Morgunblaðið - 23.03.2016, Síða 35

Morgunblaðið - 23.03.2016, Síða 35
ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2016 Jón var formaður Neytenda- samtakanna 1982-85 og barðist þá öðrum fremur fyrir frjálsum innflutn- ingi á kartöflum og frjálsum innan- landsmarkaði á grænmeti en einok- unarfyrirtækið Grænmetisverslun landbúnaðarins var lögð niður í kjöl- farið. Hann sat í stjórn Neytenda- sambands höfuðborgarsvæðisins um langt skeið frá 1990 og starfaði lengi að neytendamálum. Jafnframt lögmennskunni hefur Jón haft óbilandi áhuga á þjóðmálum og hugmyndafræði í gegnum tíðina, var varaþingmaður Reykvíkinga fyr- ir Sjálfstæðisflokkinn 1984-88, sat þá oft á þingi og lagði þá m.a. fram, ásamt Geir H. Haarde og Inga Birni Albertssyni, frumvarpið fræga um af- nám bjórbannsins, var alþingismaður í Reykjavíkurkjördæmi suður, fyrir Frjálslynda flokkinn, síðan utan flokka og fyrir Sjálfstæðisflokkinn 2007-2009, var þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, hefur skrifað ógrynni greina um stjórnmál í dag- blöð og tímarit og sá um morgun- útvarp Útvarps Sögu um skeið. Jón var stjórnarformaður Iðnlána- sjóðs 1983-91 og varaformaður íþróttafélagsins Fylkis 1984-86. Árið 1985 hóf Jón að stunda fjall- göngur af kappi og hefur síðan tyllt sér á fjölda íslenskra fjallatinda: „Þegar ég fór að arka á fjöll voru fjallgöngur ennþá sport örfárra sér- vitringa en eru nú fyrir löngu orðnar vinsæl leið til að halda sér í formi. Ég er ekki alveg eins sprækur og ég var í upphafi en er samt enn að. Ég hef gengið á öll fjöll sem sjást frá Reykja- vík í góðu skyggni og flest málsmet- andi fjöll landsins. Ég held að Mæli- fellshnjúkur í Skagafirði sé einna efirminnilegastur enda er víðsýni þaðan með ólíkindum í góðu veðri. Víðsýnið í góðu veðri er nú einu sinni einn kosturinn við fjallgöngur, eða eins og Jónas orti til Páls Gaimard: „Þú stóðst á tindi Heklu hám og horfðir yfir landið fríða.““ Fjölskylda Kona Jóns er Margrét Þórdís Stef- ánsdóttir, f. 7.10. 1954, verkefnastjóri hjá Sjúkratryggingum Íslands. Hún er dóttir Stefáns Hilmarssonar, f. 23.5. 1925, d. 10.1. 1991, bankastjóra Útvegsbankans, og k.h., Sigríðar Kjartansdóttur Thors, f. 13.5. 1927, húsfreyju. Fyrri kona Jóns er Halldóra Rafn- ar, f. 31.5. 1947, kennari og fyrrv. blaðamaður. Þau skildu. Synir Jóns og Halldóru eru Jónas Friðrik, f. 10.11. 1966, lögmaður í Reykjavík, en kona hans er Lilja Dóra Halldórsdóttir framkvæmda- stjóri og eru börn þeirra Steinunn Dóra og Jónas Rafnar, og Magnús, f. 8.7. 1980, lögmaður í Reykjavík. Dóttir Jóns og Fannýjar Jón- mundsdóttur er Sigrún Fanný, f. 13.2. 1985, bókari en maður hennar er Bjarni Jónsson rafvirki og synir þeirra Róbert Ingi og Ómar Darri. Systir Jóns er Gyða Magnúsdóttir, f. 5.10. 1942, hjúkrunarfræðingur, en maður hennar er Ársæll Jónsson læknir og eiga þau þrjú börn. Foreldrar Jóns voru Magnús Jóns- son, f. 7.8. 1916, d. 6.6. 2012, skóla- stjóri á Akranesi og í Reykjavík, og k.h., Sigrún Jónsdóttir, f. 12.2. 1918, d. 14.5. 