Morgunblaðið - 23.03.2016, Side 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2016
✝ Guðrún Jóns-dóttir fæddist í
Geirshlíð í Flókadal
29. apríl 1920. Hún
lést á bráðadeild
Landspítalans 14.
mars 2016.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin í
Geirshlíð, Vilborg
Jóhannesdóttir, f.
1885, d. 1984, og
Jón Pétursson, f.
1887, d. 1964. Systkini hennar
voru: Ljótunn, f. 1914, d. 2008,
Pétur, f. 1917, d. 1979, Anna
Katrín, f. 1920, d. 2015, Sigríður
M., f. 1923, d. 1992, og Jóhannes
f. 1928, d. 2001.
Guðrún giftist Sigurði Þor-
valdssyni 14. september 1946.
Sigurður fæddist á Skúms-
stöðum í Vestur-Landeyjum 28.
júlí 1921, hann lést 9. febrúar
2010. Foreldrar hans voru Ólöf
Jónsdóttir, f. 1884 í Hlíð í Skaft-
ártungu, Vestur-Skaft., d. 1938,
og Þorvaldur Jónsson, f. 1885, í
Hemru í sömu sveit, d. 1962. Þau
bjuggu síðan á Skúmsstöðum í
Landeyjum.
Börn þeirra eru:
1) Sigrún hjúkrunarfræð-
ingur, f. 2. desember 1946.
Maður hennar er Magnús R.
Jónasson læknir, f. 1948. Börn
þeirra eru: a) Haukur Rúnar, f.
1975, og b) Ólöf, f. 1977. Dóttir
Ólafar er Klara Lopes, f. 2013.
2) Vilborg hjúkrunarfræð-
ingur, f. 16. febrúar 1949. Maður
hennar er Guðmundur S. Gunn-
laugsson skrifstofumaður, f.
1947. Börn þeirra eru: a) Steinn,
f. 1972. Kona hans er Elín Hall-
grímsdóttir. Börn þeirra eru:
Þórdís Elín, f. 2002, Hildur, f.
2005, og Vilborg Júlíana, f. 2007.
b) Sigurður Þór, f. 1977. Kona
hans er Angelica
Gil Gonzales. Börn
þeirra eru: Albricia,
f. 2012, og Íris, f.
2014. c) Guðrún
Þórdís, f. 1982. Eig-
inmaður hennar er
Garðar Páll Gísla-
son. Börn þeirra
eru: Gísli Baldur, f.
2007, og Elísabet
Ólöf, f. 2013.
3) Ólöf, f. 14. júní
1950, sérkennari.
4) Jón vélstjóri, f. 31. desem-
ber 1951. Uppeldissonur hans
var Hrannar, f. 1976, d. 2002.
5) Jökull tæknifræðingur, f.
28. janúar 1955, d. 1997. Eftirlif-
andi kona hans er Sigríður Kr.
Kristjánsdóttir þroskaþjálfi, f.
1956. Börn þeirra eru: a) Tinna,
f. 1978. Maður hennar Óli Þór
Atlason. Börn þeirra eru: Edda,
f. 2012, og Sólveig, f. 2014. b)
Orri, f. 1984. Kona hans er María
Jónasdóttir. Börn þeirra eru:
Katrín, f. 2013, og Hlín, f. 2015.
c) Sunna, f. 1988.
Guðrún ólst upp hjá for-
eldrum sínum í Geirshlíð við al-
geng sveitastörf. Hún var í far-
skóla í sveitinni og síðan á
Reykholtsskóla. Einnig var hún
einn vetur á Kvennaskólanum á
Hverabökkum. Eftir að hún fór
úr foreldrahúsum vann hún við
ýmis störf sem á þeim tíma buð-
ust sveitastúlkum. Eftir að hún
giftist helgaði hún störf sín upp-
eldi barna og heimilishaldi á fjöl-
mennu heimili, fyrst í Mávahlíð
en síðan reistu þau hús í Stóra-
gerði 9 í samvinnu við bróður
Guðrúnar og bjó hún þar til
dauðadags. Útför Guðrúnar fer
fram frá Grensáskirkju í dag, 23.
mars 2016, og hefst athöfnin kl.
