Morgunblaðið - 23.03.2016, Qupperneq 13
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Þjálfun Már Jóhannsson tekur heldur betur á því hér í Blackbox Iceland. Lýsa má æfingunum sem blöndu af
Crossfit og Boot Camp, en auk lyftinga er einnig mikið unnið með eigin líkamsþyngd.
áratug en lýsir sjálfum sér sem só-
fakartöflu fyrir þann tíma. „Ég fór
úr því að vera sófakartafla í engu
formi í að hlaupa maraþon og taka
þátt í þrekmótaröðum og sigra.
Síðan 2007 er ég búinn að gera alls
konar tilraunir, bæði með matar-
æði og hreyfingu, og finna hvað
hentar mér best. Ég er þannig
týpa að ég þrífst í „action“.“
Æfingarnar í Blackbox eru því
krefjandi, en Daníel segir að á
sama tíma séu gerðar gríðarlegar
kröfur um að fólk hlusti á líkama
sinn. „Eflaust má gagnrýna eitt-
hvað af æfingunum, en það á við
um allar æfingar.“
Andlegt og
líkamlegt samspil
„Við blöndum saman hinu
líkamlega og andlega í þjálfuninni.
Styrkur og hvernig þú berð þig
líkamlega hefur rosalega mikil
áhrif á sjálfsöryggi. Það að vera
bæði í líkamlega og andlega góðu
formi er baneitruð blanda,“ segir
Freyr, sem hefur kennt sviðs-
framkomu og almenna framkomu
og nýtir þá reynslu í þjálfun sinni.
Klúbburinn tekur vel á móti
byrjendum en Daníel segir að þeir
verði að vera tilbúnir að finna að-
eins fyrir því. Þá sé það kostur að
æfingahúsnæðið er opið allan sól-
arhringinn. „Við viljum bjóða upp
á að fólk geti komið og farið eins
og því þóknast. Hvort sem það er í
engu formi, einhverju formi eða
framúrskarandi formi.“
Daníel segir jafnframt að fólk
megi eiga von á hinu óvænta á æf-
ingum, og þurfi því að vera
óhrætt. „Maður finnur þegar mað-
ur eldist að stopparinn hjá manni
gerir oftar vart við sig. Hjá Black-
box viljum við því að fólk komi sér
af stað og láti ekki hitt og þetta
stoppa sig. Vont veður á ekki að
stoppa þig í að taka æfingu. Þetta
snýst um sjálfsöryggi sem kemur
með líkamlegri þjálfun, auk trúar á
sjálfan sig.“
„Smiðirnir voru
alltaf í kaffi“
Freyr er í stjórn Blackbox en
hann er einnig í forsvari fyrir Cof-
fee and Clean viðburðinn sem
haldinn er af Blackbox einn föstu-
dag í mánuði.
Allir eru velkomnir hvort sem
um meðlimi er að ræða eða ekki.
Fólk hittist, drekkur saman kaffi
og fer svo í beinu framhaldi og
lyftir saman. „Klúbburinn varð til
því að okkur langaði að bjóða fólk
velkomið, meðlimi og áhugasama.
Við vorum með opið hús og þetta
byrjaði út frá léttu gríni sem sner-
ist um það að smiðirnir sem gerðu
húsnæðið upp, og eru flestir með-
limir í dag, voru alltaf í kaffi,“ seg-
ir Freyr og hlær. „Það fyrsta sem
kom inn í húsnæðið var til dæmis
risastór kaffivél. Svo kom þetta
nafn upp: Coffee and Clean.“
Coffee and Clean er opinn öll-
um og það kostar ekkert að taka
þátt. „Hér kemur fólk því til að fá
sér kaffi, sem er auðvitað örvandi,
og nýtir svo orkuna í að lyfta. En
við pössum upp á að allir séu vel
upphitaðir, Danni sér til þess,“
segir Freyr.
Upphaflega átti þetta bara að
vera eitt skipti en fljótlega kom
upp krafa um að halda kaffi- og
lyftingaviðburðinum gangandi.
„Þetta er skemmtilegt gæluverk-
efni og við munum því halda þessu
áfram.“ Nafnið, Coffe and Clean,
vísar að sjálfsögðu til kaffidrykkj-
unnar, en einnig í ákveðna tegund
af lyftingaæfingu, Clean, þegar
stöng er lyft frá gólfi og er til í
nokkrum útfærslum.
Öll hreyfing er af hinu góða
Freyr segir að framtíðarsýn
klúbbsins sé að byggja upp starfið
sem þar fer fram. „Eins og með öll
samfélög mun það taka breyt-
ingum og við búumst alveg við því.
Við munum halda áfram að byggja
upp námskeiðin hjá okkur og þróa
þau og virkni þeirra.“
Margar af æfingunum sem
stundaðar eru í Blacbox byggjast á
lyftingum og aðspurður hvað sé
svona gaman við að lyfta segir
Freyr að þar spili góða formið sem
maður kemst í við lyftingar vel inn
í. „Formið sem maður kemst í
verður hluti af tilverunni, maður
sefur betur og ber sig betur, og
þannig verður allt miklu betra.
Það skiptir samt auðvitað máli að
stilla öllu í hóf. Hóflegar æfingar
skila manni bestum árangri til
lengri tíma.“
Daníel segir að markmið
Blackbox klúbbsins sé að
fólk mæti aftur og aftur.
„Hreyfingin á að verða
hluti af lífsstílnum. Við
viljum þurrka út allar af-
sakanir. Við ætlumst auk þess til
þess að fólk sé með ákveðið
markmið í æfingum sínum.
