Morgunblaðið - 23.03.2016, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2016
Agnar Tómas Möller stofnaði sjóðastýringarfyrirtækið GAMMACapital Management, ásamt Gísla Haukssyni, sumarið 2008 ogstýrir í dag ríkisskuldabréfasjóðum fyrirtækisins „Við höfum
lagt áherslu á að greina hagsveifluna hverju sinni og hvar tækifærin
liggja fyrir viðskiptavini okkar. Fyrir fjórum árum sáum við tækifæri á
fasteignamarkaðnum og undanfarin misseri höfum við verið að horfa
til fjárfestinga í lóðum, atvinnuhúsnæði og lánveitingum til fyrirtækja.
Fram undan eru svo mikil tækifæri fyrir viðskiptavini okkar í aflétt-
ingu hafta og opnuðum við því starfsstöð í London sl. sumar.“
GAMMA er aðalstyrktaraðili Reykjavíkurskákmótsins og keppti
Agnar á mótinu annað árið í röð. Honum gekk vel og hækkaði vel á stig-
um. „En svo fór ég niður í logum í sumum skákunum. En mér finnst mót
eins og Reykjavíkurskákmótið gagnast mér vel, maður vinnur skorpur í
undirbúningi fyrir og meðan á móti stendur og svo kryfur maður skák-
irnar eftir mót til að sjá hvað mátti betur fara.“
Agnar hefur einnig mikinn áhuga á klassískri tónlist og djass og spil-
aði lengi á franskt horn og síðar á trompet, en GAMMA hefur verið
styrktaraðili Sinfóníuhljómsveitar Íslands undanfarin ár. „Svo les ég
eða öllu heldur hlusta mikið á bækur. Þetta eru helst sögulegar bækur
eða sem tengjast umræðunni á hverjum tíma,“ en GAMMA var einmitt
að gera samstarfssamning við Hið íslenska bókmenntafélag til fjögurra
ára í tilefni af 200 ára afmæli þess.
Eiginkona Agnars er Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahags-
sviðs Samtaka atvinnulífsins, og börn þeirra eru tvíburarnir Thelma
Sigríður og Tómas, f. 2008, og Kristján, f. 2011.
Fjölskyldan Agnar og Ásdís ásamt börnum á „bitanum“ í New York.
Fór niður í logum í
sumum skákunum
Agnar Tómas Möller er 37 ára í dag
J
ón fæddist á Akranesi 23.3.
1946 og ólst þar upp til níu
ára aldurs en síðan í Vestur-
bænum í Reykjavík.
Jón æfði og keppti í
knattspyrnu, fyrst með ÍA, síðan
Þrótti en gerðist svo Fylkismaður.
Hann var í Melaskóla og Hagaskóla,
lauk stúdentsprófi frá MR 1967, emb-
ættisprófi í lögfræði frá HÍ 1974, öðl-
aðist hdl.-réttindi 1975 og hrl.-réttindi
1990. Jón var kennari við Ármúlaskóla
í Reykjavík 1967-79, fulltrúi á Lög-
mannsstofu Benedikts Sveinssonar
1974-77, hefur starfrækt eigin lög-
mannsstofu frá 1977, stundaði jafn-
framt fasteignasölu á árunum 1984-93
og 2004-2006 og er nú framkvæmda-
stjóri lögmannsstofunnar Íslandslög,
Ármúla 6, í Reykjavík.
Gegn einokunarsölu á kartöflum
(svínafóðri) til manneldis
Jón var formaður Stúdentaráðs HÍ
1970-71, sat í stjórn Félagsstofnunar
stúdenta 1972-74, í miðstjórn Sjálf-
stæðisflokksins 1973-81, var formaður
Heimdallar 1975-77 og formaður SUS
1977-81.
Jón Magnússon lögmaður – 70 ára
Morgunblaðið/Ómar
Gamlir íhaldskurfar Jón Magnússon, Kristján Þór Júlíusson, Friðrik Sophusson og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Með áhuga á lögum,
fjallatindum og pólitík
Morgunblaðið/Ómar
Kíkt við á kosningaskrifstofu Jón og kona hans, Margrét Þ. Stefánsdóttir.
Unnur Elíasdóttir á 90
ára afmæli í dag. Hún
býr á Dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu Fella-
skjóli í Grundarfirði.
Árnað heilla
90 ára
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.