13.
Komin er kveðjustund. Það er
með sorg í hjarta sem ég kveð
kæra tengdamóður mína með
söknuði og þakklæti. Upp rifjast
ljúfar minningar eftir 45 ára
hnökralausa samfylgd. Amma
Rúna, eins og við kölluðum hana,
var alin upp í sveit á millistríðs-
árunum og upplifði í gegnum lífið
ótrúlegar breytingar á íslensku
samfélagi. Hún fluttist til Reykja-
víkur, giftist Sigga sínum og fyrr
en varði voru börnin orðin fimm.
Amma Rúna helgaði sig uppeldi
barnanna og saman voru þau
Siggi traustar fyrirmyndir, börn-
in voru þeim allt. Rúna var ein af
þessum hljóðlátu traustu konum,
traust eins og klettur í hafi og allt-
af til staðar þegar á þurfti að
halda. Síðar komu barnabörnin og
nutu hlýju, hjálpsemi og ljúf-
mennsku hennar og eins afa með-
an hans naut við. Jákvæðni, kær-
leikur og hvatning einkenndu
andrúmsloftið í Stóragerðinu sem
öll árin hefur laðað barnabörnin
að. Flest voru þau á einhverju
tímabili í pössun hjá ömmu sinni
og sýndu henni mikla tryggð allt
fram á síðasta dag enda hafði
Rúna unnið fyrir þeirri tryggð.
Rúna unni landi sínu. Æsku-
slóðir hennar í Borgarfirðinum
voru henni alltaf mjög kærar og
hún lét sér alla tíð annt um nátt-
úruna og umhverfi sitt. Hún var
vinnusamur mannvinur sem alltaf
kaus að halda sig fremur til hlés.
Rúna var vel ern fram á síðasta
dag og sá algerlega um sig þrátt
fyrir háan aldur. Þegar hún dó
var hún að koma úr síðustu inn-
kaupaferðinni með fisk sem hún
ætlaði að elda sér um kvöldið. Það
var alltaf notalegt að heimsækja
hana í Stóragerðið og fá hjá henni
besta kaffi í heimi, lagað eftir
kúnstarinnar reglum í gömlu
kaffikönnunni með taupokanum.
Langri og farsælli lífsgöngu góðr-
ar konu er lokið. Hún var einn af
máttarstólpum þjóðfélagsins á
miklum breytingatímum síðustu
aldar. Hún sóttist ekki eftir veg-
tyllum og vann sitt starf af óeig-
ingirni og fórnfýsi. Hún naut lífs-
ins í gegnum fjölskyldu sína og er
nú sárt saknað. Ég er þakklátur
fyrir að hafa átt Rúnu að öll þessi
ár og þakklátur fyrir hvað hún var
góð amma barnanna minna. Ég
mun lengi ylja mér við ljúfar
minningar um öðlingskonu.
Magnús R. Jónasson.
Það er erfitt að sjá á eftir
ömmu Rúnu, en hún og heimili
hennar og afa í Stóragerði voru
fastur punktur í tilverunni um
áratuga skeið. Amma passaði mig
oft á daginn og þar fann ég fyrir
öryggi og næði sem var mér af-
skaplega dýrmætt. Síðar kom ég
til ömmu eftir skóla og fékk
hádegismat, en við systir mín vor-
um svo heppin að heimili ömmu
og afa var við hliðina á skólanum.
Ég nýtti mér það óspart og alltaf
var amma hress í bragði og tók
vel á móti mér. Ég mun alltaf vera
þakklátur ömmu Rúnu fyrir að
hafa verið til staðar fyrir mig í öll
þessi ár.
Haukur Rúnar.
Guðrún JónsdóttirHrafnista Hafnarfirði. Hátíðarguðs-þjónusta á páskadag kl. 11 í Menning-arsalnum. Organisti Kristín Waage.
Hátíðarkvartett syngur. Forsöngvari
Þóra Björnsdóttir. Ritningarlestra les
Ingibjörg Hinriksdóttir. Sr. Svanhildur
Blöndal prédikar og þjónar fyrir altari.
