Morgunblaðið - 23.03.2016, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2016
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is
Ísnet Húsavík s. 5 200 555
Ísnet Akureyri s. 5 200 550
Kristbjörg Ólafsfjörður s. 5 200 565
Ísnet Sauðárkrókur s. 5 200 560
Hafðu samband og
kynntu þér vöruúrvalið
og þjónustuna
Vertu viðbúinn vetrinum
Mest seldu snjókeðjur á Íslandi
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
plankaparket
Verðdæmi:
190 mm Eik Rustik burstuð
mattlökkuð 6.990.- m2
Vaðlaheiðargöng lengdust um 29
metra í síðustu vinnuviku. Eingöngu
er borað og sprengt frá Eyjafirði en
vonast er til að hægt verði að hefja
sprengingar Fnjóskadalsmegin á
næstu vikum.
Verktakinn fer varlega vegna hita
og vatns sem er í berginu og mikla
vinnu þarf að leggja í að þétta bergið
áður en borað er og sprengt, til að
tryggja að ekki opnist vatnsæð inn á
vinnusvæðið. Hitinn í berginu er nú
um 57 gráður sem er minna en þegar
mest var.
Slegið í gegn fyrir árslok
Samhliða greftri Eyjafjarðarmegin
er verktakinn, Ósafl, að undirbúa að
hefja borun og sprengingar Fnjóska-
dalsmegin en þaðan þurfti ganga-
gengið að forða sér vegna hruns og
mikils vatnsflaums fyrir tæpu ári.
Gera þarf miklar ráðstafanir til að
undirbúa örugga vinnu þeim megin.
Valgeir Bergmann, framkvæmda-
stjóri Vaðlaheiðarganga, bindur vonir
við að hægt verði að hefja borun þar
eftir um það bil tvo mánuði. Þá verð-
ur grafið frá báðum stöfnum, eins og
áformað var í verkáætlun, og verkið
þokast þá væntanlega hraðar áfram.
Að undanförnu hafa göngin lengst
um 20-30 metra flestar vikur en ein-
staka vikur hefur gengið betur.
Gangi áætlanir eftir, og annað bor-
gengi getur tekið til starfa Fnjóska-
dalsmegin, má reikna að það takist að
slá í gegn fyrir árslok, um ári síðar en
gert var ráð fyrir.
Síðan þarf að vinna að frágangi og
vegarlagningu í gegn og það mun
taka eitt til eitt og hálft ár. helgi@mbl.is
Undirbúa komu annars bor-
gengis Fnjóskadalsmegin
Göngin lengjast
um 30 metra á viku
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Göng Enn lekur vatn inn í göngin, Fljótsdalsmegin, en unnið er að úrbótum.
Embætti ríkissaksóknara er aðeins
með eitt mál til meðferðar sem endur-
upptökunefnd hefur samþykkt að
taka fyrir að nýju. Um er að ræða svo-
nefnt barnahristingsmál (e. shaken
baby syndrome) þar sem dagfaðir var
sakaður um að hafa verið valdur að
dauða barns í hans umsjón.
Það mál er til meðferðar við
Hæstarétt en beðið er eftir niður-
stöðu yfirmatsmanna sem eiga að
framkvæma yfirmat á mati enska
læknisins dr. Wany Squier.
Squier hefur sem kunnugt er verið
svipt lækningaleyfi í Bretlandi en Sig-
ríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksókn-
ari segir óljóst hvaða áhrif þær fregn-
ir hafa á málið. „Það verður skoðað
hér við embættið hvort og þá hvernig
brugðist verður við þessum tíðindum.
Það er ljóst að niðurstaða endurupp-
tökunefndar byggðist eingöngu á
mati dr. Squier,“ segir Sigríður í svari
til Morgunblaðsins og mbl.is í gær.
Sigríður sendi jafnframt bréf sem
fór til endurupptökunefndar í febrúar
2015, þegar nefndin var með beiðni
um endurupptöku barnahristings-
málsins til meðferðar. Mótmælti rík-
issaksóknari því að málið yrði tekið
aftur upp og taldi ekki efni til frekari
gagnaöflunar. Ítrekaði saksóknari
það álit sitt að dagfaðirinn hefði verið
réttilega sakfelldur fyrir manndráp af
gáleysi með dómi Hæstaréttar árið
2003. Með bréfinu til nefndarinnar
lagði saksóknari fram umfjöllun í vef-
ritinu MailOnline í september 2014,
þar sem dr. Waney Squire var sökuð
um að gefa vitnisburð í „shaken
baby“-málum umfram það sem hún
hefði þekkingu á. Sem sérfrótt vitni í
sex dómsmálum á árunum 2007-2010
hefði hún brugðist því hlutverki að
vera óhlutdræg. Þrátt fyrir þetta bréf
saksóknara samþykkti endurupp-
tökunefnd að taka málið upp aftur
fyrir Hæstarétti.
Með eitt mál til
endurupptöku
Byggðist eingöngu á mati dr. Squire
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Arnarlax hefur sótt um fram-
kvæmdaleyfi hjá Bolungavíkurkaup-
stað til þess að undirbúa sjókvíaeldi
á laxi í utanverðu Ísafjarðardjúpi og
í Jökulfjörðum. Við utanvert Ísa-
fjarðardjúp er sótt um þrjú eldis-
svæði sem eru út af Drangsvík,
Eyjahlíð og Óshlíð. Í Jökulfjörðum
er einnig sótt um þrjú eldissvæði
sem eru út af Öskjuhlíð, Staðarhlíð
og Gathamri.
Fram kemur í tilkynningu frá Bol-
ungarvíkurkaupstað að eldið verði
kynslóðaskipt þar sem eitt af eldis-
svæðunum er ávallt hvílt en sótt er
um 10 þúsund tonn á hvoru svæði.
Þá segir að Arnarlax hafi óskað
eftir því við Skipulagsstofnun að fyr-
irtækið fái óháðan, þriðja aðila til að
gera umhverfismat fyrir þessar tvær
framkvæmdir.
Eins segir að áætlanir geri ráð
fyrir að fiskur fari í sjó árið 2018 og
fyrsta slátrun verði árið 2020. Áætl-
anir gera einnig ráð fyrir fóður-
geymslu, sláturhúsi og athafnasvæði
við Bolungarvíkurhöfn.Fram kemur
að haldin verður kynning fyrir íbú-
um Bolungavíkur á næstu misserum.
„Arnarlax hóf undirbúning að lax-
eldi á Bíldudal árið 2008 en eiginleg
starfsemi hófst árið 2014. Í vetur
hefur fyrirtækið verið að slátra laxi
úr fyrstu kynslóð. Önnur kynslóð er í
eldiskvíum og undirbúningur fyrir
uppsetningu kvía fyrir þriðju kyn-
slóð er hafinn. Hjá fyrirtækinu
starfa í dag alls 40 starfsmenn en
fyrirtækið rekur einnig seiðaeldis-
stöð í Tálknafirði.
Bæjarráð Bolungarvíkur fagnar
þessum áformum og býður fyrirtæk-
ið Arnarlax velkomið til Bolungar-
víkur,“ segir í tilkynningu.
Sækja um leyfi
fyrir sjókvíar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bolungarvík Arnarlax hefur sótt um
framkvæmdaleyfi til sjókvíaeldis.
Arnarlax vill hefja sjókvíaeldi á laxi
Sex eldissvæði á tveimur stöðum