Morgunblaðið - 23.03.2016, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2016
Sýningin Síðasta kvöldmáltíðin
verður opnuð í dag kl. 16 í Aðal-
stræti 10, á efri hæð Kraums. Á
henni sýna átta leirlistakonur verk
sín sem voru öll búin til fyrir sýn-
inguna sem sett var upp í samstarfi
við Gunnarsstofnun á Skriðu-
klaustri á páskum í fyrra. Sýnendur
er Elín Haraldsdóttir, Embla Sigur-
geirsdóttir, Guðný Hafsteinsdóttir,
Kristbjörg Guðmundsdóttir, Krist-
ín Sigfríður Garðarsdóttir, Ólöf
Erla Bjarnadóttir, Sigrún Jóna
Norðdahl og Þuríður Ósk Smára-
dóttir.
Síðasta kvöldmáltíðin og Handleikið II
Ein sýnenda Embla Sigurgeirsdóttir.
Hljómsveitin Stafrænn Hákon held-
ur tónleika í Tjarnarbíói í kvöld kl.
21 í tilefni af útgáfu breiðskífu
sinnar, Eternal Horse. Á þeim verð-
ur platan leikin í heild sinni af
hljómsveitinni og aðstoðarmönnum
sem leika munu á strengja-, blást-
urs- og slagverkshljóðfæri. Ólafur
Örn Josephsson, forsprakki sveit-
arinnar, hóf að koma fram sem
Stafrænn Hákon um aldamót en í
dag er Stafrænn Hákon hljómsveit.
Stafrænn Hákon fagnar Eternal Horse
Hljómsveitin Ólafur Örn og félagar.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta er mjög sterk femínísk mynd
um garn. Ásamt því að sýna einstaka
listamenn beinir myndin sjónum
áhorfenda að því hvernig handverki
kvenna og kvenkyns listamönnum
hefur verið ýtt til hliðar í gegnum
tíðina og ekki notið tilhlýðilegrar
virðingar,“ segir Þórður Bragi Jóns-
son, annar tveggja framleiðenda og
meðleikstjóri að heimildarmyndinni
Garn eða Yarn
eins og hún nefn-
ist á ensku.
Aðalleikstjóri
myndarinnar er
Una Lorenzen, en
framleiðendur
myndarinnar, þau
Þórður Bragi og
Heather Millard
frá Compass
Films, voru meðleikstjórar. Um
stjórn kvikmyndatöku sá Iga Mikler,
klippingu annaðist Þórunn Hafstað,
en tónlist sömdu Örn Eldjárn og
Samuel „LoopTok“ Andersson.
Myndin var heimsfrumsýnd á Gauta-
borgarhátíðinni í Svíþjóð í febrúar sl.
og á kvikmyndahátíðinni South by
Southwest (SXSW) í Austin Texas í
Bandaríkjunum fyrr í þessum mán-
uði.
Vonandi til Íslands á þessu ári
„Viðtökurnar í Austin voru mjög
góðar og komust færri að en vildu á
myndina. Við mættum í 30 stiga hita
og sól með fulla tösku af ull til að
kynna myndina, því meðferðis höfð-
um við 150 prjónaða ullarborða með
nafni myndarinnar, sem prjónaðir
voru á Íslandi. Við fengum heima-
menn til liðs við okkur til að skapa
ullargraff fyrir framan kvikmynda-
húsin, þar sem myndin var sýnd,“
segir Þórður Bragi. Þau Millard
skrifuðu nýverið undir samning við
BOND/360 um dreifingu myndar-
innar í Bandaríkjunum.
„Margir dreifingaraðilar þar ytra
höfðu áhuga á að taka myndina upp á
sína arma, meðal annars hið risa-
vaxna Weinstein Company,“ segir
Þórður Bragi og bendir á að afar
sjaldgæft sé að íslenskar heimildar-
myndir fari í dreifingu í Bandaríkj-
unum og því verði það að teljast mik-
ill heiður fyrir Compass Films að svo
stór dreifingarfyritæki sýni Garni
þennan mikla áhuga. „Forsvars-
menn BOND/360 höfðu strax sam-
band við okkur eftir að hafa séð
stiklu úr myndinni á Facebook og
óskuðu eftir því að dreifa henni,“
segir Þórður Bragi og tekur fram að
orðspor og árangur fyrirtækisins sé
afar góður þegar komi að markaðs-
setningu. „Yarn verður sýnd í kvik-
myndahúsum bæði í Evrópu og m.a.