HRAUNGERÐISKIRKJA í Flóa |
Páskadagur. Hátíðarguðsþjónusta kl.
11. Prestur Ninna Sif Svavarsdóttir,
Kór Hraungerðis og Villingaholtssókna
syngur undir stjórn Inga Heiðmars
Jónssonar organista.
HREPPHÓLAKIRKJA | Passíusálma-
lestur á föstudaginn langa frá kl. 13.
Fjöldi lesara kemur að lestrinum. Les-
ið verður úr píslarsögu guðspjallanna
á milli sálmalesturs. Kaffi og með því í
safnaðarheimilinu meðan á lestri
stendur. Áætlað er að lestri ljúki upp
úr kl. 17.
HRUNAKIRKJA | Hátíðarmessa á
páskadag kl. 8. Kirkjukór Hruna- og
Hrepphólasókna syngur. Organisti
Stefán Þorleifsson. Morgunkaffi í
safnaðarheimilinu á eftir.
HVALSNESKIRKJA | Föstudagurinn
langi. Helgistund með lestri úr Pass-
íusálmum. Jón Rafn Högnason flytur
erindi um Hallgrím Pétursson. Minnst
verður orða Krists.
Birna Rúnarsdóttir söngkona leiðir
söng, organisti Steinar Guðmundsson
og prestur Bára Friðriksdóttir.
Páskadagur. Hátíðarguðsþjónusta kl.
11. Birna Rúnarsdóttir söngkona leiðir
söng, organisti Steinar Guðmundsson
og prestur sr. Bára Friðriksdóttir.
Höskuldsstaðakirkja á Skaga-
strönd | Á páskadagsmorgun kl. 11
verður hátíðarguðsþjónusta í kirkj-
unni. Hátíðarsöngvar séra Bjarna Þor-
steinssonar verða fluttir af Kór Hóla-
neskirkju undir stjórn Hugrúnar Sifjar
Hallgrímsdóttur tónlistarstjóra. Séra
Bryndís Valbjarnardóttir sóknarprestur
prédikar og þjónar fyrir altari.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Páska-
dagur. Sameiginleg máltíð kl. 11.30.
Guðsþjónusta hefst kl. 13. Halldóra
Ólafsdóttir prédikar.
KÁLFATJARNARKIRKJA | Föstudag-
urinn langi kl. 14. Passíusálmalestur
Lesarar lesa 10 valda Passíusálma. Á
milli lestra leikur Elísabet Þórðardóttir
organisti gamla lagboða við sálmana.
Grétar Halldór Gunnarsson leiðir
stundina. Hressing og samfélag á eft-
ir.
Páskadagur. Hátíðarguðsþjónusta kl.
14. Kór Kálfatjarnarkirkju syngur undir
stjórn Elísabetar Þórðardóttur. Prestur
er sr. Kjartan Jónsson.
Kirkjukaffi á eftir.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Skírdagur.
Messa kl. 20. Sr. Eva Björk Valdimars-
dótttir þjónar.
Föstudagurinn langi kl. 14. Sr. Erla
Guðmundsdóttir þjónar.
Páskadagur kl. 8. Hátíðarguðsþjón-
usta. Báðir prestar þjóna. Morg-
unmatur í Kirkjulundi. Kór Keflavík-
urkirkju syngur við allar messur undir
stjórn Arnórs organinsta. Helgistund á
Nesvöllum kl. 12.30 og Hlévangi kl.
13. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar.
Annar í páskum kl. 11. Sunnudaga-
skóli og páskaeggjaleit.
KIRKJUVOGSKIRKJA Höfnum | Há-
tíðarguðsþjónusta páskadag kl.
12.20. Sóknarprestur Baldur Rafn
Sigurðsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Kirkjukór Njarðvíkur syngur undir
stjórn Stefáns Helga Kristinssonar
organista. Meðhjálpari Magnús Bjarni
Guðmundsson.
KÓPAVOGSKIRKJA | Skírdagur. Kl
11, fermingarmessa. Sigurður Arn-
arson, sóknarprestur prédikar og þjón-
ar fyrir altari ásamt Ástu Ágústsdóttur,
djákna. Kór Kópavogskirkju syngur
undir stjórn Lenku Mátéová kl. 13.15.
