Morgunblaðið - 20.02.2016, Síða 60
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 51. DAGUR ÁRSINS 2016
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 838 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Hélt konunum í vinnuþrælkun
2. Fólkið í Vík er frá Sri Lanka
3. Sjaldséð álft á Tjörninni
4. Synti þrátt fyrir saurslys
Fimm hundruð kórsöngvarar
syngja í samsöng fyrir heimsfriði í
opna rýminu í Hörpu á morgun,
sunnudag, kl. 16.30. Sungin verða
fjögur lög við undirspil Magnúsar
Kjartanssonar, þeirra á meðal er lag-
ið „We are the World“.
Morgunblaðið/Ómar
Syngja í Hörpu í sam-
söng fyrir heimsfriði
Djasspíanóleik-
arinn Anna Gréta
Sigurðardóttir
lauk í gærkvöldi
tveggja vikna tón-
leikaferðalagi um
Svíþjóð með
sænsku stórsveit-
inni Norrbotten
Big Band. Sveitin
hefur gott orðspor og var tilnefnd til
Grammy-verðlaunanna 2011. Á efnis-
skrá tónleikaferðalagsins var tónlist
eftir unga og upprennandi tónlistar-
menn frá Norrbotten-svæðinu.
Tónleikaferðalagi í
Svíþjóð lauk í gær
Myndlistartvíeykið Libia Castro og
Ólafur Ólafsson eru þátttakendur í
viðamikilli sýningu, The Soul Of Mon-
ey, sem var opnuð í vikunni í DOX-
samtímalistasafninu í Prag. Frum-
sýna þau nýtt myndbandsverk sem
þau unnu ásamt texta-
höfundinum Nina Po-
wer og leikkonunni
Michelle Myers.
Meðal þeirra sem
eiga verk á sýning-
unni eru Thomas
Hirschhorn og Jirí
Georg Dokoupil.
Libia og Ólafur sýna
í listasafni í Prag
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 15-23 norðvestantil, annars hægari vindur og stöku él,
einkum syðst. Norðan 13-20 m/s í kvöld og snjókoma og skafrenningur fyrir norðan.
Á sunnudag Allhvöss eða hvöss norðanátt, jafnvel stormur suðaustanlands. Él eða snjó-
koma fyrir norðan, en úrkomulítið sunnantil. Frost 0 til 8 stig.
Á mánudag Hæg vestlæg eða breytileg átt og víða léttskýjað, en norðvestan 8-13 og
stöku él norðaustanlands fram eftir degi. Frost 3 til 12 stig, kaldast inn til landsins.
Deildarmeistaratitillinn er í aug-
sýn hjá Íslandsmeisturum KR en
liðið náði í gærkvöld fjögurra
stiga forskoti á Keflavík í topp-
sæti Dominos-deildar karla í
körfuknattleik. KR-ingar, nýkrýnd-
ir bikarmeistarar, tóku Keflvík-
inga í bakaríið á heimavelli sínum
og fögnuðu öruggum sigri,
103:87. »2
KR-ingar pökkuðu
Keflvíkingum saman
Íslandsmeistarar Gróttu
náðu í gærkvöld þriggja
stiga forskoti á toppi Olís-
deildar kvenna í handknatt-
leik þegar liðið hrósaði sigri
gegn Val, 23:21, í Vals-
höllinni en þetta var
fyrsti leikurinn í 20.
umferð deildarinnar.
Grótta hefur 35 stig, ÍBV og
Haukar hafa 32 en eiga leik
til góða og Valur er í fjórða
sæti með 30 stig. »3
Grótta náði 3ja
stiga forskoti
Fimleikafólki á Íslandi hefur fjölgað
um rúmlega 5.000 á aðeins fimm ár-
um, samkvæmt yfirliti ÍSÍ um fjölda
iðkenda í íþróttum sem birt var fyrr í
vetur. Þessi fjölgun er í al-
gjörum sérflokki sé horft
til allra greina. Skráðir
iðkendur í fimleikum
voru 8.136 árið
2010 en sam-
kvæmt nýjustu
tölum, vegna
íþróttaársins
2014, eru
þeir orðnir
13.138. Þar
með eru
fimleikar
orðnir þriðja
vinsælasta
íþróttagrein lands-
ins. »4
Gífurleg fjölgun iðkenda
í fimleikum síðustu ár
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Nokkrir Íslendingar hafa lært
verkfræði við Tækniháskólann í
München, TUM, í Þýskalandi og
ekki alls fyrir löngu heiðraði skól-
inn Einar Þorbjörnsson með svo-
kallaðri 50 ára Diploma-gullviður-
kenningu í sérstöku hófi sem hófst
með hátíðartónleikum með sinfón-
íuhljómsveit borgarinnar.
