Morgunblaðið - 23.03.2016, Side 10

Morgunblaðið - 23.03.2016, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2016 Hver sem er getur þvegið og skammtað þvottaefni. Aðeins einn gerir það fullkomlega. Upplifðu sjálfvirka sápuskömmtun með innbyggðu þvottaefni. Í Miele W1 með TwinDos tækni. *Eirvík mun gefa þér fríar ársbirgðir af UltraPhase 1 og 2 þvottaefni, ef þú kaupir Miele W1 með TwinDos tækni á tímabilinu 7. mars 2016 til 7. mars 2017. Ársnotkun er miðuð við 250 þvotta á ári. SVIÐSLJÓS Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Núverandi fjárveitingar nægja varla til að verja vegakerfið skemmdum og halda uppi viðunandi þjónustu. Frek- ari endurbótum er því frestað um sinn,“ segir í tillögu til þingsályktun- ar um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2015-2018 sem lögð hefur verið fram á Alþingi. Þar kemur fram að árleg fjárþörf til viðhalds og þjón- ustu þjóðvega sé metin um 11 millj- arðar króna, sé horft til lágmarksað- gerða í styrkingum og endurbótum. Samkvæmt þingsályktunartillögunni er áætlað að hækka árlegar fjárveit- ingar til viðhalds og þjónustu um um það bil 1,5 milljarða á ári miðað við fjárveitingu ársins 2014. Liðurinn Viðhald (5.10) nær til við- halds vegganga, bundins slitlags, malarvega, styrkingar og endurbóta, brúa og varnargarða, umferðarör- yggis, vatnsskemmda, girðinga, frá- gangs gamalla efnisnáma og minja og sögu. Á árinu 2015 var hann 6,4 millj- arðar, verður 5,9 milljarðar á þessu ári en sjö milljarðar 2017 og 2018. Það vantar því talsvert á að lág- marksþörf upp á 11 milljarða á ári sé mætt. „Þessi hærri tala, 11 milljarðar, er væntanlega 100% þörf. Það er eitt- hvað sem við höfum aldrei fengið,“ sagði Gunnar Gunnarsson, staðgeng- ill vegamálastjóra. „Við höfum gert okkur vonir um að fá 80% af þörfinni til að halda í horfinu en þetta nær því nú ekki heldur.“ Þess má geta að 80% af 11 milljörðum eru 8,8 milljarðar. – Getur Vegagerðin unað við það að fá ekki nægt fjármagn til að við- halda vegunum á tímum ört vaxandi ferðamannastraums og umferðar? „Ja, hvað er til ráða,“ spurði Gunn- ar. „Við gerum grein fyrir því hvað við teljum okkur þurfa til að hafa þetta í góðu lagi. Síðan er það Alþing- is að ákveða hvað það vill láta okkur hafa. Það var þó bætt við rúmum milljarði árin 2017 og 2018 og við er- um ánægðir með það svo langt sem það nær. En það veitti ekki af meiru til þess að við gætum tryggt að þessi verðmæti sem eru til, vegirnir, drabbist ekki niður. “ Bundið slitlag að gefa sig Í þingsályktunartillögunni er einn- ig fjallað um viðhald á bundnu slitlagi á stofnvegum, tengivegum og héraðs- vegum í tillögunni. Þá er bæði um að ræða viðgerðir á skemmdum sem verða og þarf að sinna með stuttum fyrirvara allan ársins hring og yfir- lögnum yfir eldri slitlög. Fram kemur að bundið slitlag á þjóðvegum var 5.452 km að lengd í lok árs 2014 og nálægt 36 milljónum fermetra. „Yfir 95% af umferðinni eru nú á bundnu slitlagi sem að stærstum hluta er klæðning. Malbik er nú einungis á þeim vegum þar sem mest umferð er og er aðeins á um 9% af flatarmáli bundins slitlags. Um- ferðarmörk milli klæðningar og mal- biks eru um þrjú þúsund bílar á sólar- hring (ÁDU). Um 50 km af vegum eru nú með klæðningarslitlagi en þyrftu að vera malbikaðir.