Altarisganga á hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð.
Föstudagurinn langi. Útvarpsguðs-
þjónusta. Sigurður Arnarson sókn-
arprestur prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Kór Kópavogskirkju syngur undir
stjórn Lenku Mátéová. Kl. 13.16
Nafnlausi leikhópurinn les valda Pass-
íusálma. Ólafía Linnberg Jensdóttir
syngur og Lenka Mátéová leikur tón-
list á orgel.
Páskadagur. Hátíðarguðsþjónusta kl.
8. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og
þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju
syngur undir stjórn Lenku Mátéová.
Morgunhressing í safnaðarheimilinu
eftir guðsþjónustu. Að henni lokinni
verður farið í sögugöngu um nágrenni
kirkjunnar undir forystu Guðlaugs R.
Guðmundssonar sagnfræðings.
LANGHOLTSKIRKJA | Ferming-
armessa á skírdag kl. 11. Sr. Guðbjörg
Jóhannesdóttir og sr. Jóhanna Gísla-
dóttir þjóna. Organisti Birna Kristín Ás-
björnsdóttir. Félagar úr Kór Langholts-
kirkju syngja. Aðalsteinn kirkjuvörður
og messuþjónar aðstoða við helgi-
haldið.
Guðsþjónusta á föstudaginn langa kl.
11. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir þjón-
ar. Organisti Steinar Logi Helgason.
Félagar úr Kór Langholtskirkju syngja.
Aðalsteinn kirkjuvörður og messuþjón-
ar aðstoða við helgihaldið.
Hátíðarguðsþjónusta á páskadag kl.
9. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir þjónar.
Organisti Steinar Logi Helgason. Kór
Langholtskirkju auk eldri félaga leiðir
safnaðarsöng. Morgunverðarhlaðborð
að messu lokinni. Aðalsteinn kirkju-
vörður, messuþjónar og sjálfboðaliðar
aðstoða við helgihaldið. Sameig-
inlegur sunnudagaskóli safnaðanna í
Laugardalnum á páskadag kl. 11. Hist
verður við selalaugina í Húsdýragarð-
inum og gengið þaðan saman á Kaffi
Flóru.
LAUGARDÆLAKIRKJA í Flóa |
Guðsþjónusta skírdag kl. 13. Sr. Guð-
björg Arnardóttir.
LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjón-
usta á skírdag kl. 20. Söngsveitin Fíl-
harmónía flytur Sálumessu eftir Gabrí-
el Fauré, stjórnendur Magnús
Ragnarsson og Arngerður María Árna-
dóttir. Einsöngvarar eru Vigdís Sigurð-
ardóttir og Gunnar Emil Ragnarsson.
Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir prédik-
ar og þjónar ásamt messuþjónum.
Hátíðarguðsþjónusta á páskadag kl.
8. Sr. Kristín Þórunn prédikar og þjón-
ar ásamt messuþjónum og kór kirkj-
unnar undir stjórn Arngerðar Maríu
leiðir safnaðarsöng. Þórður Hall-
grímsson leikur á trompet. Morg-
unmatur í safnaðarheimili á eftir.
Sunnudagaskóli í Kaffi Flóru, Laug-
ardal kl. 11, upphafið er við selalaug-
ina í Húsdýragarðinum og svo er geng-
ið í Kaffi Flóru.
LÁGAFELLSKIRKJA | Skírdagur.
Fermingarguðsþjónustur kl. 10.30 og
13.30 Kirkjukórinn syngur undir stjórn
Ragnars Jónssonar. Sr Ragnheiður
Jónsdóttir og sr. Kristín Pálsdóttir.
Páskadagur. Hátíðarguðsþjónusta kl.
8. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir. Kirkjukór
Lágafellssóknar syngur. Organisti er
Ragnar Jónsson. Léttur morgunverður
í safnaðarheimilinu að lokinni guðs-
þjónustu.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Skírdag-
ur. Máltíð Drottins í kapellu Linda-
kirkju kl. 20. Sr. Guðni Már Harðarson
þjónar. Matthías Baldursson leikur
einleik á saxófón og á píanóið undir
sálmasöng.
