnt starf í þágu klúbbsins og sá m.a. um húsnæði klúbbsins um margra ára skeið. Það fór yfirleitt ekki mikið fyr- ir Kristjáni, en hann var ávallt reiðubúinn þegar eitthvað þurfti að gera í félagsstarfinu og ekki ofsagt að hann mætti betur á fundi, en nokkur annar í klúbbn- um í gegnum árin. Við Básafélagar sjáum á bak góðum félaga, sem var fastur punktur í okkar félagsstarfi. Við sendum fjölskyldu Krist- jáns okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Fyrir hönd Kiwanisklúbbsins Bása, Guðbjartur Jónsson, forseti. Kristján Ragnar Finnbogason Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.