“ Þá segir um viðhald bundna slit- lagsins að fram til ársins 2010 hafi ár- leg endurnýjun bundins slitlags sam- svarað 10-12% af flatarmáli eða 3,4-3,5 milljóna fermetra. Slitlag var því endurnýjað á 8-10 ára fresti. Hækkun á asfalti umfram annað verðlag olli því að fjárveitingar til við- halds á bundnu slitlagi nægja nú að- eins til endurnýjunar á 6-7% af flat- armáli á hverju ári. Slitlagið er því ekki endurnýjað nema á 12-14 ára fresti, sem er langt umfram ending- artíma slitlaganna. Vegakerfið liggur undir skemmdum  Fjárveitingar nægja varla fyrir viðhaldi og þjónustu  Frekari endurbótum frestað um sinn  Yfir 95% af umferðinni eru á bundnu slitlagi  Eðlileg endurnýjun bundins slitlags er langt á eftir áætlun Morgunblaðið/BFH Mývatnsheiði Bundið slitlag er á stórum hluta vegakerfisins. Ekki hefur verið hægt að sinna eðlilegu viðhaldi á því. Fjárhæðir til veg- og hafna- áætlunar á árinu 2015 eru samkvæmt fjárlögum og fjár- aukalögum þess árs. Fjárhæðir fyrir árið 2016 eru einnig í samræmi við samþykkt fjár- lög. Vegagerðin hafði til ráðstöf- unar samtals um 25 milljarða króna í fyrra, þ.e. greiðslur úr ríkissjóði auk sértekna. Á þessu ári hefur hún úr um 24,2 milljörðum að spila. Áætl- að er að Vegagerðin muni hafa 29,1 milljarð til ráðstöfunar ár- ið 2017 og 29,2 milljarða 2018. Hækkar á næsta ári RÁÐSTÖFUNARFÉ Guðni Einarsson gudni@mbl.is Unnið er að undirbúningi ýmissa framkvæmda á sviði samgangna sem þó eru enn utan áætlunar, að því er fram kemur í þingsályktunar- tillögu að fjögurra ára Samgöngu- áætlun 2015-2018. Varðandi vegi á Suðurlandi er lagt til að hafinn verði undirbún- ingur nýs vegar norðaustan Selfoss með nýrri brú á Ölfusá. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir geti hafist kringum árið 2020 og að þær taki um fjögur ár. Einnig er lagt til að gerður verði 2+1 vegur með að- skildum akbrautum á kaflanum milli Selfoss og Hveragerðis. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist 2017. Tillaga er gerð um lagningu bundins slitlags á uppbyggðan kafla á Kaldadalsvegi milli Uxahryggja og Sandkluftavatns. Vegarkaflinn tengir Þingvelli og Vesturland. Á höfuðborgarsvæðinu er lagt til að tvöfalda vegarkaflann milli Langatanga og Skarhólabrautar í Mosfellsbæ. Vegurinn er nú þrjár akreinar. Einnig er lagt til að fram- kvæmdir við gerð 2+1 vegar á Kjal- arnesi hefjist árð 2018. Lagt er til að breikka vegamót Hafnarfjarðarvegar og Vífils- staðavegar þannig að þau verði þrjár akreinar í hvora átt. Einnig að hafnar verði framkvæmdir við tvöföldun Reykjanesbrautar frá Kaldárselsvegi suður í Hvassahraun á næsta ári. Stefnt er að því að í fyrsta áfanga verði gerð mislæg gatnamót við Krýsuvíkurveg. Á Vestursvæði er tillaga um að unnið verði að endurgerð Uxa- hryggjavegar og hann lagður bundnu slitlagi. Framkvæmdir við Vestfjarðaveg um Gufudalssveit geta í fyrsta lagi hafist í haust. Þegar nýtt umhverf- ismat hefur farið fram þarf að fara í verkhönnun. Hringvegurinn styttist Lagt er til að farið verði í endur- gerð rúmlega 30 km Vestfjarða- vegar um Dynjandisheiði á næsta ári. Unnið verði að snjóflóðavörnum í Súðavíkurhlíð á þessu ári og næsta. Rekin verða niður stálþil til að fanga snjóflóðin. Á Norðursvæði er m.a. fjárveit- ing ætluð til þess að undirbúa fram- kvæmdir við endurgerð brúa á Jök- ulsá á Fjöllum og Skjálfandafljóti. Einnig á að undirbúa endurgerð vegarins frá hringveginum að Laxá og Þverárfjallsvegi. Á Austursvæði er fjárveiting ætl- uð til endurgerðar hringvegarins frá Skriðuvatni að Axarvegi á árinu 2018. Einnig er fjárveiting ætluð til framkvæmda við endurgerð hring- vegar um Berufjarðarbotn á ár- unum 2016-2018. Gert er ráð fyrir að legu hring- vegarins í Hornafirði verði breytt í samræmi við aðalskipulag. Við það mun vegurinn mun styttast um 11 km. Lagt er til að framkvæmdir hefjist árið 2017 og má gera ráð fyr- ir að þær taki a.m.k. þrjú ár. Einnig er lagt til að brú á Morsá komi í stað Skeiðarárbrúar. Verkið verði unnið á þessu ári og því næsta. Lagt er til að framkvæmdir við Borgarfjarðarveg hefjist árið 2018. Mörg vegaverkefni komin á teikniborðið  Vegaframkvæmdir eru fyrirhugaðar víða um landið Morgunblaðið/RAX Hornafjörður Breyta á legu hringvegarins og smíða nýja brú.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.