Föstudagurinn langi kl. 20. Sigurbjörn
Þorkelsson rithöfundur flytur erindi um
dauðann. Hannes Þ. Guðrúnarson
leikur á gítar. Umsjón: Sr. Sveinn Al-
freðsson.
Páskadagur. Messa kl. 8. Kór Linda-
kirkju undir stjórn Óskars Einarssonar.
Sr. Sveinn Alfreðsson þjónar. Morg-
unverður að athöfn lokinni. Öllum
frjálst að leggja til mat á morgunverð-
arborðið. Sunnudagaskóli kl. 11.
Páskaeggjaleit fyrir börnin eftir stund-
ina.
Annar í páskum kl. 20. Tónleikar til
styrktar kaupum á nýjum flygli við kirkj-
una. Kór Lindakirkju undir stjórn Ósk-
ars Einarssonar sem leikur undir
ásamt Friðriki Karlssyni á gítar, Jó-
hanni Ásmundssyni á bassa og Brynj-
ólfi Snorrasyni á trommur. Sérstakur
gestur Ragnheiður Gröndal. Miðaverð
2.000 krónur, miðasala við inngang-
inn.
MIÐDALSKIRKJA í Laugardal | Há-
tíðarguðsþjónusta páskadag kl. 11.
Egill Hallgrímsson sóknarprestur ann-
ast prestsþjónustuna. Viðar Stef-
ánsson guðfræðingur prédikar. Söng-
kór Miðdalskirkju syngur. Organisti er
Jón Bjarnason.
MOSFELLSKIRKJA | Föstudagurinn
langi. Guðsþjónusta kl. 20. Kirkjukór
Lágafellsóknar. Organisti er Ragnar
Jónsson. Sr. Kristín Pálsdóttir.
Mosfellskirkja í Grímsnesi | Hátíð-
arguðsþjónusta annan í páskum kl.
14. Egill Hallgrímsson sóknarprestur
annast prestsþjónustuna. Organisti er
Jón Bjarnason.
NESKIRKJA | Skírdagur. Messa kl.
20. Við lok messunnar verður altarið
afskrýtt. Kór Neskirkju syngur. Org-
anisti Steingrímur Þórhallsson. Prest-
ur Skúli S. Ólafsson.
Föstudagurinn langi. Guðsþjónusta kl.
11. Kór Neskirkju syngur. Organisti
Steingrímur Þórhallsson. Prestur Sig-
urvin L. Jónsson.
Páskadagur. Hátíðarmessa kl. 8. Kór
Neskirkju syngur. Organisti Stein-
grímur Þórhallsson. Prestar Skúli S.
Ólafsson og Sigurvin L. Jónsson.
Morgunverður og páskahlátur eftir
messu. Fjölskylduguðsþjónusta kl.
11. Organisti Steingrímur Þórhalls-
son. Prestur Sigurvin L. Jónsson.
Páskaeggjaleit að lokinni guðsþjón-
ustu.
Annar í páskum. Fermingarmessa kl.
11. Félagar úr kór Neskirkju syngja.
Organisti Steingrímur Þórhallsson.
Prestar Skúli S. Ólafsson og Sigurvin
L. Jónsson.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-
Njarðvík | Hátíðarguðsþjónusta
páskadag kl. 11. Sóknarprestur, Bald-
ur Rafn Sigurðsson, prédikar og þjónar
fyrir altari. Kirkjukór Njarðvíkur syngur
undir stjórn Stefáns Helga Krist-
inssonar organista. Meðhjálpari Pétur
Rúðrik Guðmundsson.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Föstudag-
urinn langi. Kvöldvaka kl. 20:30. Sr.
Pétur þjónar fyrir altari. Meðhjálpari
Gunnar T. Guðnason. Valdimar Jó-
hannesson les píslarsöguna. KÓSÍ
kórinn syngur milli leskafla við undir-
leik organistans, Árna Heiðars Karls-
sonar. Bæn og íhugun eftir lesturinn.
