Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.1997, Page 8

Víkurfréttir - 18.12.1997, Page 8
sjorinn Mekka köfunar Köfunarskóli íslands var stofn- aður í Keflavík í sumar. Ein helsta driffjöður skólans er Tómas Knútsson en hans helsta áhuga- mál er sportköfun. A fimm mánuðum hefur skólinn útskrifað fimmtán nemendur en í samtali við blaðið sagði Tómas að mark- miðið hefði verið að útskrifa 25 nemendur á fyrsta árinu. „Það mun takast, því nú eru tíu nem- endur að læra köfun á ýmsum stigum við skólann. En hvers vegna köfunarskóli í Keflavík? Tómas sagði að hann væri að koma til móts við kröfur nútímans. Þá spillti ekki fyrir að mekka köfunar við ísland væri í Garðsjónum og raunar væri öll ströndin með Reykjanesi kjörin til köfunar. Garðsjórinn væri hins vegar í sérflokki þar sem þar væri allt það lífríki sem hægt væri að finna við ísland og þá væru þar jafnframt skipsflök og munir sem áhugavert væri að skoða. Nú geta nemendur við Fjölbrauta- skóla Suðumesja haft köfun sem eitt af valfögum sínum og fengið átta einingar með því að læra að verða sportköfunarkennarar. Tómas Knútsson lætur sér ekki nægja að kafa við Islandsstrendur því í janúar er hann að fara utan með stóran hóp nemenda sinna til Bahamas þar sem tekið hefur verið á leigu köfunarskip í heila viku. Til að fjármagna ferðina hefa nemendur Sportköfunarskóla Islands ákveðið að bjóða til sölu akkeri sem eru hluti af útgerðar- sögu Keflavíkur og hafa verið notuð sem bólfæri. scndir ölliun /cIíiíjmiiöiiiiiiiii vi!iiini 11 iiíj11cilíir óskir fim íjlcöilcíj jólr ÍJOll OÍJ /íiisícII nríl íir. Köfunarskipid Bottom Time II sem Köfunarskóli íslands hefur tekið á leigu á Bahamas. Myndir: Tómas Knútsson JOLABLAÐ Víkuifréttii'

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.