Hreyfing er alltaf hreyfing
og hún er öll af hinu góða.“
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2016
sem límt var á
vatnsrör á húsi.
Þegar GPS-tækið
segir að maður
sé „heitur“ þarf
virkilega að
kemba svæðið –
sem getur verið
mjög tímafrekt.
Ég hef gert marg-
ar tilraunir til að
finna fjársjóð
sem samkvæmt vísbendingum er
falinn í Kirkjuholtinu í Kópavogi og
sett hendurnar í ábyggilega hundrað
holur, en ekki haft annað upp úr
krafsinu en hamborgarabréf og
köngulóarvefi.“
Fjársjóðirnir eru yfirleitt ekki upp
á marga fiska, enda segir Rune að
mestu máli skipti að hafa gaman af
leiknum. „Ég fann einu sinni Stjána
bláa fígúru hjá Egilsstöðum með
kóða sem maður átti að slá upp í
appinu til þess að fá ferðasöguna
og skilaboð þess sem hafði upp-
haflega sett kappann í leikinn. Sá
faldi Stjána í Þýskalandi með ósk
um að hann kæmist til Hollywood,
finnandinn tæki mynd af honum við
Hollywood-skiltið og sendi hann aft-
ur til Þýskalands. Þegar ég fann
Stjána hafði hann verið í Hollywood,
ég sendi hann því áleiðis til Þýska-
lands og faldi hann í Danmörku. Því
miður vantaði á hann hausinn,
kannski hann hafi týnt honum í
Hollywood.“
Fjársjóður Box sem fannst bak við
vatnsrennu á húsi í Kaupmannahöfn.
Laskaður Stjáni blái fannst hauslaus
í gjótu rétt hjá Egilsstöðum.
Rune Koldborg
Jensen
Hjá Blacbox Iceland er boðið
upp á fjölbreyttar æfingar sem
henta öllum, en iðkendur verða
þó að vera tilbúnir til að takast
á við ýmsar áskoranir.
Blacklight – Tímar fyrir fólk
sem vill góða hreyfingu á stutt-
um tíma. „Tímarnir eru 40 mín-
útur en fólk getur verið fullvisst
um að fá helling út úr tímanum,
þar sem fyrst og fremst er unn-
ið með eigin líkamsþyngd,“ seg-
ir Freyr.
Blackout – Fyrir þá allra
hörðustu. „Lýsa má tímanum
sem Boot Camp og Crossfit á
sterum. Við gerum kröfur um að
þeir sem sæki þau námskeið
séu í ágætis formi fyrir. Á þessu
námskeiði erum við helst að
fara yfir þröskuldinn, líkamlega
og andlega.“
Black Ops – Opnir tímar fyr-
ir alla meðlimi Blackbox. „Æf-
ingakerfið á þessu námskeiði er
byggt á áralangri þekkingu
þjálfara okkar á Crossfit.
Áhersla á styrk, vandaðar
ólympískar lyftingar, fimleika,
þéttar þrek-
æfingar og
gleði.“ Nám-
skeiðið er
alltaf í gangi
svo hægt er að
mæta
þegar
hentar.
Blanda af
Crossfit og
Boot Camp
FJÖLBREYTTAR ÆFINGAR
Frelsi Æfinga-
húsnæðið er opið
allan sólarhringinn.
Fræðslusjóðs til þróunar og nýsköpunar í framhaldsfræðslu
Styrkir
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
Fræðslusjóði vegna nýsköpunar- og þróunarverkefna í framhaldsfræðslu,
sbr. lög um framhaldsfræðslu nr. 27/2010.
Forgangssvið við úthlutun árið 2016 eru:
Þróun kennsluhátta innan framhaldsfræðslu þar sem sjónum er beint að starfi
kennara í framhaldsfræðslu, kennslufræði fullorðinna, námsmati, notkun námsefnis,
námsumhverfi, kennsluaðferðum og notkun upplýsingatækni.
Raunfærnimat í atvinnulífinu sem byggist á hæfnigreiningu starfa.
Nýjar leiðir til að kynna framhaldsfræðslu með það að markmiði að ná til þeirra
einstaklinga innan markhóps framhaldsfræðslu sem síst afla sér menntunar.
Opið gagnvirkt námsefni sem nýtist sérstaklega í vottuðum námsleiðum
framhaldsfræðslu, einkum með áherslu á að efla grunnleikni.
Við mat á umsóknum verður litið til þess hvernig verkefni fellur að markmiðum í
2. grein laga um framhaldsfræðslu og hvort umsækjandi hafi sýnt fram á faglega
þekkingu og reynslu til að vinna verkefni sem sótt er um styrk til.
Einnig verður skoðað hvort verkefni:
hafi skýr skilgreind markmið og vel skilgreinda verkefnastjórn,
mæti sýnilegri þörf fyrir menntunarúrræði í framhaldsfræðslu,
feli í sér nýsköpun eða þróun sem nýtist markhópi framhaldsfræðslu,
feli í sér samstarf og að framlag samstarfsaðila sé tryggt og vel skilgreint,
hafi skýra kostnaðar-, verk- og tímaáætlun,
sé líklegt til að skila hagnýtri afurð og verði vel kynnt.
Tekið er á móti umsóknum til og með 27. apríl 2016.
Eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi. Umsóknareyðublað, lög um framhaldsfræðslu
nr. 27/2010 og nánari upplýsingar um vinnuferli og viðmið vegna styrkumsóknar má nálgast á vef
Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, www.frae.is. Þar eru einnig upplýsingar um fyrri úthlutanir til
þróunar og nýsköpunar í framhaldsfræðslu.