Ólafur Kristjánsson tekur á móti.
Hátíðarguðsþjónusta kl. 8 á páska-
dagsmorgun. Prestur Pétur Þor-
steinsson. Meðhjálpari Þuríður Anna
Pálsdóttir. Sólveig Steinþórsdóttir
fiðluleikari spilar. Kór safnaðarins flyt-
ur hátíðartóna sr. Bjarna Þorsteins-
sonar undir stjórn Árna Heiðars Karls-
sonar organista. Ólafur Kristjánsson á
móti. Heitt súkkulaði og brauðbollur
að lokinni messu.
ÓLAFSVALLAKIRKJA á Skeiðum |
Hátíðarmessa á páskadag kl. 11.
Kirkjukór Ólafsvallasóknar syngur.
Organisti Þorbjörg Jóhannsdóttir.
REYNIVALLAKIRKJA í Kjós | Páska-
dagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Sr.
Gunnar Kristjánsson prédikar og þjón-
ar fyrir altari, organisti er Jónas Þórir,
kirkjukór Reynivallakirkju leiðir söng.
SALT kristið samfélag | Samkoma
kl. 14 á páskadag í Kristniboðs-
salnum Háaleitsbraut 58-60, 3. hæð.
Ræðumaður Guðlaugur Gunnarsson.
Túlkað á ensku. Barnastarf.
SELFOSSKIRKJA | Skírdagur. Ferm-
ingarmessa kl. 11. Prestar kirkjunnar
þjóna.
Föstudagurinn langi. Lestur Pass-
íusálma hefst kl. 13 og stendur fram
eftir degi. Fólk úr söfnuðinum les. Boð-
ið upp á kaffi í safnaðarheimilinu og
fólki er frjálst að koma og fara eftir því
sem hentar. Umsjón hefur sr. Guð-
björg Arnardóttir.
Kyrrðarstund við krossinn kl. 20. Sig-
urgeir Hilmar Friðþjófsson les sjö orð
Krists á krossinum. Kór kirkjunnar
syngur undir stjórn Edit Molnár. Sr.
Guðbjörg Arnardóttir.
Páskadagur: Hátíðarguðsþjónusta kl.
8. Prestur Ninna Sif Svavarsdóttir, kór
kirkjunnar syngur undir stjórn Edit
Molnár. Að guðsþjónustu lokinni býður
sóknarnefnd til morgunverðar í safn-
aðarheimilinu.
SELJAKIRKJA | Skírdagur. Ferming-
armessur kl. 10.30 og 14. Föstudag-
urinn langi. Guðsþjónusta kl. 14. Sr.
Bryndís Malla Elídóttir prédikar.
Páskadagur: Hátíðarguðsþjónusta kl.
8. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson pré-
dikar. Hátíðarmorgunverður í safn-
aðarheimili kirkjunnar að lokinni at-
höfn. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Sr. Ólafur Jóhann og Erla Björg leiða
stundina. Barnakór Seljakirkju syngur
undir stjórn Rósalindar Gísladóttur.
Guðsþjónusta í Skógarbæ kl. 11. Sr.
Bryndís Malla Elídóttir prédikar. Annar
páskadagur: Fermingarmessa kl. 14.
Kór Seljakirkju leiðir söng við guðs-
þjónustuna. Organisti: Tómas Guðni
Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Skírdag-
ur. Samkirkjuleg guðsþjónusta á veg-
um Samstarsfnefndar kristinna trú-
félaga og Alþjóðlegs bænadags
kvenna kl. 11. Sr. María Ágústsdóttir
prédikar. Kaffiveitingar kl. 20. Alt-
arisganga. Sóknarprestur þjónar og
organisti kirkjunnar.
Föstudagurinn langi. Lestur Passíusál-
manna kl. 13-18.
Páskadagur 27. mars. Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 8. Stúlkur úr Ballettskóla
Guðbjargar dansa inn páskana. Bjarni
Þór Bjarnason sóknarprestur þjónar.
Friðrik Vignir Stefánsson er organisti.
