Morgunblaðið - 20.02.2016, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 20.02.2016, Blaðsíða 45
MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2016 á Hótel Borg Hlý og persónuleg þjónusta Hótel Borg | Pósthússtræti 11| Sími 578-2020 Miðvikudaginn 4. febrúar var haldinn fundur hjá stjórn Hollvinasamtaka Sjúkrahússins á Akureyri. Farið var yfir fjárhagsstöðuna og næstu verkefni, sem öll felast í kaupum á lækningatækjum. Vegna veglegra framlaga frá einstaklingum, fyrirtækjum og félagasamtökum var innistæða fyrir kaupum á öndunarvél fyrir gjörgæsludeild og fulltrúa SAk falið að panta vélina. Á fund- inum var stofnandi og aðaldrif- fjöður Hollvinasamtakanna, Stefán Gunnlaugsson. Hann var inniliggjandi á Sjúkrahúsinu en þrátt fyrir veikindi sat hann fundinn. Stefán var með marg- víslegar hugmyndir um áfram- haldandi starf og fjáröflun. Hann fór yfir stórhuga hug- myndir sem hann vildi ráðast í á næstu misserum til að auka tekjur samtakanna og gera okk- ur þar af leiðandi kleift að styrkja SAk enn frekar. Stefán var sjúkrahúsinu afar þakklátur og einsetti sér að því eftir fyrstu lotu veikinda sinna að stofna félagsskap sem hefði það markmið eitt að bæta tækjakost og aðbúnað sjúklinga og starfsfólks. Í lok fundarins var farið yfir það sem Hollvina- samtökin hafa áorkað og að holl- vinir væru að nálgast 2.000 manns. Gleðibros færðist yfir andlit Stefáns, draumurinn var orðinn að veruleika. Þetta bros geymi ég innra með mér, því að örfáum dögum síðar lést Stefán eftir harða rimmu við óviðráð- anleg veikindi. Við munum halda starfinu áfram, Stebbi minn, og leggja enn harðar að okkur þó að ógerlegt verði að fylla þitt skarð. Við Stefán störfuðum einnig saman á öðrum vettvangi. Knattspyrnufélag Akureyrar hefur verið okkur afar hugleikið í áratugi. Hann var formaður tveggja deilda félagsins og tví- vegis formaður aðalstjórnar. Hann var lykilmaður í allri upp- byggingu KA í áratugi en það er ekki síst fyrir hans áræðni og framsýni að í dag er KA eitt öfl- ugasta íþróttafélag landsins, með á annað þúsund iðkendur. Í mínum huga er Stefán einn merkasti félagsmaður í sögu KA og minning hans meðal félags- manna mun lifa um ókomna tíð. Aðalstarf Stefáns var veit- ingarekstur og var hann einn aðaleigenda Bautans á Akur- eyri, sem hann rak með glæsi- brag um langt árabil. Þungamiðjan í öllu þessu annríki var fjölskyldan. Hann var afar stoltur af börnum sín- um og barnabörnum. Vandlega fylgdist hann með hópnum og í samtölum okkar síðustu mánuði hef ég betur gert mér grein fyr- ir þessari tæru væntumþykju og tilfinningum hans gagnvart eig- inkonu og börnunum. Fjölskyld- unni votta ég mína innilegustu samúð. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd stjórnar Hollvina- samtaka Sjúkrahússins á Akur- eyri Jóhannes Gunnar Bjarnason, formaður. Félagi okkar og samferða- maður Stefán Gunnlaugsson hefur nú kvatt eftir erfið veik- indi. Okkur sem þykjumst eiga einkarétt á því að kalla okkur KA old boys langar af því tilefni Stefán Héðinn Gunnlaugsson ✝ Stefán Héðinnfæddist 17. mars 1945. Hann lést 8. febrúar 2016. Stefán var jarð- sunginn 19. febrúar 2016. að minnast hans með nokkrum orð- um. Gulur bak- grunnur hefði kannski hentað þessum orðum bet- ur og passað betur við hið gula og gegnheila hjarta Stebba. Félagar eða hópur sem upp- haflega var knatt- spyrnuhópur sem þróaðist síðan í samstilltan lífs- vinahóp sem brallað hefur ým- islegt saman meðfram boltan- um, s.s. matarveislur, ferðalög, jafnt utan- sem innanlands. Far- ið m.a. í fótbolta og árshátíð- arferðir til Barcelona, London og Rómar. Höfum hist á heil- ögum