Víkurfréttir - 18.12.1997, Síða 12
Vinningshafar í jólaglaðningi sparisjóðanna
Valdimar Birgisson og Kristín Gyða Njálsdóttir eru vinningshafar í
Jólaglaðningaleik sparisjóðanna og Alþjóða lífti'yggingafélagsins.
Vinningurinn sem þau Valdimar og Kristín fengu var sá að
sparisjóðimir greiða fyrir þau alla reikninga desembermánaðar sem
þau greiða í Greiðsluþjónustunni. Allir viðskiptavinir Sparisjóðsins
sem eru meðlimir í Greiðsluþjónustu Sparisjóðsins og eru með
líftryggingu frá Alþjóða líftiyggingafélaginu vom sjálfkrafa þátttak-
endur í jólapottinum. A myndinni eru f.v. Páll Jónsson,
sparisjóðsstjóri, Daði Friðriksson frá Alþjóða líftryggingafélaginu,
Ema Amadóttir, þjónustustjóri og þau Kristín og Valdimar.
1/iðskiptafræðingur-
Endurskoðandi
Varnarliðið - Laust starf
Stjórnsýsluskrifstofa Varnarlidsins á
Keflavíkurflugvelli óskar að ráða starfs-
mann í fast starf. Á skrifstofunni starfa
sex einstaklingar.
Starfið felur í sér eftirlit með fram-
kvæmd á hinum margvíslegu reglu-
gerðum sem í gildi eru hverju sinni,
bæði á stjórnunar- og fjármálasviði.
Starfsmanni er ætlað að gera tillögur
sem gætu leitt til
umbóta, auk þess að semja skýrslur á
ensku. Starfsmaður er ábyrgur fyrir
gerð, umsjón og eftirliti með þjón-
ustusamningum milli stofnana
Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.
Menntun og reynsla:
Æskileg menntun er endurskoðun
eða viðskiptafræði auk mjög góðrar
enskukunnáttu, bæði á talað
mál og ritað.
Þekking á íslensku launakerfi ásamt
lögum og reglum er varða íslenskan
launamarkað er nauðsynleg, ásamt
notkun tölva og algengustu forrita
fyrir Windows.
Umsækjandi þarf að vera mjög ná-
kvæmur, hafa góða skipulagshæfileika
og eiga auðvelt með að umgangast fólk.
Samstarfsaðilar eru bæði Islendingar
og Bandaríkjamenn.
Þar sem starfið er mjög umfangsmikið
og krefjandi og hér að framan aðeins
tekið fram það helsta, er nauðsynlegt að
væntanlegir umsækjendur lesi starfs-
lýsingu sem liggur frammi hjá
ráðningardeild varnarmálaskrifstofu að
Brekkustíg 39, Njarðvík.
Umsóknir skulu berast til ráðningar-
deildar varnarmálaskrifstofu, Brekku-
stíg 39, Njarðvík, sími: 421-1973, ekki
síðar en þriðjudaginn 6. janúar n.k.
Öllum umsóknum verður
svarað skriflega.
Nýja bíó í Keflavík í smíðum árið 1947
Nýja Bíó 50 ára
-bíómiðinn á 50
Kvikmyndahúsið Nýja bíó
fagnar 50 ára starfsafmæli
sínu um þessar mundir og af
því tilefni mun bíómiðinn
kosta 50 kr. á öllum
sýningum bíósins nk. laugar-
dag.
Nýja bíó var byggt árið 1947
og stóð E.O. Asberg kaup-
maður fyrir byggingu þess.
Hann var forstjóri félagsins
sem nefnt var Nýja bíó. Eig-
andi þess í dag er Ami Samú-
elsson sem rekur Sambíóhús-
in í Reykjavík. Eiginkona
hans er Guðný Ásberg og er
hún dóttir E.O. Ásberg.
Davíð Jónatansson er rekstr-
kr. á laugardaginn
arstjóri Nýja bíós og hefur
hann lagt áherslu á forsýning-
ar ntynda á sama tíma og í
Reykjavík. Allt húsnæði kvik-
myndahússins hefur verið
tekið í gegn og er von á nýju
hljóðkerfi á næstunni. Húsið
var klætt að utan á síðasta ári
og að sögn Daníels verður
lokið við að klæða bakhliðina
á næstunni.
Aðsókn á sýningar hefur auk-
ist hægt og bítandi að sögn
Daníels og er það von hans að
Suðumesjamenn haldi áfram
að sækja Nýja bíó næstu 50
árin.
Sossa a
forsíðunni
Forsíðumynd Jólablaðs
Víkurfrétta er eftir Sossu,
listamann Reykjanesbæjar
1997. Myndin heitir
„Vitringar".
Víkurás að opna
ári eftir brunann
Trésmiðjan Víkurás við Iða-
velli í Keflavík opnar form-
lega að nýju 29. des. nk.
nákvæmlega ári frá stórbruna
sem varð í verksmiðjuhúsinu
sama dag í fyrra. Verður opið
hús af þvf tilefni sunnudaginn
28. des. kl. 13-17 og bæjar-
búum boðið að koma að
skoða verksmiðjuna.