„Þetta hefur fyrst og fremst til-
finningalegt gildi,“ segir Einar,
„er viðurkenning á akademísku
gráðunni sem ég fékk á sínum
tíma og þakkir fyrir margra ára
stuðning og tryggð við skólann.“
Að loknu stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1958
fóru nokkrir nemendur úr árgang-
inum í verkfræðinám í TUM.
Tveir bættust í hópinn árið eftir,
þar á meðal Einar, sem útskrifað-
ist síðan sem byggingaverkfræð-
ingur 1965. „Sérstakt stúdenta-
gengi hafði mikið að segja en
vegna þess var dvölin ytra ódýrari
en ella,“ segir Einar. „Gengið var
mjög hagstætt fyrir okkur og við
komum vel út úr þessu en stúd-
entagengið var fellt niður 1965.“
Kynnin endurnýjuð
TUM byrjaði að heiðra fyrrver-
andi nemendur með þessum hætti
2009 og þá var Gunnar Torfason
verkfræðingur, sem útskrifaðist
frá skólanum 1959, á meðal þeirra
sem fengu gullviðurkenninguna. Í
kjölfarið var stofnað nemendafélag
á Íslandi, TUM Alumni á Íslandi.
Einar heimsótti skólann 2010 og
setti sig í samband við þá deild
sem undirbýr þessa árlegu hátíð.
„Ég hef verið í sambandi við þetta
fólk síðan og náð að endurnýja
kynni við fyrrverandi skólabræð-
ur,“ segir hann. Hann segir að
innra net skólans hafi komið að
góðu gagni í því sambandi auk
þess sem hann hafi verið í góðu
sambandi við starfsfólk skólans.
„Á hátíðinni 29. nóvember síðast-
liðinn hitti ég meðal annars einn
fyrrverandi nemanda, sem var
eldri en ég og orðinn doktor þegar
ég var að ljúka náminu, og það
voru miklir fagnaðarfundir.“
Þjóðverjar eru þekktir fyrir
mikinn aga, aðhaldið var mikið í
skólanum og Einar segist hafa
lært mikið af þeim. „Þetta var
strangur skóli og harður og sumir
þurftu að fara annað til þess að
ljúka námi,“ segir Einar, sem hef-
ur starfað óslitið í verkfræði síðan
hann útskrifaðist. „Ég lærði gífur-
lega mikla ögun, vandvirkni og
sjálfstæði í hugsun sem hefur
fylgt mér alla tíð síðan. Ég heyri á
mínum skólafélögum að þeir segja
það sama.“
Jóhannes Zoëga, fyrrverandi
hitaveitustjóri, fór til Þýskalands
1937 og lærði vélaverkfræði í
Tækniháskólunum í München og
Berlín og lauk prófi þaðan 1941.
Hann var einn fyrsti Íslendingur-
inn í TUM og síðan fylgdu fleiri í
kjölfarið. Einar segir að þegar
hann hafi heyrt frá hópnum, sem
fór 1958, hvílíkt himnaríki þetta
væri, hafi hann ekki þurft að
hugsa sig tvisvar um. Frændi
hans, sem hafi farið í skólann á
fjórða áratug liðinnar aldar til
þess að læra bjórverkfræði en
ekki lokið námi og farið aftur
heim, hafi líka hvatt sig til farar-
innar. „Ég ræddi við hann áður en
ég fór og hann var mjög spenntur
fyrir því að ég væri að fara út,“
rifjar Einar upp. „Þetta var líka
skemmtilegur tími.“
Stúdentagengið skilaði sínu
Einar Þor-
björnsson heiðr-
aður í München
Viðurkenning Dr. Wolfgang A. Hermann, rektor TUM, til hægri afhendir Einari Þorbjörnssyni skjalið.
Að loknu námi vann Einar Þor-
björnsson í München í tvö ár og
hefur síðan verið verkefnastjóri
fjölmargra verkefna og meðal
annars var hann forstjóri fast-
eignastjórnunardeildar hjá
stofnun um verklegar fram-
kvæmdir undir bandaríska sjó-
hernum á Keflavíkurflugvelli frá
1986-2006. Hann stofnaði Verk-
fræðiþjónustuna R.A.T. ehf.
(Ráð, Aðföng, Teymi) 2006.
Í hringiðunni
í hálfa öld
VERKFRÆÐINGURINN