sunnudögum klukkan 16.30 til 18.00, allt frá því að húsið var byggt 1991 og margir hverjir, m.a. Stebbi, nokkur ár á undan í Skemmunni. Svo að árin í boltanum voru býsna mörg. Þessir tímar voru Stebba mjög kærir og hefur hann átt mörg upphlaupin upp hægri kantinn í KA-húsinu, því að hægri kant- urinn var Stefáns, alla vega í aðra áttina, og einskis annars og héldu sumir að hann ætti hann skuldlausan í orðsins fyllstu merkingu. Ef vel horfði fyrir hans liði heimtaði hann gjarnan að nú yrðu úrslitin skráð á blað svo að enginn vafi léki á úrslit- um í lok tímans. Tala nú ekki um þegar hin alræmdu táarskot hittu netið, markmönnum til mikillar hrellingar. Hann spilaði kantinn alveg þar til hann veikt- ist fyrir u.þ.b. þremur árum. Þannig var nefnilega Stefán. Fylginn sér og mikill drifkraftur í því sem hann tók sér fyrir hendur. Steig kannski á tærnar á einhverjum eins og oft vill verða þegar atorkumenn eru á ferð en munaði um hann í hverju máli sem hann lagði lið. Hann gegndi mörgum trún- aðarstörfum fyrir KA og var formaður, fyrst árið 1970 á erf- iðum tíma í sögu félagsins og síðan aftur 2008–2010. Var í for- ystusveit KA allt þetta tímabil ásamt því að gegna trúnaðar- störfum hjá KSÍ. Gegndi for- mennsku í handknattleiksdeild og knattspyrnudeild og sat í að- alstjórn, lengst af sem gjaldkeri. Einnig var hann mikill drifkraft- ur í allri uppbyggingu á KA- svæðinu s.s. völlum, félagsheim- ili og íþróttahúsi. Félagsheim- ilið, sem gjörbreytti allri félagslegri aðstöðu KA, var hon- um einstaklega kært. Var hann formaður bygginganefndar og sá um fjármálin. Þó að hann hefði verið orðinn veikburða á síðustu mánuðum lét hann sig aldrei vanta á við- burði hjá KA eða Akureyri handboltafélagi og fór þar oft viljinn á undan líkamanum. Mætti ósjaldan í KA-kjallarann til að horfa á félögin sín Liver- pool og Barcelona og hitta mann og annan og fylgjast með helstu málum KA. Atorku hans og áhuga verður saknað á KA- svæðinu og þarf fleiri en tvo til að fylla hans skarð í áhorfenda- stúkum eða sófum þessara fé- laga. Innilegar samúðarkveðjur til Hugrúnar og fjölskyldu Fyrir hönd KA old boys og maka, Jóhannes Bjarnason, Tómas Lárus Vilbergsson, Haukur Jóhannsson, Guðmundur Gíslason, Kristján Eldjárn. Við vorum ólíkir félagarnir Stebbi, Biggi Svavars og ég, en smullum óvenju vel saman, enda var stutt á milli okkar á Eyr- inni, jafn gamlir og saman í skóla. Stebbi var stríðnastur og hafði dálítið gaman af að slást, hann var minnstur og átti undir högg að sækja en var sneggstur og kunni nokkur brögð til að losa sig, jafnvel þó að við nafn- arnir værum saman búnir að hafa hann undir. Yfirleitt hafði hann frumkvæði að hinum ýmsu leikjum og ekki þótti okkur leið- inlegt að gera at í fólki á Eyr- inni. Við vorum í sama bekk í gagnfræðaskólanum og sam- ferða á morgnana, í hádeginu og heim úr skóla. Alltaf vorum við á hjóli ef fært var og oftast var kapp hver væri fyrstur og ekki var óalgengt að við værum hruflaðir eftir byltur. Við vorum oft lengi á leiðinni heim þegar snjór var mikill því við þurftum að koma við í brekkunum í Gilinu sem voru snarbrattar og renna okkur þar niður. Snemma kom í ljós að Stebbi hafði gott viðskiptavit. Minnisstætt er gamlárskvöld þegar við vorum í fyrsta bekk í Gagganum en þá var haldinn dansleikur í skól- anum. Þegar við félagarnir mættum á staðinn í okkar fín- asta pússi sáum við að allir að- algæjarnir voru með vindla og þótti okkur verra að vera ekki með í þeim hópi. Stebbi var fljótur að finna út úr því, mundi að einn af Fossunum var við bryggju og við gætum örugg- lega útvegað okkur vindla þar. Stormuðum