Morgunblaðið - 23.03.2016, Síða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2016
!"#
!"
$!!
"!
#
!
#
"%
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%
$
!$
$$!
"$#
"#
$$#
!
$
"%$
#
!
!!
$$ "
"$$
$
!!
#
"%
$!
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Vísitala kaupmáttar launa hækkaði um 2,8% í febrúar frá
mánuðinum á undan, samkvæmt mælingu Hagstofu Íslands.
Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað
um 10,2%.
Launavísitalan hækkaði um 3,5% í febrúar frá fyrri mánuði
og hefur launavísitalan hækkað um 12,6% síðastliðna tólf
mánuði. Í vísitölunni gætir áhrifa kjarasamninga aðildarfélaga
ASÍ við Samtök atvinnulífsins frá því í janúar, þar sem samið
var um 6,2% almenna launahækkun frá 1. janúar 2016.
Launavísitalan hækkaði um 3,5% í síðasta mánuði
Samið Áhrifa Salek
gætir í launavísitölu.
● Viðurlaganefnd Nasdaq Iceland hefur
ákveðið að áminna beri Icelandair
Group opinberlega vegna atvika þar
sem félagið er talið hafa brotið gegn
reglum um innherjaupplýsingar. Þá
greiðir félagið févíti að upphæð 1,5
milljónir króna. Var félagið talið hafa
látið undir höfuð leggjast að birta upp-
lýsingar er vörðuðu fyrirhuguð flugvéla-
kaup en ákvörðun þar að lútandi var tal-
in verðmótandi fyrir hlutabréf
Icelandair Group.
Áður hafði FME sektað félagið vegna
sama máls um 10 milljónir króna og var
sá úrskurður staðfestur af Héraðsdómi
Reykjavíkur.
Icelandair áminnt af
Kauphöll og sætir févíti
STUTTAR FRÉTTIR ...
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Rétt um hundrað manns sóttu um
starf hjá eftirlitssviði Ríkisskatt-
stjóra fyrr í mánuðinum. Það er svip-
aður fjöldi og sótti um stöður hjá
eftirlitinu í ársbyrjun.
Skúli Eggert Þórðarson ríkis-
skattstjóri segir fjóra hafa verið
ráðna til eftirlitsins í byrjun ársins
og að nú verði fimm bætt við, þar af
þremur í sumarafleysingar.
Hæsta hlutfallið í nokkurn tíma
Með þessari viðbót munu tæplega
40 starfa við skatteftirlit hjá Ríkis-
skattstjóra. Hefur ekki hærra hlut-
fall starfsmanna embættisins starfað
við skatteftirlit á síðustu árum.
Skúli Eggert segir ráðningarnar
skýrast af þeirri ákvörðun yfir-
stjórnar embætt-
isins að efla skatt-
eftirlit, „með
hliðsjón af þörf“.
„Þar erum við á
varðbergi gagn-
vart svartri at-
vinnustarfsemi
og síðan er virðis-
aukaskatturinn
langmikilvægasti
tekjustofninn og
kallar á stöðugt eftirlit. Við höfum
því aukið eftirlit með virðisauka-
skattsskilum. Þetta er unnt að gera
eftir sameiningu skattembætta og
með því að færa mannafla til eftir
þörfum,“ segir Skúli Eggert.
Árið 2010 sameinuðust embætti
níu skattstjóra embætti Ríkisskatt-
stjóra. Við það urðu starfsmenn hjá
sameinuðu embætti 274. Unnið
hefur verið að fækkun starfsmanna í
samræmi við fjárveitingar og eru
starfsmenn nú 35 færri.
Lögfræðingar sækja í störfin
Skúli Eggert segir lögfræðinga og
viðskiptafræðinga fjölmenna í hópi
umsækjenda um stöður hjá embætt-
inu. Hann segir að nánast öllum um-
sækjendum sem uppfylla skilyrði
auglýsingar sé gefinn kostur á fimm
mínútna örkynningu þar sem við-
komandi fer yfir reynslu sína og
þekkingu og annað sem getur
gagnast í starfi. Að loknum slíkum
viðtölum sé tekin ákvörðun um form-
leg starfsviðtöl, þar sem horft er til
fyrri starfa, menntunar, framkomu
og annarra atriða. Síðan er hópurinn
þrengdur. Mikilvægt sé að gæta
réttra aðferða við ráðningarferlið og
að unnið sé skv. stjórnsýslulögum.
Ríkisskattstjóri bætir við
starfsfólki í skatteftirliti
Um 40 munu starfa við eftirlit Um 100 sótt um störfin
Skúli Eggert
Þórðarson
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Ice-
landair Group, var valinn viðskipta-
fræðingur ársins 2016 á Íslenska
þekkingardeginum sem Félag við-
skiptafræðinga og hagfræðinga
(FVH) stóð fyrir á mánudaginn.
Íslandsbanki varð fyrir valinu sem
þekkingarfyrirtæki ársins 2016 fyrir
metnaðarfullt starf innan bankans á
sviði mannauðsmála, en þema þekk-
ingarverðlaunanna í ár var „mann-
auðsmál í víðum skilningi“.
Sérstök dómnefnd á vegum FVH
heimsótti nokkur fyrirtæki og valdi
að lokum þrjú sem þóttu hafa skarað
framúr á sviði mannauðsmála. Auk
Íslandsbanka voru tilnefnd upplýs-
ingatæknifyrirtækið Kolibri og
Reiknistofa bankanna.
Stjórn FVH valdi viðskiptafræð-
ing ársins, meðal annars eftir til-
nefningar frá félagsmönnum í gegn-
um tölvupóstlista félagsins.
Niðurstaða stjórnarinnar var að út-
nefna Björgólf Jóhannsson fyrir
góðan árangur við stjórn á einu
stærsta og mikilvægasta fyrirtæki
landsins, Icelandair Group.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands og verndari Íslensku þekk-
ingarverðlaunanna, afhenti þau og
heiðraði viðskiptafræðing ársins.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Heiðraður Björgólfur Jóhannsson veitir viðurkenningunni Viðskiptafræð-
ingur ársins móttöku úr hendi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands.
Björgólfur valinn við-
skiptafræðingur ársins
á fallegum, notalegum stað á
5. hæð Perlunnar.
ERFIDRYKKJA
Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is
Pantanir
í síma
562 0200
Handgerð páskaegg úr
gæðasúkkulaði.
Eggin eru fyllt með
handgerðu konfekti
og málshætti
Súkkulaðie
gg
fyrir sælkera
MOSFELLSBAKARÍ