Félagar úr Kammerkór Seltjarnar-
neskirkju leiða almennan safn-
aðarsöng. Heitt súkkulaði og aðrar
veitingar eftir athöfn.
Þriðjudagur. Stund fyrir eldri bæjarbúa
kl. 14. Sr. Ólafur Jóhannsson segir frá
ferð sinni til Eþíópíu. Kaffiveitingar.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Skírdag-
ur. Fermingarmessa kl. 11.00. Prestur
sr. Egill Hallgrímsson. Söngkór Mið-
dalskirkju syngur. Organisti Jón
Bjarnason. Messa kl. 20.30. Prestur
Egill Hallgrímsson. Viðar Stefánsson
guðfræðingur prédikar. Skálholtskór-
inn syngur. Organisti Jón Bjarnason.
Getsemanestund eftir messuna.
Guðsþjónusta á föstudaginn langa kl.
16. Kristján Valur Ingólfsson Skál-
holtsbiskup annast prestsþjónustuna.
Honum til aðstoðar er Viðar Stef-
ánsson guðfræðingur. Skálholtskór-
inn flytur tónlist tengda deginum á
milli lestra úr píslarsögunni. Organisti
Jón Bjarnason.
Páskadagur. Hátíðarmessa kl. 8.00.
Prestur Egill Hallgrímsson. Viðar Stef-
ánsson aðstoðar við altarisþjón-
ustuna. Organisti Jón Bjarnason. Há-
tíðarmessa kl. 14. Prestur Egill
Hallgrímsson. Viðar Stefánsson guð-
fræðingur prédikar. Skálholtskórinn
syngur. Organisti Jón Bjarnason.
SÓLHEIMAKIRKJA | Hátíðarmessa í
Sólheimakirkju á páskadag kl. 14. Sr.
Jóhanna Magnúsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Organisti er Ester
Ólafsdóttir og leiðir hún jafnframt al-
mennan safnaðarsöng.
SÓLTÚN hjúkrunarheimili | Guðs-
þjónusta á föstudaginn langa kl. 14.
Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir prédik-
ar og þjónar. Magnús Ragnarsson og
Gerður Bolladóttir leiða söng og tón-
list.
STÓRA-Núpskirkja | Hátíðarmessa
og ferming annan í páskum kl. 11.
Kirkjukór Stóra-Núpssóknar syngur.
Organisti Þorbjörg Jóhannsdóttir.
STRANDARKIRKJA | Föstudagurinn
langi. Píslarsagan lesin í Strand-
arkirkju kl. 14. Guðmundur S. Brynj-
ólfsson og Baldur Kristjánsson meðal
lesara. Meðhjálpari Sylvía Ágústs-
dóttir. Miklós Dalmay og Kór Þorláks-
kirkju.
TORFASTAÐAKIRKJA | Guðsþjón-
usta föstudaginn langa kl. 14. Viðar
Stefánsson guðfræðingur annast
stundina. Organisti er Jón Bjarnason.
ÚTHLÍÐARKIRKJA | Hátíðarguðs-
þjónusta á páskadag kl. 16. Egill Hall-
grímsson sóknarprestur annast
prestsþjónustuna. Viðar Stefánsson,
guðfræðingur prédikar. Félagar úr Út-
hlíðarkór leiða sönginn. Organisti er
Jón Bjarnason.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Messa á skír-
dagskvöld kl. 20. Altarið afskrýtt.
Birna Rúnarsdóttir söngkona leiðir
söng, organisti Steinar Guðmundsson
og prestur Bára Friðriksdóttir.
Páskadagur. Hátíðarguðsþjónusta kl
11. Birna Rúnarsdóttir söngkona leiðir
söng, organisti Steinar Guðmundsson
og prestur sr. Bára Friðriksdóttir.
VILLINGAHOLTSKIRKJA í Flóa |
Annar páskadagur. Hátíðarguðsþjón-
usta kl. 11. Prestur Ninna Sif Svav-
arsdóttir. Kór Hraungerðis og Vill-
ingaholtssókna syngur undir stjórn
Inga Heiðmars Jónssonar organista.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa og af-
skrýðing altaris á skírdagskvöld. Sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt messuþjón-
um. Organisti er Jóhann Baldvinsson
og Erla Björg Káradóttir syngur og Guð-
rún Þórarinsdóttir leikur á víólu. Hátíð-
arguðsþjónusta á páskadag kl. 8. Sr.