við niður á bryggju og um borð þar sem við hittum fyrir borðalagðan mann sem Stebbi bar erindið upp við. Það var tekið vel í málið, okkur boð- ið niður í káetu þar sem við fengum súkkulaði og gos og kassa af smávindlum. Kvöldinu var reddað við seldum alla vindlana uppi í skóla á góðu verði og áttum nóga peninga fyrir sælgæti og gosi á ballinu. Eftir gagnfræðaskóla skildu leiðir en alltaf var gott sam- band. Stebbi fylgdist vel með okkur og mér er minnisstætt að á háskólaárum mínum í Svíþjóð í kringum 1968, þegar gengis- fellingarnar voru hver af ann- arri, sendi hann mér bréf og bauðst til að lána mér peninga ef ég þyrfti. Sýnir það best því- líkur öðlingur Stebbi var – alltaf að hugsa um aðra og ekki var hjálpseminni flíkað. Eftir að við fluttum heim og til Borgarness jukust samskipti okkar félag- anna á nýjan leik og höfðum við það fyrir reglu að hittast nokkr- um sinnum á ári með konum okkar og fórum í margar skemmtilegar ferðir bæði innan- lands og utan. Við fórum saman til Parísar, Prag og í einstak- lega skemmtilega menningar- ferð til Tyrklands. Eftir að við Brit fluttum til Akureyrar hitt- umst við reglulega yfir góðum mat, spjalli og glensi. Stebbi var kátur og skemmtilegur, hreinn og beinn og lét samfélagsmál sig miklu skipta. Hann var ein- staklega kærleiksríkur fjöl- skyldumaður og vinur og var alltaf tilbúinn að rétta hjálpar- hönd þar sem hann taldi þörf. Stóra lukkan hans var að hitta Hugrúnu. Hann og Hugrún voru einstakt par og leiddu og studdu hvort annað í einu og öllu. Við fjölskyldan vottum Hugrúnu og fjölskyldu okkar dýpstu samúð, eftir lifir minn- ingin um einstakan og kæran vin. Birgir Guðmundsson. Í dag kveðjum við góðan mann, mann sem hefur svo sannarlega haft áhrif á líf mitt. Stefán Gunnlaugsson, eða Stebbi Gull, var engum líkur. Skapaði, gerði og framkvæmdi hlutina. Honum kynntist ég fyrst þeg- ar hann starfaði með föður mín- um í KA, Stebbi Gull formaður knattspyrnudeildar KA og pabbi stjórnarmaður. Hann kom inn á heimilið okkar eins og hvirfilbyl- ur, annaðhvort með hund bróð- ur síns til að tala við pabba eða bara hitta okkur aðeins. Síðan í símann og talaði þar, síðan rok- inn út. Alltaf eitthvað að gerast hjá kallinum. Á mínum yngri árum þurfti maður sumarvinnu og Stebbi Gull sá til þess að ég fékk vinnu, byggingarvinnu, vallarvinnu, vinnu á Bautanum, starf á bar, yngri flokka þjálfun. Síðan tók hann sig til og seldi mig til út- landa. Kannski vegna þess að hann var búinn að prufa allt með mig. Og eftir 11 ár réð hann mig aftur í vinnu við þjálf- un. Já, ég sé það að Stebbi Gull hefur í raun stjórnað lífi mínu. Það er svo sannarlega mikill missir að eins miklum snillingi og Stebba Gull. Hann var alltaf fyrsti maður að hringja þegar eitthvað gekk á í lífi mínu – hvort sem það var gleði eða sorg. Stefán er maður sem hefur haft gríðarleg áhrif á KA og Ak- ureyri. Hann verður í minning- unni einn af snillingum Norð- ursins. Ég, Ólöf Mjöll og Isabella viljum votta þér, Hugrún mín, og fjölskyldu þinni okkar dýpstu samúð. Þorvaldur Örlygsson. Ég var staddur á ráðstefnu um heilbrigðismál á Akureyri í nóvember síðastliðnum. Jói Bjarna nýbúinn að skrá mig í Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri – eins og ég hefði átt séns á að segja nei. Þá kemur til mín maður og segir: „Stebbi Gull biður að heilsa. Hann biður þig að líta við hjá sér áður en þú ferð suður.