Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.03.2016, Síða 21
hefur mikinn metnað fyrir því að leikskóla-
lóðir séu skemmtilegar og ögrandi fyrir börn-
in.
Hún segir að það dugi ekki að þær séu stór-
ar með mörgum leiktækjum úr pöntunarlista.
„Lóðin þarf að bjóða upp á margvíslegan leik.
Steinn er ekki bara steinn heldur hefur marg-
víslega notkunarmöguleika. Gæði lóðarinnar
eru ekki mæld í fjölda leiktækja,“ segir hún og
ítrekar mikilvægi landmótunarinnar sjálfrar,
að boðið sé upp á krefjandi leiksvæði.
Leiksvæðin þurfa sannarlega að vera krefj-
andi en líka eru gerðar miklar kröfur um ör-
yggi.
„Við erum farin að setja mikið af gervigrasi
og gerviefnum. Starf landslagsarkitektsins er
orðið flóknara. Við þurfum að passa að steinn
sé ekki hærri en 60 cm en þá þarf fallundir-
lag,“ segir hún en með fallundirlagi er átt við
gúmmímottur, fallmöl, gervigras og tartan-
gúmmíefni. Hún segir þessi efni geta verið
skemmtileg því tartanið sé
til dæmis litríkt og geti sett
sterkan svip á skólalóðir.
Náttúrulegt umhverfi sé
líka mikilvægt og það verði
að vera til staðar.
„Eins og að geta rann-
sakað rjóður, jarðveginn og
lífríkið. Það er hægt að búa til alls konar leik-
umhverfi ef lóðin er nægilega stór til að bjóða
upp á það.“
Vantar meiri breidd í leiksvæðin
Hún segir að gott leiksvæði kosti auðvitað
nokkra fjármuni en segir það þess virði og vill
að búin séu til leiksvæði sem séu „ögrandi,
hvetjandi og skemmtileg og krakkarnir sæki
í“. Krefjandi leiksvæði sem bjóða upp á mikla
hreyfingu geti líka haft lýðheilsulegt gildi.
Hún segir að það vanti meiri breidd í leik-
svæði og nauðsynlegt sé að fara út fyrir
rammann, stíga út úr pöntunarlistunum.
Spennandi sé til dæmis að hafa leiksvæði með
mismunandi þemu. Til dæmis er leiksvæði
með aðgengi fyrir alla á Miklatúni með kastala
sem hentar börnum sem notast við hjólastól.
Annað dæmi er víkingaleikvöllur í Mosfellsbæ.
„Auðvitað þurfum við að hafa staðla og það
er mikilvægt að hafa þá en það þýðir ekki að
leiksvæði þurfi að vera steríl,“ segir hún og út-
skýrir að foreldrar þurfi að losa um sínar
hömlur og ekki kvarta við leikskólakennarana
þótt barnið komi skítugt heim. „Það er ekki
hægt að skipuleggja drullusvæði á leikskóla-
lóðunum ef foreldrarnir verða alveg brjálaðir.
Þá verður það svæði bara hellulagt og börnin
geta kannski hjólað á því í staðinn.“
Guðrún Birna ólst upp í sveit og hafði eins
og svo margir krakkar ánægju af því að
drullumalla. „Mér fannst frábært að fara í
drullubúið mitt; ég átti stórt drullubú og kom
haugaskítug inn en ég bara þvoði mér. Þetta
var ekkert vandamál. Ég lifði þetta af,“ segir
hún og hlær.
Sjónarmið barnanna í ferlið
Hún segir breiddina í landslagsarkitektúr
vera mikla. „Ef þú horfir út þá er allt um-
hverfi okkar skipulagt. Það eru landslags-
arkitektar sem koma að
mörgum flötum í að skipu-
leggja umhverfið ásamt
fleiri stéttum,“ segir hún en
félag íslenskra landslags-
arkitekta hefur verið starf-
andi í tæp 40 ár. Á þessum
tíma hefur stór hluti af
verkefnum þeirra snúist um börn. Hermann
Georg Gunnlaugsson, formaður FÍLA, skrif-
aði í inngangi í bæklingi um sýninguna á
Hönnunarmars: „Nýjasta nálgunin á síðustu
misserum er að fá betra sjónarmið barnanna
inn í hönnunarferlið. Sú leið er ekki auðfarin
en við vonum að sjónarmið barnanna fái að
njóta sín og nýir straumar dragi fram það
besta í leikumhverfi barnanna okkar,“ skrifar
Hermann Georg, sem vonar líka að „hags-
munir leikskólabarna fái að njóta vafans í
framtíðinni“.
En hvernig telur Guðrún Birna að leikvellir
framtíðarinnar eigi eftir að líta út?
„Auðvitað þurfum við alltaf að hafa einhver
leiktæki og þau eru líka krefjandi og skapandi.
En ég vona líka að við fáum að fara meira í
það að búa til drullukökur og geta haft náttúr-
una áþreifanlega og heyrt fuglasönginn á lóð-
inni. Ég vona að við stefnum í þá átt.“Hér er horfið aftur til náttúru ef svo má segja. Öðruvísi leiksvæði með steinum og stubbum.
Gæsluvellirnir eru hluti af sögu borgarinnar en hér má sjá einn í Seljahverfinu á árum áður.
’ Það er ekki hægt aðskipuleggja drullu-svæði á leikskólalóð-unum ef foreldrarnir
verða alveg brjálaðir.
Hér má sjá skemmtilega breytingu. Fyrir var þetta veggur sem var vart til prýði eða gagns en hér til
vinstri má sjá vegginn eftir að hann hefur breyst í litríkan klifurvegg, setsvæði og boltavegg.
Náttúruefni, hellur og leiktæki vinna saman í einni heild.
Ljósmynd/Reynir Vilhjálmsson
Ljósmynd/Landmótun
Ljósmynd/Landark
Ljósmynd/Landark
Ljósmynd/Landark
20.3. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21