2013, kennari. Úr frændgarði Jóns Magnússonar Jón Magnússon Rósa Sigurðardóttir húsfr. á Snældubeinsstöðum Ívar Sigurðsson b. á Snældubeinsstöðum Sigurbjörg Ívarsdóttir húsfr. Guðlaugur Hannesson b. á Snældu- beinsstöðum í Reykholtsdal Sigrún Jónsdóttir kennari og húsfr. á Akranesi og í Rvík Kristín Magnúsdóttir húsfr. á Grímsstöðum Hannes Sigmundsson b. á Grímsstöðum í Reykholtsdal Ragnhildur IngibjörgÁsgeirsdóttir kennari í Rvík Finnbogi Guðlaugsson framkvæmdastj. í Borgarnesi Hulda Guðlaugsdóttir húsfr. í Rvík Kolbrún Ingólfsd. lífeinda- og sagnfræðingur Ágúst Ólafur Ágústsson fv. varaform. Samfylkingar- innar Jón Ívarsson kaupfélagsstj. á Höfn í Hornafirði (kjörfaðir Sigrúnar Jónsdóttur) Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir skáldkona og kennari í Rvík Helga Sigurðardóttir húsfr. á Eyri, frá Bjarnastöðum Páll Pálsson b. á Eyri í Ísafirði, af Arnardalsætt Margrét María Pálsdóttir húsfr. á Ísafirði Jón Finnbogi Bjarnason trésmiður og lögregluþj. á Ísafirði og í Vestmannaeyjum Magnús Jónsson skólastj. á Akranesi og í Rvík Jónína Guðrún Jónsdóttir húsfr. í Ármúla Bjarni Gíslason hreppstj. í Ármúla á Langadalsströnd, af Vigurætt Fjallagarpur Jón á Mælifellshnjúki. Guðjón fæddist á Akranesi 23.3.1892. Foreldrar hans voruGuðjón Jónsson, formaður á Akranesi, og heitkona hans, Ingi- björg Jónsdóttir. Guðjón eldri var sonur Jóns Björnssonar, bónda í Skíðholtakoti í Hraunhreppi á Mýrum, en Ingibjörg var dóttir Jóns Þorleifssonar, bónda í Grafarkoti í Línakradal í Vestur- Húnavatnssýslu. Eiginkona Guðjóns var Ragnheið- ur Jónsdóttir, rithöfundur og kenn- ari, og eignuðust þau tvö börn. Guðjón lauk gagnfræðaprófi frá Flensborg í Hafnarfirði 1914, kenn- araprófi frá Kennaraskóla Íslands 1916. Hann var við framhaldsnám í Danmörku og Noregi 1923-24, m.a. í Askov og í Kaupmannahöfn, og fór síðan ýmsar námsferðir til Norður- landanna og til Bandaríkjanna 1954. Guðjón kenndi í Vestmannaeyjum 1916-17, var skólastjóri Barnaskólans á Stokkseyri 1917-19, kenndi við Barnaskóla Reykjavíkur 1919-30, var skólastjóri Barnaskóla Hafnarfjarðar 1930-54 og hafði síðan umsjón með kennslukvikmyndasafni ríkisins. Guðjón hafði auk þess verið stundakennari við Samvinnuskólann 1919-20, við gagnfræðaskóla í Reykjavík 1928-30 og við Iðnskóla Hafnarfjarðar 1942-48. Guðjón sendi frá sér barnalesefni, s.s. Dægradvalir, ásamt Stefáni Jóns- syni, samdi kennslubók í landafræði, Landafræði I-IV útg. 1939-42, sem lengi var kennd í skólum,var afkasta- mikill þýðandi, einkum barnabóka, og var ritstjóri Menntamála 1932-33 og barnablaðsins Æskunnar 1942-54. Hann sat í stjórn Barnavinafélagsins Sumargjafar 1924-30, sat í Útvarps- ráði 1930-35 og var frá stofnun fulltrúi kennara í stjórn Ríkisútgáfu námsbóka 1938-42 og 1946-56. Guðjón sat í stjórn SÍB 1922-24, 1925-42 og 1946-54 og var forseti samtakanna 1932-34 og 1936-37, Hann skrifaði töluvert mikið um sam- vinnumál og sat í stjórn Kaupfélags Hafnarfjarðar frá stofnun 1945-54. Guðjón lést 30.1. 