Friðrik J. Hjartar prédikar og messu-
þjónar aðstoða. Steinunn Sigurð-
ardóttir sópran syngur einsöng og
Hallfríður Ólafsdóttir leikur á flautu.
Kór Vídalínskirkju syngur. Organisti Jó-
hann Baldvinsson. Morgunverður í
safnaðarheimilinu að lokinni athöfn.
Hátíðarguðsþjónusta í Ísafold kl. 11.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Fermingarmessa skírdag kl. 10:30.
Kór Víðistaðasóknar syngur undir
stjórn Antoníu Hevesi. Prestur Bragi J.
Ingibergsson.
Guðsþjónusta föstudaginn langa kl.
11. Söngur Bylgja Dís Gunnarsdóttir
og Elsa Waage. Organisti: Antonía He-
vesi. Prestur Bragi J. Ingibergsson.
Hátíðarmessa á páskadag kl. 8. Kór
Víðistaðasóknar syngur undir stjórn
Antoníu Hevesi. Prestur Bragi J. Ingi-
bergsson. Páskaeggjaleit og páska-
föndur fyrir börnin. Boðið verður upp á
heitt súkkulaði og meðlæti í safn-
aðarheimilinu að messu lokinni.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Skírdagur.
Fermingarmessa kl. 10.30. Sóknar-
prestur Baldur Rafn Sigurðsson pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Kirkjukór
Njarðvíkur syngur undir stjórn Stefáns
Helga Kristinssonar organista. Með-
hjálpari Pétur Rúðrik Guðmundsson.
Lofgjörðarsamvera kl. 20 í samstarfi
við Hvítasunnukirkjuna í Reykja-
nesbæ.
Föstudagurinn langi. Lestur Pass-
íusálma Hallgríms Péturssonar hefst
kl. 13. Tignun krossins að lestri lokn-
um. Kaffi og meðlæti á boðstólum í
safnaðarheimili meðan á lestri stend-
ur.
Páskadagur. Hátíðarguðsþjónusta kl.
8. árdegis. Sóknarprestur Baldur Rafn
Sigurðsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Kirkjukór Njarðvíkur syngur undir
stjórn Stefáns Helga Kristinssonar
organista. Meðhjálpari María Rut
Baldursdóttir. Kaffi, brauð og sælgæti
verður á boðstólum í safnaðarheimili
kirkjunnar eftir athöfn.
ÞINGVALLAKIRKJA | Föstudagurinn
langi. Guðsþjónusta kl. 14. Margrét
Bóasdóttir syngur einsöng. Organisti
Guðmundur Vilhjálmsson. Prestur
Kristján Valur Ingólfsson.
Páskadagur. Árdegismessa við sól-
arupprás kl. 7.20. Einfaldur morg-
unverður að messu lokinni. Kristján
Valur Ingólfsson prédikar og þjónar fyr-
ir altari. Hátíðarmessa klukkan 14.
Sönghópur undir stjórn Margrétar
Bóasdóttur syngur hátíðasöngva
Bjarna Þorsteinssonar. Organisti Guð-
mundur Vilhjálmsson. Kristján Valur
Ingólfsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari.
ÞORLÁKSKIRKJA | Páskadagur.
Messa kl. 11. Baldur Kristjánsson
þjónar fyrir altari. Hátíðarsöngur
Bjarna Þorsteinssonar. Guðmundur S.
Brynjólfsson prédikar. Kór Þorláks-
kirkju. Miklós Dalmay spilar. Með-
hjálpari Rán Gísladóttir.
ÞORLÁKSKIRKJA | Skírdagur.
Messa kl. 13.30. Ferming. Baldur
Kristjánsson og Guðmundur S. Brynj-
ólfsson þjóna. Miklós Dalmay og Kór
Þorlákskirkju. Meðhjálpari Rán Gísla-
dóttir.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr.
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar