Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.03.2016, Síða 8
Í PRÓFÍL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.3. 2016
VINSÆLL Zlatan Ibrahimović er réttnefnd þjóð-
hetja í Svíþjóð. Hann er ekki aðeins frábær í fótbolta,
líklega sá besti sem þjóðin hefur átt, heldur hefur
hann líka látið til sín taka á ýmsum sviðum þjóð-
félagsins. Og raunar á heimsvísu. Ibrahimović hefur
til dæmis verið mjög rausnarlegur í garð þeirra sem
minna mega sín. Frægt var þegar hann borgaði undir
allt sænska landsliðið, skipað fötluðum knatt-
spyrnumönnum, á heimsmeistaramótið í Brasilíu
2014. Nokkrir liðsfélagar hans höfðu gefið áritaðar
treyjur til styrktar ferðinni. Þá varð Ibrahimović að
orði: „Hvurn djöfulinn eiga menn að gera við treyj-
ur? Hvað kostar ferðin?“ Svo tók hann upp veskið.
Fyrir rúmu ári komst hann í heimsfréttirnar þegar
hann fór úr treyjunni eftir að hafa skorað fyrir PSG
gegn Caen. Kom þá í ljós að hann skartaði fimmtíu
nýjum húðflúrum sem samanstóðu af nöfnum
manna sem þjást af sulti víðsvegar um heiminn.
Húðflúrin voru ekki varanleg en boðskapurinn
komst til skila. Ibrahimović með gervihúðflúrin góðu fyrir rúmu ári.
Miskunnsami
Samverjinn
ZLATAN IBRAHIMOVIĆ vann það einstaka afrek í vikunni að verða
landsmeistari í knattspyrnu í þrettánda sinn á aðeins fimmtán árum.
Sænski landsliðsmaðurinn vann þá sinn fjórða meistaratitil á jafnmörgum
árum, með Paris Saint-Germain í Frakklandi. Ævintýrið hófst í Hollandi,
þar sem Ibrahimović vann sína fyrstu meistaratitla á ferlinum með Ajax,
2002 og 2004. Þaðan lá leið hans til Ítalíu, þar sem Ibrahimović varð
meistari fimm ár í röð, fyrst með Juventus og síðan Internazionale. Því
skal þó til haga haldið að báðir titlar voru síðar hrifsaðir af Juventus
vegna Calciopoli-hneykslisins, sem snerist um það að forsvarsmenn
Juventus og fleiri félaga voru handsamaðir af lögreglu fyrir að hafa haft
áhrif á val dómara vegna leikja. Veturinn 2009-10 lék Ibrahimović með
Barcelona og varð vitaskuld spænskur meistari. Líkaði þó vistin illa enda
lenti hann snemma upp á kant við knattspyrnustjóra liðsins, Pep Guard-
iola, og hefur sent honum ófáar pillurnar síðan. Í upphafi vetrar 2010-11
sneri hann aftur til Ítalíu og lenti nú í rauða helm-
ingi Mílanóborgar, hjá AC Milan. Bætti við sig ein-
um titli þar um vorið en árið 2012 gerðust þau und-
ur og stórmerki að Ibrahimović varð ekki
landsmeistari. Enda var hann fljótur að finna sér
nýjan vinnuveitanda, Paris Saint-Germain.
Hugsar sér til hreyfings
Eftir fjögur ár í París er orðrómur á kreiki þess
efnis að Ibrahimović hugsi sér til hreyfings. Það
yrði þá til annars lands. Aldurs hans vegna, en
kappinn verður 35 ára í haust, eru Bandaríkin og
Kína – stórveldi í öllum skilningi nema knattspyrnu-
legum – nefnd í því sambandi. England er einnig
sagt koma til greina og jafnvel Þýskaland, en þar á
Ibrahimović ennþá eftir að drepa niður fæti. Í Bún-
deslígunni myndi Ibrahimović án efa fúlsa við öllum
liðum nema Bayern München en erfiðara er að átta
sig á því hvaða félag hann myndi velja í Englandi,
en fá þeirra myndu líklega afþakka þjónustu hans í
ljósi sögunnar. Á tímum þegar allir eru kallaðir
meistarar er nefnilega til maður sem á þá virðulegu
nafnbót raunverulega skilið. Hann heitir Zlatan
Ibrahimović. orri@mbl.is
ÆVI Zlatan Ibrahimović fæddist
í Malmö 3. október 1981. For-
eldrar hans voru innflytjendur frá
gömlu Júgóslavíu og ólst Ibra-
himović upp við nauman kost og
nánast á jaðri samfélagsins í
Rosengård-hverfinu. Hann á tvö
alsystkini og þrjú hálfsystkini en
foreldrar hans skildu þegar hann
var tveggja ára. Ibrahimović hefur
lýst því að honum hafi fundist
hann landlaus í æsku, hvorki til-
heyra Króatíu, Bosníu né Svíþjóð.
Sambýliskona hans er Helena Se-
ger og eiga þau tvo syni. Max-
imilian, níu ára, og Vincent átta
ára.
Landlaus
í æsku
Ibrahimović á hér í höggi við Grétar Rafn Steinsson í landsleik Svía og Íslend-
inga. Hann verður í eldlínunni með Svíum á Evrópumeistaramótinu í sumar.
AP
FERILL Svo virðist sem Zlatan Ibrahimo-
vić verði bara betri með aldrinum. Þannig
rauf hann þrjátíu-marka múrinn á einu
tímabili fyrst þrítugur að aldri, með AC Mil-
an. Hefur haldið sig við það síðan; gert 35
mörk að meðaltali á tímabili hjá PSG. 41
mark gerði hann veturinn 2013-14 og er
þegar kominn með 35 mörk í vetur – og
mars er rétt hálfnaður. Og það í aðeins 38
leikjum. Sannarlega frábær árangur en ein-
hver gæti þó bent á, að franska deildin sé
ekki jafnsterk og sú ítalska eða spænska.
Sama á við um sænska landsliðið; meira
en helming marka sinna fyrir það hefur
Ibrahimović gert eftir þrítugt, 34 af 62.
Hann jafnaði met sitt yfir eitt alman-
aksár á síðasta ári þegar hann kom
tuðrunni 11 sinnum í netið með
landsliðinu. Alls hefur Ibrahimović
leikið 111 landsleiki fyrir Svíþjóð.
Ibrahimović fagnar marki á Internazionale-
árunum ásamt Luis gamla Figo.
Reuters
Skorað mest
eftir þrítugt
Meistari
Zlatan
AFP
Ibrahimović fagnar
enn einu markinu.
’Á tímum þegar allir eru kallaðirmeistarar er nefnilega til maður semá þá virðulegu nafnbót raunverulegaskilið. Hann heitir Zlatan Ibrahimović.
Zlatan Ibrahimović leikur listir sínar
með Paris Saint-Germain.
Mangójógúrt
Ástæða þess
að þú átt að velja
lífræna jógúrt!
• Engin aukefni
• Meira af Omega-3
fitusýrum
• Meira er af CLA fitusýrum
sem byggja upp vöðva
og bein
• Ekkert undanrennuduft
• Ánmanngerðra
transfitusýra
• Lífrænn hrásykur
Biobú ehf – s. 587 4500 – biobu@biobu.is – biobu.is