SAMEININGAR ER EKKIÞORFIVOGUM TIL AÐ
STANDA UNDIR REKSTRIOG FJÁRFESTINGUM
Athugasemdir við grein Guðmundar Sigurðssonar í síðasta tölublaði Víkurfrétta
í grein sinni ræðir Guðmundur
um nauðsyn sameiningar m.a. á
þeim forsendum, að hann
efaðist um að Vogar gætu staðið
undir rekstri og ijárfestingum
undanfarinna ára og vitnaði
sérstaklega í byggingu leik-
skóla, íþróttamiðstöðvar og nú
tvöföldum gmnnskólans.
Það er rétt að mikið hefur verið
framkvæmt á undanfömum 7
ámm og þjónustan við íbúana
aukin vemlega. Hins vegar er
alrangt að sameiningar sé þörf
vegna mikilla fjárfestinga og
þvf síður vegna rekstursins.
Síðastliðin ár hefur rekstur
hreppsins verið með þeim
hagstæðustu á landinu, ef
miðað er við skatttekjur á fbúa.
Rekstur sveitarfélaga á
Suðumesjum s.l. 4 ár var að
meðaltali 79% af skatttekjum
og á landinu öllu 82%. í
Vatnsleysustrandarhreppi var
þetta hlutfall aðeins 66%. Þrátt
fyrir það bjóðum við íbúum
okkar upp á sambærilega
þjónustu og önnur sveitarfélög
á Suðumesjum. T.d. bjóðum við
vistun á leikskóla fyrir böm frá
eins árs aldri.
Vegna þess hve rekstur okkar er
haghvæmur er gott svigrúm til
fjárfestinga og til greiðslu
skulda. Þegar íþróttamiðstöðin
varbyggð 1993, heyrðust
efasemdaraddir um að sveitar-
félagið réði við íjárfestinguna
og því síður reksturinn. Aftur á
móti sýndi 4ra ára rekstrar-
áætlun með óyggjandi hætti að
óhætt væri að ráðast í
framkvæmdina. Nú 4 ámm
seinna hefur meirhluti lána
vegna Iþróttamiðstöðvar verið
greidd upp og sveitarfélagið
töluvert undir landsmeðaltali í
rekstrarkosmaði.
Við tvöföldun gmnnskólans
eykst rekstrarkostnaður
hreppsins urn 2% af skatt-
tekjum og verður greiðslu-
byrgði lána mun minni en þegar
Iþróttamiðstöðin var byggð.
Landslagsarkitektar hafa unnið
að umhverfishönnun fyrir Voga
s.l. hálft ár og munu skila
skýrslu í janúar n.k. Lögð
verður áhersla á fjölskylduvænt
umhverfi þ.s. leiksvæði, göngu-
stígar, götur og gangstéttar em
efst á biaði. Strax á næsta ári
verður hafist handa við
ffamkvæmdir.
Böm í Vogum hafa sama rétt og
önnur böm á Suðumesjum
varðandi tónlistarkennslu.
Sveitarfélagið er með samning
við tónlistaskólann í Njarðvík
sem sinnir þeim bömum sem
óska eftir tónlistarkennslu.
Aftur á móti bjóðum við ekki
upp á strætisvagnaferðir. Þegar
viðbygging gmnnskólans hefur
verið tekin í gagnið, aukast
möguleikar á því að bjóða tón-
listarkennslu í skólanum.
Unglingar sem sækja skóla í
Reykjanesbæ njóta sömu
þjónustu og unglingar frá
öðrum sveitarfélögum á
Suðumesjum, þ.e. þeim er ekið
í og frá skóla.
Að lokum vil ég árétta
rangfærslur sem fram komu í
Víkurfréttum 4. desember s.l.,
varðandi Hafnarsamlag
Suðumesja. Þar er haft eftir
Guðmundi að samlagið hafi
lagt til 30 miiljónir við
sameininguna, þ.a. 15 milljónir
til greiðslu skuldarog 15
milljónir í framkvæmdir.
Hið rétta er: Við sameiningu
hafnanna yfirtók
Hafnarsamlagið eignir og
skuldir, þaraf 15 milljón króna
skuld hafnarinnar. Viðgerð á
hafhargarðinum í Vogum sem
kostaði 15 milljónir, varekki
greidd af Hafnarsamlaginu,
nema að 10% hluta, 90 %
kostnaðar er greiddur af rík-
isvaldinu. Þessi framkvæmd
hefur verið á hafnaráætlun í
mörg ár og aðstoðuðu þing-
menn kjördæmisins við að ná
henni í gegn.
Að lokum, Vatnsleysu-
strandarhreppur er í engu sam-
starfi á Suðumesjum varðandi
vegamál.
Sveitarstjóri
Vatnsleysustrandarhrepps
Jóhanna Revnisdóttir.
JOLABLAÐ
Víkurfréttir