“ Þegar Stebbi Gull biður mann að koma – þá kemur maður. Þannig hefur það alltaf verið. Ég ólst upp sem KA-maður og þar var Stebbi Gull fremstur meðal jafningja. Óþreytandi við að vinna að framgangi félagsins með öllum þeim ráðum sem til- tæk voru. Og þegar hann fól manni verkefni þá var aldrei nein spurning um að fram- kvæma þau eftir bestu getu. Eitt sumarið var ég fram- kvæmdastjóri félagsins og þá var enginn endir á því hvað Stebba gat dottið í hug varðandi fjáraflanir. Ekki alltaf góðar hugmyndir en alltaf reyndi mað- ur að láta þær heppnast. Stebbi Gull var einn af þess- um mönnum sem koma til dyr- anna nákvæmlega eins og þeir eru klæddir. Stundum dálítið óheflaður og hvatvís en sagði hug sinn í hverju máli. Ekki vorum við alltaf sammála. Það var hins vegar hægt að treysta því að alltaf þegar á reyndi var Stebbi Gull eins og klettur við bakið á manni. Þegar ég kom heim til Stebba og Hugrúnar eftir ráðstefnuna lá hann uppi í sófa í stofunni. Hann var búinn að berjast við alvarleg veikindi síðustu tvö ár- in og talsvert var af honum dregið. Samt var hann algjör- lega óbugaður andlega og auð- vitað með mikil áform á prjón- unum eins og svo oft í gamla daga. Nú voru það Hollvinasam- tök Sjúkrahússins á Akureyri; „Freddi, það verður svaka fjáröflun í vor og þú þarft að stjórna tískusýningu og upp- boði. Ferðu ekki létt með það?“ Dæmigert fyrir Stebba að láta sér detta í hug að ég væri maðurinn til að stjórna tísku- sýningu. Í gamla daga hefði ég bara sagt já og gengið í verkið en í þetta skiptið stakk ég upp á vinkonu okkar sem er sérfræð- ingur í tískusýningum og sagði Stebba að tala við hana. „Gott mál, ég geng í það,“ sagði Stebbi og græjaði það held ég daginn eftir. Sambærileg samtöl höfum við Stebbi Gull átt í tugavís í gegn- um tíðina og það rifjaði upp ótal skemmtileg atvik og endalausar sögur að vera enn á ný kominn í mikilvægt verkefni undir stjórn þessa gamla vinar. Þannig var þessi mikli meist- ari allt fram í andlátið. Alltaf tilbúinn að láta gott af sér leiða fyrir KA eða allt samfélagið. Það var einstakur félagsandi sem umlék allt starf okkar KA- manna eins og ég minnist þess og þar lék Stebbi Gull lykilhlut- verk sem leiðtogi og prímusmót- or. Hann naut þess – og við KA- menn allir – að vera einstaklega vel kvæntur og gæfa hans í líf- inu að hafa konu eins og Hug- rúnu sér við hlið í blíðu og stríðu. Það er þyngra en tárum taki að þurfa að kveðja góðan vin svo langt fyrir aldur fram. Efst í huga mér er þó þakklæti fyrir ótal góðar stundir og árangurs- ríkt og skemmtilegt samstarf í gegnum tíðina. Öllum aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð. Guð blessi minningu Stefáns Gunnlaugssonar – áfram KA. Friðfinnur Hermannsson. Það var okkar lán að hafa kynnst Stefáni Gunnlaugssyni á sínum tíma. Við vorum ungir Valsmenn í leit að ævintýrum og reynslu þegar við hittum Stebba, formann KA, í fyrsta sinn. Hann náði á mjög skömm- um tíma að sannfæra okkur um ágæti Akureyrar og að hvergi væri betra að vera en hjá KA. Við slógum til og þvílík gæfa sem þessi ákvörðun var fyrir okkur; við kynntumst ótrúlegum hóp af ungum, metnaðarfullum fótboltastrákum sem áttu sér draum um að gera góða hluti á fótboltavellinum, það átti svo sannarlega eftir að verða raun- in; en enginn lét sig þó dreyma um þann árangur sem við áttum eftir að ná. Við skynjuðum að Stebbi vildi halda utan um alla hluti innan félagsins og gerði hann það sérstaklega vel. Það ásamt því að vera með mjög góða knattspyrnumenn og þjálf- arateymi varð til þess að KA varð Íslandsmeistari árið 1989. Það var sennilega hápunktur Stebba þann tíma sem hann starfaði fyrir KA. Hann var mjög stoltur af þessum árangri og var hvatamaður þess að hóp- urinn sem varð meistari hittist reglulega síðastliðin ár. Stebbi kallaði hópinn saman haustið 2014, 25 árum frá því að titillinn góði vannst, áttum við frábæra helgi saman þar sem gestrisnin skein í gegn hjá honum og konu hans, Hugrúnu. Þetta var í síð- asta skiptið sem við hittum Stebba á lífi og mikið erum við ánægðir að hafa hitt hann kátan og hressan þrátt fyrir erfið veikindi. Við viljum þakka Stef- áni Gunnlaugssyni fyrir ógleym- anlegar stundir og biðjum al- mættið um að senda styrk til aðstandenda á þessum erfiðum tímum. Anthony Karl og Jón Gretar. Þann 8. febrúar síðastliðinn lést Stefán Gunnlaugsson, Stebbi Gull, eftir erfið veikindi. Stebbi var formaður Knatt- spyrnudeildar KA árið 1989, en það ár varð KA Íslandsmeistari í knattspyrnu karla í fyrsta og eina sinn. Að þessu afreki stóð hópur öflugra leikmanna, maka, stjórnarmanna og aðstandenda. Þó leikmennirnir hafi verið mest í sviðsljósinu þá var líka öflugt lið sem sá um að allur aðbún- aður væri sem bestur. Sá sem hélt um alla þræði og stjórnaði eins og herforingi var Stebbi Gull. Hann var óþreytandi við að skapa þessum hópi eins góð- ar vinnuaðstæður og kostur væri. Eldmóður Stebba fyrir KA og okkur leikmennina var stundum á mörkum þess að vera óþolandi því hann ætlaðist til að allir væru jafn áhugasamir og hann. Helmingur keppnis- liðsins bjó eða var í námi sunn- an heiða á undirbúningstíma- bilinu og því þurfti að sameina tvo æfingahópa, skipuleggja ferðir, afla fjár og halda hópn- um samstilltum. Stebbi sá um þetta, auk þess að halda mat- arboð og veislur og sjá um að samlokurnar væru klárar eftir leiki. Hann hugsaði líka um smáatriðin og margir leikmenn eða börnin okkar eiga silfur- skeiðar, platta eða diska með KA-merkinu til minningar um viðburði á KA-ferlinum. Að und- irlagi Stebba hefur þessi Ís- landsmeistarahópur hist reglu- lega síðan 1989 til að viðhalda vinskapnum og rifja upp gamlar gleðistundir. Stebbi hefur áfram verið miðpunkturinn í þessum hópi og hafa heimboð til hans og Hugrúnar eiginkonu hans verið ógleymanleg, síðast í september 2014. Framsýni hans og dugn- aður verður okkur hvatning í framtíðinni. Hans verður sárt saknað og sendum við Hugrúnu og fjölskyldu þeirra samúðar- kveðjur. Fyrir hönd Íslandsmeistara- hóps KA 1989, Erlingur Kristjánsson. Hinn 8. febrúar síðastliðinn kvaddi Stefán Gunnlaugsson, vinur minn til margra ára, þenn- an heim. Stebbi hafði barist við erfið veikindi og sýkingar um nokkurra ára skeið. Stebbi var fæddur á Akureyri og kynntist ég honum fyrst í fótbolta á gamla moldarvellinum á Akur- eyri og það fór ávallt vel á með okkur Stebba. Stebbi var af- burðaduglegur maður, einn af stofnendum Bautans á Akureyri sem hann vann hjá um langt árabil. Stefán var mikill KA- maður, formaður félagsins og formaður deildar þess um ára- bil. Einn af drifkröftum við byggingu Félagsheimilis og íþróttahúss KA-manna á brekk- unni. Stefán var heiðraður á marga vegu fyrir störf sín að íþróttamálum á Akureyri og var að mínu mati vel að því kominn. Fyrir nokkrum árum stofnaði Stebbi, ásamt nokkrum dugn- aðarforkum, Hollvinasamtök sjúkrahússins á Akureyri og hafa samtökin gefið spítalanum tugi milljóna króna síðan. Í dag skipta meðlimir samtakanna þúsundum. Við Stebbi stofnuðum lítið fyrirtæki um húseign í miðbæ Akureyrar. Þá kynntist ég heið- arleika hans og dugnaði. Stebbi var góður vinur, vildi hafa hlut- ina rétta og gera þá strax. Þetta í fari Stebba kunni ég vel að meta. Ég held að Stebbi hafi verið einn af bestu drengjum Akureyrar. Hugrúnu og fjölskyldu send- um við Hulda okkar innilegustu samúðarkveðjur. Stebba verður sárt saknað en minning um góð- an dreng mun lifa. Þórarinn B. Jónsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.