1971. Merkir Íslendingar Guðjón Guðjónsson 103 ára Ólöf Hjálmarsdóttir 90 ára Benedikt Sveinsson Egill Skúli Ingibergsson Unnur Elíasdóttir 85 ára Sigurður Marinó Sigurðsson 80 ára Herbjörn Svavar Magnússon Jón Ellert Guðjónsson 75 ára Guðjón Herjólfsson Hildur Bergþórsdóttir Hrefna Jónsdóttir Ólafur Benediktsson Valgerður Karlsdóttir 70 ára Gísli Arnbergsson Guðmundur Guðnason Jóhannes Erlendsson Kjartan Hálfdánarson Sigmar Þór Sveinbjörnsson Viktor Björnsson 60 ára Anna Kristín Pétursdóttir Elín Guðfinna Thorarensen Emilía Björk Graenz Georg Júlíus Júlíusson Gunnar Már Eðvarðsson Heimir Morthens Jóhann Guðni Hlöðversson Kolfinna Ottósdóttir Leszek Stefan Janus Magnús Sigfússon Margrét Halldórsdóttir Pétur Ágúst Unnsteinsson Sigríður O. Gunnlaugsdóttir Steinar Jónsson Viktor Rúnar Þórðarson 50 ára Arna Axelsdóttir Ásta Kristín Davíðsdóttir Björg Kristín Björgvinsdóttir Björn Helgi Arason Georg Skæringsson Helle Larsen Hrafnhildur Stefánsdóttir Jane Margery Pullen Kjartan Pierre Emilsson Kristína Rós Pudtha Ólöf Ýr Lárusdóttir Rafn Alexander Sigurðsson Rögnvaldur Kári Víkingsson Sigríður J. Sigurjónsdóttir 40 ára Aneta Zdzislawa Wróblewska Baldvin Svafar Guðlaugsson Bettina Seifert Björgvin Ólafsson Guðjón Guðmundur Jónsson Guðrún Katrín Jóhannsdóttir Hafþór Svanur Svansson Hlíðar Þór Hreinsson Kristine Pukite Kristján Þórðarson Lotta Pauliina Anda Ragnar Haukur Hauksson Ragnhildur Ægisdóttir Rósa María Stefánsdóttir Sigurður Birgisson Sigurlína Guðjónsdóttir Stefán Már Stefánsson 30 ára Anna Priedite Monika Vilniute Svala Aðalsteinsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Sirrý býr í Reykja- vík, lauk MA-prófi í fé- lagsráðgjöf og er í fæð- ingarorlofi. Maki: Vilhjálmur Agn- arsson, f. 1985. Börn: Freyja, f. 2012, og Frosti, f. 2015. Foreldrar: Sigurlaug Helga Jónsdóttir, f. 1965, og Grétar Ásgeirsson, f. 1970. Líffræðilegur faðir: Anton Páll Níelsson, f. 1966, og hans kona: Inga María Jónínudóttir, 1968. Sirrý Sif Sigur- laugardóttir 30 ára Erla ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk BSc-prófi í ferðamanna- fræði við HÍ og er ferða- ráðgjafi hjá Heimsferðum. Maki: Ásmundur Gunn- arsson, f. 1987, sálfræð- ingur á Kvíðameðferðar- stöðinni. Dóttir: Eva, f. 2011. Foreldrar: Gefn Bald- ursdóttir, f. 1962, hús- freyja, og Bogi Sigvalda- son, f. 1962, rannsóknar- lögreglumaður. Erla Bogadóttir 30 ára Böðvar býr í Hafn- arfirði og er ljósleiðara- sérfræðingur hjá Gagna- veitu Reykjavíkur. Maki: Íris Helga Jón- atansdóttir, f. 1987, starf- ar við Fríhöfnina. Dætur: Birta Mjöll, f. 2009, og Elva Dögg, f. 2015. Foreldrar: Ársæll Bald- vinsson, f. 1948, og Elísa- bet Magnúsdóttir, f. 1957. Fósturfaðir: Svavar Guð- mundsson, f. 1947. Böðvar Ágúst Ársælsson Kringlan 4-12 | s. 577-7040 L’Occitane en Provence - Ísland STÖÐVAÐUTÍMANN HÚÐVIRÐIST UNGLEGRI HJÁ 85%(1) K V ENNA 5 EINKALEYFIÍ UMSÓKN(3) Immortelle, blómið sem aldrei fölnar er upprunnið á Korsíku og er dýrmætasta uppgötvun L’OCCITANE. Endurnýjandi eiginleikum blómsins er blandað saman við einstaka blöndu af sjö virkum innihaldsefnumaf náttúrulegumuppruna(2). Divine formúlan hjálpar til við að lagfæra ummerki öldrunar,gerir húðina sléttari og stinnari og endurnýjar æskuljómann. L’OCCITANE,sönn saga. (1 )Á næ gj a pr óf uð hj á 95 ko nu m í6 m án uð i. (2 )H or bl að ka ,m yr ta og hu na ng fr á K or sí ku ,f ag ur fíf ill , hý al úr on sý ra ,k vö ld vo rr ós ar ol ía og ca m el in a ol ía .( 3) Ei nk al ey fi íu m só kn ar fe rl ií Fr ak kl an di .

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.