í New York og Los Angeles í Banda-
ríkjunum, á stafrænum dreifiveitum
og í skólakerfinu sem fræðsluefni á
næstu mánuðum ásamt því að rata á
fleiri kvikmyndahátíðir, sem ég get
því miður enn ekki nefnt á nafn þar
sem verið er að ganga frá samn-
ingum,“ segir Þórður Bragi og bend-
ir á að Yarn sé jafnframt væntanleg
á DVD í Bandaríkjunum í haust, en
myndin er tæplega 80 mínútur að
lengd. Spurður hvenær íslenskir
áhorfendur fái að sjá myndina segist
Þórður Bragi binda vonir við að það
verði síðar á þessu ári.
Endalausir möguleikar garns
Um tilurð myndarinnar segir
Þórður Bragi að Millard og Krishan
Arora, handritshöfundur myndar-
innar, hafi fengið hugmyndina þegar
þau hittust á Nordisk Panorama fyr-
ir tæpum fjórum árum. „Þau voru að
tala um bresku sjónvarpsbökunar-
keppnina The Great British Bake
Off og veltu fyrir sér hvaða heimilis-
iðnaður myndi næst slá í gegn hjá al-
menningi og þeim datt strax í hug
„Þetta er femínísk
mynd um garn“
Heimildarmynd sem beinir sjónum að handverki kvenna
Hafmeyja Á Havaí sendir pólska listakonan Olek hafmeyju af stað í undir-
djúpin til að vekja athygli á stöðu heimshafanna í heimildarmyndinni Garn.
Meðleikstjóri Þórður Bragi Jóns-
son með unga ullaruppsprettu.
vegar telja þau að
brjóta þurfi upp
heldur hvimleitt
hegðunarmynstur
hans sem ein-
kennist af tölvu-
leikjum, netflakki
og klámáhorfi.
Hann hefur lítil
samskipti við
jafnaldra sína eða fólk yfirhöfuð, hef-
ur lengi verið á jaðrinum félagslega,
hann hefur engan áhuga á námi og
máttlausar tilraunir foreldra hans til
að brjóta upp mynstrið eru dæmdar
til að mistakast, enda vandinn stærri
en svo að leysa megi hann með því að
banna honum að fara á netið í hálfan
dag.
Í sveitinni má Sölvi hvorki hafa
síma né tölvu og til að gera upplif-
unina enn forneskjulegri sefur hann í
unglingaherbergi pabba síns sem er
eins og að ferðast með tímavél til
1985 þegar Morgan Kane voru vin-
sælustu bækurnar, plaköt með Jóni
Páli prýddu veggi og Tígulgosinn var
það dónalegasta sem borið gat fyrir
augu unglings. Lífshættirnir í sveit-
inni eru býsna frumstæðir að mati
unglingsins sem rappar um sína
fyrstu upplifun (eins og hann gerir
reglulega í gegnum bókina):
Ég þrái snúrur og rafmagn og
Margar bækur hafa veriðskrifaðar um óþekkakrakka sem eru sendirút í sveit þar sem þeir
anda að sér ómenguðu sveitalofti og
verja deginum við bústörf og strit. Í
bókarlok hefur sá óþekki séð villu
síns vegar og snýr til síns heima sem
nýr og breyttur einstaklingur sem
verður dugandi þjóðfélagsþegn.
Hljómar vissulega frekar gamaldags
og einmitt þess vegna er hressandi að
lesa nýja unglingabók þar sem þessi
forskrift er nútímavædd, því það er
ekkert gamaldags við Sölvasögu ung-
lings!
Aðalpersónan, Sölvi, sem var að
klára 10. bekk, er sendur austur á
land til ömmu sinnar sem hann hefur
haft takmörkuð kynni af fram að því.
Annars vegar þurfa foreldrar hans að
vinna fjarri heimilinu því redda þarf
heimilisfjárhagnum í skyndi, hins
Ég þrái snúrur
og rafmagn og …
Unglingabók
Sölvasaga unglings Eftir Arnar Má Arngrímsson.
Sögur 2015. Innbundin 255 bls.
ANNA LILJA
ÞÓRISDÓTTIR
BÆKUR
UMBOÐSAÐILI:
www.danco.is
Sölustaðir:
Fjarðarkaup, Byko, apótek, Fríhöfnin,
og öllum helstu leikfangaverslunum um land allt
eru komnir aftur
Vinsælu
Aðeins 2 mínútur í örbylgjuofni og
þeir verða mjúkir, hlýir og
dásamlegir að kúra með.
Þeir eru fylltir með hirsi og
ilma af smá lavander.
www.smarativoli.is / Sími 534 1900 / Smáralind
SKEMMTUN FYRIR ALLA!
HÓPEFLI
FÁÐU TILBOÐ FYRIR ÞINN HÓP
bokanir@smarativoli.is eða í síma 534 1900